Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1996, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ1996
Áttunda dauðsfallið í mótmælasvelti tyrkneskra fanga:
Yfirvöld hóta föng
unum aðgerðum
Mótmælasvelti tyrkneskra fanga
varð áttunda fórnarlambinu að
bana í gær þegar 22 ára kvenmaður
í vinstrisinnuðum samtökum lést í
fangelsi. Sveltið hefur nú staðið í 69
daga og nær til um 300 fanga, aðal-
lega vinstrisinna sem eru í haldi
vegna stjórnmálaskoðana sinna.
Þeir krefjast umtalsverðra bóta á
aðbúnaðinum í tyrkneskum fangels-
um og lokunar eins fangelsis sem
þykir alræmt fyrir harðræði. Talið
er að fangamir séu einnig í hefndar-
aðgerðum gegn lögreglunni sem far-
ið hefur ómjúkum höndum um
vinstrisinna.
Ekki er útlit fyrir að mótmæla-
sveltið taki enda á næstunni og
eykst spennan vegna þess með degi
hveijum. Tyrknesk yfirvöld hóta að-
gerðum hætti fangamir ekki svelt-
inu en útlista ekki í hverju slíkar
aðgerðir gætu falist.
Mörg Evrópuriki hafa brugðist
hart við og hvetja Tyrki til að hefja
tafarlaust umbætur í fangelsum
landsins. Tcdsmaður Evrópusam-
bandsins hvatti Tansu Ciller, utan-
ríkisráðherra Tyrkja, til að gera allt
sem í hennar valdi stæði til að
hindra fleiri dauðsfoil. Vora þau
hvatningarorð túlkuð sem áminn-
ing til Tyrkja um að standa við lof-
orð um að bæta ástand mannrétt-
inda í landinu sem var gefið í
tengslum við ábatasama tollasamn-
inga við Evrópusambandið.
Sósíalískir þingmenn Evrópu-
þingsins hótuðu að skera á fjárhags-
aðstoð Evrópusambandsins til
Tyrkja á næsta ári og franska utan-
ríkisráðuneytið ráðlagði Tyrkjum
að fara samningaleiðina. ítalir
hvöttu til tafarlausrar lausnar máls-
ins, að öðram kosti gæti það haft al-
varlegar afleiðingar á tengsl Tyrkja
við Evrópusambandið. Þjóðverjar
hvöttu einnig ákaft til bóta í tyrk-
neskum fangelsum en eldsprengjum
var kastað á fyrirtæki Tyrkja í
Þýskalandi fjórðu nóttina í röð.
Víða í Evrópu hófu brottfluttir
Tyrkir samúðarsvelti til styrktar
málstað fanganna. Reuter
Um 20 Tyrkir settust að í höfuðstöðvum sósíaldemókrata í Bern í Sviss og kröfðust bætts aðbúnaðar fyrir fanga í
tyrkneskum fangelsum. Símamynd Reuter
Grunur um sprengingu í TWA-vélinni verður áleitnari:
Fundu tvo hreyfla vél-
arinnar á hafsbotni
stuttar fréttir
Áhlaup í Sri Lanka
Herinn í Sri Lanka gerði áhlaup
I á búðir skæruliða og neyddi al-
þjóðlegar hjálparsveitir og
óbreytta borgara á flótta.
Námuverkamenn hóta
Rússneskir námuverkamenn í
| Vladivostok, sem hafa verið í verk-
falli í 13 daga vegna ógreiddra
; launa, hótuðu víðtækum aðgerð-
um.
Fyrirskipaði leit
Benjamin
Netanyahu,
forsætisráð-
herra ísraels,
Ifyrirskipaði
umfangsmikla
leit að skæru-
liöum araba
sem taldir eru
standa á bak við morð á óbreyttum
borgara í ísrael, því fyrsta eftir að
hann komst til valda.
Hóta stríði
Hútúmenn í Búrúndi hafa hafn-
að loforði um að koma lýðræði á í
1 landinu að nýju. Hafa þeir hótað
ji skæruhernaði í höfðuborginni. Ótt-
ast menn nýja ógnaröld með fjölda-
i morðum.
Vöidu að berjast
Sveitir Rússa og Tsjetsjena
hundsuðu samningaumleitanir og
áttu í hörðum bardögum um yfir-
j; ráð yfir þorpi.
K
Mannskæð flóð
Flóð í Bangladess og Indlandi
II síðastliðnar tvær vikur hafa orðið
að minsta kosti 250 manns að bana.
B
Horfa til skattalækkana
Margir
repúblikanar
binda vonir við
| að skattalækk-
unarstefna
Bobs Doles
; hjálpi honum
!að ná kjöri sem
forseti Banda-
ríkjanna í nóvember.
Börðust gegn flóðum
Lögreglumenn og óbreyttir borg-
1 arar i Kína börðust hetjulegri bar-
[í áttu gegn flóðahættu í miklum
>, rigningum. Þá bjuggu yfirvöld í
Kína og á Taívan sig undir komu
I fellibylsins Gloríu sem skildi eftir
sig mikla eyðileggingu og 20 látna
á á Filippseyjum.
Vill endurkjör
Ion Iliescu, forseti Rúmeníu,
[ ætlar að fara fram á endurkjör í
1 kosingum í nóvember.
Fríhöfnum lokað
Evrópusambandiö hefúr sam-
þykkt að loka fríhöfnum fyrir far-
I þega sem ferðast milli landa innan
| bandalagsins. Fríhafnimar mót-
mæla, segjast útvega 100 þúsund
störf, en neytendasamtök fagna þar
sem viðskiptavinir séu oftar en
ekki blekktir. Reuter
Kauphallir:
Uppsveifla
í Tokyo
Töluverð uppsveifla hefur verið
undanfarna daga á verðbréfamark-
aðinum í Tokyo sem jafnaði út þá
niðursveiflu sem markaðurinn lenti
í í byrjun vikunnar. Verðbréfasalar
í Tokyo efast þó um að batinn haldi
áfram. Tölvufyrirtækið IBM til-
kynnti í lok vikunnar að hagnaður
fyrirtækisins hefði ekki minnkað
eins mikið og ráð var fyrir gert og
markaðurinn brást við með því að
snúa við niðursveiflu sem hefur
verið ríkjandi undanfarið. Dow Jo-
nes vísitalan komst í 5.422,01 á
föstudag.
Hang Seng verðbréfavísitalan í
Hong Kong hefur lækkað um 140
stig þessa vikuna og eru margir
fjárfestar óvissir um að batinn sem
hefur orðið í Wall Street haldi
áfram. -JHÞ/Byggt á Cnnfn
Leitarmenn hafa fundið tvo
hreyfla TWA-vélarinnar sem fórst
undan Long Island í Bandaríkj-
unum í síðustu viku. Getur þessi
fundur skipt sköpum varöandi þá
spumingu hvort sprengja grandaði
vélinni og sendi 230 manns rakleitt
í dauðann.
í gær höfðu 138 lík fundist og ver-
ið flutt á land. Á sama tíma veltu
sérfræðingar fyrir sér sérkennilegu
hljóði í flugrita vélarinnar en hann
fannst á miðvikudag. Sérfræðin-
garnir fullyrða að burtséð frá því
hvað hafi gerst um borð í vélinni
áður en hún hrapaði sé víst að það
hafi gerst fyrirvaralaust. Það bendi
óneitanlega til að sprengja hafi
grandað vélinni.
Var reynt að bera hið sérkenni-
lega hljóð í flugritanum, sem varði í
hálfa aðra sekúndu, saman við
hljóðin sem bárust frá flugrita Pan
Am vélarinnar sem sprengd var í
loftinu yfir Lockerbie á Skotlandi
1988. í báðum tilvikum var um eðli-
legar samræður í flugstjórnarklef-
anum að ræða, allt þar til undarlegt
hljóð heyrðist og allt varð hljótt.
Hreyflamir sem fundust i gær
vega hvor um sig 3-4 tonn og líður
einhver tími þar til hægt verður að
lyfta þeim úr sjónum. í gærdag var
ekki vitað nákvæmlega í hvaða
ástandi hreyflarnir væru eða hvort
útlit þeirra gæfi vísbendingar um
sprengingu. En þótt hreyflunum
verði ekki strax lyft úr hafinu verða
þeir rannsakaðir á staðnum. Er því
vonast til að svör um orsök slyssins
liggi fljótlega fyrir.
Reuter
2
í
1
*
:
£
1
k,
Segja vitni
Ijúga um
stríðsglæpi
Verjandi Bosníu-Serbans Dus-
ans Tadics við stríðsglæpadóm-
stólinn í Haag heldur því fram að
múslímsk vitni, sem sluppu lif-
andi úr Omarska-fangabúðunum,
hafi logið til um meinta stríðs-
glæpi hans, vitnisburður þeirra
sé tómur tilbúningur og til þess
eins að koma fram hefndum gegn
honum og Bosníu- Serbum.
Tadic, sem er 40 ára, er ákærö-
ur fyrir morð, nauðganir og pynt-
ingar í þjóðernishreinsunum
Serba í norðvesturhluta Bosníu
1992. Tadic, sem er tveggja barna
faðir og karatekennari, neitar að
hafa nokkurn tíma verið í um-
ræddum fangabúðum. Málaferlin
yfir honum hófust í byrjun maí
og vara væntanlega marga mán-
uði enn.
Verjandinn efast um að eitt að-
alvitnið hafi getað borið kennsl á
Tadic rétt áður en einn fanganna
var neyddur til að bíta eistun af
samfanga sínum. En vitnið er
visst í sinni sök og segir Tadic
hafa tilheyrt herflokki sem gekk
undir nafninu Hinir lituðu og all-
ir óttuðust, einnig fangaverðirn-
ir. Munu þeir hafa komið reglu-
lega til fangabúðanna til þess
eins að pynta og drepa fanga.
Fölsun krítar-
korta upprætt
Lögreglan í Suður-Kína hefur
upprætt eina umfangsmestu krít-
arkortafólsun landsins. I yfirlýs-
ingu frá krítarkortafyrirtækinu
MasterCard segir að lögregla hafi
ráðist til atlögu gegn krítarkorta-
verksmiðju í borginni Gu-
angzhou, skammt frá landamær-
um Hong Kong. Gerði lögregla
um 10 þúsund fölsuð krítarkort
upptæk og yfir 30 þúsund falsað-
ar þrívíddarmyndir sem tryggja
eiga að kortin séu ekta. I yfirlýs-
ingu frá fyrirtækinu segir að um
meiri háttar sigur fyrir rafræna
greiðslumiðlun sé að ræða.
Hundrað ítalsk-
ar konur vilja
fósturvísa
Eitt hundrað ítalskar konur
hafa gefið sig fram í von um að fá
hluta af þeim fósturvísum sem
eru í frysti í Bretlandi og eytt
verður í næstu viku. Rómversk-
kaþólskur hópur, sem berst gegn
fóstureyðingum, kom óskum
kvennanna á framfæri. Talsmað-
ur hópsins sagði að umsóknir um
fósturvísa streymdu inn trá kon-
um á öllum aldri, þar á meðal
tveimur nunnum.
Rúmlega 3.300 fósturvísar, sem
nú era í frysti, verða eyðilagðir
31. júlí í samræmi við lög sem
segja að ekki megi geyma fóstur-
vísa í meira en fimm ár nema
meö samþykki viðkomandi for-
eldra.
Italskur læknir, tengdur bar-
áttuhópnum, segir að ítölskum
sljórnvöldum beri að þrýsta á
Breta til að koma i veg fyrir
fjöldamorð.
Gaf nýra og sá
sjálfur um
ígræðsluna
Þýskur læknir, Jochen Heuer,
hefur vakið athygli heima fyrir
eftir vel heppnaða nýrnaskipta-
aðgerð. Það sem gerir aðgerðina
óvenjulega er að það var sjálfur
læknirinn sem gaf nýrað. Hann
segir að sú hugmynd hafi vaknað
eftir samræður við starfsfélaga
sína þar sem fram kom að lækn-
ar eigi einungis að koma með til-
lögur til sjúklinga sinna sem þeir
geti sjálfir fallist á. Bæði nýma-
gjafi og nýrnaþegi hafa það gott
en hafa ekki myndað sérstök vin-
áttutengsl. Vildi læknirinn halda
nafni sínu leyndu til að byrja
með. Reuter