Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1996, Blaðsíða 7
J! V LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 1996
fréttir
Formaöur Alþýöuflokksfélags Hafnarfjaröar:
Engin spurning að
Jóhann á að víkja
„Mér finnst ekki spurning að Jó-
hann á að víkja. Við verðum ekki
með í næstu kosningum ef menn
ætla að haga sér svona. Við getum
ekki tekið ábyrgð á gjörðum Jó-
hanns Bergþórssonar. Dómur er
fallinn og menn verða að spyrja sig
þessarar siðferðilegu spurningar.
Þau símtöl sem ég hef fengið benda
eindregið til að kjósendur í Hafnar-
firði vilji slíta samstarfinu," sagði
Magnús Hafsteinsson, formaður
Húsavík:
Geysileg
fjölgun
í hvala-
skoðunar-
ferðum
DV, Akureyri:
„Það hefur gengið mjög vel hjá
okkur í sumar. Ferðirnar eru orðn-
ar yfir 100 talsins síðan í maí og um-
talsverð fjölgun farþega," segir
Hörður Sigurbjarnarson sem stend-
ur ásamt fleiri að hvalaskoðunar-
ferðum frá Húsavík.
í ferðimar er farið á Knerrinum
sem er 33 ára gamalt tréskip, smíð-
að á Akureyri en hefur verið endur-
nýjað þannig að það er sem nýtt og
ákaflega vandað.
„Við getum tekið 44 farþega í
hverri ferð og erum í þrjá tíma. Við
förum yfir að Kinnarfjöllum og það
bregst ekki að við sjáum einhverjar
tegundir hvala í hverri einustu ferð.
Þeir sem koma í þessar ferðir eru
bæði útlendingar og íslendingar og
það gleðilega er að um 25% aukning
er á því að íslendingar sigli með
okkur, miðað við siðasta ár,“ segir
Hörður.
Þeir á Knerrinum fara þrjár ferð-
ir á dag, kl. 9.30, kl. 13 og kvöldferð
kl. 20. Verðið er 2.500 krónur fyrir
fullorðna og eru veitingar innifald-
Húsbóndinn á Stekk, Erlingur Hann-
esson. DV-mynd ÆMK
Stekkurtekur
stakkaskiptum
DV, Suðurnesjum:
„Við erum alltaf að bæta aðstöð-
una við tjaldsvæðið sem er orðið
eitt það glæsilegasta á landinu. Við
erum að snyrta umhverfið og setja
upp huggulegan skjólvegg.
Þá ætlum við að gróðursetja tré
og þegar því er lokið verður afar
glæsilegt að líta yfir svæðið,“ sagði
Erlingur Hannesson, rekstraraðili
tjaldsvæðisins Stekks í Njarðvík,
sem er í eigu Reykjanesbæjar. Hann
hefur rekið svæðið undanfarin fjög-
ur ár.
„Það er búið að vera ágætt að
gera en mætti þó vera meira. Við
höfum upp á ýmislegt að bjóða sem
ferðamenn þurfa á að halda," sagði
Erlingur. -ÆMK
stjórnar Alþýðuflokksfélags Hafnar-
fjarðar, sem samþykkti samhljóða í
fyrrakvöld að óska þess við stjórn
fulltrúaráðs alþýðuflokksfélaganna
í bænum að þegar í stað verði boð-
að til fundar í fulltrúaráðinu vegna
refsidóms yfir Jóhanni Bergþórs-
syni.
Jóna Ósk Guðjónsdóttir, formað-
ur fulltrúaráðsins, sagði við DV að
hún ætlaðist til þess að Alþýðu-
flokkurinn stæði við það samkomu-
lag sem gert var við sjálfstæðis-
mennina Jóhann Bergþórsson og
Ellert Borgar Þorvaldsson um
meirihlutasamstarf á síðasta ári
auk þess sem meirihluti sé ekki fall-
inn þótt Jóhann víki.
„Ég er ekki tilbúin að hlaupa frá
hlutunum ókláruðum. Menn vissu
nákvæmlega hvað þeir voru að fara
út í fyrir ári, samþykktin á þeim
tíma var líka í fulltrúaráðinu,“
sagði Jóna Ósk. -Ótt
Höröur og Heimir sonur hans um borö í Knerrinum, hvalaskoðunarskipinu
sem gert er út frá Húsavík. DV-mynd gk
LykiUinn að sögu
og sétkennum landsins
(
island er meira en narmd eitt
Aukin og endurbætt útgáfa með sérstakri leiðsögn
um Reykjavík, en óbreytt verð kr. 2.980,-
ISLENSKA.
BÓKAÚTGÁFAN
Síðumúla 11 - Sími 581 3999
FRÓÐLEIKUR - FERÐAGLEÐI - fARARHEILL
KENWOOD
kraftur, gϚi, ending
Stefnu m ót
við ísland
Njóttu þess að dvelja á Hótel Eddu í sumar og eigðu stefnu-
mót við landið þitt í hlýlegu og heimilislegu umhverfi. Boðið
er upp á fjölbreyttar veitingar frá morgni til kvölds þar sem
veittur er sérstakur barnaafsláttur. Hægt er að velja milli
gistingar í uppbúnum herbergjum eða svefnpokaplássi.
( næsta nágrenni hótelanna eru ótal möguleikar á skemmti-
legri útivist þar sem öll fjölskyldan getur fundið eitthvað við
sitt hæfi.
Fimmta nóttin er frí!
5 Ef dvalið er í uppbúnu herbergi í fjórar nætur
l á Hótel Eddu í sumar er fimmta nóttin án
l endurgjalds sem jafngildir 20% afslætti af
! hverri gistinótt. Tilboðið gildir út árið 1996.
Ferðaskrifstofa Islands • Skógarhlíð 18 • 101 Reykjavík • Sími 562 3300
Heimaslða: httpV/www.arctic.is/itb/edda