Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1996, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 1996 JL>V
Það er kominn dagur hjá mér,
þó klukkan sé bara rúmlega sex,
og nótt hjá mörgum enn þá. Ég gef
kettinum og hundinum, gleymi
sjálfri mér og borða ekki morgun-
mat fyrr en um sjöleytið í vinn-
unni. í Húsdýragarðinum eru
morgunverkin í föstum skorðum,
mitt svæði er hesthús og fjárhús
þessa vikuna en þar er orðið frem-
ur tómlegt því sumarleyfl dýranna
eru hafin og megnið af íbúum
hússins nýtur frelsisins í Þerney.
Ég lít líka inn til andar- og gæsar-
unganna sem til okkar hafa borist
í sumar, býð þeim góðan dag, við
miklar undirtektir, og gef þeim að
borða. Þá fer ég að selalauginni
þar sem hinn víðfrægi afrækti kóp-
ur svamlar. Sú stutta virðist bara
kunna vel við sig með fjölskyld-
unni en hún lætur alveg vita ef
hinir koma of nálægt og fær ekki
háa einkunn fyrir geðslag og hátt-
vísi. Hún tekur mér hins vegar
fagnandi, enda maginn farinn að
segja til sín og hún sporðrennir
ótrúlegu magni af niðurbitaðri sild
og loðnu. Ég spjalla svolítið við
hana á meðan hún étur, enginn
veit hvað hún skilur mikið af því
Margrét Halldórsdóttir, húsdýrahiröir í Húsdýragaröinum, á oft annasama daga.
óvenju óþægar og stríðnar og
hlaupa stóran hring í garðinum.
Eftir verðlaunaspretti, hróp og köll
tekst okkur þó að leiðrétta þær og
koma þeim inn þar sem ilmandi
taðan bíður þeirra. Andarungarn-
ir, sem við fóstrum, eru úti á dag-
inn en þeir stærstu fá að vera úti
allan sólarhringinn. Þeir litlu eru
orðnir ansi æfðir í að sleppa frá
okkur en allt hefst þetta þó að lok-
um. Minum vinnudegi er lokið,
klukkan orðin fimm og tími til að
halda heim á leið. Ég er varla dott-
in inn úr dyrunum heima hjá mér
þegar síminn glymur, það er móð-
ir mín að spyrja frétta af „ömmu-
barninu", kópnum. Við spjöhum
dágóða stund og eftir símtalið hef
ég mig af stað upp að Gunnars-
hólma þar sem við hjónaleysin
erum með tvo hesta. Við ætlum að
hittast þar og skreppa í reiðtúr.
Ein skeifa er dottin undan en þeg-
ar því er reddað og við komin í
hnakkinn hverfur öll þreyta hvers-
dagsleikans, fákamir geysast
áfram og við forum smáhring í
Heiðmörkinni. Kvöldmaturinn er
borðaður um tíuleytið og er í létt-
ara lagi. Sonja vinkona mín hring-
Dagur í lífi Margrétar Daggar Halldórsdóttur húsdýrahirðis:
Sumarleyfi aýranna hafin
sem ég er að hjala en stundum
horfir hún í augun á mér og kurr-
ar eitthvað á móti; við erum
greinilega sammála. Ég finn fyrir
stolti yfir því að við skulum hafa
bjargað þessu litla greyi, þó útlitið
hafi oft verið ansi svart. En með
seiglunni hafðist það og þessi litla
urta virðist ætla að hafa það af.
Eftir þessa máltíð fer ég að þrífa
hjá svínunum og þar er hvorki
hjal né kurr heldur öskur og há-
værir kveinstafir yfir hverju sem
verða vill. Að þessum verkum
loknum er farið í kaffi og mikið
skeggrætt um nýafstaðið fjórð-
ungsmót hestamanna. En ekki
dugir að sitja of lengi, hin
æsispennandi skrifstofustörf bíða
mín. Ég hringi vestur á land og
fala hyrnda kú af bónda þar. Sá
tekur vel í erindi mitt, ætlar að-
eins að athuga málið og ég á að
hringja aftur eftir nokkra daga.
Næst hringi ég til að panta pláss
fyrir eina hryssuna okkar undir
stóðhest og spjalla því næst við
ráðsmanninn í Þemey til að vita
um líðan dýranna þar. Daglega
hringir fjöldi manns sem er með
alls kyns unga og ýmis villt dýr í
hremmingum. Svo er einnig í dag
og ég reyni að leiðbeina fólki eftir
bestu getu um meðferð dýranna en
flestir koma þó með dýrin hingað
til okkar og við geram fyrir þau
það sem við getum. Ég reyni afltaf
að gera fólki grein fyrir því að alls
ekki má taka egg úr hreiðri og
unga á aldrei að taka nema vera
þess fuflviss að hann sé yfirgefinn
eða móðirin dáin. Náttúran verður
að fá að hafa sinn gang og maður-
inn er ekki óumdeflanlega í rétti i
gjörðum sínum þar. Yfirleitt tekur
fólk athugasemdum mínum vel og
stundum er hægt að „skila“ dýrinu
aftur til heimkynnanna.
Að vanda er glatt á hjalla í há-
deginu enda sumarstarfsfólkið
geislandi af orku og lífsgleði sem
og annað starfsfólk. Ýmis skot
tjúka en allt þó í góðu. Við forum
yfir verkefni dagsins, bæði liðin og
komandi, og eftir hádegið gerum
við út leiðangur til að sækja fóður,
bæði handa loðdýrum og selum.
Hringt er neðan úr bæ og látið vita
af látinni ungamömmu. Ungamir
hennar eru mávunum auðveld
bráð og því þjótum við af stað
þeim til bjargar. En krílin eru ekki
á þvi að láta bjarga sér og eftir
mikinn eltingaleik höldum við
heim með einn unga af sex í
farteskinu. Hinum óskum við alls
hins besta í baráttunni við nátt-
úruöflin. Ég hringi svo í dýra-
lækni til að fá upplýsingar um
ýmsa hluti og gefa honum stöðuna
með litla kópinn. Hann gleðst yfir
þeim góðu fréttum að kópurinn sé
að braggast og ætlar að líta til okk-
ar fljótlega. Seinnipartinn fer svo
allt á fullt við að gefa dýrunum og
koma þeim inn. Geiturnar eru
ir að spyrja frétta af hrossasölu,
hún veit af manni sem vantar hest
og ég er með tvo til sölu. Fundi er
komið á daginn eftir og við spjöll-
um í framhaldi um heima og
geima, aðallega um hross og tamn-
ingar, kynbótagripi og fjórðungs-
mótið. Þegar við loksins getum
stoppað okkur af er komið langt
fram yfir háttatíma hjá mér. Mér
verður litið á reglugerðina um líf-
rænan landbúnað sem er á nátt-
borðinu hjá mér og hugsa eitt and-
artak um að lesa svolítið í henni
en mér er á augabragði svipt inn í
draumalandið og þau áform að
engu gerð.
-em
Finnur þu fimm breytingar? 369
Nafn: _
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð sextugustu og
sjöundu getraun reyndust vera:
1. Sigríður Erla Jónsdóttir 2. Ásthildur Ólafsdóttir
Höfðabraut 2 Haukanesi 19
300 Akranes 210 Garðabær
Myndiraar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í Ijós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
SHARP vasadiskó með útvarpi, að
verðmæti kr. 7.100, frá Bræðrunum
Ormsson, Lágmúla 8, Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur, að verðmæti kr.
1.790. Annars vegar James Bond-bókin
Gullauga eða Goldeneye eftir John
Gardner og hins vegar bók Luzanne
North, Fín og rík og liðin lík.
Vinningamir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 369
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík