Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1996, Side 19
X>"V LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 1996
Meirihlutasamstarfið í bæjarstjórn Hafnarfjarðar riðar til falls:
Alþýðuflokksmenn hræddir
við almenningsálitið
- eftir dóminn yfir Jóhanni Bergþórssyni, samstarfsmanni þeirra í bæjarstjórninni
Peir eru mátar Ingvar Viktorsson, oddviti krata í Hafnarfiröi, og Jóhann Bergþórsson. Hér ræöa þeir saman þegar
þreifingar þeirra á milli um meirihlutamyndun í bæjarstjórn Hafnarfjaröar voru að hefjast. DV-mynd BG
Enn verður Jóhann Bergþórsson,
vandræðabarnið í hafnfirskum
stjórnmálum, valdur að uppnámi í
meirihlutasamstarfi í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar. Dómur sem hann
hlaut í vikunni, fyrir fjárdrátt, veld-
ur því að meirihlutasamstarfið í
bænum riðar til falls. Það var Jó-
hann sem varð valdur að því að
meirihlutasamstarfi Alþýðubanda-
lagsins og Sjálfstæðisflokksins, sem
hófst eftir síðustu bæjarstjórnar-
kosningar, var slitið eftir eitt ár. Þá
mynduðu hann og Ellert Borgar
Þorvaldsson meirihluta með kröt-
um. Það samstarf hefur staðið í eitt
ár og er nú í hættu.
Almenningsálitið
„Ég vil að þetta mál verði skoðað
vel. Ég tel að flokkurinn verði að
skerpa ásýnd sína betur en hann
hefur gert undanfarið," sagði Guð-
mundur Árni Stefánsson, alþingis-
maður og varaformaður Alþýðu-
flokksins og foringi krata í Hafnar-
firði, í samtali við DV um þá stöðu
sem nú er komin upp í meirihluta-
samstarfinu í Hafnarfirði. Hann
sagði jafnframt að margir kratar í
Hafnarfirði væru þeirrar skoðunar
að taka ætti núverandi meirihluta-
samstarf í bæjarstjórn til endur-
skoðunar, eftir dóminn yfir Jó-
hanni.
Einn af gömlu „eðalkrötunum" í
Hafnarfirði sagði í samtali við mig
um málið að það væri alveg á
hreinu að meirihluti þeirra sem
réðu flokknum í Hafnarfirði vildi
slita samstarfinu. Hann sagði að
kratar óttuðust almenningsálitið ef
þeir héldu samstarfinu áfram. Þeir
óttist að andstæðingar þeirra muni
núa þeim þvi um nasir að vinna
með manni sem hlotið hafi dóm fyr-
ir fjárdrátt. Hann sagði að það væri
helst Ingvar Viktorsson bæjarstjóri
sem vildi halda samstarfinu áfram,
enda væri þeim vel til vina, honum
og Jóhanni Bergþórssyni.
Magnús Jón Árnason, foringi Al-
þýðubandalagsins í Hafnarfirði og
fyrrum bæjarstjóri, segir að fjöl-
margir kratar hafi rætt við sig og
hvatt til þess að samstarf A-flokka í
bæjarstjóm verði tekið upp.
Þetta bendir til þess að kratar í
Hafnarfirði óttist þetta mál. Þeir
eru hræddir um að verða tengdir
máli Jóhanns haldi þeir áfram sam-
starfinu við hann. Þess vegna er
ekki ótrúlegt að þriðja meirihluta-
myndunin í bæjarstjórn Hafnar-
Qarðar á rúmum tveimur árum sé á
næsta leiti.
Jóhann á móti
Strax eftir bæjarstjórnarkosning-
arnar vorið 1994 gengu Sjálfstæðis-
flokkur og Alþýðubandalag til
meirihlutamyndunar í bæjarstjóm
Hafnarfjarðar. Því var haldið fram
að Lúðvík Geirsson, bæjarfulltrúi
Alþýðubandalagsins, og Magnús
Gunnarsson, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins, hefðu verið búnir að
binda þetta fastmælum fyrir bæjar-
stjórnarkosningarnar félli meiri-
hluti krata i bænum. Hann féll og
þeir hófu samstarf.
Strax við meirihlutamyndunina
urðu feiknarleg átök innan Sjálf-
stæðisflokksins í Hafnarfirði. Jó-
hann Bergþórsson lagðist af alefli
gegn því að samstarfið kæmist á.
Um tima var talið að hann myndi
kljúfa sig út úr Sjálfstæðisflokknum
og ganga til meirihlutasamstarfs við
Alþýðuflokkinn. Vitað var að hann
vildi samstarf við hann en ekki Al-
þýðubandalagið. Hann féllst samt að
lokum á samstarf með Alþýðu-
bandalaginu en með semingi þó. Því
var haldið fram að gulrótin hefði
verið loforð um að hann fengi bæj-
arverkfræðingsstarfíð í Hafnarfirði.
Þvi var haldið fram opinberlega
að Jóhann hefði í fyrsta lagi verið
óánægður með að vinna með Al-
þýðubandalaginu. í öðru lagi var
honum illa við að sjá Magnús Gunn-
arsson sem oddvita Sjálfstæðis-
flokksins í meirihlutasamstarfi.
Magnús hafði sigrað Jóhann óvænt
í prófkjöri flokksins og Jóhann átti
bágt með að komast yfir það. í
þriðja lagi höfðu kratar, þegar þeir
voru í meirihluta í Hafnarfirði, gert
mikið fyrir Jóhann og Hagvirki-
Klett og því vildi Jóhann starfa með
þeim.
Strax
í stjórnarandstöðu
Strax í upphafi samstarfs Sjálf-
stæðisflokksins og Alþýðubanda-
lagsins vorið 1994 var ákveðið að
láta gera úttekt á fjármálum bæjar-
ins. Jóhanni var illa við þetta þar
sem viðskipti Hagvirkis-Kletts við
Hafnarfjarðarbæ í tíð krata hlytu að
koma þar fram. Það vildu hvorki
hann né kratarnir.
Það varð strax ljóst að Jóhann
Bergþórsson var í raun í stjórnar-
andstöðu. Hann var með yfirlýsing-
ar og strögl út árið. Hann hótaði síð-
an að leggja fram breytingartillögur
Fréttaljós á
laugardegi
Sigurdór Sigurdórsson
við fjárhagsáætlun meirihlutans í
ársbyrjun 1995. Þeim breytingartil-
lögum hefði hann getað komið í
Jóhann Bergþórsson greiöir at-
kvæöi gegn félögum sínum í bæjar-
stjórn Hafnarfjaröar 1995.
DV-mynd BG
gegn með samvinnu við krata. Hann
lét þó ekki verða af þessu. Mikil
fundahöld og samningatilraunir
voru um þetta mál innan Sjálfstæð-
isflokksins. Jóhann hélt uppi harðri
stjórnarandstöðu. Honum var boðin
bæjarverkfræðingsstaðan til loka
kjörtímabilsins ef það mætti verða
til þess að hann léti af andstöðunni
en ekkert gekk.
Þórarinn Jón Magnússon, form-
aður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokks-
ins í Hafnarfirði, sagði í samtali við
DV eftir margra daga samningavið-
ræður við Jóhann um að hann léti
af andstöðu sinni:
„Það var velt upp öllum hugsan-
legum og óhugsanlegum möguleik-
um. Jóhann sýndi mjög skýrt að það
væri enginn flötur á málinu sem
hann gæti fallist á tU sátta . . .“
Þetta var 9. janúar.
Kratar byrja
Strax daginn eftir lýstu alþýðu-
flokksmenn í Hafnarfirði því yfir að
meirihluti Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðuflokks væri fallinn. Þeir sögðu
um leið að það væri skylda krata að
mynda meirihluta. Og þá strax fóru
þeir í viðræður við Jóhann.
Enda þótt kratamir og Jóhann
Bergþórsson gætu myndað meiri-
hluta þótti það ekki gerlegt þegar tU
kastanna kom vegna þess að ef Jó-
hann hefði eitthvað forfaUast kæmi
varamaður úr röðum Sjálfstæðis-
flokksins inn fyrir hann. Samt var
reynt og mikið gekk á.
Jóhann í frí
Meirihlutinn leitaði eftir rann-
sókn og úrskurði félagsmálaráðu-
neytisins á viðskiptum Hagvirkis-
Kletts og fyrrum meirihluta krata.
Bak við tjöldin náðist samkomulag
við Jóhann að hann viki úr bæjar-
stjórn meðan á þeirri rannsókn
stæði. Því var haldið fram í fjölmiðl-
um að honum hefði verið lofað for-
stjórastól hjá íslenskum aðalverk-
tökum. Fyrir það þrætti Jóhann og
sagðist bara vera að fara í stutt frí
til að skrifa bók. Hann var í fríi
fram í marslok, hann vann að bók
og Þorgils Óttar Mathiesen tók sæti
hans í bæjarstjórn
Jóhann
snýr aftur
En Jóhann sneri aftur í bæjar-
stjórnina og lýsti því yfir í viðtali
við DV að hann væri óhress með
mörg atriði varðandi stjórn bæjar-
ins. Hann sagðist þó ekki eiga von á
að fara í viðræður við kratana.
En það var samt enginn friður og
næstu mánuði logaði allt í illdeilum
milli Jóhanns og félaga hans í Sjálf-
stæðisflokknum i Hafnarfirði. Má
segja að meirihlutasamstarfið hafi
lifað frá degi til dags.
Upp úr sauð og lýst var yfir fuU-
um klofningi í röðum sjálfstæðis-
manna í Hafnarfirði í byrjun maí.
Þá höfðu þeir EUert Borgar og
Magnús Kjartansson, bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins, greitt Jóhanni
atkvæði í stöðu forstöðumanns
framkvæmda- og tæknisviðs, í and-
stöðu við Magnús Gunnarsson, odd-
vita flokksins, og hans menn. Næstu
vikurnar var allt í uppnámi og
meirihlutasamstarfið í reynd búið
að vera.
Nýr meirihluti
verður til
Jóhann Bergþórsson fékk félaga
sinn úr Sjálfstæðisflokknum og bæj-
arfulltrúa, Ellert Borgar Þorvalds-
son, til liðs við sig til að mynda nýj-
an meirihluta i bæjarstjórn með Al-
þýðuUokknum. Kratar voru ólmir
að komast í meirihlutasamstarf,
meðal annars vegna þeirrar rann-
sóknar á fjárreiðum bæjarins frá
þeirra meirihlutatíð sem þá stóð
yfir. Þar voru ýmis atriði sem þeir
vildu ekki að kæmu í umræðuna.
Það tók stuttan tíma að koma á
meirihlutasamstarfi krata, Jóhanns
og Ellerts Borgars. Jóhann hafði
sagt opinberlega, þegar þreifingar
hans og krata áttu sér stað, í árs-
byrjun að hann myndi aldrei sætta
sig við annað en hlutlausan bæjar-
stjóra. Hann bakkaði með það og
Ingvar Viktorsson, oddviti krata,
varð hæjarstjóri þegar nýi meiri-
hlutinn tók við í júlí 1995.
Og nú ári síðar riðar þessi meiri-
hluti til falls vegna þess að Jóhann
Bergþórsson hefur hlotið 12 mánaða
skilorðsbundinn fangelsisdóm og 4
milljónir í sekt fyrir fjárdrátt. Það
mun skýrast á allra næstu dögum
hvort kratarnir slíta samstarfinu og
taka upp meirihlutasamstarf við Al-
þýðubandalag eða þann hluta sjálf-
stæðismanna sem nú er í stjórnar-
andstöðu í bæjarstjórninni.