Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1996, Side 44
'■k n
Góöur vinur, enski bridgemeist-
arinn Irving Rose, dó fyrir skömmu
úr hjartaslagi á heimili sínu í S-Afr-
íku, 58 ára að aldri.
Rose var náttúruspilari og sérlega
erfiður andstæðingur og um tíma
var hann fastur maður í landsliði
Englendinga. Síðasta afrek hans í
landsliði Englendinga voru silfur-
verðlaunin á Evrópumótinu 1981.
Þótt Rose væri þekktur sem
bridgemeistari og landsliðsmaður
var hann þekktari sem klúbbstjóri
um 30 ára skeið í öllum frægari
spilaklúbbum í London. Þar var
hann á heimavelli, spilaði rúbertu-
bridge, lagði mikið undir og hafði
oftast betur. Hins vegar leiddist
hann út í önnur áhættuspil þar sem
hæfileikar hans nutu sín síður.
Síðustu árin í Englandi stjómaði
Rose TGR-bridgeklúbbnum sem svo
var nefndur af eigendum eftir nýja
stjórnandanum, „the great Rose“.
Rose var Skoti, fæddur í Glasgow
árið 1938, sonur eins af bestu bridge-
spilurum Skotlands, Louis Rose.
Ég og Rose vorum oftar en ekki
andstæðingar við bridgeborðið er
við spiluðum í landsliðum þjóða
okkar og síðast á Ólympíumótinu í
Monte Carlo 1976 en gegnum árin
vorum við oft spilafélagar í þeim
mörgu bridgeklúbbum sem hann
stjómaði.
Rose spilaði síðast opinberlega í
Macallan Sunday Times tvímenn-
ingskeppninni í janúar 1996 þar sem
TIL LEIGU
Til leigu 120 m2mjög gott húsnæði við Smiðjuveg 11, Kópavogi.
Hentugt fyrir lítið fyrirtæki, arkitekta eða verkfræðinga.
Timbur og stál ehf.
Sími: 564 2940
Smáauglýsingadeild DV er opin:
• virka daga kl, 9-22
• laugardaga kl. 9-14
• sunnudaga kl. 16-22
Tekið er á móti
smáauglýsingum
til kl. 22 til birtingar
nœsta dag
Ath.
Smáauglýsing í
Helgarblað DV
þarf þó að berast
okkur fyrir kl. 17
á föstudag
o\\t milfi himinx
%
Smáauglýsingar
550 5000
Varnarliðið - laust starf
Tölvumaður á vél- og hugbúnaðarsviði
hjá Tómstundastofnun Flotastöðvar varnarliðsins
Tónstimdastofnun vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli óskar að ráða
tölvunar- eða kerfisfræðing til staría.
Starfið felur í sér að viðhalda og setja upp nýjan vél- og hugbúnað
í tölvukeríi stofnunarinnar en þar er um að ræða Nivell nettengd
kerfi sem tengjast afgreiðslukössum í hinum ýmsu deildum stofn-
unarinnar. Staríið felur einnig í sér tillögur þar um ef þurfa þykir.
Starfið felur einnig í sér þjálfun starfsfólks sem m.a. tengist nýjung-
um sem teknar eru í notkun.
Kröfur:
Umsækjandi sé tölvunar- eða kerfisfræðingur með sem víðtækasta
reynslu á sviði vélbúnaðar og hugbúnaðar, sérstaklega fyrir netkerfi.
Þarf að geta unnið sjálfstætt og eiga gott með samskipti við annað
fólk sem er stór hluti starfsins.
Mjög góðrar enskukunnáttu er krafist, bæði á talað mál og skrifað
Skriílegar umsóknir á ensku berist til Vamarmálaskrifstofu utan-
ríkisráðuneytis, ráðningardeild, Brekkustíg 39, 260 Reykjanesbæ,
eigi síðar en 8. ágúst 1996.
Starfslýsing liggur frammi á sama stað og er nauðsynlegt að
væntanlegir umsækjendur lesi hana áður en þeir sækja um
þar sem að ofan er aðeins stiklað á stóru um eðli og ábyrgð
starfsins.
eingöngu úrvals bridgemeisturum
er boðin þátttaka.
Á Ólympíumótinu 1976 var annar
kunnur bridge-meistari makker
hans, Jeremy Flint. Við skulum
skoða eitt spil þeirra félaga frá
þessu merka móti en þar lentu Eng-
lendinar í þriðja sæti.
A/Allir
* Á654 W G872 * 10852 * 10 ♦ DG72 4» ÁK106 + ÁD96 ♦ K
N V A S
* K108 D943 + G * ÁG743
* 93
5
* K743
* D98652
Flint og Rose voru n-s gegn ísrael-
unum, Romik og Lev a-v. Sagnimar
voru stuttar en áhrifaríkar :
Austur Suður Vestur Norður
pass pass pass 2 tíglar
pass 2 grönd pass 4 tíglar
pass 6 hjörtu pass pass
Fjórir tíglar sýndu
4-4-4-1 og 17-20 HP.
Vestur spilaði út spaðaás og meiri
spaða. Rose drap heima, spilaði
tígulgosa á ás og trompaði tígul. Síð-
an tók hann trompdrottningu, fór
inn á laufkóng og trompaði tígul. Nú
kom laufás, vestur kastaði tígultíu
og Rose kastaði siðasta tíglinum úr
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
blindum. Síðan spilaði hann hjarta
og svínaði tíunni. Þar með var slem-
man unnin því Rose hafði réttilega
fundið út að skipting vesturs væri 4-
4-4-1.
Stórmeistaraslagur
á stórmóti í Novgorod
- útlit fyrir sviptingar á þingi FIDE í haust
Skammt er liðið frá skákhátíð-
inni i Dortmund í Þýskalandi og
stórmótinu i Dos Hermanas á Spáni,
sem taldist til 19. styrkleikaflokks
FIDE en betur skipuð gerast mótin
hreinlega ekki. En nú er enn eitt
stórmótið hafið, sem fram fer í
Novgorod í Rússlandi. Það telst
einnig til 19. styrkleikaflokks FIDE
en keppendur eru aðeins sex. Þeirra
á meðal er Vladimir Kramnik - sig-
urvegarinn í Dos Hermanas og
Dortmund. Fróðlegt verður að fylg-
ast meö frammistöðu hans og hvort
honum tekst í þriðja sinn að hrista
erfiða mótherjana af sér. Ljóst er að
lokaumferðimar verða spennandi,
því að eftir fyrri hluta keppninnar
geta allir sigrað.
í Novgorod tefla auk Kramniks,
Nigel Short (Englandi), Vassily
Ivantsjúk (Úkraínu), Boris Gelfand
(Hvíta-Rússlandi), Veselin Topalov
(Búlgaríu) og Judit Polgar (Ung-
verjalandi). Topalov stendur best að
vígi, hefur hlotið 3 vinninga úr 5
skákum. Næstir koma Short,
Kramnik og Ivantsjúk, allir með 2,5
Skák
Jón L Ámason
vinninga en Judit Polgar rekur lest-
ina með 2 vinninga. Judit fékk mót-
byr í fyrstu umferðunum en bætti
stöðu sína með því að leggja Ivant-
sjúk að velli í 5. umferð. Keppendur
tefla tvisvar við hvem hinna og lýk-
ur keppninni síðasta dag júlímánað-
ar.
Kramnik varð að sætta sig við
ósigur gegn Ivantsjúk í 2. umferð.
Þetta var mikilvægur sigur fyrir
Ivantsjúk, sem fyrir eigi svo löngu
var gjaman nefndur „krónprins-
inn“. í huga flestra hefur Kramnik,
sem talinn er líklegastur arftaki
Kasparovs, tekið við nafhbótinni.
Gamli krónprinsinn er greinilega
ekki búinn að syngja sitt síðasta.
Hvítt: Vassily Ivantsjúk
Svart: Vladimir Kramnik
Slavnesk vöm.
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 RfB 4.
Rf3 e6 5. Bg5 h6 6. Bxf6 Dxf6 7. e3
Rd7 8. Bd3 dxc4 9. Bxc4 g6 10. 0-
0 Bg7 11. Hcl 0-0 12. Hel De7 13.
e4 Hd8 14. e5 b6
í stað 14. -b5 sem reynt hefur ver-
ið áður. Svarta staðan er þröng en
nokkuð traust. Hins vegar á hann
enn eftir að jafna taflið fyllilega.
15. De2 Hb8 16. Bd3 Bb7 17.
Be4 Rf8 18. g3 Hbc8 19. a3 Hc7 20.
Hedl c5 21. Bxb7 Hxb7
Ætlun Ivantsjúks er að svara 22.
-cxd4 með 23. Rxd4 og ef 23. -Bxe5,
þá 24. Rc6 Hxdl+ 25. Dxdl Dc7 26.
Rd8! Dd7 27. Rxb7 og vinnur skipta-
mun fyrir peð með vinningsmögu-
leikum.
23. dxc5 Hxdl 24. Hxdl bxc5
25. h4 Rd7 26. Rd6 Rb6?!
E.t.v. var 25. leikur hvíts ekki
sem nákvæmastur, því að nú hefði
svartur með 26. -Hc6, sem hótar 27.
-Rxe5! farið langt með að jafna taf-
lið.
27. Rd2!
Sterkur leikur sem undirbýr að
koma riddaranum í ákjósanlega
stöðu og treysta stöðuna með £2-f4.
27. -Hd7 28. f4 Hxd6
Að öðrum kosti ætti svartur
dapra framtíð, með biskupinn múr-
aðan inni á g7 og veikleika á c5. En
skiptamunarfómin nægir trauðla til
þess að halda í horflnu.
29. exd6 Dxd6 30. Re4 Dc6 31.
Hd8+ Kh7 32. h5 Dc7?!
Betra er 32. -Bd4+ 33. Kh2 Rd5.
33. hxg6+ fxg6 34. Hd6 Bd4+ 35.
Kh2 Rd5 36. Hxe6 Db7 37. Dg4
Re7 38. Rd6 Dd7 39. De2 Rg8 40.
De4 Bf6
- Kramnik gafst upp um leið, án
þess að bíða eftir 41. Re8!, eða ein-
faldlega 41. b3. Svarta staðan er töp-
uð.
Einar S. í framboði
Útlit er fyrir að sviptingar verði á
þingi FIDE sem fram fer samhliða
Ólympíuskákmótinu í Armeníu í
haust enda hefur verið mikil óá-
nægja með störf núverandi forseta
sambandsins, Kirsans Iljumsinovs.
Fulltrúar vestrænna skáksambanda
og fleiri þinguðu í Hollandi um síð-
ustu helgi og hafa nú stillt upp öfl-
ugum framboðslista til forseta- og
stjómarkjörs. Forsetaefni hópsins
er brasilíski stórmeistarinn og
verkfræðingurinn Jaime Sunye-
Neto, sem er 39 ára gamall. Einar S.
Einarsson er í 2. sæti á listanum,
sem staðgengill forseta, en aðrir em
Tabbane frá Túnis, Ditt, Þýskalandi,
Doyle, Bandaríkjunum, Makarov,
Rússlandi, Omuku, Nígeríu og
Loewenthal, Hollandi.
Hópurinn hefur sent frá sér yfir-
lýsingu þar sem segir að markmið
hans sé að endumýja orðstír og álit
FIDE meðal skáksambanda, skák-
manna, mótshaldara og styrkarað-
ila, sem alþjóðleg og lýðræðisleg
samtök. Ætlun þeirra er að sinna
jafnt þeim skákmönnum sem em í
fararbroddi, sem og útbreiðslu skák-
listarinnar.
Þá hyggur Frakkinn Kouatly á
framboð til forseta og heyrst hefur
að hann hyggist fá Karpov til liðs
við sig í hlutverk staðgengils for-
seta. Sá hængur er á að rússneska
skáksambandið þarf að útnefna
Karpov sem fulltrúa sinn en þar er
Makarov í fararbroddi sem jafn-
framt er á lista Einars og félaga.