Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1996, Qupperneq 47
LAUGARDAGUR 27. JULI 1996
afmæli
Sigurður Örlygsson
Sigurður Örlygsson
myndlistarmaður,
Skerplugötu 5, Reykja-
vík, verður fimmtugur á
morgun.
Starfsferill
Sigurður fæddist í
Reykjavík og ólst þar
upp í Hafrafelli við
Múlaveg í Laugardaln-
um. Hann stundaði nám
við Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands
1967-71, við Konunglega listaháskól-
ann í Kaupmannahöfn hjá Richard
Mortensen 1971-72 og við Art Stu-
dents League í New York 1974-75.
Sigurður var kennari á Egilsstöð-
um og Eiðum 1973-74 og hefur verið
kennari við Myndlista- og handíða-
skóla íslands með hléum frá 1980.
Hann hefur haldið mikinn fjölda
einkasýninga frá 1971 og tekið þátt í
fjölda samsýninga hér heima og
víða erlendis. Hann hlaut Menning-
arverðlaun DV 1989 fyrir myndlist.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 29.8. 1985 Ing-
veldi Róbertsdóttur, f. 30.5. 1953,
þýðanda og húsmóður. Foreldrar
Ingveldar eru Róbert Gestsson, mál-
ari í Reykjavík, og k.h., Ing-
veldur Einarsdóttir hús-
móðir.
Börn Sigurðar og Ing-
veldar eru Unnur Malín, f.
17.2.1984; Þorvaldur Kári, f.
3.3. 1985; Amljótur, f. 20.11.
1987; Gylfi, f. 17.9.1990; Val-
gerður, f. 14.9. 1992.
Dóttir Sigurðar frá því
áður er Theódóra Svala, f.
6.3. 1978.
Stjúpdóttir Sigurðar er
Ingveldur Steinunn Ing-
veldardóttir, f. 6.9. 1975.
Systir Sigurðar er Malin, f. 17.4.
1950, fatahönnuður og kaupmaður í
Reykjavík.
Foreldrar Sigurðar eru Örlygur
Sigurðsson, f. 13.2. 1920, listmálari í
Reykjavík, og k.h., Unnur Eiríks-
dóttir, f. 3.6. 1920, kaupmaður.
Ætt
Örlygur er sonur Sigurðar, skóla-
meistara á Akureyri, Guðmundsson-
ar, b. í Mjóadal, Erlendssonar, dbrm
í Tungunesi, Pálmasonar, bróður
Jóns, afa Jóns á Akri, Jóns Leifs,
Jóns Kaldals ljósmyndara og Jóns
Jónssonar, alþm. í Stóradal. Móðir
Guðmundar var Elisabet Þorleifs-
dóttir ríka í Stóradal Þorkelssonar
og Ingibjargar Guðmundsdóttur, b. í
Stóradal, Jónsdóttur, ættföður
Skeggsstaðaættarinnar Jónssonar.
Móðir Sigurðar var Ingibjörg Sig-
urðardóttir, b. á Reykjum á Reykja-
braut, Sigurðssonar, b. á Brekku I
Þingi, Jónssonar, bróður Ólafs, lang-
afa Sigurðar Nordals og Jónasar
Kristjánssonar læknis, afa Jónasar
Kristjánssonar ritstjóra.
Móðir Örlygs var Halldóra Ólafs-
dóttir, prests í Kálfholti, Finnsson-
ar, b. á Meðalfelli, bróður Páls,
langafa Þorsteins Thorarensens rit-
höfundar. Finnur var sonur Einars,
prests á Reynivöllum, Pálssonar,
bróður Björns, langafa Baldvins,
föður Bjöms Th. Bjömssonar. Móð-
ir Finns var Ragnhildur Magnús-
dóttir, lögmanns á Meðalfelli, Ólafs-
sonar, bróður Eggerts skálds. Móðir
Ragnhildar var Ragnheiður Finns-
dóttir, biskups í Skálholti, Jónsson-
ar. Móðir Ólafs í Kálfholti var Krist-
ín, systir Hans, langafa Ögmundar
Jónassonar. Kristín var dóttir Stef-
áns Stephensens, prests á Reynivöll-
um, Stefánssonar Stephensens, amt-
manns á Hvítárvöllum, Ólafssonar í
Viðey, ættföður Stephensættarinn-
ar. Móðir Kristínar var Guðrún,
systir Kristínar, langömmu Elínar,
móður Þorvalds Skúlasonar listmál-
cU'a. Guðrún var dóttir Þorvalds,
prófasts og skálds í Holti, Böðvars-
sonar og Kristínar Björnsdóttur,
systur Elísabetar, ömmu Þórarins B.
Þorlákssonar listmálara.
Unnur er dóttir Eiríks, raffræð-
ings og kaupmanns í Reykjavík,
bróður Malínar, forstjóra Prjóna-
stofunnar Malín. Bróðir Eiríks var
Gamalíel, afi Jóns Þórs Hannesson-
ar, framkvæmdastjóra Saga film.
Hálfsystir Eiríks var Sigrún, amma
Viðars Eggertssonar, fyrrv. leikhús-
stjóra. Eirikur var sonur Hjartar, b.
á Uppsölum í Svarfaðardal, Guð-
mundssonar, hreppstjóra í Grímsey,
Jónssonar. Móðir Hjartar var Ingi-
björg Jónsdóttir, í Brennisteinshúsi
á Húsavík, Gunnarssonar. Móðir Ei-
ríks var Margrét Prjóna-Eiríksdótt-
ir, b. í Uppsölum, Pálssonar, skálds
i Pottagerði, Þorsteinssonar, b. þar,
Pálssonar, bróður Sveins, læknis og
náttúrufræðings í Vík. Móðir Unnar
var Valgerður Halldórsdóttir Ár-
mann.
Á þessum tímamótum er haldin
yfirlitssýning á verkum Sigurðar í
Listasafni Kópavogs en sýningin
stendur til 12.8. nk.
Sigurður og Ingveldur taka á móti
gestum að heimili sínu laugardag-
inn 27.7. eftir kl. 21.00.
Sigurður Örlygsson.
Sigrún Ragnarsdóttir
Sigrún Ragnarsdóttir húsmóðir,
Sogavegi 120, Reykjavík, verður
fimmtug á morgun.
Starfsferill
Sigrún fæddist í Víkurgerði á Fá-
skrúðsfirði og ólst þar upp við al-
menn sveitastörf og fiskvinnslu og
síldarsöltun frá níu ára aldri. Hún
stundaði nám við Húsmæðraskól-
ann á Hallormsstað 1962-64.
Sigi-ún var á vertíðum I Vest-
mannaeyjum, í Grindavík, Hnifsdal,
Hrísey og hjá Granda, starfaði við
hótelin á Hallormsstað og á Egils-
stöðum, var gangastúlka við Lands-
spítalann, vann við gcsdrykkjaverk-
smiðjuna Sanitas og við Skíðaskál-
ann í Hveradölum í fjölda ára.
Fjölskylda
Sambýlismaður Sigrúnar frá 1984
er Karl Kristján Sigurðsson, f. 13.1.
1935, rennismiður. Hann er sonur
Sigurðar Guðjóns Krist-
jánssonar og Karenar
Kristine Nilsen sem bæði
eru látin.
Systkini Sigrúnar: Sig-
urvin, f. 22.7. 1945, d. 15.7.
1948; Jóhanna, f. 10.5.
1948, húsfreyja á Finns-
stöðum; Gunnar, f. 5.7.
1949, d. 22.9. 1975; Bjami,
f. 27.11. 1950, bílstjóri í
Reykjavík; óskírður
drengur, f. 8.2. 1953, d.
13.2. s.á.; Björgvin, f. 5.5. Si9rún Ragnarsdóttir.
1958, bóndi í Víkurgerði í
Fáskrúðsfirði.
Hálfbróðir Sigrúnar er
Erlingur, f. 28.7. 1943, bú-
ettur á Höfn í Hornafírði.
Foreldrar Sigrúnar:
Ragnar Björgvinsson, f.
28.2. 1915, d. 18.7. 1982,
bóndi í Víkurgerði, og
Elín Bjarnadóttir, f. 14.5.
1922, húsfreyja.
-j-------------
Þórður Oskar Vormsson
Þórður Óskar Vorms-
son, að Brekku í Vogum á
Vatnsleysuströnd verður
sextugur á morgun.
Starfsferill
Þórður fæddist í Grænu-
borg í Vogum og gekk í
barnaskólann að Brunna-
stöðum. Síðar stundaði
hann nám við Stýrimann-
skólann í Reykjavík og
lauk þaðan stýrimanna- póröur Óskar Vorms- Eftir þrjú ár réð
prófi. son_ hann sig á bát úr Vog-
Þórður hóf fjórtán ára um sem Halakotsbræð-
störf á Keflavíkurflug-
velli hjá bandarísku
flugfélagi, American
Overseas Airlines, sem
þá rak völlinn fyrir
Bandaríkjastjórn.
Þurfti hann undanþágu
til að vinna þar svo
ungur. Hann stxmdaði
þar ýmis störf við hót-
elið sem þá var ný-
ur gerðu út. Hann var alls tuttugu
og níu ár á sjó á ýmsum bátum af
Suðurnesjum, þar af ellefu ár sem
stýrimaður. Sl. fjórtán ár hefur
Þórður verið verkamaður á Kefla-
víkurflugvelli. Einnig hefur hann
sótt sjóinn á trillu sem hann á.
Fjölskylda
Þórður kvæntist 25.10. 1969 Helgu
Sigurðardóttur úr Reykjavík, f.
30.10. 1948, húsmóður. Þórður og
Helga slitu samvistum.
Sonur Þórðar og Helgu er Vorm-
ur Þórðarson, f. 19.11. 1969, starfs-
maður hjá DAS, búsettur í Hafnar-
firði, en sambýliskona hans er
Kristín Kolbeinsdóttir úr Hafnar-
firði.
Systur Þórðar, sammæðra: Ragn-
heiður Gróa, f. 18.9. 1922, nú látin;
Guðrún Elísabet, f. 23.2. 1926, nú lát-
in; Dagbjört Jóna Guðmundsdóttir,
f. 11. febr. 1943.
Foreldrar Þórðar voru hjónin
Vormur Oddsson, f. 20.1. 1902, d.
13.10.1941, útgerðarmaður og bóndi,
og Steinþóra Bjarndís Guðmunds-
dóttir, f. 8.12. 1900, d. 31.12. 1950,
húsfreyja.
Áskrifendur fá
aukaafslátt af
smáauglýsingum DV
Smáaugiýsingar
’Viy
#3
4
• . L tvA‘íT'J ’fc /
4% w'-Av
. 3\fc \ > 4
550 5000
m:
Æ Vi Wk
711 hamingju með
afmælið 27. júlí
80 ára
Sólveig Bjarnadóttir,
Hrafnistu við
Kleppsveg, Reykjavík.
70 ára
Árný Guðmundsdóttir,
Hraunbæ 164, Reykjavík.
Einar Guðmundsson,
Nýbýlavegi 82, Kópvogi.
Kristjana S. Markúsdóttir,
Yrsufelli 7, Reykjavík.
Helga Helgadóttir,
Kópavogsbraut 72, Kópavogi.
Kristín Guðvarðardóttir,
Kaplaskjólsvegi 57, Reykjavík.
Sigurveig Jónsdóttir,
Þinghólsbraut 77, Kópavogi.
Richard Richardsson,
Bergþórugötu 17, Reykjavík.
60 ára
Hlíf Samúelsdóttir,
Brekkubæ 33, Reykjavík.
50 ára
Sigríður Gunnarsdóttir,
Eikjuvogi 3, Reykjavík.
Leifur Guðmundsson,
Þórufelli 16, Reykjavík.
Guðrún Bjarnadóttir,
Langeyrarvegi 16,
Hafnarfiröi.
Finnbogi Bjarnason,
Eskiholti 23, Garðabæ.
Danielle Bisch,
Eystra-Hvarfi,
Laugardalshreppi.
Jón Ármann Einarsson,
Grenigrund 13, Akranesi.
Ómar Önfjörð Kjartansson,
Hátúni 10 B, Reykjavík.
Björgvin Jensson,
Hjallagötu 5, Sandgerði.
40 ára
Björgvin R. Kjartansson,
Austurfold 4, Reykjavík.
Elínborg G.
Vilhjálmsdóttir,
Bugðutanga 36, Mosfellsbæ.
Jónas Guðmundsson,
Bifröst, Borgarbyggð.
Kristjana Ólöf Fannberg,
Reykjabyggð 45, Mosfellbæ.
Svanfriður Elin
Jakobsdóttir,
Tjarnarmýri 23,
Seltjarnarnesi.
Vinningshafar í
Maraþonleiknum
laugardaginn 27. júlí.
Eftirtaldir hafa unnið sér
inn fría skráningu í
Reykjavíkurmaraþoninu
þann 18. ágúst nk.
Guðrún Helgadóttir,
Túngötu 2, 640 Húsavík
Elsa Egilsdóttir,
Bústaðavegi 51, 108
Reykjavík
Guðrún Ingibergsdóttir,
Torfufelli 44, 111 Reykjavík
Jenný Magnúsdóttir,
Blöndubakka 6, 109
Reykjavík
Guðbjörg Sigurbj.,
Brennihlíð 4, 550
Sauðárkrókur
Vinningshafar eru
beðnir að hafa samband
við skrifstofu
Reykjavíkurmaraþons.
0^
,RlUS
/?3izina.