Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1996, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1996, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996 7 DV Fréttir Bílastæðasjóður stendur í ströngu: Þriggja króna skuld í lögfræðingsinnheimtu - verður ekki farið í hart, segir framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs „Það hefur eitthvað gerst og það verður kannað hvað það gæti ver- ið,“ segir Stefán Haraldsson fram- kvæmdastjóri Bílastæðasjóðs Reykjavíkur, við DV vegna gíróseð- ils sem lögmannastofa sú, sem inn- heimtir vangoldin aukastöðugjöld, sendi út upp á kr. 3,00 - þrjár krón- ur. Á seðlinum stendur að verði þessi þriggja króna reikningur greiddur eftir að tiltekinn frestur er liðinn megi búast við því að litið verði á greiðsluna sem innborgun, því að aukakostnaður, m.a. vegna upp- boðsaðgerða, hefði getað bæst við upphæðina. Viðtakandi þriggja króna rukk- unarbréfsins hafði reyndar greitt gíróseðil frá Bilastæðasjóði sem hljóðaði upp á 1275 krónur innan til- tekins frests og þegar málið var kannað í tölvu Bílastæðasjóðs í gær kom í ljós að í henni stóð að greidd- ar hefðu verið 1272 krónur og vant- aði þijár krónur upp á fullnaðar- greiðslu. í samtali við DV sagði Stefán Hallgrímsson að þetta væri allsér- kennilegt því að þegar gíróseðlar væru greiddir í banka læsi gjald- keratölvan sjálf gíróseðilinn og sjaldgæft væri að hún læsi aðra tölu en á seðlinum stæði. Innheimtu- kerfi Bílastæðasjóðs væri sjálfvirkt og hefði tölva sjóðsins á sjálfvirkan hátt sent boð um þriggja króna skuldina til lögmannastofunnar sem innheimtir vangreidd aukastöðu- gjöld og tölvan þar greinilega sömu- Vinirnir Ásbjörn Tryggvi og Almar á leið í Barnaskóla Akureyrar. DV-mynd gk Á leið í skólann: Mest gaman í frímínútunum DV, Akureyri: Vinimir Ásbjöm Tryggvi Svein- bjömsson og Almar Þorvaldsson vom heldur betur mannalegir þegar þeir voru á leið í skólann en þeir em í Bamaskóla Akureyrar. Poll- amir em 8 ára og vora því að setj- ast í 3. bekk. Það var lítið mál að fá þá til að halda á skólatöskunum sínum og „sitja fyrir“ og ekki varð þeim held- ur svarafátt þegar þeir voru spurðir hvort það væri gaman að vera komnir i skólann að nýju. „Það er ofsalega gaman, en það er skemmti- legast í frímínútunum," sögðu þeir næstum í kór. íbúðarhús úr rekatimbri DV, Hólmavik: Það orð hefur jafnan farið af íbú- um afskekktra og þá oft harðbýlli héraða að þeir sinni jafnan betur og láti sig meira um varða hlunnindi margs konar en þeir sem í góðsveit- um búa. Um langt árabil hafa íbúar í Ámeshreppi á Ströndum, þeir sem viö sjávarhlunnindi hafa búið, gert sér verðmæti úr meginhluta þess rekatimburs sem sjávarstraumar hafa þar að landi borið, eða allt frá girðingastaumm til vandaðs park- ets til að prýða stássstofur efnabetri höfuðborgarbúa á allra síðustu árum. Á bænum Gjögri var á síðari hluta árs hafm bygging íbúðarhúss sem nær eingöngu er byggt úr rekatimbri af íjörum Ámeshrepps. Húsið er 82 m2 að stærð. Eigandinn, Adolf Thorarensen flugvallarstjóri og bóndi, flutti svo inn í það fullbú- ið fyrri hluta þessa árs. Þetta er annað íbúðarhúsið sem byggt er úr rekatimbri hér í sýslu á fárra ára bili, fyrir nokkmm árum reis hús á bænum Þorpum í Kirkju- bólshreppi sem eingöngu er byggt úr timbri af Þorparekanum. Af því er mikil staðarprýði. -GF leiðis á sjálfvirkan hátt snarlega unum þremur sem vantaði. Stefán harða lögfræðingsinnheimtu út af sent manninum mkkim fyrir krón- sagði það fráleitt að farið yrði út í þessu máli. -SÁ FULL VERSLUN AF NÝJUM VÖRUM úlput 09 \oðhettu. \ ým sum Vandað&r eðaán h\VÍar BVsur,margargeu,'- VerðfráKr.1"0 P\ls,ýmsargerð>n Verð\ráKr.1"° Buxur,margargerð»r. Verð frá Kr. 2"° Kápur, ýmsar ger ' xA frá Kr. Þad borgar sig að kynna sér úrvalid og veröid í verslunarhúsi Quelle. L I S T A KAÖP SÍMI 564 2000 VERSLUNARHÚSIÐ DALVEGI2 - KÓPAVOGI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.