Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1996, Qupperneq 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996
DV
Frábærir
vaktmenn
Ein þakklát hringdi:
Ég kom frá útlöndum á mið-
vikudaginn í síðustu viku og
lenti í vandræðum með bílinn
minn því hann fór ekki í gang.
Ég hafði geymt hann á bílastæð-
inu sem vaktað er við Leifsstöð
allan sólarhringinn og vakt-
mennirnir þar gerðu allt sem
þeir gátu fyrir mig. í gang vildi
bíllinn ekki. Góð ráð voru dýr,
fjölskyldan beið í flughöfninni
og rigningin og rokið gerðu allar
aðstæður enn óyndislegri. Þegar
ég bað mennina um að keyra
mig til baka inn á flughöfn buðu
þeir mér bara að taka fyrir sig
bílaleigubíl og fara með i bæinn.
Ég myndi svo bara skila honum
morguninn eftir. Ég er alsæl
með þessa frábæru menn og
kann þeim bestu þakkir fyrir.
Þeir björguðu mér alveg, ör-
þreyttri eftir 17 tíma flug. Svona
eiga menn að vera.
Örvhentir
í vanda
Örvhentur skrifar:
Ég er sjálfur örvhentur og
finnst eins og alls staðar sé mið-
að við að menn séu rétthentir.
Pennar eru nánast undantekn-
ingarlaust hægra megin á borð-
um og vegna þess að þeir eru
límdir niður er erfitt að nota þá.
Ég er farinn að hafa penna alltaf
meðferðis en mér finnst að menn
mættu hugsa um þetta. Sums
staðar eru bæði pennar hægra
megin og vinstra megin.
Notum
regnhlíf
Steinar Birgisson hringdi:
Mér finnst fólk alltaf vera að
bölsótast út í rigninguna en mér
líður aldrei betur en í rigningu.
Fólk er alltaf á hlaupum undan
dropunum og svo virðist sem
enginn eigi regnhlíf. Hér rignir,
eins og fólk eflaust veit, nokkuð
mikið og því ekki að fá sér regn-
hlíf. Hún gerbreytir öllu þegar
maður er úti í rigningu. Notum
regnhlíf og brosum á móti regn-
inu.
Endurskins-
merkin upp
Stella hrindi:
Mig langar rétt að áminna
unga fólkið um að nota endur-
skinsmerkin nú þegar dimmt er
orðið á kvöldin og enn rökkur
þegar börnin fara i skólann. Það
munar miklu fyrir okkur sem
erum að keyra því við sjáum þau
svo miklum mun fyrr ef þau er
með merkin uppi. Þetta er lífs-
spursmál og foreldi-ar ættu að
brýna þessa hluti fyrir bömun-
um.
Fáránlegar
reglur um
boltann
Rúnar Jónsson hringdi:
Oft hef ég orðið hissa en sjald-
an eins og þegar ég heyrði ástæð-
ur þess að ekki var hægt að sýna
leik úr ensku knattspymunni
beint á RÚV um næstliðna helgi
vegna þess að verið var að leika
í úrslitakeppni fjórðu deildar á
íslandi á sama tíma og leikurinn
á Englandi átti að fara fram.
Þessa skýringu heyrði ég en hef
hvergi séð neitt um þetta á blaði
og nú langar mig til þess að vita
hvort verið getur að þetta sé rétt.
Ef svo er finnst mér reglurnar
vera í meira lagi skrýtnar. Skipt-
ir máli hvort fimmtán áhorfend-
ur koma á leik í fjóröu deild eða
hvort þeir verða bara þrettán
vegna þess að tveir sitja heima
yfir sjónvarpinu? Hvar endar
ruglið?
heimsins
Berglind Marínósdóttir húsmóð-
ir: Nei, ég hef ekkert fundið fyrir
henni.
Börnin snemma í háttinn
Kennari skrifar:
Mér fannst þörf sú áminning sem
við foreldrar fengurn send í ein-
hverju dagblaðanna fyrir helgina
þar sem rætt var um svefn- og mat-
arþörf barnanna okkar. Við full-
orðna fólkið komum okkur upp alls
konar ósiðum, sumum hverjum alls
ekkert svo slæmum að því er okkur
finnst fyrir okkur sjáif en ef þeir
færast yfir á börnin okkar verða
þeir að vondu máli.
Okkur finnst það kannski ekkert
tiltökumál að fara í vinnuna án þess
að fá okkur morgunmat. Við skell-
um kannski í okkur einum kaiffi-
bolla á hlaupum og látum það svo
duga eitthvað fram eftir morgni.
Vitaskuld er þetta mjög slæmt en
við ráðum betur við þetta heldur en
ef við sendum bömin okkar í skól-
ann án þess að þau borði morgun-
mat. Ástæðan fyrir því að enginn
timi gefst til þess að borða er eflaust
víðast hvar sú sama. Við höfum
okkur ekki sjálf á fætur og þess
vegna verða börnin sein fyrir.
Kennarar eru fljótir að koma
auga á þá sem sofa of lítið og borða
of lítið. Það eru oftar en ekki alltaf
sömu krakkarnir sem eru þreyttir,
einbeitingarlausir og sífellt kvart-
andi, þeim sé of heitt eða kalt, þeir
séu þreyttir eða svangir. Allt kemur
'þetta á endanum niður á námsár-
angrinum og það er vitaskuld ekki
gott. Við þyrftum ekki nema eina
viku til þess að koma reglu á hlut-
ina. Þótt við sem eldri erum þurfum
ekki nema fimm til sex tíma svefn
gætu börnin okkar þurft að sofa í
tíu tíma. Höfum það í huga.
Sigfríður Sophusdóttir: Nei, en ég
vona að hún leysist brátt.
Hörður Filipsson, sjálfstæður at-
vinnurekandi: Nei, og það er allt í
lagi. Ég geri aldrei ráð fyrir að
verða veikur.
Eiríkur Þorgeirsson augnlæknir:
Nei, og ég held að hún eigi alveg ör-
ugglega ekki eftir að gera það.
Erla Gísladóttir nemi: Nei, ég hef
engar áhyggjur af henni.
Ingimn Jónsdóttir nemi: Nei, ég
nota heimilislækna bara til að fá
vottorð. Ef eitthvað alvarlegt amar
að þá fer ég til sérfræðinga.
Bandaríkin og Saddam Hussein
Konráð Friðfinnsson skrifar:
Melisa Russo og Julie Lejeune
eru tvær átta ára stúlkur af
belgísku bergi brotnar. Þeirra örlög
voru að lenda í höndum mannræn-
ingja sem beittu þær kynferðislegu
ofbeldi og notuðu þær til að fram-
leiða barnaklám handa sjúkum sál-
um heimsins.
Samkvæmt fregnum létust telp-
urnar vegna matarskorts, lokaðar
inni í kjallarakompu í húsi einu í
Belgiu. Ástæðan var sú að höfuð-
paur ódæðisins, Merch Dutroux, sat
í fangelsi í tvo mánuði fyrir þjófnað.
Er March þessi var látinn laus úr
prísundinni gróf hann lík telpnanna
í garðinum heima hjá sér í skjóli
nætur. Melisa og Julie voru bornar
til grafar 22. ágúst sl. og ríkti þá
þjóðarsorg í Belgíu.
Búið er að handtaka nokkra
menn í Belgíu vegna bamakláms-
málsins og er einn þeirra háttsettur
í belgísku rannsóknarlögreglunni.
Ég heyrði á dögunum að þessir
barnaklámshringir í veröldinni
veltu álíka upphæðum á ári og
vopnasalan og eiturlyfin.
Þessar tölur eru ógnvekjandi, eink-
um fyrir þær sakir að á bak við þær
stendur fólk sem kaupir þennan
óhugnanlega varning til að svala
sinni afar brengluðu kynhvöt og held-
ur starfseminni þar með gangandi.
Eftir þvi sem mér hefur skilist er
þessi óþverri mestanpart seldur á
myndböndum eftir einhverjum neð-
Enn er verið að leita að fórnarlömbum alþjóölegs hrings barnakláms. Mynd-
in er tekin í Belgíu.
anjarðarleiðum sem viðskiptavin-
imir einir vita um. Engir aðrir en
afbrigðilegir menn hafa geð í sér til
að selja slíkan varning, vitandi sem
er að saklaus og varnarlaus böm
em notuð á jafn grimmilegan hátt
og hér um ræðir.
Ég tel að ekki fyrirfinnist margir
menn sem ekki vflji að svona menn
fái langan fangelsisdóm. En þetta
mál er ekkert einfalt. Og hinir seku
em mun fleiri en þeir sem búið er
að handtaka núna. Þeir sem kaupa
svona vöru og þjónustu bera jafn
mikla ábyrgð á sóðaskapnum því ef
enginn kaupir þennan eða hinn
varninginn dettur hann af mark-
aðnum og starfsemin stöðvast sjálf-
krafa.
Menn sem eiga barnaklám í
blaða- eða myndbandsformi á skil-
yrðislaust að dæma.
Bandaríkin eiga mikilla hagsmuna að gæta viö Persaflóann vegna olíu, seg-
ir Skarphéöinn í bréfi sínu. - Myndin er af hernaöarbrölti Bandaríkjamanna
viö Persaflóann.
tveir siðastnefndu hafa veitt glæpa-
hyski griðland og ég er hissa á því
að Bandaríkjamenn skuli ekki hafa
rutt þessum mönnum úr vegi fyrir
löngu síðan. Þeir hafa kallað skort
og örbirgð yfir almenning.
Þeir nota alls um 30 prósent af
olíubirgðum heims en framleiða að-
eins tíu prósent sjálfir. Fleiri ríki
eiga einnig mikilia hagsmuna að
gæta.
Tyrkir hafa sýnt tvískinnungs-
hátt sem veldur Bandaríkjamönn-
um og mörgum öðrum áhyggjum.
Bandaríkin þurfa stuðning sinna
bandamanna til að koma málum á
hreint á þessu svæði. Viðskipta-
þvinganir bitna aðeins á almennum
borgurum.
Skarphéðinn H. Einarsson
skrifar:
Enn hefur Saddam Hussein reitt
Bandaríkjamenn til reiði og hafa
þeir síðarnefndu svarað með sið-
búnum hemaðaraðgerðum. Sagt er
að þeir hafi vitað að írakar myndu
ráðast á Kúrda. Mér finnst þessar
árásir sjálfsagðar og er satt að segja
hissa á því hve mörg ríki em and-
víg þeim. Aðeins Bretar standa þétt
við bakið á Kananum í þessu sem
og öðrum málum. Þeir hafa greini-
lega ekki gleymt þeirri miklu aðstoð
sem þeir fengu í seinni heimsstyrj-
öldinni þegar heiminum stafaði ógn
af glæpamanninum Hitler.
Eins er með Saddam Hussein og
Hitler, Khomeini og Gadaffi. Þeir
Spurningin
Hefur læknadeilan komið
niöur á þér?
Lesendur
Sjúkar sálir