Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1996, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1996, Side 13
ÖV FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1996 menning Mímir fimmtugur IMímir, félag stúdenta í íslensk- um fræðum, á fimmtugsafmæli í ár, og af því tilefni ætla Mímislið- ar að halda mikið málþing um stöðu íslenskra fræða í Háskóla- bíói um helgina. Málþingið hefst kl. 10.30 bæði laugardags- og sunnudagsmorg- un. Alls verða fimm málstofur og í hverri verða haldin fjögur er- indi (um 15 mín. hvert) sem tengj- ast efnislega. Að þeim loknum verða pallborðsumræður. Á svæðinu munu margir sem tengj- ast íslenskum fræðum kynna sig og starfsemi sína, til dæmis bóka- útgáfur og rannsóknarstofnanir. Meðal ræðumanna eru margir kennarar í íslenskum bókmennt- um og málfræði við háskólann og fræðimenn við aðrar stofnanir hans, en auk þess utanhússfólk, kennarar, útgefendur og fræði- menn. Áhugi á íslenskum fræðum hefur sjaldan verið meiri en nú, það sést til dæmis á þátttöku í endurmenntunarnámskeiðum sem tengjast þeim, vinsældum út- varpsþátta um fombókmenntir og áhuga á greininni í Háskóla ís- lands. Hvenær yrkja skáld bestu ástarljóðin? „Ég held að ég gangi í ungdóm með þessari bók,“ segir Nína Björk Ámadóttir skáldkona um nýja ljóðabók sína, Alla leið hing- að, sem er væntanleg fyrir jólin. „Mér sýnist hún ekki ósvipuð fyrstu bókunum minum, Ungum ljóðum og Undarlegt að spyrja mennina. Ljóðin em svo mikið um ástir. Bestu ástar- Ijóðin yrkir maður þegar maður fer aö eldast, segir Þorsteinn frá Hamri, sem las handritið fyrir mig, en þá þora svo fáir að birta Nína Björk - ung á ný. P-árbók II Eyvindur Eiríksson sendir nú frá sér árbók sína í annað sinn með glefsum og glósum, ljóðum og léttmeti, sögum' og framhalds- leikriti. Poki Press kemur víða fyrir á síðum með spekimál á borð við eftirfarandi: „Ég hitti mann á hraðferð inni í Síðumúla. Þetta var ungur maður á útleið.“ P-árbókin er tveggja gata rit og hægt að hengja hana á vegg ef vill. Höfundur gefur hana út sjálf- ur og selur í helstu búðum. Umsjón Sílja Aðalsteinsdóttir Árið 2002 Sigfríður Björnsdóttir tónlistarkennari og gagnrýnandi DV var í Kaupmannahöfn seinni hluta september ásamt tæplega 60 íslenskum ung- mennum og átta öðrum kennurum og listamönn- um héðan, þar sem þau tóku þátt í samnorrænu sýningunni Árið 2002 í 0ksnehallen. Þetta var samstarfsverkefni fimm borga, Þrándheims, Tammerfors, Málmeyjar, Kaupmannahafnar og Reykjavíkur, og í Kaupmannahöfn hittust allir hóparnir. Alls urðu þetta 500 ungmenni sem þama sköpuðu sína norrænu framtíð- arsýn, borg framtíðarinnar, í hljóð- verkum, myndlist, dansi, og tónlist. lega. Sérhóparnir voru settir í einn pott sem síð- an var skipt í smærri hópa, en nokkur verkefni unnu þeir í einu lagi. Til dæmis stóðu allir tón- listarhóparnir í sameiningu að uppákomu sem okkar tónlistarstjóri stýrði raunar, það var Há- vaðahljómsveitin. Þá bjuggu krakkarnir til hljóð- færi úr alls konar drasli, járnarusli og dóti og unnu með Hilmari að skipulagi efniviðarins, og svo dansaði danshópur við músíkina. Þetta kom vel út. Langur aðdragandi „Forsaga málsins nær yfir síðasta skólaár," segir Sigfríður, „þá unnum við kennararnir og listamenn hver með sínum hópi. Minn hópur vann við tónlist. Þetta voru 10. bekkingar i Æfingaskólanum sem höfðu valið tón- mennt og nokkrir krakkar sem höfðu verið í tónlistarvali næstu tvö ár á undan. Það hafði frést að við hefðum verið að vinna að tónsmíðum, meðal annars í tölvu, þess vegna var okkur boðið að vera með í verkefhinu. Lista- maðurinn með okkur var Hilmar Þórðarson tónskáld sem starfar í tón- stúdíói Tónlistarskóla Kópavogs, og hann fullvann tónverkin með krökk- unum. Við gerðum 70 mínútna geisla- disk með hljóð- og tónverkum sem við fórum með utan. Hljómsveitin Mósaik vakti mikla athygli fyrir fínar tónsmíöar sínar Hinir hóparnir komu frá Hóla-endur vonast til aö geta fylgt eftir. brekkuskóla, sem var með myndlistar- verkstæði, Hliðaskóla, sem var með tölvuheim og samskipti, og Menntaskólanum við Sund, sem vann með manngert umhverfi og myndræna miðla. Loks var danshópur sem líka kom úr Æf- ingaskólanum. „Hápunkturinn á vinnunni í fyrra var stór sýn- ing í Listasafni íslands i vor,“ heldur Sigfriður áfram. „Og eftir reynsluna af utanferðinni verður sú sýning ennþá dýrmætari. Það er ekkert grín að vera með 500 unglinga að listrænu starfi í einu, þó að húsakynnin séu stór. Auk þess höfðu þau bara tæpa viku til að koma öllu af stað áður en sýningin var opnuð. En margir krakkarnir, þar á meðal okkar krakkar, nýttu sér vel frelsið sem settur rammi gaf þeim. Tóku frumkvæði, mótuðu aðferðir. í Oksnehallen blönduðust krakkarnir ágæt- Hávaöahljómsveitin leikur nútímatónverk á drasl. Þau þurftu líka að undirbúa ýmislegt til þess að sýningin væri virk eftir að við færum heim, og tónlistarhópurinn bjó til og setti upp alls konar hljóðgildrur fyrir gesti. En allar nemendasýningar eru ómerkilegri en ferlið sem leiðir að þeim, tækifærið til að vinna markvisst að ákveðnu markmiði árlangt er merkilegasti þátturinn i þessu dæmi. Það var til dæmis sérstaklega talað um dansarana okkar þarna úti. Þau höfðu æft sig og dansað undir stjórn Guðbjargar Arnardóttur danskennara all- an síðastliðinn vetur og voru opin og fordóma- laus, frjáls í tjáningu, vaxin upp úr klisjum. En það gilti ekki um alla hina danshópana. Fagkennarar á íslandi Reyndar var sá munur á okk- ar vinnu og vinnu erlendu hóp- anna að hér voru auk lista- mannanna fagkennarar með alla hópa, sérmenntaðir á sínu sviði, en úti voru það venjuleg- ir bekkjarkennarar. Víða höfðu krakkarnir unnið með lista- mönnunum í þemavikum. í Finnlandi var þetta meira að segja unnið alveg utan skóla- tíma. Hér var þetta auðvitað inni á stundatöflu allan vetur- inn og krakkarnir fengu eining- ar fyrir vinnuna, og okkar nem- endur virtust komnir lengra frá Málverk krakk- anna úr Hóla- brekkuskóla settu svip á sýninguna. klisjukenndri tjáningu en margir erlendu krakk- anna. Það varð áberandi hvað íslensku ungling- arnir voru frjálsir, sjálfstæðir og sóttu vitt leiðir að tjáningu. Þau voru óhrædd og víðsýn.“ - En voru þau þá ekki sérvalin? „Nei, þau völdu sig sjálf í hópana. Það var bara boðið upp á þessar val- greinar, og þar með fengum við krakka sem raunverulega höfðu áhuga á greininni. Það er rosalega hæpið að ætlast til að krakkar vinni af alvöru við listgrein sem þeir hafa ekki áhuga á. íslensku unglingarnir stóðu sig líka ótrúlega vel í þessum stóra hópi þarna úti. Það var eftir því tekið hvað þau voru sjálfstæð, áhugasöm og djörf. Og þau tóku ábyrgð eins og ekkert væri sjálfsagðara, bæði á vinnunni við verkefnin og þrifum eftir matinn! Það er auðvitað ekkert annað en þroski. Listiðkun forsenda Hstalífs Það er alltaf spurt og maður spyr líka sjálfan sig, hefur svona vinna eitthvert gildi. Af hverju skiptir máli að sem flestir iðki listir? Af þvi að listalífmu er svo nauð- synlegt að eiga sér listunnendur. Og það er ekki hægt að unna neinu án þess að þekkja það og maður kynnist hlutunum best með því að iðka þá. Ein af meginforsendum fyrir öflugu listalifi er fólk sem hefur á einhverju stigi iðkað listir. Ef listamaðurinn hefur ekki viðtakendur skapar hann í tómi. Listirnar eru misjafnlega aðgengilegar fyrir okkur. Öllum er til dæmis eðiilegt að iðka mynd- list, og við skrifum öll eitthvað. En tónlistin hef- ur verið sniðgengin sem almenn listgrein á ung- lingastigi. Þess vegna lifir ný tónlist í tómi, það er enginn til að taka við henni. Við hættum að kenna tónlist þegar krakkarnir geta farið að búa hana til sjálfir. Skólakerflð þarf að vera vettvang- ur fyrir listiðkun, en það er svelt á öllum sviðum. Það hefm- til dæmis kostað ómælt erfiði að halda uppi kennslu í tónsmíðum. Það var fagnaðarefni að sjá hvað krakkarnir okkar stóðu sig vel og hvað við eigum mikla hugsuði og margt skapandi fólk, þó að litil áhersla sé lögð á listir í skólakerfinu. Við verðum að gera betur. Ég hef mikla trú á listum i uppeldi, ekki síst núna á þessum tímum. Við verðum að skilja lífið í gegnum listina. Ef haldið er áfram að sniðganga listmenningu og afneita sköpun þá rennur í sjóinn dýrmætur tjársjóður sem við eig- um, tjáningarmátturinn sem greinilega býr í unga fólkinu okkar." í annan heim Það kemur mér á óvart ef bók Sumarliða ís- leifssonar, ísland, framandi land, verður ekki metsölubók. Ástæðan er einfóld. Efni hennar er það sem íslendingum hefur ævinlega þótt alh-a forvitnilegast: Hvað finnst útlendingum um ís- land og íslendinga? En hvernig verðskuldar bókin þær væntan- legu viðtökur? Útlit hennar er aðlaðandi og smekklegt. í henni eru margar og glæsilegar myndir og hún er eiguleg, íburður er þó allur í hófi, þetta er bók fyrir almenning en ekki að- eins fimmtuga forstjóra. Gallar bókarinnar eiga sér flestir eina rót. Sumarliði er að vinna brautryðjendaverk en er ekki hlekkur í langri keðju. Þar af leiðandi þarf hann sumpart að neita sér um frumleika, efni er skipað niður í tímaröð fremur en þematískt og ekki er hætt sér inn á 20. öld þegar viðfangs- efnið flækist. Sumarliði heldur sig við þær hug- myndir um land og þjóð sem fram koma i ritum erlendra ferðamanna en lítur að mestu fram hjá hugmyndum útlendinga um íslendinga sem fram kynnu að koma i íslenskum ritum. Fyrir vikið er efnið ekki tæmt en vel er af stað farið. Lagt er kapp á að sýna tengsl hug- mynda manna um ísland við tíðarandann og hvernig þær þróast frá 1500 til 1900, á sannfær- andi hátt sem varpar Ijósi á fleira en efnið sjálft. Fyrst er áherslan á furður landsins og ýkjur áberandi, þá rita hinir alræmdu Peerse og Blef- ken sem seint munu teljast „Islandsvinir" en veltu þó þungu hlassi með þvi að hræra við Arngrími lærða; síðan eykst raunsæi í lýsing- Bókmenntir Ármann Jakobsson um með Upplýsingunni og á 19. öld er mikill áhugi á menningararfi fslands. Eftir stóð fram- andleikinn sem dró flesta að sem hingað komu, erlendum mönnum þótti þeir komnir í annan heim. Þetta fyrsta rit sinnar tegundar er því þannig úr garöi gert að ætti verðskuldað að geta höfð- að til flestra. Það er skemmtilegt en þó vísinda- rit. Sumarliði ísleifsson: ísland framandi land. Mál og menning 1996. Hættuför í Heklugíg áriö 1868. Óvíst er hvar myndin birtist upphaflega og eftir hvern hún er.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.