Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1996, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1996, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1996 Frjálst, óháð dagbíað Útgáfufélag: FRIÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaftur og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aöstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI14,105 RVlK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Líf og saga á vítisbarmi Eldgos eru snar þáttur í lífi íslendinga. Oftar en einu sinni á áratugs fresti sjáum við myndir af nýju eldgosi í sjónvarpi og lesum um það í blöðunum. Við kippum okk- ur ekki upp við fréttir af leikvangi frumkrafta jarð- skorpunnar, nema þeir séu að valda okkur tjóni. Við förum að vísu sum hver í útsýnisflug eða bílferð- ir til jarðeldaslóða eins og hverjir aðrir túristar. Fjöl- miðlar vakta staði, þar sem búist er við fréttum, og segja skilmerkilega frá hverju því, sem þar gerist. Þannig hef- ur í heila viku verið beðið eftir Skeiðarárhlaupi. Okkur finnst þó á mörkum hins broslega, þegar rosk- in og virðuleg dagblöð í útlöndum fara í leiðurum á kost- um í lýsingu á eldgosinu í Vatnajökli og boðun tilþrifa- mikils hlaups í Skeiðará. Þau fara alls ekki með rangt mál, en líta óreyndari augum á það en við gerum. í rauninni er það hrikalegur atburður, þegar náttúru- öfl. elds og ísa berjast um völdin inni í Vatnajökli. Og af- leiðingar orrustunnar verða stórbrotnar, þegar hlaupið ryðst loks fram sandinn til sjávar. En þetta varðar senni- lega ekki mannslíf og næsta fá mannvirki. í sögu landsins eru eldgos metin eftir tjóninu, sem þau valda. Sumra mestu gosanna er alls ekki getið í heimild- um, af því að þau voru á árstíma eða við veðuraðstæð- ur, sem leiddu hvorki til tjóns á mönnum né búfénaði. Tjónið hefur jafnan verið okkar mælikvarði. Heimaeyjargosið var stórgos okkar tíma, ekki vegna magns gosefna, heldur tjónsins, sem það olli á mann- virkjum. Það var líka tímamótagos, því að þar var fyrst reynt að temja eldgos í sögunni. Þessi tamning tókst von- um framar og jók sjálfstraust okkar sem þjóðar. Fyrst var vatni dælt á hraunjaðarinn og hraun- straumnum þannig stýrt að nokkru leyti. Að loknu gosi var lögð hitaveita frá hrauninu til að hita hús í endur- reistum kaupstað. Við fórum að líta á eldgos eins og hveri eða eins og galið hross, sem má gera reiðfært. Viðbrögðin við gosinu í Vatnajökli mótast af reynslu. Rofin eru skörð í þjóðveginn til að létta álagi af brúnum, sem verðmætastar eru mannvirkja á sandinum. Manns- lífum verður ekki hætt til-að bjarga eignum. Svo bíðum við og sjáum, hvemig náttúruöflunum tekst til. Ef brúarhöf hverfa og stöplar spillast, tökum við að loknu hlaupi til óspilltra málanna og byggjum veginn að nýju. Síðan höldum við áfram að reka erindi okkar vest- ur og austur yfír sandinn eins og ekkert hafi í skorizt. Við höfum aðeins sætt yfirstíganlegu tjóni. Við verðum á hverju ári fyrir margfalt meira tjóni af pólitískum völdum en við verðum fyrir áratugum sam- an af völdum náttúruaflanna. Við kippum okkur því ekki upp við að missa hundrað milljónir hér og hundrað milljónir þar vegna hamfara, sem við ráðum ekki við. Því tökum við eldgosinu í Vatnajökli og hlaupinu í Skeiðará með hálfgerðri léttúð eða hóflegri forvitni og höfum dulið gaman af áhuga erlendra blaðamanna, sem horfa á atburðarásina eða skortinn á atburðarás af opn- um huga þess, sem ekki hefur nálægðina og reynsluna. The Times dáist í leiðara að þrautseigju þjóðar, sem heldur uppi siðmenntuðu lífi á einu óbyggilegasta svæði jarðarinnar og leikvelli tröllaukinna náttúruafla. Við sjálf höfum líklega meiri ástæðu til að dást að þraut- seigju okkar að gera þetta á leikvelli sukksamra stjórn- mála. Það verða ekki eldgos og jarðskjálftar, sem ráða úrslit- um um framtíð þjóðarinnar. Þar ræður skortur okkar á hæöii til að skipa eigin málum að skynsamlegum hætti. Jónas Kristjánsson Petta er heimur sem ekki er boölegur ungu fólki, hvorki á Islandi né annars staöar," segir greinarhöfundur m.a. Foreldrar gegn fikniefnum Kjallarinn Snjólaug Stefánsdóttir verkefnisstjóri Vímu- varnanefndar Reykjavík- urborgar yggi og kjark, bæði til að segja nei við boði um flkniefni og segja til dópsalans. Réttmætar áhyggjur foreldra vegna úrræða- og stefnuleysis stjórn- valda hafa meðal ann- ars leitt til þess að ver- ið er að taka markviss- ar á vímuvamamálum bæði hjá ríki og Reykjavíkurborg. En foreldrar þurfa að beita sér með markvissum hætti, t.d. með því láta börnin fara að úti- vistarreglum, kaupa aldrei vín fyrir börn sín, gera athugasemdir við óbeinar auglýsing- ar á fíkniefnum, hafa „Fréttir berast jafnvel af því að fíkniefni séu seld á skólalóðum grunnskóla. Fíkniefni, ofbeldi, af■ brot og vændi fara saman og í þeim heimi ráða grimm og óvægin lögmál.u Síendurteknar frásagnir foreldra, fjölmiðla o.fl. um mikla og alvarlega vímuefnaneyslu ungs fólks kalla á raunverulegar að- gerðir og samstillt átak. Fréttir berast jafnvel af því að fíkniefni séu seld á skólalóðum grunn- skóla. Fíkniefni, of- beldi, afbrot og vændi fara saman og í þeim heimi ráða grimm og óvægin lögmál. Þetta er heimur sem ekki er boðlegur ungu fólki, hvorki á íslandi né annars staðar. Réttmætar áhyggjur Móðir þrettán ára pilts sagði mér fyrir skömmu að hún hefði komið í veg fyrir að eigin- maðurinn færi og tæki í hnakka- drambið á 20 ára pilti sem hefði boð- ið syni þeirra að reykja hass. Hún sagðist fyrst og fremst hafa óttast hefndaraðgerðir af hálfu dópsal- ans þó hann ætti fyllilega skilið að vera tekinn í gegn. Þessi saga vakti með mér marg- ar spumingar. Sýna foreldrar og opinberir aðilar dópsölunum of mikla linkind og andvaraleysi? Látum við viðgangast að ótíndir glæpamenn hrifsi af okkur börnin og beri í þau alls kyns ólyijan? Af- dráttarlaus og óttalaus afstaða gegn ólöglegum vímuefnum og dópsölum veitir börnum aukið ör- augun vel opin fyrir breytingum á hegðun barna sinna og annarra barna og ræða við aðra foreldra og sækja þangað stuðning til aðgerða gegn vímuefnum. Áætlun í vímuvörnum Reykjavíkurborg ákvað fyrir rúmu ári að veita stefnumótun og markvissum vinnubrögðum í vímuvörnum forgang. Vímuvama- nefnd Reykjavíkur skipulagði í samstarfi við fjölmarga aðila Vímuvarnaskólann sem var fræðsluherferð fyrir starfsmenn grannskóla Reykjavíkur sl. vetur. Var Vímuvamaskólinn eitt skref í umfangsmikilli áætlun í barátt- unni við þennan ófögnuð. Næstu skref eru m.a. Vímuvamaskóli fyrir foreldra, leit að börnum og unglingum í vímuefnavanda í grannskólunum og starfsemi sam- ráðshópa um bama- og unglinga- mál í hverfum borgarinnar. Þeir sem leggja í baráttu hljóta að ætla sér sigur og það á við um baráttuna við vímuefnavandann. Markmiðið hlýtur að vera að geta boðið bömum okkar umhverfi án ólöglegra vímuefna, umhverfi þar sem ekki era í boði lífshættuleg efni líkt og E-pilla og amfetamín. Aðstæður á íslandi era um margt mjög ákjósanlegar til varn- ar ólöglegum vímuefnum. Inn- flutningsleiðir ólöglegra vímuefna eru takmarkaðar við skipa- og flugsamgöngur, fámennið skapar jákvæða möguleika á upplýsinga- miðlun og menntunarstig þjóðar- innar er hátt, sem auðveldar fræðslu og upplýsingar. Reykjavíkurborg starfrækir um- fangsmikið forvarnar- og æsku- lýðsstarf. Hefur það starf ásamt mikilsverðu framlagi félaga og áhugahópa miðlað þekkingu á skaðsemi vímuefha til barna og unglinga. Unglingamir þekkja því hættumar af neyslu vímuefna, en ungæðisháttur og nýjungagirni gerir þau að viðkvæmum neyslu- hóp og því auðveldari bráð fyrir dópsalana. Því er afar mikilvægt að foreldr- ar og allir sem starfa að mannúð- armálum, forvörnum, tollgæslu, löggæslu, heilsugæslu o.fl. taki höndum saman í baráttunni gegn ólöglegum fíkniefnum og stefni að sameiginlegu markmiði, mark- miðinu land án ólöglegra fíkni- efna. Snjólaug Stefánsdóttir Skoðanir annarra Forsetaframboð og ríkissjóður „Það er hverjum manni í sjálfsvald sett að fara í framboð og hann ræður líka hvort það sé ómaksins vert að bruðla með fé til að kaupa sér frama. Opin- berum sjóðum skattborgaranna kemur það mál ekki við. . . . Að láta sér detta í hug að ríkissjóður borgi allan þennan misskilning er ekki annað en að stinga upp á að enn meira sé bruðlað með almannafé en þegar er raunin á.... Kosningaskuldir era sjálfskap- arvíti sem ríkissjóði koma ekkert við.“ OÓ í Tímanum 9. okt. Mikilvægasta pólitíska máliö „Það eru mikil efnahagsleg sóknarfæri fólgin i veiðileyfagjaldi. Veiðileyfagjald er ekki íþyngjandi aðgerð fyrir sjávarútveginn vegna þess að skynsam- legt er að haga gengisstefnunni þannig að annar út- flutningsiðnaður styrkist við hlið sjávarútvegs. . . . Veiðileyfagjald er mikilvægasta pólitíska mál þessa kjörtímabils. Það getur enginn stjómmálaflokkur skorast undan afstöðu í þessu efni.“ Ágúst Einarsson alþm. í Mbl. 9. okt. Skuldlaus frambjóðandi „Frambjóðendur og peningamenn þeirra virðast í öndverðu hafa gróflega vanmetið kostnað en ofmetið að sama skapi áhuga almennings og fyrirtækja á að láta fé renna í kosningasjóði. Síðustu vikurnar fyrir kosningar fór líka allt úr böndunum þegar allir frambjóðendur tóku þátt í rándýra auglýsingastríði, án þess að nokkuð lægi fyrir um hvemig ætti að borga herlegheitin. Það er óneitanlega nokkuð kal- hæðnislegt að eini frambjóðandinn sem þegar hefur greitt alla reikninga skuli vera Ástþór Magnússon - sem eyddi 40 milljónum og uppskar þrjú prósent." Úr forystugrein Alþbl. 9. okt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.