Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1996, Side 24
FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1996
Sviðsljós
Sting heldur tón-
leika í Víetnam
Sting verður fyrsta stóra rokk-
stjaman til að halda tónleika í
Víetnam síðan striðinu þar lauk
fyrir 21 ári. Tónleikamir em
ráðgerðir 16. október. Kynna
þurfti texta Stings fyrir sérstakri
nefnd menntamálaráðuneytis Ví-
etnams fyrir mörgum mánuðum.
Adjani flytur til
Genfar
Franska leikkonana Isabelle
Adjani er sögð hafa ákveöið að
flytja til Genfar með 16 mánaöa
gamlan son sinn sem hún á með
leikaranum Daniel Day-Lewis.
Leikkonan hefur áhyggjur af
menguninni i París að sumarlagi
og er hún viss um að geta dregið
andann áhyggjulaus í Genf.
Drew Barrymore
er ástfangin
„Ég er yfir mig ástfangin.
Hann er æðislegur," segir Drew
Barrymore um nýjasta vin sinn.
Eins og er vill hún ekki láta uppi
hver nýtur ástar hennar í þetta
sinn. „Mér finnst einhvem veg-
inn að ég verði að halda þessu
eins lengi leyndu og ég get,“ seg-
ir leikkonan sem á hjónaband aö
baki þó hún sé ekki nema 21 árs.
Rokksöngkonan Sheryl Crow:
Gerir sitt besta til
að vera hamingjusöm
Rokksöngkonan Sheryl Crow ger-
ir sitt besta til að vera hamingju-
söm. Reyndar þykir mönn-
um að það ætti ekki að
vera erfitt fyrir hana
því að fyrsta stóra
platan hennar,
sem kom út fyr-
ir tveimur
árum, seldist í
yfir 10 millj-
ónum ein-
taka.
Sheryl hef-
ur auk þess
hlotið þrenn
Grammy verð-
laun og smáskífa
hennar gengur vel
í Bandaríkjunum.
Og svo hefur hún meira
að segja farið á stefnumót
við Brad Pitt, að því er breska síð-
degisblaðið The Express greinir frá.
En stúlkan er samt óhamingju-
söm. „Ég á við þunglyndi að stríða,"
segir hún. „Og það er að miklum
hluta efnafræðilegt. En ég er að ná
tökum á þessu. Ég er farin að
hlaupa aftur og hef mjög gott af því.
Það hjálpar við að vinna úr málun-
um og lætur réttu efnin streyma til
heilans."
Sheryl tekur það fram í blaðavið-
tali að margt fólk sem sé á ferð og
flugi til að halda tónleika leggist í
þunglyndi þegar þaö kemur heim.
„Ég verð stöðugt fyrir því. Stund-
um yeit ég ekki hver ég er.
Ég einset mér að vera
hamingjusöm á
hverjum degi.
Þetta er nýtt fyr-
ir mig. Ég get
valið og ég er
að æfa mig i
þvi. Þetta er
eins og að
vera ástfang-
inn. Maður
ákveður hvort
maður ætli að
vera fúll eða
hamingjusamur.
Mamma sagði
alltaf að
maður
tæki
ákvörðun
um það
hvort mað-
ur ætlaði
að elska einhvem og síðan þyrfti
maður að ákveða það upp á nýtt á
hverjum degi.“
Sheryl ólst upp í Kennett í Misso-
uri. Faðir hennar var lögmaður og
eftir að hann tók að sér mál gegn Ku
Klux Klan neyddist hann til að sofa
í stofunni með skammbyssuna sér
við hönd. Sheryl gekk í sama fram-
haldsskóla og Brad Pitt og það var
nýja stórskífu og
hefur ákveðiö að vera
hamingjusöm.
Lék við hvern sinn fing-
ur í beinni útsendingu
Sarah Ferguson, her-
togaynjan af York, eða
Fergie eins og hún er
kölluð í daglegu tali, lét
eins og ekkert væri er
hún veitti verðlaun á
stórri sjónvarpsverð-
launahátíð í beinni út-
sendingu á þriðjudag.
Hún lék á als oddi og
gerði grín að því umtali
sem einkalíf hennar hef-
ur vakið undanfarið í
fjölmiðlum.
„Ég er viss um að
mörgum ykkar finnst að
ég ætti að vera hér til að
taka við verðlaunum
frekar en að afhenda
þau,“ sagði Fergie við
áheyrendur.
Fergie hefur ekki sést oft opinber-
lega síðan griski miðillinn Vasso
Koresis, sem hún leitaði
jafnan til á sínum tíma,
talaði sig út rnn sam-
bönd hertogaynjunnar
við hina ýmsu menn.
Sú yfírlýsing og þær
miklu fjárhagskröggur
sem Fergie hefúr ratað í
hafa vakiö mikla at-
hygli fjölmiðla, sem
halda því fram aö
drottningin sé tilbúin
til að greiða allar henn-
ar skuldir ef hún afsali
sér forræði yflr dætrum
sínum tveimur.
Talsmaður Fergie
segir þessar fréttir fá-
ránlegar og alveg út í
hött. Hann sagði her-
togaynjuna sára yfir þessum sögu-
sögnum, rétt eins og hver móðir
myndi vera.
þá sem hún fór á stefnumótið við
hann. „Hann var indæfl, feiminn og
fremur trúhneigður og ég hef aldrei
séð hann síðan.“
Eftir að Sheryl lauk framhalds-
skólanámi kenndi hún tónlist og lék
með kráarhijómsveitum. Kærastinn
hennar vildi að hún hætti að leika
og tæki lífinu með ró. Hún ók í stað-
inn til Los Angeles.
Sex mánuðum seinna ferðaðist
hún um heiminn sem ein af bak-
röddum Michaels Jacksons. „Hann
strauk mér um lærið að innanverðu
á sviðinu á hverju kvöldi en það var
átta mánuðum áður en hann vissi
hvað ég hét,“ segir hún og minnist
þess þegar slúðurblaðið Enquirer
sagði frá henni sem ástkonu
Jacksons. í lok tónleikaferðalagsins
með Jackson lagðist Sheryl í rúmið.
„Ég fór ekki á fætur i sex mánuði,"
segir hún.
Þegar hún loksins reis upp var
það til að syngja bakrödd fyrir Joe
Cocker, Don Henley og Rod Stewart
þangað til hún fékk eigin samning.
Það var reyndar ekki auðvelt.
Kostnaðurinn við fyrstu plötrma var
tæpar 30 milljónir íslenskra króna
en hún fór aldrei á markað. Platan
þótti ekki nógu töff. Sheryl brást við
því með því að gera plötuna Tues-
day Night Music Club sem hún gaf
út 1994 en í fyrstu vakti hún enga at-
hygli. Að lokum tók fólk við sér og
platan hefur selst í mifljónatali.
Leikarinn Pierce Brosnan með hönd á maga vinkonu sinnar, Keliie Shaye-
Smith, sem er barnshafandi. Pau eru hér ab koma á frumsýningu kvikmynd-
arinnar Michael Collins sem vakið hefur mikla athygli. Sfmamynd Reuter
<
V
VELDU ÞÆGILEGRI
GREIÐSLUMÁTA
GREIDDU ÁSKRIFTINA
MEÐ BEINGREIÐSLUM
ATH.
um eSa boðgreiðslum eru sjálfkrafa í potti glæsilegra vinninga!
Allar nánarí upplýsingar um beingreiðslu færðu hjá
viðskiptabanka þínum eða DV i ma 550 5000