Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1996, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1996, Blaðsíða 26
34 FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1996 Afmæli Vibeke Þorbjörg Þorbjörnsdóttir Vibeke Þorbjörg Þorbjömsdóttir, starfsmaður viö sambýlið Hlein, til heimilis að Reykjavegi 58, Mosfells- bæ, er fertug í dag. Starfsferill Vibeke fæddist i Reykjavík og ólst þar upp við Langholtsveginn og síðan í Árbæjarhverfinu. Hún hefur verið búsett í Mosfellsbæ frá 1975. Vibeke var dagmóðir í Mosfells- bæ í nokkur ár, starfaði á skrifstofú Álafossverksmiðjunnar og síðan hjá ístex. Hún hóf störf við sambýlið Hlein við Reykjalund 1993 og hefur starfað þar síðan. Vibeke hefur tekið þátt ýmsum félagsstörfum sem tengst hafa vinnustöðum hennar. Hún hefur sungið með Álafosskórnum í fjöida ára og hefúr verið for-, maður hans nú síðustu árin. Þá hefur hún setið í stjóm Tónlistarsam- bands alþýðu í nokkur ár. Fjölskylda Vibeke giftist 13.4. 1974 Kristni Bjarnasyni, f. 15.1.1955, starfsmanni við Reykjalund. Hann er son- ur Bjama Matthíassonar varðstjóra og Svölu Páls- dóttur tækniteiknara. Sambýliskona Bjama er Hrafnhildur Helgadóttir. Börn Vibeke og Kristins eru Vibeke Svala Kristinsdóttir, f. 26.6. 1975, nemi í sálfræði við HÍ, en mað- ur hennar er Kristján Finnbjömsson bifvélavirki; Bjami Gunn- ar Kristinsson, f. 19.7. 1977, matreiðslunemi á Hótel Sögu, en unnusta hans er Soffia Guðbjörg Þórðardóttir þjónanemi. Systkini Vibeke era Helen Andreasen, f. 29.12. 1950, d. 16.3.1986, en börn henn- ar era Nanna Þorbjörg Pétursdóttir, f. 14.11. 1970, Jóhann Carlo Sigurðsson, f. 19.5. 1977, og Ólöf Helga Sigurðardóttir, f. 29.1. 1979; Ann Andreasen, f. 6.10.1952, skrifstofumaður, en maður hennar er Þórarinn Ólafsson bif- reiðastjóri og era böm þeirra Óiafur Rúnar Þórarinsson, f. 15.11. 1969, Þorbjörn Þórarinsson, f. 28.3.1972, og ívar Þórarinsson, f. 24.4. 1973; Garð- ar Þorbjömsson, f. 19.11.1958, vinnu- vélastjóri, en kona hans er Ásdís Tómasdóttir og era synir þeirra Tómas Sigursteinn Garðarsson, f. 13.10. 1985, og Þorbjöm Garðarsson, f. 23.4. 1987; Elna Tove Lilja Þor- bjömsdóttir, f. 2.4. 1961, sölumaður, en maður hennar er Gunnar Jóhann Jónsson deifdarstjóri og eru synir þeirra Jón Þobjörn Jóhannsson, f. 23.2.1982, Jóel Þór Jóhannsson, f. 2.2. 1990, og Andri Gunnar Jóhannsson, f. 5.9. 1991. Foreldrar Vibeke: Þorbjöm Jóns- son, f. 9.1.1922, d. 12.2.1981, bifreiða- stjóri í Reykjavík, og Vibeke Harriet Westergárd Jónsson, f. 20.6. 1925, fyrrv. matráðskona. Vibeke tekur á móti gestum að heimili sínu laugardaginn 12.10. kl. 20.00. Vibeke Þorbjörg Þor- björnsdóttir. Björg Þórðardóttir Björg Þórðardóttir, fyrrum bóndi, Tungumúla á Barðaströnd, er átt- ræð i dag. Starfsferill Björg fæddist í Haga á Barða- strönd en ólst upp í Innri- Múla. Á bamaskólaaldri naut hún farskóla- kennslu á Bcuðaströndinni nokkrar vikur á ári á ýmsum bæjum þar. Björg var bóndi og húsfreyja á ár- unum 1943-93 er hún hætti búskap. Fjölskylda Björg giftist 12.9. 1937 Böðvari Guðjónssyni, f. 18.7. 1901, d. 4.2. 1990, bónda. Hann var sonur Guð- jóns Brynjólfssonar og Guðrúnar Jósepsdóttur, búenda í Rauðasands- hreppi og i Múlasveit. Böm Bjargar og Böðvars era Lau- fey, f. 8.6. 1937, umboðsmaður Flug- leiða á Patreksfirði, gift Trausta Að- alsteinssyni og eiga þau t/o fóstur- syni; Bríet, f. 31.10. 1940, bóndi að Seftjöm á Barðaströnd og rekur ferðaþjónustu þar, gift Einari Guð- mundssyni og eiga þau átta börn; Unnar Þór, f. 1.11.1945, íþróttakenn- ari og skólastjóri við bama- og ungl- ingaskólann á Hvolsvelli og á hann þrjú böm; Jóna Júlía, f. 24.11. 1956 (kjördóttir), bréfberi á Patreksfírði, gift Gunnari Óla Bjömssyni og eiga þau þrjú böm. Systkini Bjargar: Ólafur, f. 21.8. 1918, fyrrv. kennari í Reykjavík; Jó- hanna, f. 4.1. 1920, húsmóðir á Pat- reksfirði; Júlíus, f. 29.4. 1921, bóndi á Skorrastað í Norðfirði; Björgvin, f. 9.9.1922, fyrrv. leigubílstjóri í Hafn- arfirði; Karl, f. 16.10. 1923, d. 17.12. 1991, sjómaður á Seltjarnamesi; Kristján, f. 14.5. 1925, bóndi og lengst af oddviti á Breiðalæk á Barðaströnd; Steinþór, f. 13.7. 1926, d. 7.4. 1995, bóndi í Skuggahlíð í Norðfirði; Sveinn, f. 13.12. 1927, bóndi í Innri- Múla á Barðaströnd. / Rúnar Oskarsson Björg Þóröardóttir. Uppeldis- bróðir Bjarg- ar var Gísli Þórðarson. Foreldar Bjargar voru Þórður Ól- afsson, f. 24.8. 1887, d. 10.4. 1984, bóndi að Innri-Múla á Barðaströnd, og k.h., Steinunn Björg Júlíusdóttir, f. 20.3. 1895, d. 13.2. 1984, húsffeyja. Björg og fjölskylda hennar taka á móti gestum í safnaðarheimili Pat- reksfjarðarkirkju laugardaginn 12.10. frá kl. 15.00-20.00. Rúnar Óskarsson framkvæmda- sfjóri, Hrísateigi 5, Reykjahverfi, er fertugur i dag. Starfsferill Rúnar fæddist á Reykjarhóli í Reykjahverfi og ólst þar upp í for- eldrahúsum. Hann stundaði nám við Iðnskólann á Húsavík, lærði húsasmíði hjá bróður sinum, Stef- áni Óskarssyni trésmíðameistara, lauk sveinsprófi í þeirri grein og öðlaðist síðan meistararéttindi. Rúnar festi kaup á sínum fyrsta hópferðabíl 1982 og hefur stundað hópferðaaksktur síðan. I dag starf- rækir hann nokkra hópferðabíla. Þá stofhaði hann fyrirtækið Fjallasýn 1995 sem m.a. skipuleggur vélsleða- og jeppaferðir í byggðum og óbyggð- um á Norðausturlandi, einkum að vetrarlagi. Rúnar stundar einnig akstur með skólaböm úr Reykja- hverfi í Hafralækjarskóla. Fjölskylda Rúnar kvæntist 25.12. 1978 Huldu Jónu Jónasdóttur, f. 26.7. 1958, hús- móður. Hún er dóttir Jónasar Egils- sonar og Huldu Þórhallsdóttur í Ár- holti á Húsavík. Börn Rúnars og Huldu Jónu era Eyþór, f. 20.12. 1979, nemi við VMA á Ak- ureyri; Andri, f. 13.7.1982, nemi við Hafralækjar- skóla; Elvar, f. 28.3. 1990, nemi í Hafralækjarskóla; Hugrún, f. 8.8.1995. Systkini Rúnars era Svanhildur Óskarsdóttir, f. 1.1.1939, bókasafnsvörð- ur á Patreksfirði; Stefán Rúnar Óskarsson. Óskarsson, f. 10.3. 1941, húsasmíðameistari í Reykjahverfí; á Húsavík. Tryggvi Óskarsson, f. 18.3. 1942, bóndi að Þverá i Reykja- hverfi; Erla Óskarsdótt- ir, f. 15.8. 1943, bóndi í Ekra í Öxarfirði; Fanney Óskarsdóttir, f. 12.10. 1953, fiskverkakona á Húsavík. Foreldrar Rúnars eru Óskar Sigtryggsson, f. 29.9. 1914, húsasmiður í Reykjahverfi, og k.h., Steinunn Stefánsdóttir, f. 8.10. 1914, húsmóðir, en þau búa nú í Miðhvammi Andlát Helgi Skúlason Helgi Skúlason, leikari og leikstjóri, Suðurgötu 31, ;Reykjavík, lést í Reykjavík mánudagskvöldið 30.9. sl. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni í dag, fimmtudaginn 10.10., kl. 15.00. Starfsferill Helgi fæddist í KefLavík 4.9. 1933 og ólst þar upp. Hann lauk prófi frá Héraðs- skólanum á Laugarvatni 1950 og brautskráðist frá Leiklistar- skóla Þjóðleikhússins 1954. , Helgi var leikari við Þjóðleikhús- ið 1954-59, leikari og leikstjóri hjá LR 1959-76 og leikari og leikstjóri hjá Þjóðleikhúsinu frá 1976. Meðal helstu sviðshlutverka Helga má nefna Marco í Horft af brúnni 1957; Markús Antoníus í Júl- íusi Sesari 1959; Jón bónda í Gullna hliðinu 1976; Jón Hreggviðsson í ís- landsklukkunni 1985; Ríkarð III. í Ríkarði III. 1986; Belford í Marmara eftir Guðmund Kamb- an 1988, og Eugene O’Neill í Seið skugg- anna eftir Lars Norén, 1994. Helgi lék m.a. í kvik- myndunum Blóðrauðu sólarlagi eftir Hrafn Gunnlaugsson, 1975; Útlaganum eftir Ágúst Guðmundsson, 1982; Húsinu, eftir Egil Eð- varðsson, 1983; Hrafn- inn flýgur, eftir Hrafn Gunnlaugsson, 1985; t skugga hrafnsins, eftir Hrafn Gunn- laugsson, 1987; Leiðsögumanninum eftir Niels Gaup, 1987, og Hvíta vik- ingnum eftir Hrafh Gunnlaugsson. Helgi var ritari LR 1960-62, form- aður þess 1962-65, varaformaður Fé- lags íslenskra leikara, í leikritavals- nefnd Þjóðleikhússins 1981-84. Hann hlaut silfurlampann fyrir Franz í Föngunum í Altona 1964, var tilnefndur til Felix-verölaun- anna fyrir hlutverk sitt í myndinni í Skugga hrafnsins og þáði lista- mannalaun í heiðurslaunaflokki frá 1994. Fjölskylda Helgi kvæntist 28.11. 1954 Helgu Bachmann, f. 24.7. 1931, leikkonu. Hún er dóttir Hallgríms Bac- hmanna, ljósameistara Þjóðleik- hússins, og k.h., Guðrúnar Jónsdótt- ur húsmóður. Fósturdóttir Helga og dóttir Helgu frá því fyrir hjónaband er Þórdís Bachmann, f. 18.11. 1949, blaðamaður og þýðandi í Dan- mörku, og er sonur hennar Helgi Bachmann, f. 18.10. 1985. Börn Helga og Helgu era Hall- grímur, f. 22.12. 1957, rithöfundur í Reykjavík, sambýliskona hans er Sigríður Kristinsdóttir bókmennta- fræðingm- og era böm hans Hlynur Helgi Hallgrímsson, f. 12.9. 1987 og Kolbrún Bima Hallgrímsdóttir, f. 4.6. 1994; Skúli, f. 15.4. 1965, stjóm- málafræðingur og dagskrárgerðar- maður, sambýliskona hans er Anna Lind Pétursdóttir, BA í sálfræði, og Helgi Skúlason. era börn hans Darri Skúlason, f. 24.11. 1988, og Teitur Helgi Skúla- son, f. 9.5. 1996; Helga Vala, f. 14.3. 1972, nemi við Leiklistarskóla ís- lands, og er dóttir hennar og Sindra Freyssonar, skálds og blaðamanns, Snærós, f. 21.10. 1991. Systkini Helga era Ólafur, f. 29.12. 1929, biskup íslands; Móeiður, f. 10.2. 1938, ökukennari í Keflavík; Ragnheiður, f. 12.3.1943, píanókenn- ari i Keflavík. Systir Helga, samfeðra, er Kristr- ún, f. 9.2. 1927, húsmóðir í Reykja- vík. Foreldrar Helga: Skúli Oddleifs- son, f. 10.6.1900, d. 3.1.1989, umsjón- armaður í Keflavík, og k.h., Sigríð- ur Ágústsdóttir, f. 11.4.1902, d. 16.11. 1961, húsmóðir. Ætt Faðir Skúla var Oddleifur, b. í Langholtskoti, Jónsson, b. á Hellis- hólum, Jónssonar, dbrm. á Kóps- vatni, Einarssonar, b. á Berghyl, Jónssonar, b. í Skipholti, Jónssonar, Til hamingju með afmælið 10. október 80 ára María M. Magnúsdóttir, Flúðabakka 3, Blönduósi. Christian Nilsson Beck, Lindargötu 61, Reykjavík. 75 ára Þórður Vilhjálmsson, Vindási 3, Reykjavík. Sigríður Bjamadóttir, Vesturgötu 28, Reykjavík. Magnús A. Magnússon, Kirkjubrú, Bessastaðahreppi. Guðrún Björg Þorsteinsdótt- ir, Austurbrún 6, Reykjavík. Dagbjört G. Þórðardóttir, Ljósheimum 6, Reykjavík. 70 ára Kjartan Steinólfsson, Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði. Kristjana Einarsdóttir, Brimhólabraut 29, Vestmanna- eyjum. Ingibjörg Árnadóttir, Espigerði 2, Reykjavík. 50 ára________________________ Ingi Þorbjöm Ólafsson, Álakvísl 58, Reykjavik. Trausti Eiríksson, Klapparstíg 18, Reykjavík. Þórhallur Eiríksson, Hraunbæ 42, Reykjavík. Hjalti Guðröðarson, Stakkanesi 14, ísafirði. Guðríður Matthíasdóttir, Hrafnhólum 2, Reykjavík. Jóhanna Rögnvaldsdóttir, Rauðalæk 40, Reykjavík. Skarphéðinn Ólafsson skólasijóri, Reykhólaskóla, Reykhóla- hreppi. Eiginkona hans er Sigríður Margrét Skarphéðinsdóttir. Þau era að heiman. Bryndís Guðrún Guðmunds- dóttir, Blöndubakka 11, Reykjavík. Ámi Guðmundsson, Vallholti 29, Selfossi. Ágústa Úlfarsdóttir, Þórufelli 14, Reykjavík. Ingibjörg Jóhannesdóttir, Syðsta-Ósi, Ytri-Torfustaða- hreppi. 40 ára Valur Sveinbjömsson, Suðurgötu 24, Hafnarfirði. Ingvar Guðmundsson, Lágengi 15, Selfossi. Guðrún B. Ásgrímsdóttir, Álfaskeiði 35, Hafnarfirði. Katrín Gróa Guðmundsdótt- ir, Naustahvammi 54, Neskaup- stað. Hafdis Heiðarsdóttir, Akurholti 2, Mosfellsbæ. bróður Fjalla-Eyvindar. Móðir Skúla var Helga, systir Önnu, ömmu Jóns Skúlasonar póst- og símamálastjóra. Helga var dóttir Skúla, alþm. á Berghyl, bróður Jóns, langafa Önnu, móður Hjartar Torfasonar hæstaréttardómara. Systir Skúla var Margrét, langamma Björgvins Vilmundar- sonar bankastjóra og Gunnars Am- "ar listmálara. Skúli var sonur Þor- varðar, prests í Holti undir Eyja- fjöllum, Jónssonar. Sigríður var dóttir Ágústs, alþm. í Birtingaholti, Helgasonar, b. í Birt- ingaholti, Magnússonar, alþm. í Syöra-Langholti, Andréssonar. Móð- ir Helga var Katrín Eiríksdóttir, ættfoður Reykjættarinnar, Vigfús- sonar. Móðir Sigríðar var Móeiður Skúladóttir Thorarensen, læknis á Móeiðarhvoli, Vigfússonar, sýslu- manns á Hlíðcuenda, Þórarinsson- ar, ættfoður Thorarensenættarinn- ar Jónssonar. Móðir Móeiðar var Ragnheiður Þorsteinsdóttir, prests í Reykholti, Helgasonar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.