Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1996, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1996, Page 28
36 FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 1996 Fiskkvótinn er farinn aö rugla marga í ríminu. Hlynntir fram- sali, móti veð- setningu „Maður heyrir jafnvel þing- menn segja að þeir séu hlynntir framsali veiðiheimilda en á móti veðsetningu kvóta. Slíkt er hrein og klár rökleysa.“ Ari Edwald, aðstoðarm. sjáv- arútvegsráðherra, í Alþýðu- blaðinu. Meira fyrir að sitja heima „Maður hálfskammast sín fyr- ir þetta. Ég fæ 90 krónur fyrir kílóið af þorski í leigu en 80 krónur fyrir að sækja fiskinn." Pétur Runólfsson skipstjóri, í DV. Týndu bömin „Síldin var og er týnda dóttir- in og sonurinn okkar sem við fognum með því að marinera ofan í tunnu.“ Halldór Jónsson myndlistar- maður, í DV. Ummæli 100 þús. kr. krafan „Krafan um 100 þús. kr. lág- markslaun nær ekki einu sinni að vera tíund af launum ein- stakra manna hér á landi. Ætli vinna þessara launakónga sé meira virði en vinna tíu verka- rnanna?" Pétur Jónsson, form. Alþýðu- samb. Vestfjarða, í DV. Framlenging á sjálfinu „Karlarnir myndu frekar fremja sjálfsmorð en láta sig hafa það að fara í jakkafotum í strætó. Fyrir þeim er bíllinn nefnilega framlenging á sjálf- inu.“ Hlín Agnarsdóttir, í Degi-Tim- anum. r i i Notkun móðurnafns Þeir eru orðnir nokkrir ís- lendingamir sem hafa tekið upp nafn móðm: í eftimafh eftir að það var leyft. Þpð hefur lengi verið algengt fíjá leikumm í Bandaríkjunum að breyta nafhi sínu til að það hljómi betur og margir hafa þá farið í ættarnafn móður og tekið það upp. Hér eru nokkur dæmi: Rita Hayworth var skírð Margarita Carmen Cansino. Þeg- ar hún hélt út á listabrautina sem dansari stytti hún fornafn sitt og tók upp nafn móður sinn- ar, Haworth, en bætti við y. Eins og allir vita sem fylgjast með í kvikmyndaheiminum em Shirley MacLaine og Warren Beatty systkini. Þau voru í byrj- un bæði Beaty, Warren bætti við einu t en Shirley tók upp nafn móður, sem var MacLean, og breytti því aðeins. Blessuð veröldin Mel Brooks fæddist í eldhúsi foreldra sinna og var skírður Melvin Kaminsky. Nafnið Brooks er komið frá móður hans sem hét Brookman. Það vill svo skemmtilega til að Diane Keaton var skírð Diane Hall en ein frægasta kvikmynd hennar er Annie Hall. Hún tók upp nafn móður sinnar af illri nauðsyn - það var nefnilega til önnur leikkona sem hét Diane Hall. Rigning og skúrir Heldur vaxandi 983 mb lægð er á vestanverðu Grænlandshafi á leið austur. Um 800 km suðsuðaustur af Hvarfi er vaxandi 990 mb lægð sem hreyfist norðaustur og verður milli íslands og Færeyja í kvöld. Veðrið í dag í dag verður suðvestankaldi eða stinningskaldi og skúrir um vestan- vert landið en bjart veður austan- lands í fyrstu. Suðlægari og rigning eða skúrir sunnanlands þegar liður á daginn, gengur í norðaustan st- inningskalda eða allhvassa norð- austanátt með rigningu austanlands en éljum norðanlands í kvöld og nótt. Hiti verður 0 til 8 stig. Á höfuðborgarsvæðinu verður suðlæg átt og rigning þegar líður á daginn. Norðvestan kaldi og él verða síðar í dag en norðaustan stinningskaldi og léttir heldur til í kvöld og nótt. Sólarlag í Reykjavík: 18.24 Sólarupprás á morgun: 08.06 Síðdegisflóð í Reykjavík: 17.19. Árdegisflóð á morgun: 05.41 Veórið kl. 6 í morgun: Akureyri rigning 6 Akurnes alskýjað 5 Bergstaðir Bolungarvík haglél á síð.kls. 2 Egilsstaðir hálfskýjað 1 Keflavíkurflugv. skýjað 5 Kirkjubkl. léttskýjað 1 Raufarhöfn alskýjað 2 Reykjavík alskýjað 5 Stórhöfði alskýjað 6 Helsinki alskýjaö 9 Kaupmannah. Ósló léttskýjað 4 Stokkhólmur heiðskírt 8 Þórshöfn Amsterdam skýjaó 11 Barcelona þokumóöa 12 Chicago alskýjað 10 Frankfurt þokumóða 11 Glasgow skýjað 5 Hamborg þoka i grennd 9 London skýjað 11 Los Angeles þokumóöa 16 Madrid heiðskírt 8 Malaga heiðskírt 11 Mallorca skýjað 11 París þokumóða 12 Róm heióskírt 14 Valencia þokumóöa 14 New York rigning 15 Nuuk léttskýjað -3 Vín þokumóða 12 Washington alskýjað 15 Winnipeg léttskýjað 2 Ásthildur Helgadóttir, lmattspymukona ársins: Byrjaði í fótboltanum tíu ára „Sumarið var mjög gott hjá okkur í Breiðbliki, öll markmið- in náðust, við unnum alla leiki eins og við ætluðum okkur og þar með íslandsmótið og einnig unnum við bikarkeppnina. En það verður að segjast eins og er að við bjuggumst við hinum lið- unum sterkari en þau voru,“ seg- ir Ásthildur Helgadóttir, lands- liðskona í knattspyrnu og ný- kjörin knattspymukona ársins. Maður dagsins Ásthildur byrjaði í fótbolta þegar hún var tíu ára: „Ég fékk strax mikinn áhuga á fótboltan- inn. Ég æfði einnig handbolta til sautján ára aldurs en sneri mér þá eingöngu að fótboltanum. Það hefur verið gaman að fylgjast með hversu áhugi hjá ungum stúlkum hefur aukist á fótboltan- um. I sumar þjálfaði ég yngri flokka hjá Breiðbliki og það er orðinn þó nokkur fiöldi ungra stúlkna og telpna sem æfir fót- Ásthildur Helgadóttir. boltann svo framtíðin er björt.“ Ásthildur er í landsliði íslend- inga - er hún ánægð með gengi þess: „Sumarið í sumar var ekki nógu gott og olli frammistaða okkar vonbrigðum þegar miðað er við fyrri ár. Það er samt ekk- ert að óttast, það er mikið af góð- um stelpum að koma upp og landsliðið verður örugglega sterkt í framtíðinni.“ Ásthildur er innfæddur Kópa- vogsbúi og byrjaði strax hjá Breiðabliki: „Ég hef alltaf spilað með Breiðabliki, að undanskild- um tveimur árum þegar ég lék með KR. Nú er ég að öllum lík- indum á leiðinni í nám til Bandaríkjanna í janúar. Ég fékk styrk til að stunda nám við Vanderbilt- háskólann í Nas- hville, Tennessee, og þar hef ég hugsað mér að leggja stund á verkfræðinám og spila fótbolta. Mér bauðst einnig að fara til Þýskalands en kaus þetta frekar vegna námsins. Ég reikna þó með að koma heim næsta sumar og leik þá örugglega með Breiða- bliki.“ Ásthildur, sem lauk stúdents- prófi frá MR í vor, er ólofuð og sagði að það væri lítið pláss fyr- ir önnur áhugamál en fótbolt- ann. -HK Veðrið kl. 6 í morgun Myndgátan Ljón í veginum Haukar og KA verða í eldlínunni í handboltanum í kvöld, en mynd þessi er frá viðureign þeirra í síð- asta mánuði. Handbolti og körfubolti Það verður mikið um að vera í boltaíþróttum í kvöld, en leikin verður heil rnnferð í 1. deild handboltans og heil umferð í Meistaradeildinni í köfúbolta. Sá leikur sem gæti orðið hvað mest spennandi í handboltanum er viðureign Aftiu'eldingar og Fram, sem fram fer í Mosfellsbæ. Aftureldingu er spáð sigri, en óvænt eru nýliðamir Fram á toppi deildarinnar. Aðrir leikir í kvöld eru FH-HK, Selfoss- Stjaman, ÍR-Haukar, Grótta-KA og Valur-ÍBV. Allir leikimir hefiast kl. 20.00. í körfuboltanum hefur margt farið öðruvísi en spáð var og íþróttir hafa Islandsmeistarar Grindvík- inga ekki unnið leik enn sem komið er og þaö má búast við að róðurinn verði erfiður hjá þeim í kvöld þegar þeir fara til Akur- eyrar til að keppa við Þór. Aðrir leikir era KR-UBK, Skallagrím- ur-ÍR, Keflavik-ÍA, Haukar- Njarðvík og FH-HK. Eins og í handboltanum hefiast allir leikir kl. 20.00. Bridge í gær var sagt frá spili í dálkin- um úr Ólympíumótinu árið 1964 og hér kemur annað spil frá því móti. í vöminni í vestur var enginn annar en ítalinn Benito Garozzo, margfald- ur heimsmeistari, en andstæðing- arnir voru búnir að segja sig upp í 6 spaða. Garozzo hitti á laufútspil í upphafi: 4 Á93 44 ÁKG842 4 KD * 76 ♦ KG «4 1065 •f G732 * K543 4 D10764 <4 9 4 Á86 * ÁG82 Sagnhafí drap drottningu austurs á ásinn og tók tvo næstu slagi á KD í tígli. Síðan kom hjartaás, hjarta trompað heima, tígulás tekinn og laufi hent í blindum. Næst var lauf trompað með spaðaþristi, hjarta- kóngur tekinn og laufi hent heima. í þessari stöðu var hjartagosa spilað úr blindum: 4 Á9 44 G84 4 — * — 4 KG 44-- 4 G * K5 4 D1076 44--- 4 — * G N V A S 4 852 4 10 * 10 Pietro Forquet, sem sat í austur, henti lauftíunni, sagnhafi trompaði með spaðatíu og Garozzo yfirtromp- aði á spaðakóng! Hann spilaði síðan laufkóngnum. Sagnhafi trompaði eðlilega á spaðaás og svínaði spað- aníunni yfir til vesturs. Ef Garozzo hefði trompað með gosa hefði sagn- hafi „neyðst“ til að standa spilið. Hann hefði trompað laufkóng vest- ims með spaðaníu, lagt niður spaða- ás og fellt kóng vesturs. Spaða- drottning og sjöa hefði verið gaffall upp í fimmu og áttu austurs. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.