Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1996, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1996, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996 Viðskipti Flugleiðir Qárfesta: Ný 3,5 milljarða króna Boeing- þota 757 Stjórn Flugleiða veitti forstjór- anum, Sigurði Helgasyni, umboð í gær til að leita samninga við Boeing-verksmiðjurnar um kaup á nýrri þotu af gerðinni 757-200. Þotan á að bætast í flotann í apr- íl árið 1999 og kostar í kringum 3,5 milljarða króna. Jafnframt samþykkti stjómin að selja og leigja aftur af kaupendum eina af eldri Boeing 757-200 vélum fé- lagsins síðar á þessu ári. Seðlabankinn: Neysluverös- hækkun um 2,2 prósent Seðlabankinn hefur gert spá um þróun verðlags til ársloka. Samkvæmt henni mun neyslu- verð hækka um 2,3% milli ár- anna 1995 og 1996 og 2,2% yfír árið. Þetta er svipuð hækkun milli ára og spáð var í júlí sl. en ívið hærri yfir árið. í júlí spáði Seðlabankinn 2,2% hækkun neysluverös á milli ára og 2% hækkun yfir árið, að því er segir í tilkynningu frá bankanum. Hækkun neysluvísitölunnar frá öðrum til þriðja ársfjórðungs nam 0,8%, sem jafngildir 3,2% verðbólgu á einu ári og var held- ur meiri verðbólga en á öðrum ársfjórðungi. Hækkunin milli ársfjórðunga var 0,4% umfram spá Seðlabankans frá því í júlí. Helsta ástæða hækkunar var mikil hækkun á verði kartaflna og grænmetis, sem ásamt hækk- un bensinverðs leiddi til 0,6% hækkunar neysluverðs í ágúst sl. Reiknað er með að verðlag muni lítið hækka síðustu tvo mánuði ársins. Spáð er að verð- lag á fjórða ársfjóröungi hækki um 0,4% eða 1,4% á ársmæli- kvaröa. Hækkun verðlags milli ára verður samkvæmt ofan- greindu nálægt fyrri spám Seðla- bankans, eða 2,3%. Kínversk vóru- sýning í Perl- unni Íslensk-kínverska viðskipta- ráðið hefur ákveðið aö halda vörusýningu og málþing í Perlunni 7. febrúar á næsta ári. Þá lýkur ári músarinnar sem nú stendur yfir. Tilefniö er að í des- ember nk. verða liðin 25 ár frá því að ríkisstjórnir íslands og Kína tóku upp stjórnmálasam- band. Á vörusýningunni gefst ís- lenskum fyrirtækjum tækifæri til að kynna þær vörur sem þau flytja inn frá Kína. Málþingið er haldið í samstarfi við KÍM, Kín- versk-íslenska menningarfélag- ið, sendiráð Kína í Reykjavík, sendiráð íslands í Kína og fleiri opinbera aðila. VÍB eykur við sig á Akureyri Verðbréfamarkaður íslands- banka, VÍB, hefur aukið þjón- ustu sína á Akureyri í samstarfi við útibú íslandsbanka við Skipagötu. Andri Teitsson, for- stööumaður VÍB nyrðra, og Rós- ant Már Torfason viðskiptafræð- ingur veita þjónustu við fjár- mögnun fyrirtækja og verðbréfa- miðlun, sem er einkum ætluð at- vinnufyrirtækjum, sveitarfélög- um og stofnanafjárfestum. Þá er í boði þjónusta við verðmat á fyrirtækjum og aðstoð við öflun fjámiagns, framkvæmd útboða og upplýsingar um kjör á fjár- magnsmarkaðnum hér heima og erlendis. -bjb DV Uppnám í aðsigi á markaði geislaplatna, tölvuleikja og myndbanda: Virgin-samsteypan í Borgarkringluna - með þátttöku Árna Samúelssonar og fleiri aðila Aðaleigandi Virgin-samsteypunnar er Bretinn Richard Branson. Auk þess að vera umsvitamikill í afþreyingariðnaðinum rekur hann flugfélag með áætlunarflug milli Bretlands og Bandaríkjanna. Myndin er af Branson fyrir framan eina af vélum félagsins. Símamynd Reuter Uppnám er í aðsigi á markaði hérlendis með geislaplötur, tölvu- leiki og myndbönd þvi innan skamms verður opnuð verslun í endurbættri Borgarkringlu undir nafni Virgin, hins þekkta risa í skemmtanaiðnaðinum og fleiri geir- um, sem m.a. rekur keðju verslana í Bretlandi undir heitinu Virgin Megastores. Nokkrir aðilar standa fyrir rekstri Virgin hérlendis, m.a. Árni Samúelsson, eigandi SAM-bíó- anna. Viðbúið er að hasar verði á heimamarkaðnum því Skífan hefur t.d. einkaumboð hérlendis fyrir vör- ur Virgin á Englandi, m.a. á dreif- ingu geislaplatna Virgin. Talsmað- ur Skífunnar sagði við DV að ekki lægi ljóst fyrir hver viðbrögð fyrir- tækisins yrðu við opunun Virgin- verslunar hér á landi. Upphafsmaður Virgin á íslandi er Helgi Steinar Hermannsson sem m.a. er kunnur fyrir að hafa opnað HMM- verslunina ásamt fleirum í Kringlunni jólin 1993 og selt þar geislaplötur á niðursettu verði í striði við Skífuna og Spor og húsfé- lag Kringlunnar. Helgi staðfesti í samtali við DV í gær að málið hefði verið í undir- búningi um nokkurn tíma. Að- spurður vildi hann hvorki játa því né neita að Árni Samúelsson tæki þátt í þessu með honum en sam- kvæmt heimildum DV hefur Árni lagt töluverða fjármuni í spilið. Ekki náðist í Árna í gær þar sem hann er á ferðalagi í útlöndum. „Við erum að ganga frá ýmsum lausum endum og þetta mun skýr- ast nánar á næstu dögum,“ sagði Helgi Steinar en vildi ekki tjá sig nánar um þetta mál. Árni eykur umsvifin Það er þáttur Áma í þessu dæmi sem fyrst og fremst veldur titringi á markaðnum. Hann hefur til þessa ekki haft afskipti af sölu geisla- platna heldur lagt áherslu á kvik- myndir og myndbönd, auk fjárfest- inga í Stöð 3. Með þátttöku í Virgin eykur Ámi enn umsvif sín í ís- lenska afþreyingariðnaðinum. Virgin verður í rúmgóðu hús- næði á 2. hæð í Borgarkringlunni þar sem Þorpið og Sportmarkaður- inn voru áður til staðar. Stefnt er að opnun 14. nóvember nk. þegar Borg- arkringlan fer í gang á ný eftir gagngerar breytingar. Aðaleigandi Virgin er auðkýfing- urinn Richard Branson. Auk þess að vera umsvifamikill í afþreyingar- iðnaðinum rekur hann flugfélag og veltir hundruð milljörðum króna á ári hverju. -bjb Enn fjölgar farþegum skemmtiferðaskipa - Þjóöverjar fjölmennastir Fjöldi farþega sem kom með skemmtiferðaskipum til landsins i sumar hefur aldrei verið meiri eða nærri 22 þúsund í 51 ferð. Á undan- fómum tíu áram hefur farþegum skemmtiferðaskipa fjölgað jaftit og þétt. Þannig komu í ár 185% fleiri farþegar en árið 1986. Farþegar frá alls 59 þjóðlöndum komu með skipunum í sumar. Þjóð- verjar eru langfjölmennastir eða tæplega 12 þúsund. Bretar voru næstflestir, eða ríflega 3 þúsund, um 2.500 Bandaríkjamenn létu sjá sig og um 2.300 Frakkar. Farþegar annarra landa voru mun færri. Frá eftirtöldum löndum komu að- eins 1 farþegi með skemmtiferða- skipum: Frá Finnlandi, Alsír, Kól- umbíu, Kostaríku, Filippseyjum, ír- ak, Júgóslavíu, Lettlandi, Nýja-Sjál- andi, Pakistan, Panama, Tógó, Tún- is og Úrúgvæ. Fjölda farþega á ári hverju frá 1986 má sjá á meðfylgjandi grafi. -bjb 2. Skemmtiferðaskip - farþegafjöldi á ári - 25.000 ----------------------------------;------ 21.348 21-941 15.699 15.000 ....-......12.789 — "B" 5.000 0 — — 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 DV Hlutabréf SR-mjöls eftirsóttust Hlutabréfaviðskipti um Verðbréfa- þing og Opna tilboðsmarkaðinn í síðustu viku námu tæpum 185 millj- ónum króna. Hlutabréf SR- mjöls vom eftirsóttust en viðskipti með þau námu tæpum 50 milljónum króna. Næst vora bréf Síldarvinnsl- unnar með 34 milljóna viðskipti, bréf fyrir 16,8 milljónir skiptu um eigendur í Hraðfrystihúsi Eskifiarð- ar og fyrir tæpar 13 milljónir í Har- aldi Böðvarssyni. Þingvísitala hlutabréfa hélt áfram að hækka. Vísitalan náði sögulegu hámarki sl. föstudag þegar hún fór í 2240 stig. Frá áramótum hefur þing- vísitalan hækkað um rúm 60 próent. Reyndar lækkaði vísitalan niður í 2237 stig á mánudag og misfórst að færa þá breytingu inn í grafið hér að neðan. Álverð á heimsmarkaði heldur áfram að lækka og fór niður fyrir 1300 dollara múrinn í síðustu viku. Staðgreiðsluverðið var 1295 dollarar fyrir tonnið í London i gærmorgun. Óvissa er um framhaldið en svart- sýnustu menn telja að botninum hafi ekki verið náð. Á gengi gjaldmiðla hafa þær breytingar orðið helstar að pundið heldur áfram að hækka. Sölugengið var komið vel yfir 106 krónur í gær- morgun. Þýska markið hefur hins vegar lækkað í verði og var í gær komið niður fyrir 44 krónur. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.