Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1996, Qupperneq 10
10
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996
Fréttir
Forystumenn í þingliði Vest-
firðinga bönnuðu kvótakaup
- segir Siguröur Viggósson hjá Odda á Patreksfirði
Fyrirtæki Sigurðar Viggóssonar á
Patreksfirði, Oddi, hefur nýlega
keypt 2 krókabáta með þorskaflahá-
marki eða kvóta eins og það kallað.
Með bátunum kemur 250 tonna
kvóti. Útgerðarmenn hafa hafa að-
eins verið að fjárfesta í slíkum bát-
um á svæðinu en skort peninga til
að gera meira.
Sigurður segir að eftir á að
hyggja hafi vestfirskir útgerðar-
menn fengið í hendumar fjöregg
byggðanna og það yrði að segjast
eins og er að þeir hefðu ekki staðið
undir ábyrgðinni. Betra hefði verið
að fiskvinnslufólk og sjómenn hefðu
fengið kvótana.
„Forystumenn í þingmannaliði
Vestfirðinga fullyrtu á sínum tíma
að kvótakerfið yrði í mesta lagi í 1-2
ár. Þeir hafa hreinlega bannað vest-
firskum útgerðarmönnum að kaupa
kvóta, varað við þvi og hvatt til að
það yrði ekki gert því það væri bara
peningasóun. Meginhluti vinnslu og
útgerðar á Vestfjörðum á þessum
tíma hafði ekki efni á að kaupa
kvóta þrátt fyrir að verð á honum
Hlustaöu á Rósu Ingólfs
í síma 905-2525
Rósa Ingólfsdóttir ræðir af hispursleysi
um hjónabandið, ástina og kynlífið.
Gagnleg og kitlandi skemmtun fyrir
fullorðið fólk.
66,50 mínútan
Siguröur Viggósson, framkvæmdastjóri Odda hf. á Patreksfirði.
DV-mynd BG
væri mun lægra en nú. Kvótinn var
talinn algjör bráðabirgðalausn og
ekki vert að fjárfesta í honum,“
sagði Sigurður. Hann telur að skila-
boð frá þingmönnum Vestfirðinga á
þessum tíma hafi haft mest áhrif á
þá ákvörðun að fjárfesta ekki í
þessu.
- En verður aftur snúið úr kvóta-
kerfinu?
„Jú, ég spái þvi að innan 3ja ára
verði búið að umbylta þessu kerfi.
Það verður einmitt vegna þeirra fáu
sterku aðila sem eftir standa með
megnið af kvótanum. Þessir útgerð-
armenn eru innan við þúsund en
fiskvinnslufólk, sjómenn og allur al-
menningur er um 260 þúsund. Þetta
fólk mun krefjast breytinga og gera
tilkall til kvótans. Ég held að út-
gerðarmenn hafi búið sér þá stöðu
að það verði auðvelt fyrir stjórn-
málamenn að snúast á sveif með al-
menningi og það verði búið að taka
upp veiðileyfagjald innan 3 ára í
varanlegri mynd.
Ég held að almenningur muni
hrifsa til sín þessi völd. Ég á þó von
á því að útgerðarmenn fái aðlögun-
artíma í þessum málum. Það voru
settar fram hugmyndir um það fyr-
ir þremur árum að kvótinn yrði
minnkaður um 15% á ári. Ég mæli
þó ekki neitt sérstaklega með veiði-
leyfagjaldi. Ég hefði viljað að veiði-
heimildir hefðu verið afmarkaðar
við svæði þannig að Vestfirðingar
nýttu Vestfiarðamið. Það verður þó
væntanlega aldrei og því er spum-
ingin hvort veiðleyfagjaldið sé ekki
eini kosturinn sem eftir er.“
Sigurður sagði að það yrðu ör-
ugglega mun færri bátar á línu-
veiðum frá sunnanverðum Vest-
fiörðum en verið hefðu undanfarin
ár. Oddi mun gera Núp BA út til
línuveiða í vetur en nú eru þrír
línubátar á Patreksfirði og Tálkna-
firði til sölu. Það eru bátarnir Guð-
rún Hlín og Andey á Patreksfirði
og Sigurvon Ýr á Tálknafirði sem
reyndar er einnig í eigu Bilddæl-
inga og seld er með megninu af sín-
um kvóta. Sigurður telur að sala á
þessum línubátum sé afleiðing af
þeim erfiðleikum sem verið hefur í
útgerð þeirra og í vinnslunni.
Menn séu að selja til að styrkja
sinn fiárhag. Bátarnir Guðrún Hlín
og Andey á Patreksfirði eru aug-
lýstir til sölu kvótalausir en eig-
andi þeirra, Guðfinnur Pálsson,
mun vera að kaupa rækjutogara og
flytur líklega veiðiheimildir bát-
anna yfir á hann.
-HKr
HOLLRáD TIL AÐ NÝTA TÍMANN
Finnst okkur ekki stundum að við höffum ekki tíma til að koma neinu í verk?
Hér eru nokkur góð ráð sem gætu bjargað deginum.
FARANLEG LOG I AMERIKU
ÞAD ER ÓLÖGLEGT:
- Að synda á þurru landi í Santa Ana í Kaliforníu
- Að herma eftir dýrum á Miami í Flórída
- Að bera sápu á járnbrautarteinana I Mississippi
á '08^^'
a s°tostað
LVKT OG VIOKVÆMNI
Hvaðeina sem fær persónulega loftgæðavísitölu manns til að nálgast rauða strikið er einkamál
hvers og eins. Málið er að halda henni innan samfélagslegra marka.
NVJASTA TÍSKUBANNHELGIN í HOLLYWOOD
Sifjaspell eru allt f einu orðin handhæg skýring á alls konar afbrigðilegu hátterni fólks. Spyrja má
hvort þeir I Hollywood séu einungis að afskrifa vandann.
BlLSLYS og forvarnir
Öryggisbelti í bílum, líknarbelgir og ýmis annar öryggisbúnaður dregur úr alvariegum áverkum í
umferðarslysum.