Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1996, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996
11
DV
Fréttir
Davíö Bergmann Davíösson, starfsmaður útideildar, fyrir framan húsnæöi deildarinnar í Tjarnargötu. Pangaö hafa
leitað margir unglingar sem hafa lent á villigötum óreglu og eiturivfja. DV-mynd Pjetur
Nær þúsund ungl-
ingar djúpt sokknir
í eiturlyfjaneyslu
- segir Guðmundur Þorvaldsson, forstöðumaður Mótorsmiðjunnar
„Ég tel að það séu tæplega þús-
und unglingar á aldrinum 13-16 ára
sem geta talist djúpt sokknir í eitur-
lyíjaneyslu á íslandi í dag,“ segir
Guðmundur Þorvaidsson, forstöðu-
maður Mótorsmiðjunnar, við DV
um flkniefnavanda meðal unglinga í
grunnskólum landsins. Mótorsmiðj-
án er sérhæfð félagsmiðstöð fyrir
unglinga með mótorhjólaáhuga.
„Að vera djúpt sokkinn á ég við
að viðkomandi neyti eituriyfja einu
sinni í viku eða tvisvar í mánuði til
að komast í vímu og burt frá hvers-
dagsleikanum. Það er oft umdeilt
hvað menn telja að vera djúpt sokk-
inn en þetta er mitt mat á stöðunni.
Það er allt morandi af eiturlyfjum í
grunnskólum og þar er auðveldlega
hægt að fá efni eins og kannabis
o.fl. Það er mjög brýnt að finna hús-
næði og almennilega stofnun fyrir
þessa unglinga þar sem þeir geta
verið í meðferð og losnað imdan
þessu. Ég tel að Vogur henti engan
veginn sem meðferðarheimili fyrir
svona unga krakka. Það þarf aö
flnna lausn á þessum vanda sem
fyrst,“ segir Guðmundur.
30-50 í haröri neyslu
„Við vitum að það eru u.þ.h. 39-50
unglingar yngri en 16 ára sem eru í
harðri neyslu eiturlyfja. Sá yngsti
sem við höfum þurft að hafa afskipti
af var 13 ára gamall," segir Davíð
Bergmann Davíðsson, starfsmaður
útideildar sem er á vegum félags-
málastofunnar, um málið.
„í ársskýrslu SÁÁ frá því í fyrra
kemur fram að það eru 33 unglingar
á aldrinum 15-16 ára sem fóru í
meðferð vegna eiturlyfja. Það segir
manni að neyslan hefur byrjað
tveimur árum áður. Svo er spum-
ing hvað skal flokka undir harða
neyslu og hvar ætla menn að setja
mörkin. Það hefur aldrei komið
fram. Ég get fullyrt að það eru alla
vega í kringum 200 unglingar yngri
en 16 ára sem hafa fiktað við eitur-
lyf. Krakkamir segja okkur að það
sé ekkert mál að verða sér úti um
eiturlyf í skólunum því framboðið
sé mikið þar.
Það sem skiptir öllu máli er að
vandinn er til staðar og það þarf
eitthvað að gera til að spoma við
þessu. Þetta er gríðarlega alvarlegt
mál og vandinn á eftir að aukast ef
ekki verður eitthvað gert í málun-
um nú þegar. Forvarnarstarflð er
víða mjög gott en það þarf greini-
lega að gera enn betur. Hjá okkur er
alltaf opið og unglingarnir geta
komið til okkar og leitað ráða og
mjög margir nýta sér það. Það er
mjög erfitt að koma unglingum í
meðferð á þessum aldri af því að
biðlistamir eru langir. Biðtíminn
getur verið mikill og unglingamir
geta verið fljótir að skipta um skoð-
un,“ segir Davíð.
Fíkniefnin í skólunum
„Það liggur fyrir mjög ítarleg
rannsókn um jjetta sem framkvæmd
var af Rannsóknastofnun uppeldis-
og menntamála. Þar kemur fram að
um sé að ræða 30-40 börn og ung-
linga sem séu komin í harða neyslu
eiturlyfja. Ég vil alls ekki gera lítið
úr þeim vanda sem þessi mál em
því hann er stór og alvarlegur.
Fíkniefnin éra í grunnskólunum, á
því leikur enginn vafi. Það er líklegt
að hátt í 200 börn og unglingar eða
jafnvel fleiri hafi prófað einhver eit-
urlyf en það er ekki nema lítill hluti
af þeim sem getur flokkast undir
forfallna eiturlyfjaneytendur. Ég tek
undir það að full ástæöa er til að
efla forvamir í grannskólunum og
taka á þessum málum,“ segir Bragi
Guðbrandsson, forstjóri Barna-
verndarstofu, við DV um málið.
Fjölmargir sem fikta
„Við hjá lögreglunni höfum lítil
afskipti af unglingum undir 16 ára
þó að endram og eins komi það fyr-
ir. Við vitum þó og höfúm heimild-
ir fyrir því að það era fjölmargir
unglingar undir 16 ára sem eru að
fikta við fíkniefni. Ég hef það á til-
finningunni að það séu fleiri en
20-30 unglingar yngri en 16 ára sem
séu djúpt sokknir í eiturlyf. Það er
alltaf verið að tala um þá sem eru í
skólunum en oft gleymast þau
hundrað sem detta út úr skóla áður
en grunnskóla lýkur. Það er tölu-
vert stór hópur og í honum era í
flestum tilfellum krakkar sem hafa
dottið út úr skóla af því þeir era í
óreglu. Vandinn er mikill og ég veit
ekki hvað er hægt að gera. Mér
finnst sáralítið hafa verið gert af
viti undanfarin ár í þessum málum.
Það hefur vantað herslumuninn
víða, bæði hjá lögreglu og annars
staðar," segir Ólafur Guðmundsson
hjá forvarnardeild lögreglunnar í
Reykjavík. -RR
SVARTI
SVANURINN
10ÁRA
Nýtt - Nýtt
Kjulingabitar
Nuggets
5 stk. 250 kr.
8 stk. 375 kr.
2*
SVARTISVANURINN
Menntamálaráðuneytið
Orlof
Athygli er vakin á því aö umsóknir um orlof fram-
haldsskólakennara fyrir skólaárið 1997-1998
þurfa að berast menntamálaráðuneytinu fyrir 1.
nóvember næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið, 15. október 1996
Auður Leifsdóttir cand. mag.
hefur margra ára reynslu í dönskukennslu viö
Námsflokka Reykjavíkur, Háskóla íslands og
Kennaraháskóla Islands.
DÖNSKUSKÓLINN
STÓRHÖFÐA 17
Dönskuskólinn er nú aö hefja ný námskeiö bæöi fyrir byrjendur
og þá sem vilja bæta viö sig kunnáttu og þjálfun. Hagnýt dönsk
málnotkun kennd í samtalshópum þar sem hámarksfjöldi nem-
enda er 8 og fer kennsla fram í 2 tíma, tvisvar sinnum í viku.
Einnig veröa haldin stutt námskeiö fyrir unglinga sem vilja bæta
sig í málfræöi og framburöi. Jafnframt er boðið upp á einkatíma
eöa annars konar kennslu í munnlegri og skriflegri dönsku, sem
og sérstaka bók-menntahópa fyrir fulloröna.
INNRITUN ER ÞEGAR HAFIN í SÍMA 567 7770
EFTIR KL. 13.00 OG EINNIG ERU VEITTAR
UPPLÝSINGAR í SÍMA 567 6794.
SMIÐSBUÐ
Smiðsbúð 8 og 12,
210, Garðabær
sími: 565-6300
fax : 565-6306
Skjalaskápar
Traustir - vandaðir
og á góðu verði!
KR. 22.995 KR. 17.417 KR. 20.256
Söluaðilar:
Ólafur Císlason & Co hf Sundaborg 3 Reykjavík Sími 568 4800
E.G. Skrifstofubúnaður Ármúla 20 Reykjavík Sími 533 5900
Bókabúð Kcflavíkur Sólvallagata 2 Kcflavík Sími 421 1102