Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1996, Síða 24
32
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996
Sviðsljós
I>V
Jan-Michael
Vincent alvarlega
slasaður
Sjónvarpsstjarnan Byron úr
Stríðsvindum liggur nú þungt hald-
inn eftir alvarlegt umferðarslys.
Læknar óttast að hann hafi skadd-
ast svo illa á hrygg og hálsi að hann
eigi ekki eftir að ná sér. Slysið átti
sér stað þegar Jan-Michael ók á eft-
ir vinkonu sinni. Hann keyrði á bíl
hennar, missti stjóm á sínum eigin
bíl og rakst á umferðarljósastaur.
Orðrómur er á kreiki um að kapp-
inn hafi verið undir áhrifum eitur-
lyfia eða áfengis þegar slysið varð.
Segal skiptir á
sjóliðabúningi
og hljóðnema
Steven Segal er að hugsa um að
skipta á sjóliðabúningnum og hljóð-
nema samkvæmt frásögnum banda-
riskra fiölmiðla. Segja þeir leikar-
ann hafa staðið í viðræðum um
plötuútgáfu. Segal mætti á fundinn
hjá Time Wamer fyrirtækinu með
tvo lífverði og vakti það talsverða
athygli. Segal, sem er orðinn 45 ára,
var í rokkhljómsveit þegar hann
var 17 ára. Gárungamir benda á að
margir búi að þeirri reynslu.
Julia Baird, hálfsystir Lennons:
Mamma og John hlustuðu
á Elvis og sungu með
Julia Baird er ekki þekkt nafn
enda hefur hún ekki verið í sviðs-
ljósi fiölmiðlanna. Hún þykir hins
vegar athyglisverð fyrir þær sakir að
hún er hálfsystir Johns heitins
Lennons. Þau vora sammæðra en
ólust ekki upp saman því John ólst
að mestu upp hjá móðursystur sinni,
Mimi.
„Við áttum í raun fimm mæður
því allar systur mömmu tóku þátt í
uppeldinu. Hún var yngst systranna
og var aðeins tólf ára þegar hún
kynntist fóður Johns. Hann var
óreglumaður sem hafði alist upp á
munaðarleysingjahæli og að annast
fiölskyldu var ekki hans sterkasta
hlið. Við eigum systur sem var gefin
við fæðingu til ættleiðingar. Hún fór
til Noregs og ég veit ekki hvort hún
veit að John Lennon var bróðir
hennar. Það hefur aldrei neitt heyrst
frá henni,“ segir Julia.
Julia þykir mjög hlédræg kona og
er ekkert að gaspra um tengsl sin við
John Lennon við hvem sem er. Hún
er sjö árum yngri en John, þ.e. 49
ára, og á þrjú böm á aldrinum 17-26
ára.
Julia segir að hún sakni Johns
mjög mikið og hún hugsi til hans á
hveijum degi, sérstaklega þar sem
þau hittust aldrei eftir að hann flutti
til Bandaríkjanna. „Við skrifuðumst
á og hann var búinn að bjóða mér
margoft að koma í heimsókn til
Bandaríkjanna. Ég fann hins vegar
alltaf einhverjar afsakanir því mér
fannst við hafa nægan tíma. Það
hvarflaði aldrei að mér að svona færi
og það er margt sem ég myndi breyta
ef ég gæti. Hins vegar hefúr þessi
lífsreynsla gert mig að sterkari
manneskju og markmið mitt í lífinu
er að lifa lifinu lifandi."
Julia Blair, hálf-
systir Johns
Lennons, segir
aö hann og
mamma þeirra
hafi verið mjög
náin. Hún segir
að mamma
þeirra hafi verið
mjög listræn og
líklega haft
meiri hæfileika
en John. Hún
dó í bílslysi
þegar John var
17 ára og Julia
11 ára
S-Kóreumenn hafa lítinn áhuga á Jackson.
Lætur hanna á sig
loftkældan jakka
Michael Jackson hefur falið
tiskuhönnuðinum Versace það
verkefni að útbúa jakka með loft-
kælingu. Jackson er orðinn þreytt-
ur á hitanum frá sviðsljósunum sem
skina á hann á tónleikum. Gert er
ráð fyrir að jakkinn komi til með að
kosta rúmar tvær og hálfa milljón
íslenskra króna.
En þó svo að sviðsljósin skíni
skært á Jackson hafa íbúar Suðaust-
ur- Asíu, þar sem hann er á tón-
leikaferðalagi, takmarkaðan áhuga
á söngvaranum. Á sunnudaginn
hélt hann tónleika í Seoul í S-Kóreu
á leikvangi sem rúmar 60 þúsund
áhorfendur. Á tónleikana komu um
50 þúsund manns. Á fostudeginum
var leikvangurinn bara hálffullur.
Jackson fékk þó tryggingu fyrir um
140 milljóna króna þóknun auk þess
sem umboðsaðilinn í S-Kóreu greið-
ir 5 daga gistingu fyrir hann i svítu
á lúxushóteli.
Talsverðar umræður fóru fram í
S-Kóreu áður en Jackson kom um
hvort leyfa ætti honum að halda
tónleika í landinu vegna ásakana á
hendur honum um kynferðislega
áreitni gagnvart bömum.
Aukablað
HÚS OG HÚSBÚNAÐUR
Miðvikudaginn 23. október
mun aukablað um hús og
húsbúnað fylgja DV.
Meðal annars verður fjallað um heimilistœki, tœki
og innréttingar í eldhús og bað, gólfefni, húsgögn
og ýmislegt annað innanstokks.
Þeim sem vilja koma áframfœri efni í
blaðið er bent á að hafa samband við
Guðrúnu Gyðu, blaðamann DV, hið
fyrsta í síma 550-5821.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á
að auglýsa íþessu aukablaði, hafi
samband við Selmu Rut, auglýsinga-
deild DV, hið fyrsta í síma 550-5720.
Vinsamlegast athugið að skilafrestur
auglýsinga íþetta aukablað er
fimmtudaginn 17. október.
Tískan er síbreytileg og oft á tíðum ansi lífleg. Hvað notagildið varðar er hins
vegar annað mál og spurning hvort margir myndu spóka sig í þeim klæðn-
aði sem sjá má á myndinni en heiðurinn af honum á japanski hönnuðurinn
Junko Koshino.