Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1996, Qupperneq 32
Tvafaklur
I. vinningur 1
. Ltm
ýlmlkllsað vinn®<
Vinningstölur
15.10/96'
25) (26) (27)
KIN
s Ln
«=c
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 1996
Akureyri:
Númer
klippt af
20 bílum
DV, Akureyri:
Mörgum Akureyringum hefur ef-
laust brugöið í brún þegar þeir
komu að bifreiðum sinum í morgun
og hugðust halda til vinnu því að
lögreglumenn í bænum voru á ferð-
inni í nótt og klipptu númer af 20
bifreiðum.
Að sögn varðstjóra eru þessar
„klippingar" til komnar vegna van-
goldinna bifreiðagjalda og mun lög-
reglan hafa „drjúgan lista“ yfir
fLeiri bifreiðar sem klippt verður af
á næstunni greiði eigendur þeirra
ekki gjöldin. „Þetta á ekki að koma
mönnum á óvart því þetta er gert
eftir ítrekaðar viðvaranir og fresti
sem menn hafa fengið til að koma
málum í lag,“ sagði varðstjórinn.
-gk
Árangurslaus
leit að
skipverjum
Leitin að skipverjunum þremur,
sem saknað er eftir að vélbáturinn
Jonna SF frá Höfn fórst á sunnu-
dagskvöld, hefur engan árangur
borið.
í gær leituðu rúmlega 60 björgun-
arsveitarmenn og voru gengnar
fjörur frá Eldvatnsósi vestur að Sól-
heimasandi, sem er ríflega hundrað
kílómetra langt svæði, að sögn
Reynis Ragnarsson, lögregluvarð-
stjóra í Vík í Mýrdal. Reynir flaug
sjálfur yfir svæðið í gær en varð
einskis var. Leit verður haldið
áfram í dag. -RR
- sjá einnig bls 2
Suðurland:
Tíu litlir skjálftar
„Við höfum mælt tíu litla skjálfta
í gær og í nótt. Þeir voru frá mínus
0,5 upp í 1 á Richterskvarða og það
telst mjög lítið. Skjálftarnir eiga
upptök sín fyrir norðan Ingólfs-
fjall,“ segir Sigurður Rögnvaldsson,
jarðskjálftafræðingur á Veðurstof-
unni, við DV í morgun.
Sigurður segir þetta vera það sem
við var að búast eftir skjálftann sem
var á mánudagskvöld, en sá var upp
á 3,9 á Richter.
-RR
Átök tveggja unglingahópa á höfuðborgarsvæðinu:
„Klíkustríð"
milli skóla
- kenna sig við Réttarholtsskóla og Snælandsskóla
Gimnar Ásgeirsson, yflrkennari í
Réttarholtsskóla, við DV vegna
málsins.
Piltur sleginn í höfuö
Piltur var fluttur á slysadeild
eftir slagsmál hópanna við Digra-
nesskóla í Kópavogi á föstudags-
kvöldið. Pilturinn var sleginn
hrottalega í höfuðið með þeim af-
leiðingum að hann hlaut stóran
skurð.
Að sögn yfirlögregluþjóns í
Kópavogi, Magnúsar Einarsson-
ar, er þetta mál til meðferðar hjá
skólastjórn viðkomandi skóla.
-RR
Undanfarið hafa átök geisað
milli tveggja unglingahópa sem
hafa kennt sig við Réttarholts-
skóla og Snælandsskóla og þeir
tekist á.
„Klíkurnar" hafa átt í útistöð-
um á kvöldin og hefur komið til
slagsmála á skólalóðum og víðar,
bæði í Reykjavík og Kópavogi.
Fyrir helgi slasaðist piltur illa
þegar hann var sleginn í átökum
„klíkanna".
Þá sögðust þrir piltar úr
Réttarholtsskóla, sem DV ræddi
við í gær, hafa fengið áverka eftir
slagsmál við nemendur Snæ-
landsskóla. Þá sögðu piltarnir að
fram undan væru harðari átök.
Tengist ekkl skólunum
„Þetta eru átök sem eiga sér
stað utan skólatíma og tengjast
skólunum ekki neitt. Þarna er um
að ræða einhverja unglinga sem
vilja slagsmál og læti og nota nöfn
skólanna sem átyllur til að gera
hasar. Mér skilst að þarna séu
líka á ferðinni ungmenni sem eru
eldri en þeir unglingar sem sækja
skólana. Ég hef rætt málið við
Reyni Guðsteinsson, skólastjóra
Snælandsskóla, og við erum sam-
mála mn að á þessu stigi komi
þetta ekki til okkar kasta,“ segir
Ráöist var á pilt viö Digranesskóla í Kópavogi og hann sleginn hrottalega í höfuöiö. Pilturinn hlaut viö þaö
stóran skurö og var fluttur burt í sjúkrabíl. Parna mun hafa verið um aö ræöa „klíkustríö" milli tveggja ung-
lingahópa. DV-mynd S
Rangárvallasýsla:
Notkun Heklu-
nafnsins
mótmælt
„Þeir hafa gert athugasemd við að
Heklu-nafnið sé notað og ég er viss
um að samkomulag muni nást í
málinu," segir Kristján Árnason í
Stóra-Klofa en Hekla hf. hefur gert
athugasemd við að Heklu-nafnið sé
notað í Rangárvallasýslu, Heklu-
ferðir, Heklu-miðstöð, Heklu-hestar
o.s.frv.
Blaðafulltrúi Heklu hf„ Finnbogi
Eyjólfsson, segir málið í eðlilegum
farvegi hjá lögfræðingi. Fyrirtækið
hafi í gegnum árin þurft að verja
nafnið og þau mál hafi yfirleitt ver-
ið leyst með því að tiltekin fyrir-
tæki hafi skipt um nafn.
„Ég á ekki von á öðru en að sam-
komulag náist við þetta fólk fyrir
austan og að og Heklu-nafninu verði
skipt út.“
-sv
Grímsvötn
1504 metrar
„Það hefur nýtt fjall myndast af
völdum eldgossins og nær fjallstopp-
urinn upp fyrir jökulinn. Það er
ekkert gos í gangi og annað hvort
liggur gosið niðri tímabundið eða
því er lokið. Yfirborð Grímsvatna
var orðið 1.504 metrar samkvæmt
mælingum okkar í gær. Bræðslu-
vatn heldur áfram að renna frá gos-
stöðvunum og grefur sig undir
jökulinn til Grímsvatna," segir
Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlis-
fræðingur hjá Norrænu eldfjalla-
stöðunni, við DV í mrogun.
Jöklafræðingar Raunvísinda-
stofnunar áætla að 1.505 til 1.510
metra vatnshæð þurfi til að vatnið
nái að smeygja sér undir stífluna
sem heldur vatni í Grímsvötnum.
-RR
Enn sigra
íslendingar
íslenskir keppendur halda áfram
að gera það gott í danskeppninni
Intemational Championship í
London. í flokki 11 ára og yngri
sigruðu Davíð Gill Jónsson og Hall-
dóra Sif Halldórsdóttir en í þeim
flokki hófu 30 pör keppni. Benedikt
Einarsson og Berglind Ingvarsdóttir
sigruðu flokki 12-15 ára og hafa þau
sigrað í öllum þremur keppnunum í
suðuramerískum dönsum á mótinu.
Til að auka enn á glæsilegan ár-
angur íslenskra para í þessari al-
þjóðlegu danskeppni komust Árni
Þór Eyþórsson og Erla Sóley Ey-
þórsdóttir í undanúrslit í flokki
16-20 ára. -JHÞ
ÞEGAR GOSIÐ I
VATNAJÖKLI HÆTTIR
FER AE> GJÓSA HJÁ
KRÖTUM!
Veðrið á morgun:
Kólnandi
veður
Á morgun er búist viö austan-
og norðaustankalda viðast hvar.
Rigning eða slydda verður aust-
anlands, slydduél við norður-
ströndina en lengst af þurrt og
bjart veður suðvestan og vestan
tÚ á landinu. Veður fer kóln-
andi.
Veðrið í dag er
á bls. 36
Kvöld- og
helgarþjónusta
Merkivél
m/íslensku letri
Nýbýlavegi 28 - sími 554-4443