Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1996, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1996, Page 6
6 MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 1996 Fréttir Sandkorn dv Sjálfsmorð tíðari meðal sjómanna en annarra stétta - segir Vilhjálmur Rafnsson læknir sem hefur gert rannsóknir á þessu sviði Dánartíðni sjómanna - dánarorsakir sjómanna utan vinnu á árunum 1966 til 1989 Unniö samkv. rannsókn Vilhjálms Rafnssonar læknis 104 80 “4 o —smmsi. .--------' .................. Bíislys Áfengiseítrun Hrap Drukknun Sjálfsmorö Ekki vitaö OV Sjómenn Áætlaðar dánarorsakir annarra stétta 160 manns 140 120 100 • „Það er alveg ljóst aö sjálfsmorð eru tíð meðal sjómanna og mun tíð- ari en meðal annarra stétta is- lenskra karlmanna," segir Vilhjálm- ur Rafnsson læknir, en hann hefur gert ítarlega rannsókn á dánartíðni sjómanna. í rannsókninni, sem náði til tæplega 28 þúsund sjómanna, var lögð sérstök áhersla á dauðaslys sem höfðu orðið annars staðar en á sjó. „Það er hægt að hugsa um orsak- ir sjálfsmorða á mismunandi vegu. Sumir segja að bak við sjálfsmorð liggi einhver geðveiki eða hugsýki og ég ætla ekki að andmæla því. Ég vil að hugsað verði lengra aftur. Af hverju skapast þær aðstæður frekar í hópi sjómanna að þeir fremji frek- ar sjálfsmorð en aðrir? Eru ytri að- stæður að einhverju leyti þannig að þeim líður það illa að þeir sjá enga aðra leið en að stytta sér aldur? Ytri aðstæður eru eitthvað sem má ráða við og þama þarf að skoða betur hvað liggur á bak við. Ég finn að sjómenn hafa miklar áhyggjur af þessu og þetta hefur komið meira inn í umræðuna hjá þeim en áöur. Það gerir mig o.fl. bjartsýna á að lausnir finnist því auðvitað þekkja sjómenn sínar að- stæður betur en sérfræðingar í landi,“ segir Vilhjálmur Sjómenn í dauöaslysahættu „Það er alveg ljóst að dánartíðni sjómanna er hærri vegna slysa utan vinnu en almennt gerist hjá íslensk- um karlmönnum í öðrum stéttum. Þetta er mjög forvitnileg niðurstaða en á sama tíma auðvitað mjög alvar- leg. Sjómenn virðast vera sérstakur hópur sem er í mikilli dauðaslysa- hættu og hættan er greinilega ekki einangruð við sjóslys. Tengsl dauða- slysa sem ekki verða til sjós við starfstíma á sjó benda til að sjó- menn mótist fyrir áhrif vinnunnar og taki upp áhættusama hegðun og lífsstíl. Því lengur sem þeir eru til sjós því meiri virðist slysahættan vera. í rannsóknum kemur fram að staðlað dánarhlutfall sjómanna var hátt vegna allra dánarmeina og allra slysa, eitrana og ofbeldis. Hátt dánarhlutfall á sjó kemur ekki á óvart en hlutfallið er einnig hátt vegna bílslysa, eitrana, sjálfsmorða, manndrápa og þegar óljóst var hvort um sjálfsmorð eða annan áverka var að ræða. Sjómenn eru einhverra hluta vegna slysagjarnari en aðrir ís- lenskir karlmenn en við höfum ekki komist að því af hverju svo er. Það virðist þó sem þessi mikla slysa- hætta, sem er úti á sjó, haldi áfram þegar sjómenn koma í land. Það er ósennilegt að til sjómennsku ráðist þeir karlmenn sem fyrir fram eru slysagjamir eða óvarkárari því þessi rannsókn nær til svo fjöl- menns hóps,“ segir Vilhjálmur. -RR Víða þrúgandi ástand - segir Jón ívar Einarsson læknir Málstofa um sálræn áhrif á sjómenn: Aflaleysi mjög streituvaldandi fyrir sjómenn og and- rumsloftið um borð - segir Álfheiður Steinþórsdóttir sálfræðingur „Ég fann að það var víða þrúgandi ástand meðal skipveija og sérstak- lega meðal þeirra sem höfðu verið lengi úti. Það sem ég fann að fór verst i menn var að þeir veiddu mjög lítið og aðgerðaleysið tók á taugarnar," segir Jón ívar Einars- son en hann var læknir á varðskip- inu Óðni sem var 7 vikur í Smug- unni seinni hluta sumars. „Það kom ekkert tilfelli upp á þeim tíma þar sem ég þurfti að hafa afskipti af einhverjum vegna þung- lyndis. Ég býst við að það hefði eng- inn leitað til læknis úti á sjó nema hlutimir væru komnir í algert óefni. Það helsta var að nokkrir áttu erfitt með svefh. Það getur svo sem alltaf bent til einhvers en þarf ekki að gera það. Mér fannst víða mikill munur á mönnum sem voru nýkomnir í Smuguna og þeirra sem voru búnir að vera þar lengi. Þá fannst mér einnig að þeir sem vissu nokkurn veginn hve lengi þeir væm þama úti væru ánægöari en hinir því þessi óvissa um tíma ferðarinnar var mörgum erfið. Það er margt sem þarf að bæta, t.d. fjarskipti og einnig aðbúnað á mörgum skipunum. Flest þeirra vora vel búin hvað varðar afþrey- ingaraðstöðu en mörg hver voru alls ekki nógu vel sett í þeim efhum. Það er engin spurning að þetta eru erfið- ar aðstæöur og þær taka á menn. Það er auðvitað ekki alveg eðlilegt að þurfa að vera einangraður svona lengi frá fjölskyldum og vinum, langt úti í ballarhafi. En ef skipin era vel búin, menn I góðu andlegu jafnvægi þegar jpeir leggja af stað og vita nokkurn veginn hve lengi þeir verða þá held ég að menn ættu að þola þetta. Persónulega gæti ég alveg hugsað mér að fara I einn eða tvo svona túra en það væri slæm tilhugsun ef ég þyrfti að eyða miklum tíma á svona stað. Ef ég ætti fjölskyldu myndi ég eflaust aldrei geta þetta,“ segir Jón ívar. „Málstofan var mjög fróðleg og gagnleg fyrir alla aðila sem að mál- inu koma. Það er ljóst að menn þurfa að vinna sína heimavinnu vel því að mörg vandamál eru til stað- ar. Það þarf að koma miklu betur til móts við sjómenn með ýmsum hætti,“ segir Benedikt Valsson, framkvæmdastjóri Farmanna- og fiskimannasambandsins, viö DV. Sambandið hafði ásamt Sjó- mannasambandi Island málstofu á dögunum þar sem fjallað var um sálræn og félagsleg áhrif langrar útivistar á sjómenn og fjölskyldur þeirra. Á málstofunni kynnti Alfheiður Steinþórsdóttir sálfræðingur nám- skeið sem Sálfræðistöðin hefur stað- ið fyrir, annars vegar fyrir áhafnir skipanna og hins vegar fyrir konur sjómanna. Markmið námskeiðanna er að auka á ánægju í sjómannaíjöl- skyldunni og fyrirbyggja ágreining. Að sögn Alfheiðar eru námskeið- in tvískipt. Fyrri hluti fjallar um samskipti í starfi, vinnuanda og ágreining sem upp getur komið um borð. Seinni hlutinn fjallar, að sögn Álfheiðar, um samskipti og fjöl- skyldulíf. Kvennanámskeiðin fjalla einnig um samskipti og fjölskyldulií' og aðferðir til að styrkja sjálfstraust og öryggi sjómannskvenna. „Það sem er sérstakt við sam- skipti sjómanna innbyrðis markast af því að þeir eru um tíma einangr- aðir frá öðram samskiptum en við vinnufélagana. Þeir fara ekki heim eftir vinnudag heldur halda áfram að vera á vinnustaðnum. Það getur haft áhrif á hvað kemur upp í sam- skiptunum en einnig gildir um sjó- menn að þeir verða að sinna þörfum fyrir félagstengsl á vinnustaðnum. Vinnufélagamir eru þeir sem deila tómstundunum líka,“ segir Álfheið- ur. „Þegar litið er á streituvalda í langri útivist sjóm'anna era það oft fleiri þættir sem tvinnast saman, eftir því sem fram kemur á nám- skeiðunum. Aðalstreituvaldar eru t.d. að lítið veiöist og túrinn verðrn- lcmgur og lengri en áætlað var. Laun em aflatengd þannig að afla- leysi er mjög streituvaldandi fyrir hvern einstakan sjómann og and- rúmsloftið um borö. Á sama hátt eykst gleði og bjartsýni þegar vel veiðist. Því lengri sem túrinn er því meiri líkur eru á aö leiði aukist og eríitt er að vita ekki hvenær á að fara í land. Áhyggjur magnast og streituþol minnkar mjög hratt. Þetta kemur fram í samskiptunum innbyrðis og ágreiningur eykst oft verulega. Áhyggjur sjómanna snú- ast ekki sist um fjölskyldu og heim- ili. Þær aukast með lengri fjarveru og það hefur mikil áhrif á sjómann- inn og konu hans þegar ekki er hægt að ná símasambandi langtím- um saman nema t.d. um opna tal- stöð sem allir geta hlustað á,“ segir Álfheiður. -RR -RR .1.1 E3M2 Vinningar sem dregnir voru út í HAPPII HENDI síðastliðið föstudagskvöld komu í hlut eftirtalinna aðila. Birt með fyrirvara um prentvillur. Anita Runólfsdóttir, Ugluhólum 4, Reykjavfk Bjarni Másson, Laufarsmára 49, Kópavogi Björgvfn H. Gunnarsson, Krummahólum 33, Reykjavíki Erlingur Ólafsson, Hrauntungu 1, Kópavogi Hlöðver B. Jónsson, Reynigrund 63, Kópavogi Kristjana Benediktsdóttir, Ásgarðsvegi 20, Húsavík' Saevar Porbergsson, Lynghrauni 2, Reykjahlíð Ýr Einarsdóttir, Mýrum 19, Patreksfirði Ketill skrækur Ekki munu allir sjálfstæðismenn hafa verið ánægðir með þær skýr- ingar Markúsar Möllers hagfræð- ings, eftír landsfund Sjáif- stæðisflokksins, að það hafi ver- ið Davíð Odds- son sem miðl- aði málum er tekist var á um sjávarútvegs- mál á fund- inum en ekki Þorsteinn Páls- son. Markús sagði i viðtali við DV að hann og Þorsteinn hefðu báðir lesið Skugga-Svein og vissu báðir að það voru ekki aðalkarakt- erarnir i þeirri bók sem sögðu að leikslokum: „Sáuð þið hvemig ég tók hann?“ Af þessu tilefni varð til vísukorn eftir mann sem kallar sig „Lákon“ og barst inn á borð sand- komsritara dagsins: Ketill skrækur er kominn á ról, kreistir byggðamúgann enn. Bæli hans er í bankahól, bændur og sjómenn rænir senn. Flokksþing í minnisvarða Vissulega virðist Davíð vera sá maöur í Sjálfstæðisflokknum sem öllu ræður, að margra áliti. En Dav- íð kemur víða við og svo kann að fara að „andi hans“ muni svifa yfir vötn- um er kratar halda flokks- þing sitt í næsta mánuði. Á fundi full- trúaráðs flokks- ins nýlega sagði Sigurður Tómas Björgvinsson, fyrrum framkvæmdastjóri Alþýöu- fíokksins, að undirbúningurinn fyr- ir flokksþingið væri i molum. Og ekki nóg með það, fundarstaöurinn væri fáránlegur, en flokksþingið ætti að halda í Perlunni í Reykjavík sem sé minnisvarði um Davíð Odds- son. Ekki voru allir sammála Sig- urði Tómasi og Guömundur Odds- son, formaður framkvæmdastjómar flokksins, sagði Sigurð Tómas fara með bull og núverandi fram- kvæmdastjóri flokksins sagði: „Við komum okkur fyrir í Perlunni og tökum allt húsið undir flokksþing- ið.“ Grænt og fellur Húsvikingar, sumir a.m.k., virð- ast geta tekið því með jafhaöargeði að knattspymulið þeirra féll úr 2. deild í haust og leikur á „göml- um slóðum" í 3. deild næsta sumar. Á Húsa- vík em meira að segja tfl menn sem hafa fall hðsins í flimtmgum en Víkurblaðið, sem gefið er út þar í bæ, segir reyndar að þar sé um svokall- aða anti-sportista að ræða. Þeir ku hafa gengið á milli áhugamanna um knattspymu og spurt þá hvað það sé sem er grænt og fellur á haustin. Svariö er yfirleitt það aö um lauf- blöð sé að ræða en það er ekki rétta svariö. Rétta svarið er Völsungur en leikmenn félagsins klæddust grænum treyjum í 2. deildinni í sumar og gera það væntanlega i 3. deildinni að ári. Flóð í Ástralíu? Þegar þetta er skrifað bólar ekk- ert á Skeiðarárhlaupi og menn eru „alvarlega“ famir að velta fyrir sér hvað sé eigin- lega að gerast. í Víkurblaöinu á Húsavík gerði ritstjórinn þvi skóna að é.t.v. leitaði vatnið úr Grímsvötn- mn aöra leið en þá hefðbundnu, t.d. að það færi Snæfellsjökuls- leiðina um miðju jarðar sem Jules heitinn Veme markaði á sínum tíma. Og þá varð þessi visa tU: í Skeiðará ekkert skiljið þið, hún skilaði sér ekki um helgina. Svo Ástrali ber að vara við, ef vellur hún upp um svelgina. Umsjón: Gylfi Kristjánsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.