Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1996, Page 8
N UPPA) ÁM
Kvöld- og helgarnám
hefst þann 6. janúar
næstkomandi.
Námið tekur 1 1/2 ár.
Kennt er klassískt nudd,
slökunarnudd, íþróttanudd,
heildrænt nudd og nudd við
vöðvaspennu.
Nuddkennari:
GUÐMUNDUR RAFN GEIRDAL
Útskriftarheiti:
NUDDFRÆÐINGUR.
Námið er viðurkennt af
Félagi íslenskra
nuddfræðinga.
Nánari upplýsingar eftir
hádegi virka daga
í símum 567-8921
og 567-8922.
Gildi nudds:
mýkir vöðva, örvar blóðrás,
slakar á taugum og eykur
vellíðan.
^NJuddskóli
óuuðmuudak1
AUKIN
ÖKURÉTTINDI
LEIGUBIFREIÐ
VÖRUBIFREIÐ
HÓPBIFREIÐ
Okuskóll Islands býður
hagnýtt nám undir
leiosögn fœrra og
reynslumikilla kennara.
Nœsta námskeið hefst
fimmtudaginn 24. október.
Nemendur teknir inn
vikulega.
Góð kennsluaðstaða
^(jgrnenn^
Ökuskóli
íslands
í fyrirrúnni
Öll kennslugögn innifalin.
Hagstœtt verð og góð
greiðslukjör.
Mörg stéttarfélög taka
þátt í kostnaði feíaga
sinna.
Grípið tœkifœrið og
Ijúkið námskeiðl fyrir
reglugerðarbreytingu
um áramótln.
Hafðu samband og við
sendum þér allar nánari
upplýslngar um lelð.
Dugguvogi 2
104 ReykjavTk
Útlönd
Um 400 þúsund mótmæltu dómskerfinu í miðborg Brussel:
Skammast mín
að vera Belgi
Um 400 þúsund Belgar komu sam-
an í miðborg Brussel í gær til að
mðtmæla meintri spillingu í stjórn-
og dómskerfi landsins, krefjast úr-
bóta og til að sýna foreldrum fórnar-
lamba barnamorðingjans Marcs
Dutrdux samúð sína. Foreldrar fórn-
arlamba barnamorðingjans og for-
eldrar barna, sem enn er saknað,
stóðu fyrir göngunni og leiddu hana.
Að beiðni þeirra klæddist fólk hvítu
eða veifaði hvítum blöðrum. Fór
gangan friðsamlega fram. Paul
Marchal, faðir eins fómarlambanna,
sagði við göngumenn: Haldið hnef-
um ykkar í vösunum." Hann sagði
gönguna vera „fyrir börnin okkar og
börnin ykkar.“
Reyndar réðst hópur stúdenta að
dómshúsi borgarinnar með grjóti og
ýmsu lauslegu að göngunni lokinni
en húsið var vaktað brynvarðri lög-
reglu.
„Skammast mín að vera Belgi,“
stóð á einu fjölmargra mótmæla-
skilta í mannhafínu og þótti endur-
spegla þær tilfínningar sem heltekið
hafa belgískt þjóðfélag frá því upp
komst um grimmdarverk bama-
klámhringsins síðla sumars. Vildi
fólk sýna andúð sína á því stjórn-
kerfi sem virtist gerspillt og ekki
megna að vernda venjulega borgara
og börn þeirra fyrir glæpum.
Dutroux er einn þrettán aðila sem
handteknir hafa verið í tegnslum við
starfsemi meints bamaklámhrings.
Hefur mikið magn myndbanda með
barnaklámi verið gert upptækt.
Mótmælagangan í gær var sú fjöl-
mennasta í Belgíu frá stríðslokum.
Reuter
UPPB0Ð
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Garðastræti 6, 3. hæð, merkt 0301, þingl.
eig. Snorri ehf., gerðarbeiðendur Sam-
vinnusjóður íslands hf. og Tollstjóraskrif-
stofa, föstudaginn 25. október 1996 kl.
14,00.___________________________
Grenimelur 9,2. hæð, ris og eystri bflskúr
m.m., þingl. eig. Halldór Hjálmarsson,
gerðarbeiðandi Haraldur Haraldsson,
föstudaginn 25. október 1996 kl. 13.30.
Hamratangi 17, Mosfellsbæ, þingl. eig.
Katrín Sigurðardóttir, gerðarbeiðendur
Bjöm Kjartansson og Lífeyrissjóður
starfsmanna ríkisins, föstudaginn 25.
október 1996 kl. 11.00.
Hverfisgata 100, 4ra herb. íbúð á 1. hæð,
merkt 0101, þingl. eig. Sigrún Ragnars-
dóttir og Gunnar Öm Gunnarsson, gerð-
arbeiðendur Gjaldheimtan í Reykjavflc,
Landsbanki fslands, lögfrdeild, Lífeyris-
sjóður verslunarmanna og Samvinnu-
sjóður íslands hf., föstudaginn 25. októ-
ber 1996 kl. 14.30.______________
Kaplaskjólsvegur 9, 4ra herb. íbúð á 1.
hæð, þingl. eig. Magdalena Björgvins-
dóttir, gerðarbeiðandi Húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar, föstudaginn 25.
október 1996 kl. 15.30.__________
Laugavegur 99 (eldra húsið), þingl. eig.
Halldóra Lilja Helgadóttir, gerðarbeið-
endur Gjaldheimtan í Reykjavík, Húsa-
smiðjan hf. og íslandsbanki hf., höfuðst.
500, föstudaginn 25. október 1996 kl.
16.30.___________________________
Laugavegur 163,0102,77,8 fm skrifstofa
á 1. hæð, m.m., þingl. eig. Austurborg
ehf., gerðarbeiðendur Gjaldheimtan í
Reykjavík og Húsfélagið Laugavegi 163,
föstudaginn 25. október 1996 kl. 17.00.
Lækjargata 8, þingl. eig. Lækur ehf.,
gerðarbeiðendur fslandsbanki hf., höf-
uðst. 500, og Kaupþing hf., föstudaginn
25. október 1996 kl. 16.00.______
SÝSLUMAÐURINN f REYKJAVÍK
Sabine Dardenne, 12 ára, slapp naumlega úr neöanjarðarbyrgi barnamorö-
ingjans Marcs Dutroux í sumar. Hún lét sig ekki vanta viö mótmælaaðgerð-
ir í miðborg Brussel í gær. Símamynd Reuter
Norðausturströnd Bandaríkjanna:
Oveður varð 12 ára
dreng að bana
Mikið óveður með gríðarlegum
rigningum gekk yfir norðaustur-
strönd Bandaríkjanna um helgina.
Beið tólf ára drengur í New York
bana þegar tré rifitaði upp með rót-
um og féll á hann. Rafmagnslaust
varð á þúsundum heimila og flæddi
víða inn í kjallara. Flæddi upp úr lé-
legum skolpræsum en fallin haust-
lauf ollu víða stífluðum niðurfóllum.
Vindhraðinn komst í 130 km á
klukkustund í fyrrinótt og rigndi
hátt í 15 sentímetra í gær.
Bandaríska veðurstofan gaf út
flóðaviðvaranir fyrir Connecticut,
Rhode Island, Massachusetts og suð-
urhluta New Hamsphire. Fresta
varð róðrarkeppni í Boston í fyrsta
skipti í 33 ár.
Reuter
Ivan Rybkin hvetur til rósemdar:
Embættismenn deili
ekki opinberlega
Ivan Rybkm, uyi
yfirmaðm- öryggis-
ráðs Rússlands, hóf
í gær að laga vegs-
ummerkin eftir
forvera sinn í emb-
ætti, Alexander
Lebed. Hann sagði
að undir engum
kringumstæðum
mættu opmberir
embættismenn
deila um stjómmál
fyrir opnum tjöld-
um. Þeir ættu að
leysa þrætumál sín
eftir bókinni, fyrir
luktum dyrum.
Þykir hann þar vísa til opinberra
deilna og missættis Lebeds við ráða-
menn innan Kremlar. En þrátt fyrir
að vera talinn hófsamur ítrekaöi
Rybkin að hann yrði harður í horn að
taka og blés lífi í gamla hugmynd
sína um nánari samvinnu helstu
iduuiicyict.
Boris Jeltsín
skipaði Rybkin
bæði yfirmann ör-
yggisráðsins og
sendimann sinn í
Tsjetsjeníu. Tsjet-
senar fögnuðu yf-
irlýsingum Rybk-
ins þess efnis að
hann styddi
vopnahléð þar
syðra.
Rybkin hefur,
ólíkt Lebed, ekki
sett stefnuna á for-
setaembættið. En
hann hefur lagt
áherslu á nánari samvinnu innanrík-
is-, varnarmálaráðuneytis og ráðu-
neytis öryggismála. Sem stendur sam-
hæfir öryggisráðið starfsemi ráðu-
neytanna en sögusagnir hafa verið á
kreiki um að Jeltsín muni leggja ör-
yggisráðið brátt niður. Reuter
Ivan Rybkin.
MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 1996
Stuttar fréttir r>v
Barist við Kabúl
Afganski stríðsherrann Shah
Massood geröi árás á flugvöllinn
í Kabúl en varð síðan fyrir öfl-
ugri árás Talebana.
Kúrdar berjast
Sveitir Kúrda börðust hat-
rammlega í norðurhluta íraks.
Dregur úr
Jacques
Chirac, forseti
Frakklands,
dró úr kröfum
sínum um að-
ild Evrópu-
bandalagsins
að friðarferl-
inu í Mið-
Austurlönd-
um vegna fjandsamlegrar af-
stöðu ísraela en sagði Evrópu-
ríki hafa æma ástæðu til þátt-
töku.
Fáir á kjörstað
Aðeins um 50 prósent kjós-
enda í Litháen höfðu kosið
skömmu fyrir lok kjörfundar í
þingkosningunum í gær. Lands-
bergis vonast eftir endurkomu.
Barist í Saír
Hörð barátta þjóðarbrota fer
fram í Saír.
Andófsmenn náðu kjöri
Tveir helstu andstæðingar að-
ildar að Evrópusambandinu fengu
flest atkvæði þegar Finnar kusu
fulltrúa sína á Evrópuþingið.
Díana af lista
Nafn Díönu
prinsessu er
ekki lengur í
bænum þeim
sem breskir
þingmenn
fara með í
byrjun hvers
starfsdags.
Nafn hennar
var tekið út í kjölfar skilnaðar-
ins við Karl ríkisarfa.
Hætti töfum
Benjamin Netanyahu, forsæt-
isráðherra ísraels, sagði að ef
Palestínumenn hættu ekki að
tefja fyrir væri samningur um
brottflutning hersveita frá Hebr-
on innan seilingar.
Myrti dótturina
Frönsk kona, 24 ára, hefur ját-
að að hafa myrt 3 ára dóttur
sína en hún hafði reynt að koma
sökinni á barnaníðing.
Morðingi brátt laus
Fjölskylda Yigal Amirs, morð-
ingja Rabins, fyrrum forsætis-
ráðherra ísraels, segist viss um
að hann verði brátt látinn laus.
Fórust í slysi
Átta fórust þegar tveggja
hreyfla flugvél fórst á akri í
austurhluta Kanada.
Ræðst að Clinton
Bob Dole
lagði til að
fjárhagsstuðn-
ingur frá öðr-
um en banda-
rískum ríkis-
borgurum
yrði bannað-
ur í forseta-
kosningunum
en komið hefur í ljós að
indónesískir aðilar hafa styrkt
kosningabaráttu Bills Clintons
forseta með myndarlegum ftár-
framlögum.
Lík finnst
Lík manns, sem fannst í skógi
nærri Frankfurt á laugardag,
mun vera af þýskum milljarða-
mæringi sem rænt var fyrir
tveimur vikum.
Seldu ekki krakk
Nýjar skýrslur sýna að banda-
ríska leyniþjónustan CIA haíði
ekki áætlanir uppi um að selja
eiturlyfiö krakk á götum Los
Angeles. Reuter