Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1996, Side 13
-U"V MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 1996
íennmg
13
Fortíðin
leyndist í
Höfn
Ljóðskáldið og blaðamaðurinn
Gerður Kristný sendir frá sér skáld-
sögu á næstu dögum undir ljóðrænu
nafni, Regnbogi í póstinum.
„í sögunni kemur fyrir pósthólf
og á því er mynd af regnboga,“ seg-
ir höfundur, „þaðan kemur nafnið.
Lofar það ekki góðu um söguna? Oft
kemur eitthvað spennandi með
póstinum!
Söguna segir íslensk stúlka á
þvælingi um Kaupmannahöfh þar
sem hún kemst að ýmsu sem hún
vissi ekki fyrir um fjölskyldu sína.
Þetta er lífsglöð stúlka sem tekur líf-
ið ekki of hátíðlega þó að hún spyrji
stórra spuminga.“
- Er þetta sjáifsævisögulegt verk?
„Ég rændi sumu frá sjálfri mér en
bara litlum atvikum. Stóru atvikin
Gerður Kristný
era uppdiktuð."
Saga Gerðar Kristnýjar kemur út
í ritröð ungra höfunda hjá Máli og
menningu. Hinir tveir sem koma út
á sama tíma með sín fyrstu skáld-
verk eru Kristján B. Jónasson og
Andri Snær Magnason.
PS...
Við hvað var hann hræddur?
nefndi nöfn á leikritum sem hefðu tekist vel eða tek-
ist illa að mati ræðumanns, til að við í salnum fengj-
um hugmynd um viðmiðanir hans. Á næsta málþingi
ætti að láta mann með yfirsýn greina verk starfandi
íslenskra leikskálda svo að hægt sé að rökræða mat-
ið. Kannski kemur Jón Viðar þá.
Við pallborð á
málþingi um
stöðu islenskrar
leikritunar sl.
mánudagskvöld í
Listaklúbbi Leik-
húskjallarans
var einn stóll
áberandi auður.
Stóllinn lengst til
hægri. Við sætið
var hljóðnemi,
tilbúinn til að
taka við spak-
mælum þessa
þátttakanda, en
það sat enginn í
stólnum. Þarna
átti að sitja leik-
húsrýnir Dags-
ljóss Sjónvarps-
ins, Jón Viðar Jónsson. Hann var búinn að samþykkja
að taka þátt í pallborðinu. Það var búið að auglýsa
þátttöku hans, kannski var það honum að þakka hve
margir komu á þingið, hann boðaði ekki forföll, en
hann lét ekki sjá sig.
Mál manna var að hann heföi ekki þorað að vera
innan um svona marga leikhússtjóra, leikara og leik-
húsáhugamenn. Hvað ætli hann hafi haldið að yrði
gert viö hann?
Nöfn eru leiðinleg
Á málþinginu voru haldin mörg stutt erindi sem
veltu upp ýmsmn góðum og miður góðum hugmynd-
um og spumingum. Til dæmis spurði Hrafnhildur
Hagalín hvers vegna verðlaunaleikrit Norðurlanda-
ráðs væru ekki sett upp hér og líka hvort verið gæti
að leikhúsin vanmætu almenning. Fyrir útan Hrafn-
hildi var einna skemmtilegast að hlýða á Sveinbjörn
I. Baldvinsson sem setti viðstadda inn í vinnslu kvik-
myndahandrita.
Bagalegast var hvað fólk talaði dæmalaust. Enginn
Bókmenntir og málfræði
Það var sláandi munur á máiflutningi bókmennta-
manna og málfræðinga á málþingi Mímis í Háskóla-
bíói um næstsiðustu helgi. Bókmenntafræðingarnir
tveir í fyrstu málstofu, Ásdís Egilsdóttir og Dagný
Kristjánsdóttir, voru gagnrýnar á stöðu fræðanna hér
á landi. Ásdis gerði ekki mikið úr hlut íslendinga í
nútímarannsóknum á norrænum miðaldabókmennt-
um, og Dagný sagði að þróun nútímabókmenntafræði
heföi byrjað seint hér og hvorki verið nógu mikil né
nógu hröð.
Málfræðin á allt að vinna í samkeppninni við bók-
menntiraar, og málfræðingamir tveir, Þórhallur Ey-
þórsson og Höskuldur Þráinsson, markaðssettu sín
fræði af atorku; Þórhallur með því að halda skemmti-
lega tölu um nútíma málvísindi og kosti þess og lesti
að koma að þeim á íslensku; Höskuldur með því að
segja, nærri því í svo mörgum orðum, að leiðin til
heimsfrægðar lægi í gegnum málfræðina! Hann útli-
staði í myndríku máli hvemig við höfum lengi flutt út
málfræðirannsóknir með góðum árangri, uns svo er
komið nú að sjálfur Chomsky er farinn að taka dæmi
úr íslensku. Það er eins og að komast á Ólympíuleik-
ana, sagði Höskuldur, sem sjálfur er gamall hlaupa-
garpur.
„Er gaman í íslensku eða er voða mikil málfræði?“
spurði stúdent á fyrsta ári eldri íslenskunema i haust.
Verður spurningunni kannski snúið við?
Barnaspítali Hringsins
. fær prósentur
l| j I
JIII III Textinn rann ekki eins lip-
j Iti Ur urlega meðfram myndinni af Jesú tólf
/7j 10 ^ra á menningarsíðu á föstudag og
II/ |C3 sýndist á skjá. Undir myndinni leyndist
ptilljP boðskapur þess efnis að 600 kr. af sölu-
n y verði hverrar Baraasögubiblíu rynni
sdrs ,'Tkr- , til Bamaspítala Hringsins. Pöntun-
I'-JÍL arsími bókarinnar er 581 1497.
Snyrtistofa EDDU, Hótel Sögu
SÍMI 561-2025
Vegna breytinga verður snyrtistofa EDDU lokuð dagana
24. október til 4. nóvember að báðum dögum meðtöldum.
EDDA LÁRA GUÐMUNDSDÓTTIR
Fótaaðgerðastofa EDDU, Hótel Sögu ■
SÍMI 561-2025
I Vegna breytinga verður fótaðgerðastofan á Hótel Sögu lokuð I
j dagana 24. október til 4. nóvember að báðum dögum meðtöldum. j
EDDA LÁRA GUÐMUNDSDÓTTIR
I-------------------------------------------------------1
taífp? Jjpig §
sófasett eða hornsófa fvrír íólín?
Efsvo er, þá skaltu koma og líta á Valby
sófasettið þvíþað er bæði vandað og
þægilegt sófasett. Hátt bak og nautsterkt
leður á slitflötum gerir það að verkum
að Valby sófasettið er frábær kostur
fyrir íslensk heimili. Margir leðurlitir.
3ja
1 stóll
1 stóll
kr.
158.640,-
3ja
2ja
1 stóll
kr.
168.640,-
2H2
kr.
152.320
2H3
kr.
158.640
Ef vill -þá er hægt að snúa Valby
hornsófanum íhvora átt sem er.
-Láttu þaó eftir þétr~
og komdu og skoðaðu Valby strax í dag. r;
Við tökum vel á móti þér. :
VERIÐ VELKOMIN
Verðdæmi á Valby 3-1-1
eða Valby 2H3 til 24 mán.
Meðalafborgun Kr. 7.850,-
á mánuði með vöxtum og
kostnaði.
V/SA
CD
Við opnum alltaf kl. 9
HÚSGAGNAHÖLLIN
Bíldshöfði 20 -112 Rvík - S:587 1199
Brauðostur kg/stk.
{ 20% ) LÆKKUN
VERÐ NU:
VERÐ ÁÐUR:
ÞÚ SPARAR:
593 kr.
kílóið.
149 kr.
kílóið.
á hvert kíló.
OSTA OG
SMIÖRSALAN SE