Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1996, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1996, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 Fréttir Margrét Danadrottning og Henrik prins: forseti velkom- til Danmerkur „Ég vil byrja á þvi fyrir mína hönd og prinsins að bjóða nýjan for- seta íslands velkominn og við hlökkum til heimsóknar hans í næsta mánuði og vonum að við get- um sýnt honum og íslensku þjóð- inni ýmislegt áhugavert," sagði Margrét Þórhildur Danadrottning á fundi með íslenskum blaðamönnum í Fredensborgarhöll síðdegis í gær- dag. Fyrsta opinbera heimsókn ný- kjörins forseta íslands, Ólafs Ragn- ars Grímssonar, til erlends ríkis hefst þann 18. nóvember og verður, eins og fyrri fyrstu heimsóknir ann- arra forseta íslands, til Danmerkur. Mörgum, bæði á íslandi og í Dan- mörku, er enn í fersku minni fyrsta heimsókn Vigdísar Finnbogadóttur til Danmerkur og hve vel þeim for- setanum og Danadrottningu kom saman. DV spurði drottninguna hvort hún saknaði Vigdísar af for- setastólnum. „Ég býst við að ég eigi eftir að hitta Vigdísi, fyrrverandi forseta, aftur við tækifæri, þar sem hún er jú enn í fullu fjöri. Við áttum alla tíð mjög góð samskipti og gagn- kvæma ánægju af því að hittast og tala saman, bæði á léttum og alvar- legum nótum. Hún er manneskja sem auðvelt er að kynnast og eiga samskipti við og hefur ánægju af að blanda geði við fólk.“ Danadrottning fæddist fjórum árum áður en íslenska lýðveldið var stofnað á Þingvöllum. DV spurði hana hvort hún saknaði þess að vera ekki drottning íslands, eins og hún þó fæddist til. „Þessu er erfitt aö svara. Að sjálf- sögðu riktu aðrar aðstæður í sam- skiptum íslands og Danmerkur fyrr- Margrét Danadrottning, Hinrik prins og Stefán Ásgrímsson, blaöamaður DV, í Fredensborgarhöll í gær. DV-mynd GVA um en þær aðstæður hef ég aldrei þekkt af eigin raun. Ég held að ís- land hafi ekki tapað á því að verða sjálfstætt lýðveldi heldur þvert á móti hafi það verið ávinningur fyr- ir landið,“ sagði drottningin. íslensku blaðamennimir spurðu Henrik prins nokkuð út i væntan- lega hók sem brátt kemur út í Dan- mörku og fjallar um uppvaxtar- og æskuár hans og uppeldi. DV spurði prinsinn hvort hann hafi orðið fyrir einhvers konar menningarsjokki við það að taka sér bólfestu meðal þjóðar sem er um margt ólík Frökk- um. Prinsinn hló við og sagði að þegar fólk tæki sér bólfestu í nýju landi og ólíku þá væri það mikil breyting. „Þetta voru umskipti fyrir mig en ég hef vanist þeim," sagði prinsinn. Hefði hann ekki gert það hefði hann efalaust haldið áfram innan frönsku utanríkisþjónustunn- ar. „Ef svo hefði farið er ómögulegt að segja hvar ég væri staddur í dag, kannski á íslandi, hver veit?“ sagði Henrik Prins. DV spurði Margréti Danadrottn- ingu hvort umfjöllun fjölmiðla um kóngafólk og þar með hana sjálfa og fjölskyldu hennar hefði breyst síðan þau hjónin voru ung og í tilhugalíf- inu: „Já, verulega, ekki bara hér í Danmörku heldur hefur frændfólk mitt í Svíþjóð sömu sögu að segja en þau hafa veriö stanslaust í kastljósi fjölmiðla gegn vilja sínum. Ég held þó að við líðum minna undan þessu en ýmsar aðrar konungsfjölskyldur, ekki síst vegna áhuga fjölmiðla á ýmsu því sem hinir yngri fiöl- skyldumeðlimir taka sér fyrir hend- ur og það er ekki þægilegt fyrir þá,“ sagði drottningin. -SÁ Skólavörðustígur: Piltar stálu peningum Þrír piltar fóru inn í verslunina Kúnígúnd á Skólavörðustíg rétt fyr- ir lokun í gær, komust í peninga- kassann og hrifsuðu til sín peninga. Talið er aö piltamir hafi náð milli 10 og 20 þúsund krónum í pen- ingum. Samkvæmt lýsingu eru þeir á bilinu 14-15 ára en þeir vom ófundnir í morgun. Mikil snjókoma: Ófært í Vik Mikil snjókoma og skafrenningur var í Vík í Mýrdal í gærkvöld og í nótt. Lögregla þurfti að aðstoða ferðalanga sem festu bíla sína og komust ekki leiðar sinnar. í morgun vom tveggja metra háir snjóskaflar víða og ófært að sögn lögreglu. -RR Árnasafn 1 Kaupmannahöfn: Síðustu handrit- in á heimleið - elsta handrit, sem vitað er um, meðal gersemanna „Stofnun Árna Magnússonar, Det Amamagnanske Institut í Kaupmannahöfn, verður vissu- lega fátækara eftir en áður þegar búið verður að senda síðustu handritin til íslands," sögðu starfsmenn stofnunarinnar sem DV ræddi við í gær þegar þeir voru að leggja síðustu hönd á frá- gang handrita sem fara eiga til ís- lands á næstunni, síðustu handri- tanna sem Danir skila til íslands samkvæmt samningi Islendinga og danskra stjómvalda. En starfsmenn stofnunarinnaar hafa ekki setið auðum höndum því að þótt handritin sjálf fari heim þá er að mestu búið að ljós- mynda þau. Yfir milljón mynda- tökur hafa farið fram og er nú handritamyndasafn Ámastofnun- ar í Kaupmannahöfn orðið hið stærsta sinnar tegundar í veröld- inni. Forstöðumaður Árnastofnunar í Kaupmannahöfn, Peter Spring- borg, segir í samtali viö DV að mjög mikið sé eftir af handritum í Ámasafni þótt hin íslensku hverfi nú á braut þannig að stofnuninni verði vart verkefna vant í fyrirsjá- anlegri framtíð. Meðal þeirra handrita sem nú kveðja Ámasafn og verið var að undirbúa fyrir tor yfir hafið i gær voru biblíuhandrit, sem nefnist Stjóm, og svo elsta norrænt hand- rit sem vitað er um sem er hómil- íuhók en texti hennar var gefinn út á síðasta ári í bók undir um- sjón Sigurbjörns Einarssonar biskups. -SÁ Þú getur svarað þessari spurningu með þvi að hringja í síma 9041600. 39,90 kr. mínútan Já 1 Nel 2 j rödd FOLKSINS 904 1600 Á Landsvirkjun að greiða eigendum sínum arð? Óveður í Almannaskarði: Heppnir að komast í gegn - segir Jón Kristjánsson „Það gerði allt í einu snælduvit- laust veður seint í gærkvöld. Það var mikill skafrenningur þegar við keyrð- um í gegnum Almannaskarð eftir mið- nætti og skyggni var sama og ekki neitt. Við vorum á stórum og vel bún- um jeppa en megum teljast heppnir að hafa komist þama í gegn,“ sagði Jón Kristjánsson, Akureyringur, við DV í morgun en hann lenti í hremmingum í vonskuveðri í Almannaskarði í nótt. Mjög slæmt veöur gekk yfir Suð- austurland i nótt, hvassviðri og mikil snjókoma. Björgunarsveitir á Höfn vora kallaðar út eftir mið,nætti tU að aðstoða fólk þar. „Það var allt orðið kolófært í Al- mannaskarði á fiórða tímanum i nótt. Ég man ekki eftir því að skarðið hafi lokast áður vegna snjóa á þessum árs- tíma,“ sagði Sigurður Guðnason, lög- reglumaður á Höfn, í morgun. -RR DV Kvennalistinn: Landsfund- ur um næstu helgi Kvennalistinn verður með landsfund sinn dagana 2. og 3. nóvember í Viðey. Yfirskrift fundarins er „Kvenfrelsi, frá orðum til athafna". Á laugardeg- inum verður rætt um fæðingar- orlofsmál og menntamál. Á sunnudeginum verður umræðu- efnið jafnréttisáætlanir og stöð- ur jafnréttisfulltrúa á Akureyri og í Reykjavík. Á föstudaginn verður haldinn inngangur að landsfundinum. Um er að ræða opinn fund þar sem fiallað verður um ímynd kvenna í fiölmiðlum, kvikmynd- um og auglýsingum. Frummæl- endur verða þær Elín Hirst, frá- farandi fréttastjóri Stöðvar 2, Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir fiöl- miðlafræðingur og Anna Svein- bjamardóttir kvikmyndafræð- ingur. Að erindum loknum veröa pallsborðsumræður. -S.dór Stuttar fréttir Að mati forsætisráoherra eiga þingflokkamir að sameinast um endurskoðun kosningalöggjafar- innar með það fyrir augum að jafna vægi atkvæða milli lands- hluta. RÚV greindi frá þessu. Óánægja í málmiðnaði Óánægja er með aðbúnað og skilyrði til náms í málmiðnaði í nýjum Borgarholtsskóla í Grafar- vogi. Samkvæmt RÚV gengu full- trúar atvinnugreinarinnar á fund menntamálaráðherra í gær og óskuðu eftir úrbótum. Meiri hagkvæmni Sjávarútvegsráðherra sagði á Alþingi í gær að afnám línut- vöföldunar hefði leitt til meiri hagkvæmni í veiðum. Samkvæmt RÚV koma helmingi færri línu- bátar með meiri afla að landi en áður. NATO neitar Ekki era horfur á að NATO standi á næstunni við fyrirheit um að koma upp siglingaratsjár- stöðvum á Bolarfialli og Gunnólf- svíkurfialli. Samkvæmt RÚV neit- ar Mannvirkjasjóður NATO um fé til framkvæmda en utanríkisráð- herra telur líklegt að íslendingar gerist formlegir aðilar að sjóðn- Ferðum fjölgað Flugleiðir ætla að fiölga ferðum milli Islands og Bretlands í vetur frá því sem verið hefur. Vetrará- ætlun félagsins hefur tekið gildi. Tennur Keldhverfinga Sú kenning að vöntun á fram- tönn í eff i góm sé arfgengur eigin- leiki í Keldhverfingum í N-Þin- geyjasýslu hefur ver-ið afsönnuð. Samkvæmt RÚV kemur þetta fram í Tannlæknablaðinu. Hanna María hætt Séra Hanna María Pétursdóttur hefur sagt upp prests- og þjóð- garðsvarðarstöðu sinni á Þing- völlum. Samkvæmt Stöð 2 var þrýst á hana um að hætta vegna veikinda. Heimir hættur Heimir Karlsson verður ekki sjónvarpsstjóri á Stöð 3. Fyrir- tækið íslensk margmiðlun hefur tekiö við rekstri stöðvarinnar á meðan hún er í nauðasamning- um. ÍS í Kamtsjatka íslenskar sjávarafurðir hafa gert stóran viðskiptasamning við fyrirtæki í Kamtsjatka. Sam- kvæmt Mbl. eykst velta ÍS um 4 milljarða króna, -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.