Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1996, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1996, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 JjV menning Miðlungsstuttmynd í þríriti Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir Hal Hartley hefur stundum komið með hressilegar kvikmyndir sem eru frumlegar og hráar og langt frá iðnað- arframleiðslunni í Hollywood. Við höf- um fengið að kynnast verkum Hartleys á undanfömum kvikmyndahátíðum og hann er ekki heldur hafður út undan að þessu sinni. En ágætum mönnum getur orðið á í messunni og satt best að segja hefur Daður (Flirt) lítiö að gera á okk- ar ágætu kvikmyndahátíð. Þar er fátt að finna sem gleður augað. Það er alls ekki galin hugmynd aö segja sömu sögu þrisvar með mismun- andi fólki í mismunandi menningarum- hverfi, en til þess að vel takist verður sag- an að vera bitastæð, sem hún er ekki í þessu tilfelli. Hún er klisja sem er ekki nema miðlungs góð. Innihald sögunnar er ást, afbrýði og hefnd og allar enda útfærsl- urnar með því að ein persónan er skotin í andlitið, án þess þó að vera drepin. Fyrsti atburðurinn á sér stað í New York, sá næsti í Berlín og sá síðasti í Tokyo. Berlínarkaflinn var svo leiðinlegur að undirritaður var farinn að kvíða fyrir þeim japanska, en það kom í ljós að hann var bestur, meira lagt í söguna, sérstak- lega þó ungu stúlkuna Miho, sem er nán- ast saklaus dregin inn í atburðarásina. í japanska hlutanum verður dansarinn Miho nánast fyrir tilviljun þátttakandi i dramatískri atburðarás. Hal Hartley hefur sagt að Flirt hafi upphaflega verið stuttmynd; hann hafi gert New York kaflann áður en hann gerði Amateur. Og það er staðreynd að þessar þrjár myndir gætu staðið einar sér og eru sjálfsagt meira gefandi þegar horft er á þær með löngu millibili. En því verður aldrei bjargað að persónurnar eru ósköp innan- tómar og litlausar þegar á heildina er lit- ið. Daður: ★< Leikstjóri og handritshöfundur: Hal Hartley. Kvikmyndataka: Michael Spiller. Aðalleikarar: Bill Sage, Martin Donovan og Parker Posey. Hilmar Karlsson Veitingahús Jónas Kristjánsson Carpe Diem: Grautarstælamir eru í stíl hressi- lega groddalegra listaverka staðar- ins, sem gerð eru úr afgöngum frá vélaverkstæðum, svo sem tannhjól- um og bílfjöðrum. Upp af aðalréttum rís venjulega hraukur djúpsteiktra grænmetis- þráða, aðallega úr graslauk og blað- lauk. Undir þráðunum ægir öllu saman i graut, fiski eða kjöti, hrásal- ati, léttsteiktu grænmeti og bakaðri kartöflustöppu, jóðlandi í fremur sætri sósu, oftast tómatsósu. Fiskur dagsins var villtasta út- QarDe Djem færsla þessarar einhæfu matreiðslu. p Þar mátti finna í einum haug bita af karfa, lúðu, smokkfiski, hörpufiski og úthafs- rækju, innan um hrásalat og léttsteikt grænmeti. Úr einni hlíð matarfjallsins skagaði bökuð kart- öflustappa. Hver tónn var út af fyrir sig góður, en grauturinn í heild var samfelld lagleysa. Þetta sérstæða og tæpast lystuga þema endur- tekur sig í hverjum rétti á fætur öðrum og hefur þcmn kost einan að vera öðruvísi en annars stað- ar. Staðurinn vill skera sig úr og tekst það alla leið frá A til Ö. Innréttingar eru kuldalegar, úr steinflísum, stáli og gleri, studdar skemmtilegri vélsmiðjulist og nýtízkulegum næfurljósum, innan um gula og rauða málningu. Sívalt og áberandi vínrekks-alt- ari úr stáli í miðjum sal gefur tón, sem enduróm- ar yfir í matreiðsluna. Skáldið og veiðimaðurinn TKmNPAH^TI^ Guðlaugur Bergmundsson Norski leikstjórinn Hans Petter Moland tekur fyrir gamal- kunnugt þema í Núll á kelvin, svellköldum kammemorðra, þegar hann teflir saman nokkrum ólíkum persónum í inni- lokuðu umhverfi og fylgist með hvemig þeim reiðir af, hvaða áhrif þær hafa hver á aðra og hvemig óblíð náttúran kemur þar við sögu. Sagan gerist á Grænlandi um miðj- an þriðja áratuginn. Þangað kemur ungt og ástfangið norskt skáld til að dvelja vet- urlangt með tveimur mönnum, veiðimanni og vísindamanni, og er verk þeirra að safna skinnum af hinum ýmsu dýrum fyrir Grænlands- félagið. Strax í upphafi verður ljóst að skáldið og veiði- maðurinn eiga ekki skap saman, hinn fyrmefndi í fág- aðra lagi en sá síðamefndi mesti sorakjaftur sem sést hefur lengi á hvíta tjaldinu. Fjallar myndin síðan að mestu um togstreituna milli þessara tveggja manna og hvemig endaskipti verða á hlutverkum þeirra. Margt gott má segja um þessa mynd Molands. Öll ytri umgjörðin er eins og best verður á kosið, hvort sem það er hið ömurlega kofaskrifli sem þremenningarnir hafast við í eða stórglæsileg kvikmyndatakan af frosnum auðnum Svalbarða þar sem myndin var gerð. Og leikurinn frábær, sérstaklega hjá Stellan Skarsgárd i hlutverki veiðimannsins. En þrátt fyrir allt þetta tekst Moland ekki nógu vel að byggja upp þá spennu og þann óhugnað seni efnið gefur vissulega tilefni til og eru nánast forsendan fyrir því að myndin heppnist. Það gerist ekki nema endrum og sinmnn en þess í milli dettur myndin niður og verður allt að því langdregin á köflum. Þokkédeg mynd engu að síður. Núll á kelvin ★ ★ Leikstjóri: Hans Petter Moland. Handrit: Lars Bill Lundholm. Leikendur: Gard Eidsvold, Stellan Skarsgard, Bjárn Sundquist, Camilla Martens. Guðrún frá Lundi | í haust er hálf öld síðan í fyrsta bók Guðrúnar frá Limdi ; kom út, fyrsta bindið ■ af sjálfu Dalalífi. Af því tilefni verður dag- skrá um hana og verk hennar í félagsheim- ilinu á Sauðárkróki, Bifröst, kl. 15 á laug- ardaginn, 2. nóvem- ber. Sigurrós Erl- ! ingsdóttir bókmenntafræðing- | ur, sem hefur lengi rýnt í verk ; Guðrúnar, mun ræða um þau | og auk þess verður lesið úr j' verkum hennar. Hluti af stærri heild Þriðjudaginn 5. nóvember verður á sama stað dagskrá um annan höfund sem tengist Sauðárkróki. Það er Gyrðir Elí- asson skáld og rithöfundur. Ástæðan fyrir þessum fjöl- breyttu uppákomum er afinæl- isár Sauðkrækinga. „Heilt ár sem við tökum í afmæli,“ segir Jón Ormar Ormsson, einn skipuleggjenda, „eins og sagt var frá í aukablaði DV um Sauðárkrók í júlí síðastliðnum. Við tökum okkur býsna margt fyrir hendur þetta ár, og margt af bókmenntalegum toga. Við viljum frekar skoða arfinn en vera með veislur." Skagflrðingar verða í engum vandræðum með efni, því arfur þeirra er stór. Auk ofan- greindra skálda má nefna Skag- firðingana Hannes Pétursson, Indriða G. Þorsteinsson, Steph- an G. Stephansson og Bólu- Hjálmar. Barna- og fjöl- skylduhátíð í Ráðhúsinu Á sunnudaginn verða kynningartónleikar Dimmu í Tjamarsal Ráðhúss Reykjavík- ur. Þar leikur Gunnar Gunnars- son lög af plöt- unni Skálm (hann stekkur á steinum á myndinni) og Anna Pálína og Aðalsteinn Ás- berg flytja ásamt Gunnari lög af plötunni Fiall og fjara. Aðalsteinn kynnir lika bækur eftir sig, bamabókina Furðulegt ferðalag og Ljóð á landi og sjó. Dagskráin stendur með hléum frá kl. 14 til 17; hún er ókeypis og öllum opin og Ráðhúskafflð verður líka opið. Þrjár kynslóðir kvenna Elín Pálmadóttir blaðamaður og rithöfundur hefur grúskað í lífi formæðra sinna og gefið uppgötvanir sínar út í heim- ildaskáldsögunni Með fortíðina í farteskinu. Konumar þrjár sem hún dregur fram úr myrkri tímanna eru amma hennar, langamma og langa- langamma og vom uppi frá 1821 til 1946. Frásögnina byggir Elín á einkabréfum, dagbók- um, sögusögnum úr munnlegri geymd og ýmsum öðrum gögnum. En miðilinn í nútíman- um býr hún til, stúlkuna Unní sem kemur utan að, „úr lífi við ríkidæmi og munað, svo óralangt frá þeirra lífi í lágreist- um bæjum þar sem fólk fædd- ist, elskaði og dó í nálægð hvert ! við annað,“ eins og segir í for- I mála. Vaka- Helgafell gefur út, en kápumyndina gerði Valgerð- ur G. Halldórsdóttir. Staöurinn vill skera sig úr og tekst þaö alla leið frá A til Ö. DV-mynd ÞÖK Upphaflega var hún í hávaðasömum og kali- fornískum Ítalíustíl, en hefur smám saman hneigzt nær hinni hefðbundnu og leiðigjömu, miðju íslenzkrar veitingamatreiðslu. Fátt er á breytilegum matseðli, sem getur hrist upp i fólki, nema væri humarinn með svörtu pasta og blek- sósu, er hentar fremur með kolkrabba en humri. Stundum er sjávarfangið fremur mikið eldað, svo að það verður seigt, til dæmis úthafsrækjur og smokkfiskur. í annan tíma og oftar er það hæfilega snöggt eldað, en yfirleitt yfirgnæft í bragði af frekjulegu sósu- og meðlætisjukki. Leifar frá Italíustílnum sjást fremur i nöfnum en innihaldi. Svonefnt carpaccio var ólíkt krydd- legnum nautasneiðum upprunalandsins, þykkar sneiðar, jóðlandi í sósu. Tiramisú ostakakan var þessi venjulega búðarkaka, sem hér á landi minnir lítið á Feneyjar. Espresso-kaffið var úr nýmóðins vél, sem mjólkar ágætu kaffi, en ekki espresso. Venjulega kaffið var betra Þjónusta er fagleg og elskuleg, dósatónlist er þægileg, sérstaklega Johnny Cash, stólar eru í tæpu meðallagi þæginda, dúklausar borðplötur úr gleri eru án diska fyrir volgar heilhveitikoll- ur, sem koma með flugvélasmjöri í körfu. Munn- þurrkur úr pappír eru þykkar og góðar. Miðjuverð þriggja rétta með kaffi er groddalegt eins og listaverkin, hefur farið hækkandi að und- anfórnu og er nú um 3.250 krónur á mann. Súpa,’ réttur dagsins og kaffi kosta í hádeginu 1.150 krónur, sem er öllu aðgengilegra. Glas af fram- bærilegu húsvíni kostar 330 krónur. Grautar og groddaskart Góð matreiðsla skín gegnum grautarstælana á Carpe Diem, fram- úrstefnulegum og hljóðbærum veit- ingasal Hótels Lindar við Rauðarár- stíg. Hún lýsti sér m.a. í ljúfu nauta- seyði með svartsveppaolíu, sem gaf indælt og frísklegt bragð í fennikku- stíl. Súpan var utan seðils og sérlög- uð handa gesti, sem neitaði einni af hinum hefðbundnu hveitisúpum ís- lenzkra veitingahúsa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.