Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1996, Síða 12
12
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996
Spurningin
Feröu yfirleitt á kvikmynda-
hátíöir?
Halldóra Guðmarsdóttir nemi:
Nei, það er allt of dýrt að fara í bíó.
Stella Vestmann nemi: Nei.
Anna Regína Bjömsdóttir nemi:
Nei, mig langar ekki. Það er yfirleitt
óspennandi.
Magnús Már Lúðvíksson nemi:
Nei, ég nenni því ekki.
Guðlaugur Níelsson, starfsmaður
Byggt og búið: Aldrei nokkum
tíma.
Óskar G. Óskarsson, starfsmaður
Byggt og búið: Nei, ég hef ekki
tíma. Miklar annir fram undan.
Lesendur
Um illan aðbúnað fanga:
I fangelsi fýrir
ábendinguna?
Eykur tilhögun og aðbúnaður í íslenskum fangageymslum afbrotavanda-
málin?
Ástþór Magnússon skrifar:
Fangelsismálastjóri ríkisins hef-
ur krafist þess að Ríkisendurskoð-
un höfði sakamál á hendur Hrafni
Jökulssyni, ritstjóra Alþýðublaðs-
ins. - Aðdragandinn er sá að Al-
þýðublaðið birti harðorða gagnrýni
á aðbúnað fanga í íslenskum fang-
elsum og taldi að þaðan kæmi fólk
verr á sig komið en það var þegar
það var sent í betrunarhúsið.
Eins og Hrafn bendir réttilega á
hlýtur það að vera markmið þjóðfé-
lagsins að betrumbæta einstakling-
inn í fangelsi þannig að úr afbrota-
hneigð viðkomandi dragi og hann
geti tekist á við lífið að nýju utan
fangelsismúranna, án þess að sam-
félaginu sé búin bráð hætta vegna
ofbeldisverka eða afbrota hans.
Það sem virðist aðallega hafa far-
ið fyrir brjóstið á embættismannin-
um eru þau ummæli ritstjórans að
ómannúðleg tilhögun og aðbúnaður
í íslenskum fangageymslum auki af-
brotavandamálin, og því sé embætti
fangelsismálastjóra í raun „Glæpa-
mannaframleiðandi ríkisins".
Þótt hér sé ekki lagt mat á rétt-
mæti þessara ummæla hlýtur það
að teljast óviöunandi ef svo illa er
búið að fongum á íslandi að þeir
komi úr betrunarvistinni sem bitrir
og hatrammir glæpamenn. Við slík-
ar aðstæður er stutt í dvöl í fangelsi
og rekstur slíkra stofnana til lítils
sem vemd þjóðfélagsins gegn
glæpaverkum.
Gunnlaugur Ingvarsson skrifar:
Það var skemmtilegt viðtalið við
Jón Baldvin Hannibalsson og glað-
væra móður hans í Sjónvarpinu á
miðvikudagskvöldið í fyrri viku.
Það verður að segjast eins og er, að
það er mikiil sjónarsviptir að skör-
ungnum Jóni Baldvin af vettvangi
stjómmálanna og skarð hans verð-
ur vandfyllt. Hann er líklegast lit-
ríkasti stjómmálamaður okkar ís-
lendinga.
Þótt ég hafi ekki alltaf verið sam-
mála honum þá er engin spurning
Unnur Stefánsdóttir, form. Um-
bótanefndar ÍSÍ í kvennaíþrótt-
um, skrifar:
Talsvert er um liðið frá Ólympíu-
leikum fatlaðra íþróttamanna í Atl-
anta. Hópur þátttakenda fór frá Is-
landi og var árangur íþróttamanna
okkar til mikillar fyrirmyndar. Á
síðustu leikum var árangur einnig
góður, sem sýnir að áhugi og
ástundun þessa fólks er einstök.
Á undanfornum árum hafa fatlað-
ir íþróttamenn unnið sér sess í ís-
lensku íþróttalífi. Áður var það
nærri óþekkt að fólk sem átti við
fótlun að stríða tæki þátt í íþróttum.
Að maður tali nú ekki um afreks-
menn á heimsmælikvarða. Með ein-
stakri elju þeirra sem vinna við
Fangelsismálastjórinn þarf að
átta sig á því að hann ber miklar
skyldur gagnvart þjóðinni allri og
þá sérstaklega bömum okkar sem
verða fórnarlömbin ef glæpahneigð
eykst hjá þeim sem hann hefur haft
tn meðferðar á sínum stofnunum.
Að kæra ritstjóra Alþýðublaðsins
fyrir það að vekja athygli á því sem
að Jón Baldvin hefur með vasklegri
framgöngu sinni og hugmyndaauðgi
blásið ferskum vindum inn í ís-
lenska þjóðmálaumræðu, og látið
gott af sér leiða fyrir íslenskt þjóð-
líf. - Hann er ólíkur formönnum
hinna stjórnmálaflokkanna. Lang-
mestur ræðumaður þeirra allra,
rökflmur með afbrigðum og talar
skýra og góða íslensku. Auk þess
vel lesinn og góðum gáfum gæddur.
Maðurinn er bráðskemmtilegur og
alþýðlegur og heimsmannslegur í
senn.
íþróttir fatlaðra hefur tekist að lyfta
grettistaki og gera þessu fólki kleift
að æfa íþróttir og vinna að settu
marki, svo að eftir er tekið. - Það
hlýtur að vera mikil hvatning fyrir
fólk sem á við einhvers konar fótlun
að stríða, að sjá hvaða möguleikar
eru fyrir hendi, og hvert hægt er að
stefna.
Með sanni má segja að íslenski
hópurinn sem fór til Atlanta hafi
náð umtalsverðum árangri, og trúi
ég að öll íslenska þjóðin sé stolt af
þessum glæsilegu íþróttamönnum.
Þó ekki standi til að nefna alla sem
hafi verið notuð til að undirstrika.
vandamálið, er gjörsamlega út í
hött. - Vonandi sér fangelsismála-
stjóri að sér og dregur þessa fárán-
legu kæru til baka um leið og hann
innleiðir aukna mannúð, fræðslu og
betrumbót í fangelsum. - Nema auð-
vitað að hann sé að reyna að fá rit-
stjórann í lið með sér innan fangels-
isveggjanna.
Jón Baldvin getur nú gengið sátt-
ur frá starfi sínu í íslenskum stjóm-
málum og án allra sárinda. Hann, af
sinni einstæðu djörfung, stóð upp
sjálfur, enn á góðum aldri, og lét
ekki henda sér úr brúnni. Og þó svo
að Jóni Baldvin, hafi ekki, frekar en
fóður hans, tekist á formannsstóli
sínum í Alþýðuflokkniun að láta
hugsjón sina rætast - og sjá ís-
lenska jafnaðarmenn ganga fram í
einum flokki - þá veit ég að Jón
Baldvin á eftir að lifa það að sú hug-
sjón hans rætist.
þar komust á pall þá er árangur
Kristínar Rósar nokkuð í sérflokki,
þar sem hún vinnúr þrjú gull og eitt
brons. Hún sýnir svo ekki verður
um villst að hún er íþróttakona á
heimsmælikvarða, og nær þangað
sem fáum tekst.
Á mótinu voru sett hvorki meira
né minna en 15 íslandsmet, 3
ólympíumet og 4 heims- og ólymp-
íumet. Þessi árangur er einstakur
og öllum íþróttamönnum í landinu,
fötluðum sem ófótluðum, mikil
hvatning. - Til hamingju, frábæru
íþróttamenn.
I>V
Fyrstadagsum-
slög einskis
virði - óhugn-
anleg frétt
R.A. skrifar:
Líklega hefur mörgum brugðið
er þeir hlýddu á frímerkjasafnara
einn er lýsti þvi yfir í útvarpsvið-
tali daginn fýrir frímerkjasýning-
una um sl. helgi að fyrstadagsum-
slögin, sem margir kepptust við
að safna, væru nánast einskis
virði. Ég staðreyndi þetta á
nefndri sýniningu með því að tala
við helstu forsvarsmenn hennar.
Svona fer þetta hér yfirleitt. Hvað
skyldi verða um öll verðbréfin
sem menn keppast við að kaupa
þessi misserin? Verðlausir pappír-
ar að nokkrum tíma liðnum.
Dýrar smákök-
ur í bakaríum
Ása skrifar:
Mér þykir bakaríiskökur (ég
undanskil brauðin) hafa hækkað
rosalega undanfarið. Þær borgar
sig bara að baka heima. Eða nota
þá einfaldari aðferð með
„Brownies“-kökuduftinu sem úr
verða afbragðsfmar kökur. Ég fór
í bakaríið í JL-húsinu nýlega og
sá fallegar en litlar rjómakökur
(tveir litlir harðir botnar og ijómi
á milli). Verðið var 145 krónur.
Mér fannst þetta allt of dýrt. Hugs-
aði með mér að kaupa þær daginn
eftir á kannski lægra verði. En
ónei. Sama verð, og þó dagsgaml-
ar! Ég hugsaði með mér: Ég læt
ekki fara svona með mig og nota
bara „Brownies“-kökuduftið og
nota nýjan rjóma ofan á. - Og það
gerði ég.
Sigmund og
biskupinn
Jón Einarsson hringdi:
Oft er ádeilan nöprust í skop-
myndum. Þannig stingur Sig-
mund í Morgunblaðinu oft á kýl-
um þjóðarlíkamans svo að svíður
imdan. Já, undan þessu svíður,
ekki síður en af langlokum í rit-
uðu máli. Biskupsembættið hefur
orðið fyrir þessari tegund gagn-
rýni enda átt upptökin sjálft. Sl.
laugardag birtist enn nöpur skop-
mynd um biskup íslands og farið
um hann ómjúkum höndum.
Margir spyrja hve lengi kirkju-
málaráðherra ætli að horfa gegn-
um fingur sér þótt allir lands-
menn viti að embætti biskups er
stórskaddaö við núverandi stjóm.
- Það þótti sjálfsagt að reka Albert
heitinn Guðmundsson úr ráð-
herraembætti. Og var hann þó
ekki næstæðsti maður þjóðarinn-
ar.
Þingmenn Aust-
urlands þegja
Austfiröingur hringdi:
Það er eftir því tekið að þing-
menn Austurlands hafa ekki tekið
við sér eftir yfirlýsingu Einars K.
Guðfinnssonar, þingmanns Vest-
firðingar, um að þeir muni standa
með Austfirðingum ef þeir þrýsta
á um jarðgangagerð hjá sér. Er
það virkilega svo að þingmenn
okkar á Austurlandi geti ekki, af
pólitískum ástæðum, komið sér
saman um að þrýsta á um jarð-
gangagerð? - Þögn þingmannanna
sker í eyru okkar.
Lokið Jónshúsi
alveg
Margrét skrifar:
Ég hef búið í Kaupmannahöfh
og komið í Jónshús. Ég er alveg
sammála því að loka Jónshúsi, og
það alveg. Þama fer ekkert það
fram sem er íslendingum til fram-
dráttar. Einn og einn styrkþegi frá
íslandi að hripa eitthvað niður sér
til dægradvalar. Þess á milli er
þama drukkið og svallað eins og
nú hefur sannast fyrir alþjóð. Rik-
ið á að spara fé, og það á m.a. við
um lokun Jónshúss.
betur má fara, þó svo að sterk orð
Vandfyllt skarð eftir Jón Baldvin
Gullregn á Olympíuleikum fatlaðra í Atlanta
Keppendum á Ólympíuleikum fatlaöra fagnaö hjá félagsmálaráðherra.