Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1996, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1996, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjómarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aöstoöarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI11, blaöaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI14,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreiflng: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerö: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverö á mánuöi 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Við vantreystum dómurum Nýlega var maður dæmdur í Héraðsdómi Vesturlands fyrir nokkrar líkamsárásir, þar á meðal nokkur nefbrot. Meðal annars hafði hann barið tvo menn í höfuðið með rifíilskefti. Einnig hafði hann misþyrmt manni í bíl, kast- að honum út, afklætt hann og úðað á hann málningu. Þessi mikilvirki, einbeitti og hættulegi ofbeldismaður fékk eins árs fangelsi fyrir þetta allt, þar af níu mánuði skilorðsbundna. Sami Héraðsdómur Vesturlands dæmdi um svipað leyti unga konu í tveggja ára fangelsi án skil- orðs fyrir eina alvarlega, en staka, líkamsárás. Dómarnir endurspegla misræmi í dómvenju. Annar aðilinn skaðar tólf manns og situr inni í þijá mánuði. Hinn skaðar einn mann og situr inni í tuttugu og fjóra mánuði. Síðari dómurinn er nokkuð harður, en fyrri dómurinn er langt út af korti venjulegs réttarríkis. Að undirlagi Hæstaréttar, sem skapar dómvenju, hef- ur myndazt hefð um, að dómstólar nýti sér ekki refsi- heimildir laga í ofbeldismálum, heldur haldi sig við neðri mörk þeirra. Hæstiréttur hefur löngum álitið of- beldismál langtum ómerkilegri en glæpi á sviði fjármála. Svo ógeðfellur er Hæstiréttur í ofbeldismálum, að ný- lega kvað hann upp málamyndadóm yfir margföldum nauðgara og gaf honum stórfelldan afslátt út á, að hann hefði á nauðgunartímabilinu skaffað fómardýrinu mat og húsnæði. Slíkir dómarar em tæpast með réttu ráði. Dómsmálaráðherra veitti Hæstarétti langþráða áminningu í hátíðaræðu við opnun nýs dómhúss réttar- ins. Slík áminning er nauðsynleg gagnvart almenningi til að sýna vilja í pólitíska geiranum, en hefur lítil áhrif á afturhaldsliðið í Hæstarétti. Meira þarf til. Af gefhum tileöium Hæstaréttar ber Alþingi að setja sérstök lög um þrengda möguleika dómstóla til að gæla við síbrotamenn. í nýju lögunum verði skýrar skilgreint svigrúmið, sem dómstólar hafi, úr því að þeim er ekki treystandi til að nota það svigrúm, sem nú er til. í nýju lögunum ber að þrengja svigrúm dóma yfir sí- brotamönnum í ofbeldismálum upp að efri mörkum nú- verandi svigrúms. Hins vegar má þrengja svigrúm dóma yfir peningabrotamönnum niður að neðri mörkum nú- verandi svigrúms. Fólk á að vera mikilvægara en fé. í lögunum ber einnig að gæta hagsmuna fómardýra ofbeldismanna með því að skylda dómstóla til að úr- skurða mun hærri skaðabótagreiðslur en nú og fela rík- isvaldinu að greiða fómardýrunum peningana og reyna síðan sjálft að innheimta þá hjá ofbeldislýðnum. Við verðum að taka afleiðingunum af því, að Hæstiréttur og héraðsdómstólar fást ekki til að breyta venjum sínum, þrátt fýrir mikla og sívaxandi fýrirlitn- ingu utan úr bæ. Við verðum að taka afleiðingunum af því, að við vantreystum réttilega þessum stofiiunum. Ef við látum yfir okkur ganga héraðsdóma og Hæsta- réttardóma, sem stríða gegn réttlætiskennd fólksins í landinu, hættum við á, að tilfinning fólks fýrir lögum og rétti grotni niður. Á meðan fremja Hæstiréttur og ein- stakir héraðsdómar ný afglöp, sem gera fólk agndofa. Þjóðfélagið hefur verið að breytast hratt á undanfom- um árum. Ungir afbrotamenn em skipulagðari og mis- kunnarlausari en áður tíðkaðist. Notkun fikniefiia hefúr aukizt og fjölgað ofbeldisglæpum. Á sama tíma krefst þjóðfélagið aukinnar virðingar við líf og limi fólks. Til að mæta breytingunum og tregðu dómstóla þarf Alþingi að breyta refsiákvæðum laga og gera ríkisvald- ið að millilið í greiðslum skaðabóta vegna ofbeldis. Jónas Kristjánsson „Aflaheimildir hafa nú verömæti vegna þess aö ekki er lengur leyft aö ganga óhindraö í fiskstofnana....“, seg ir hér m.a. Auðlindaskattur á sjávarútveg Kjallarinn Arni Ragnar Árnason alþingismaöur Sjálf- stæöisflokksins fyrir Reykjaneskjördæmi stenst ekki við þá und- arlegu röksemd sem margir bera fram, að út- gerðin geti alveg borgað auðlindaskatt rétt eins og fyrirtækin kaupi aflaheimildir af öðrum. Það verður athyglisvert að heyra skoðanir og hugmyndir þessara sömu aðila um fram- kvæmd og áherslur byggðastefnu í ljósi þessara hugmynda þeirra. Þeir vilja kannski senda farseðl- ana með skattseðlunum. Hvaða auðlind? Fiskstofnamir eru ekki eina auðlindin í sjávar- útvegi. Auðlindin „Fiskstofnarnir eru ekki eina auö- lindin í sjávarútvegi. Auðlindin starfsmenn er mikilvægari þvi þar er þekkingin á veiðum, meðferð og vinnslu afía og markaðssetn- ingu afurðanna.u Alþingi hefur ný- lega rætt tillögu sameinaðra jafnað- armanna um auð- lindaskatt á sjávar- útveg. Slík tillaga kom fram á lands- fundi Sjálfstæðis- flokksins og hlaut lítið fylgi. Báðar þessar tiflögur segja lítið um sjáifa hugmyndina, þ.e. stórfellda nýja skattheimtu af sjávarútvegi. Farseðlana með skattseðl- inum? Hugmyndafræði tillagnanna er at- hyglisverð frá fleiri en einu sjón- arhomi. Eitt er af- koma sjávarút- vegsins, sem er slæm vegna mjög skertra aflaheim- ilda, að ekki sé tal- að um fiskvinnslu- stöðvamar sem reknar eru með buflandi tapi og fyrirtækin að þrot- um komin. Fisk- vinnsla er undir- staða atvinnulífs og mannlifs við sjávarsíðuna og því deginum ljós- ara að slík skattheimta, svo gríð- arleg tilfærsla fjármuna frá fisk- veiðum og fiskvinnslu á hverju ári, mun leggja flest sjávarþorp landsins í rúst. Annað er sú röksemd að neyt- endur, einkum fjölskyldufólk í landinu, verði látnir greiða auö- lindaskattinn í reynd með hækk- andi vömverði á innfluttri neyslu- vöm því strax verði gripið til gengisfeflingar. Þetta síðasta starfsmenn er mikilvægari þvi þar er þekkingin á veiðum, meðferð og vinnslu afla og markaðssetningu afurðanna. Auðlindin markaður og viðskiptasambönd er líka mik- ilvægari, því án þeirra væri auð- lindin í hafinu verðlaus með öllu. Á hvaða auðlindir skal svo leggja auðlindaskatt og af hverju? Beitarrétt i landbúnaði? Nei, því landbúnaður er svo lítill í hagkerf- inu og bændur illa settir. Orku fallvatna og jarðhita? Nei, bara af því og þrátt fyrir að virkjunarrétt- ur er keyptur af landeigendum. Fegurö lands og saga þjóðar? Nei, ferðaþjónusta má ekki borga. Afla- heimildir? Já, af því að útgerðir kaupa þær hver af annarri. Menn sjá ofsjónum yfir viðskiptum út- gerða með þorskveiðiheimildir, sem gerð era í hagræðingarskyni til að ná arðsemi. Engin ný verömæti Verðmæti aflaheimilda er hátt vegna þess að þær eru mjög tak- markaðar. Aflaheimildir í þorski hafa lækkað nokkuð að undan- fornu, vegna smávægilegrar aukn- ingar þeirra og afnáms línu- tvöföldunar, sem gaf línuskipum forskot því þau þurftu einungis að kaupa eða leigja helming þess sem þau mundu veiða og gátu því boð- ið hátt verð. Aflaheimildir hafa nú verðmæti vegna þess að ekki er lengur leyft að ganga óhindrað í fiskstofnana og taka svo mikið sem hver vill. Þegar þær vora afhentar útgerð- unum var þeim ekki afhent neitt sem þær höfðu ekki haft áður, heldur vora veiðiréttindi þeirra stórlega skert. Þegar ekki var stjóm á fiskveiðum var verð skipa hærra en nú, enda verð- mæti réttindanna fólgið í því að eiga skip. Með flotastýringu hækkaði verð skipanna um verðmæti leyfisins. Með sóknEu-stýringunni jókst verð- mæti skipanna samkvæmt sóknar- getu: vélarafli, tækjabúnaði, stærð og bmrðargetu, flutnings- og geymslubúnaði o.þ.h. Með afla- markskerfinu fluttist verðmæti veiðréttinda frá skipum yfir í afla- heimildirnar, sem sést með sam- anburði á söluverði skipa án afla- heimilda við verð sömu skipa á fyrmefndum tímabilum. Útgerðum hafa þvl ekki verið af- hent nein ný verðmæti. Ámi Ragnar Ámason Skoðanir annarra Launþegum umbunað? „Þjóðarsáttarsamningamir voru gerðir á árinu 1990 eða fyrir 6 áram. Þeir vora forsenda þess að unnt var að koma stöðugleika á efhahagsmálin hér- lendis ... Launþegar tóku á sig verulegar byrðar á sama tíma og byrðum var létt af fyrirtækjum. Nú er batnandi hagur. Nú er komið að því að umbuna launþegum en þess verður að gæta að sú kjarabót, sem samið verðiu- um, sé innan marka þess stöðug- leika, sem nauðsyniegur er, svo allt sem unnist hef- ur á þjóðarsáttartímabilinu sé í raun ekki unnið fyr- ir gýg.“ Úr forystugreinum Mbl. 30. okt. Næstu jarðgöng og almannafé „Nú þegar er farið að bítast um hvar næstu göng á eftir Hvalfjarðargöngum eigi að liggja ... Sveitar- stjómarmenn era í startholunum. Kapphlaupið um næstu göng er að hefjast. Talað er af mikilli innlifun um áhrif á atvinnulíf og byggðaþróun. Málið er hins vegar ekki svona einfalt. Þeir sem berjast fyrir göng- um hafa hingað til ekki þurft að greiða fyrir þau. Það hefur almenningur gert og almannafé ætti ein- ungis að nota til að bæta þjóðarhag ... Því verður að spyrja: Er það þjóðarhag yfirleitt til bóta að gera fleiri göng?“ Úr 40. tbl. Vísbendingar 25. okt. Skýrsla Seðlabankans „Þessi yfirlýsing mun einungis herða menn í því að reyna að ná sínu fram, þótt þessi söngur komi al- mennu launafólki síður en svo á óvart. Þeir eiga bara að birta mynd af sér líka þessir kallar með sult- ardropa á nefinu. Þeir hvína alltaf hæst þegar á að fara að jafna launin í landinu. Svo læðast þeir í sín- ar kauphækkanir en þá talar enginn um þjóðarhag eða að þjóðin hafi ekki efni á þessu. Þá minnist held- ur enginn á að það sé kaupmáttaraukning.“ Sigurður T. Sigurðsson í Degi-Timanum 30. okt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.