Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1996, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1996, Side 17
16 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 25 íþróttir Golfferö til Flórída Ferðaskrifstofan Samvinnu- ferðir Landsýn ætlar að bjóða upp á golfferð til Flórída i nóv- ember. Farið veröur 10. nóvem- ber og stendur ferðin í tvær vik- ur. Leikið verður á völlum við Orlando og Sarasota við bestu hugsanlegu aðstæður. Enn eru nokkur sæti laus í þessa frábæru ferð en allar nánari upplýsingar fást hjá Samvinnuferðum. íkvöld DHL-deildin: Skallagrimur-tA.............20.00 Þór-Njarövík................20.00 Keflavík-KR ................20.00 Tindastóll-ÍR...............20.00 Haukar-Breiöablik ..........20.00 Norðmenn unnu Norðmenn unnu sigur á Rúm- enum, 25-22, i undankeppni heimsmeistaramótsins í hand- knattleik í gærkvöldi. Norðmenn eru í toppsætinu með 5 stig eftir þrjá leiki, Belgar koma næstir með 3 stig eftir tvo leiki og Rúm- enar og Tyrkir sitja á botninum með 1 stig. Góður peningur Leikmenn Fenerbache fengu góðan pening fyrir sigurinn gegn Manchester United í gær en hverjum og einum leikmanni liösins var heitið 700.000 fyrir að leggja ensku meistarana aö velli. Tennis: Óvænt úrslit á opna franska Óvænt úrslit urðu i gær á opna franska meistaramótinu í tennis og féllu margar stórstjörn- ur úr keppni. Meistarinn frá því í fyrra, Bandaríkjamaðurinn Pete Sampras, tapaði fyrir Sviss- lendingnum Marc Rosset, 6-4 og 6-4. Króatinn Goran Ivanisevic varð að játa sig sigraðan gegn Paul Haarhuis frá Hollandi, 6-3 og 6-2. Tomas Muster gekk ekki heill til skógar gegn Svíanum Stefan Edberg. Edberg vann fyrstu lotuna, 6-2, og eftir það varð Muster að hætta keppni vegna meiðsla. Óvæntustu úrslitin í gær verða að teljast tap Þjóöverjans Borisar Becker gegn Carlos Moya frá Spáni, 6-3, 5-7 og 64. -GH Handbolti: Lee fær ekki aö fara í einn mánuö Eins og DV greindi frá á mánu- daginn hefur handknattleikssam- band Kóreu óskað eftir þvl við FH að fá Kóreumanninn Lee Hyung-Suk, markvörð FH, út í æfingabúðir með landsliðinu í einn mánuð. FH-ingar eru ekki á því að leyfa Lee að fara í svo langan tíma enda þurfa þeir á honum að halda. ,,Viö buðum honum að fara út 21. nóvember og koma heim fyrir 6. desember og hann er sáttur við þaö. Hann gerir sér grein fyrir því að hann getur ekki farið frá okkur í einn mánuð meðan keppnistímabilið stendur sem hæst og á morgun (i dag) munum við senda handknattleikssam- bandinu í Kóreu símbréf þess efnis að hann geti verið með landsliðinu alln þann tíma sem það hefur óskað. Það var ekkert í samningi hans við okkur um að hann færi í einn mánuð,” sagði Jón Auðunn Jónsson, formaður handknattleiksdeildar FH, við DV í gærkvöldi. -GH Guðni Rúnar til liðs við Eyjamenn DV, Eyjum: ÍBV og Guðni Rún- ar Helgason, leik- maður Völsungs á Húsavík, hafa komist að samkomulagi um að hann leiki með ÍBV næsta sumar, samkvæmt upplýs- ingum frá knatt- spymuráði ÍBV. Samningur þess efn- is var handsalaður í gærkvöldi en eftir er að ganga formlega trá honum. Nokkur lið i 1. deild voru á eftir þessum stórefni- lega leikmanni sem er tvítugur að aldri og á sæti í U-21 árs landsliðinu. Guðni Rúnar æfði í nokkur misseri með Sunder- land á Englandi en sneri aftur heim í fyrrasumar og hefur leikið með Völsungi síðan. Fyrsti liðsaukinn fyrir næsta sumar Guðni Rúnar er fyrsti liðsauki ÍBV fyrir næsta sumar en Jón Bragi Amarsson hefur þegar tilkynnt að hann ætli að leggja skóna á hill- una. Hermann bestur Hermann Hreið- arsson var valinn besti leikmaður ÍBV í lokahófi Eyja- manna sem haldið var fyrir skömmu. Gunnar Sigurðsson markvörður var val- inn efnilegasti leik- maður liðsins og Reynir Hjálmarsson fékk fréttabikarinn sem besti leikmaður 2. flokks. Atli Eð- valdsson, fyrrum þjálfari ÍBV, var heiðraður fyrir starf sitt með ÍBV síðast- liðin tvö ár og hið rómaða stuðnings- mannafélag fBV í Reykjavík færði knattspymuráði að gjöf krónur 450.000. -ÞoGu Lengjumálið: Sættir hafa náðst Sættir hafa tekist á milli íslenskra getrauna og Eyjamanna um Lengju- málið svokallaða en eins og flestum ætti að vera kunnugt urðu Eyjamenn mjög illir út af skrifum Sigurðar Baldurssonar, ffamkvæmdastjóra ís- lenska getrauna, í leikskrá fyrirtækisins. Að sögn Jóhannesar Ólafs- sonar, formanns knattspyrnuráðs ÍBV, hafa yfirmenn Lengjunnar beðist afsökunar á óheppilegu orðavali í leikskrá Lengjunnar fyrir leik ÍBV og ÍA í haust og því sé engin ástæða til að halda deilunum áfram. „Þetta mál er úr sögunni og sættir hafa náðst á milli okkar og ÍBV. Viö hörmum að málið hafi farið þessa leið en við vonum að samstarf aðila geti verið gott hér eftir sem hingað til,” sagði Sigurður Baldursson, fram- kvæmdastjóri Islenskra getrauna, viö DV í gærkvöldi. -GH/ÞoGu Knattspyrna: Guðni ekki með gegn Óvíst er hvort Guðni Bergsson, landsliðsfyrirliði í knattspymu, verði með íslenska landsliðinu í leiknum gegn írum í undankeppni HM sem fram fer í Dublin á írlandi 10. nóvember. Guðni tognaði á læri í leik Bolton og Reading í fyrrakvöld og þurfti aö fara af leikvelli eftir 15 mínútna leik. Læknar hafa sagt honum að hann þurfi að hvíla sig allt upp í tvær vikur Það yrðu slæm tíðindi fyrir ís- írum? lenska landsliðið ef Guðni yrði ekki með í þessum leik enda er hann kjölfestan í vöm liðsins. Logi Ólafsson landsliðsþjálfari mun um helgina velja landsliðshóp- inn fyrir leikinn gegn írrnn sem verður þriðji leikur íslendinga í keppninni. Fyrsta leiknum, gegn Makedóníu, lyktaði með 1-1 jafntefli og í öðmm leiknum urðu íslending- ar að sætta sig við tap gegn Rúmen- um, 0-4. -GH Heimsmeistaramótið í snóker: Ósigurí fyrsta leiknum gegn Belgum - Kristján Helgason vann alla sína leiki íslendingar töpuðu fyrsta leikn- um fyrir Belgum á heimsmeistara- mótinu í snóker sem fram fer í Tælandi þessa dagana. Kristján Helgason komst best frá sínum leikjum með því að vinna þá alla, 55-43,118-116 og 78-32. Kristján er með eitt hæsta skor keppenda á mótinu eftir fýrsta leikinn eða 101 í stuði. Eðvarð Matthíason tapaði öllum sínum leikjum, 22-70, 34-62 og 15-76. Þá beið Jóhannes B. Jó- hannesson lægri hlut í sinni viðureign, 1-63, 0-99 og 28-74. Óvænt úrslit urðu í leik Tælands og Kina en þar gerðu þeir síðamefndu sér lítið fyrir og unnu, 4-5. Önnur úrslit urðu þau að Ástralir unnu Hollendinga, 6-3, og Hong Kong tapaði fyrir Singa- por, 2-7. Heimsmeistaramótið mun standa i tvær vikur til við- bótar svo að ýmislegt á eftir að gerast fram að mótslokum í þess- ari erfiðu keppni þar sem bestu þjóðir heims etja kappi saman. -JKS Iþróttir Paolo Maldini, fyrirliði AC Milan, og félagar hans unnu mikilvægan sigur í meistarakeppninni t gærkvöldi á IFK Gautaborg i mjög skemmtilegum leik í Mílanó, 4-2. Á myndinni er Svíinn Magnus Erlingmark meö boltann en hinn feiknasterki Maldini hefur góðar gætur á honum. Símamynd Reuter Hrakfarir ensku meistaranna í Manchester United á knattspymuvell- inum halda áfram því í gærkvöldi tap- aði liðið á heimavelli fyrir tyrkneska liðinu Fenerbache, 0-1, í meistara- keppni Evrópu. Þetta var sögulegur leikur því tap United var það fyrsta á heimavelli í 40 ár. Það má því segja að allt sé hreinlega í steik hjá Manchester United þessa dagana en á undanfómum vikum hef- ur liðið fengið tvo stóra skelli í ensku úrvalsdeildinni. Þrátt fyrir tapið á Manchester United ágæta möguleika á að komast áfram í keppninni en staða Juventus á toppnum er orðin mjög góð. Þessi tvö lið eigast viö á Old Trafford i næstu umferð og þá verður United aö vinna til að eiga möguleika á að kom- ast áfram. Fyrri hálfleikurinn á Old Trafford var mjög tíðindalítill en í upphafi síð- ari hálfleiks náði United nokkram góð- um sóknum. Besta færið fékk Nicky Butt þegar hann komst einn i gegnum vöm Fenerbache en markvörðurinn sá við honum. Nokkrum andartökum seinna munaði hársbreidd að Jordi Cryuff skoraði en skot hans smaug í stöngina. United pressaði nokkuð stíft en án árangurs. Sigurmark Tyrkjanna kom úr einni af fáum skyndisóknum þeirra i síðari hálfleik. Gott skot El- vir Bolic hafnaði i David May, vamar- manni United, og það yfir Peter Smeichel markvörð. Síðustu mínút- umar var United í látlausri sókn og Peter Schmeichel tók þátt í henni. Vonaöi aö þetta mundi ekki gerast undir minni stórn „Ég vonaði að þetta mundi ekki ger- ast á meðan ég væri viö völdin en þvi miður gerðist það og ég er mjög von- svikinn. Mér fannst við spila þannig að við hefðum átt að vinna leikinn. Það verður erfitt að gleyma þessu kvöldi,” sagði Alex Ferguson, stjóri United, eft- ir leikinn. Leikmenn Juventus fóra á kostum á heimavelli sinum gegn austurríska lið- inu Rapid Vín og áður en yfir lauk höfðu þeir skorað fimm mörk. Fram- heijarnir snjöllu, Alessandro del Piero og Alen Boksic, gerðu varnarmönnum Rapid lífið leitt og skorðu þeir hvor sín tvö mörkin í leiknum. Þegar liöiö leikur svona er þaö erfitt viðureignar „Við mættum mjög grimmir til leiks enda vorum við illir eftir leikinn gegn Roma um síðustu helgi. Þegar liðið leikur eins og í þessum leik er það erfitt viðureignar,” sagði Marcello Lippi, þjálfari Juventus eftir leikinn. Enn geröi Rangers í buxurnar Enn einu sinni hafa leikmenn Glas- gow Rangers gert í buxumar í Evrópu- keppninni en með tapinu gegn Ajax á heimavelli sínum er liðið úr leik í keppninni og í 12 leikjum i meistara- deildinni hefur Rangers enn ekki unnið leik. Sigurmarkið skoraði glókollurinn Arnold Scholten með þrumuskoti af 25 metra færi sem Hol- lendingurinn Theo Snelders, mark- vörður Rangers, réð ekki við. „Við spiluðum mjög vel í fyrri hálf- leik og skoraðum gott mark en slökuð- um á í þeim síðari,” sagði Louis Van Gaal, þjálfari Ajax. Fyrsta tap Dortmund Spænsku meistaramir í Atletico Madrid náðu að hefna ófaranna gegn Dortmund og fóra með sigur í fartesk- inu til Spánar. Dortmund réð ferðinni ffaman af leik og náði forystu með marki landsliðsmannsins Heiko Herr- lich en eftir hálftíma leik fóra Spán- veijamir að bíta frá sér og náðu betri tökum á leiknum. Þeir náðu að skora tvö mörk fyrir leikhlé og tryggja sér sigur. Þetta var fyrsta tap þýsku meist- aranna en ljóst er að Dortmund og At- letico Madrid fara áfram úr riðlunum þar sem Steua tapaði fyrir Lodz. Fjörugur leikur í Mílanó Leikur AC Milan og Gautaborgar var mjög skemmtilegur og þá sérstak- lega í fýrri hálfleik þar sem fimm mörk litu dagsins ljós. ítölsku meistar- arnir fengu óskabyrjun þegar þeir skoraðu tvívegis á fyrsta stundarfjórð- ungnum og hefði þá einhver haldið að { j í David Beckham og félagar hans í Manchester United hafa ekki átt sjö dagana sæla é knattspyrnu- vellinum. sigurinn væri í höfn. Svíamir voru ekki af baki dottnir og tókst með mik- illi seiglu að jafna metin. Heimamenn létu það ekki á sig fá, þeir skoraðu á góðum tíma rétt fyrir hálfleik og Ro- berto Baggio innsiglaði sigurinn með marki á lokamínútunni. „Þegar við vorum komnir í 2-0 kom draugurinn til baka en til allrar ham- ingju hvarf hann á braut. Við áttum allan siðari hálfleikinn og sigurinn var mjög sanngjam. Mínir menn voru taugastrekktir í fyrri hálfleik enda vissu menn að það var aö duga eða drepast fyrir okkur og með þá stöðu getur oft verið erfitt að spila góða knattspyrnu,” sagði Oscar Tabarez, þjálfari Milan, eftir leikinn. „Við spiluðum vel. Ég er mjög stolt- ur af leikmönnum minum en lið Milan er geysisterkt,” sagði Mats Jingblad, þjálfari Gautaborgar. Porto fyrst í 8-liða úrslitin Porto er með fullt hús stiga og er komið í 8-liða úrslitin eftir öraggan sigur á norska liðinu Rosenborg, 3-0. Serbinn Ljubimko Drulovic skoraði eitt mark og lagði hin tvö fyrir Porto. „Þetta var verðskuldaður sigur. Nú ætlum við að gefa okkur alla í keppn- ina og reyna allt til að komast í úrslt- in,” sagði Antonio Oliveira, þjálfari Porto, eftir leikinn. -GH Alen Boksic, til hægri, skoraöi tvö marka Juventus gegn Rapid Vín í gær. Hér er hann ásamt Trifon Ivanov, hinum sterka varnarmanni Rapid, í léttu einvígi Tveir leikmenn frá Leiftri reyna fyrir sér í Englandi: Sverrir og Pétur í skoðun hjá Sheffield United Tveir leikmenn úr röðum 1. deildar liðs Leifturs frá Ólafsfirði fara um helgina til enska 1. deild- ar liðsins Shefiield United og munu dvelja þar við æfingar í minnsta kosti einn mánuð. Leik- mennimir, sem hér um ræðir, era Sverrir Sverrisson og Pétur Björn Jónsson en þeir hafa báðir verið við nám í Bandaríkjunum síðan tímabilinu á íslandi lauk í haust. Þeir félagar hafa leikið sam- hliða námi með knattspyrnuliði háskólans í Virginu og leikið mjög vel. Þjálfari liðsins er Englending- ur og vildi hann endilega koma ís- lendingunum að til reynslu á Englandi. Hann hafði samband við Howard Kendall, framkvæmda- stjóra Sheffield United, og varð að samkomulagi við hann að Sverrir og Pétur kæmu til félagsins til reynslu. Þeir félagar hafa því pakkað skólabókunum saman og eru á leið til Englands til að freista gæfúnnar. Hafa veriö iönir viö aö skora mörk Sverrir og Pétur hafa verið iðn- ir við kolann í leikjunum með há- skólaliðinu. Pétur hefur skorað 10 mörk í sjö leikjum og Sverrir 11 mörk í sama fjölda leikja. Sverrir sagði í viötali við DV að marka- skorunin segði ekki alla söguna því geta liðanna í háskóladeildinni væri misjöfn. „Þess virði að prófa þetta“ „Mér finnst vel þess virði að prófa þetta fyrst það stendur til boða. Ég hef alltaf gengið með þann draum í maganum að reyna fyrir mér í atvinnumennskunni. Tíminn verður síðan að leiða það í ljóst hvort eitthvað kemur út úr þessu dæmi. Okkur stóð til boða að æfa hjá þremur öðrum enskum 1. deildar liðum, meðal annars hjá Bamsley. Við ákváðum að reyna fyrst hjá Sheffield United og verð- um þar við æfingar og keppni í mánuð. Að þeim tíma liðnum kem- ur i framhaldið í ljós,“ sagði Sverr- ir Sverrisson i samtali við DV í gær. Þess má geta að lið Sheffield United er í sjöunda sæti í 1. deild um þessar mundir. -JKS Allt i steik hjá United - fyrsta tap liðsins á heimavelli í Evrópukeppni í 40 ár GERÐU LAUGARDAGIIUN AD 100 r sölukössum lokað kl. 14:00 laugardag Velkomin ab netfangi WWW. TOTO. IS Nýr hópleikur 2. nóv. - 4. jan )0 v.kut, áiöí’.^ur 3 iicstu PPDEGI j£#)MEISTARADEILDIN A-riöill: Rangers-Ajax 0-1 Scholten (39.) 0-1 Grasshoppers-Auxerre 3-1 1-0 Moldovan (17.), 2-0 Moldovan (29.), 2-1 Gren sjálfsmark (47.), 3-1 Gren (59.) Grasshopp. 4 3 0 1 7-2 9 Ajax 4 3 0 1 6-2 9 Auxerre 4 2 0 2 4-5 6 Rangers 4 0 0 4 2-10 0 B-riöill: Widzew Lodz-Steaua . . 2-0 1-0 Majak (39.), 2-0 Czerwiec (49.) Dortmund-Atletico Madrid . . 1-2 1-0 Herrlich (17.), 1-1 Roberto (37.), 1-2 Pantic (42.) A.Madrid 4 3 0 1 10-3 9 Dortmund 4 3 0 1 7-3 9 Lodz 4103 4-7 3 Steaua 4 10 3 1-9 3 C-riöill: Manch.Utd-Fenerbache .... 0-1 0-1 Bolic (78.) Juventus-Rapid Wien . .... 5-0 1-0 Boksic (4.), 2-0 Montero (27.), 3-0 del Piero (28.), 4-0 Boksic (59.), 5-0 del Piero (74.) Juventus 4 3 10 8-1 10 Manch. Utd 4 2 0 2 4-2 6 Fenerbache 4112 2-4 4 Rapid Wien 4 0 2 2 2-9 2 D-riöill: Porto-Rosenborg .... 3-0 1-0 Zahovic (31.), 2-0 Drulovic (40.), 3-0 Oliveira (70.) AC Milan-Gautaborg . . .... 4-2 1-0 Boban (4.), 2-0 Albertini (13.), 2-1 Blomqvist (26.), 2-2 Andersson (32.), 3-2 Locatelli (43.), 4-2 Baggio (90.) Porto 4 4 0 0 9-3 12 AC Milan 4 2 0 2 11-8 6 Gautaborg 4 10 3 7-10 3 Rosenborg 4 10 3 4-10 3 l£)Í) ENGLAND 1. deild: Norwich-Sheff. Utd .... 1-1 QPR-Ipswich .... 0-1 Swindon-WBA . ... 2-3 Wolves-Huddersfield .. .. . ... 0-0 NBA kynningin og fleiri íþróttafréttir bls. 26 og 27

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.