Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1996, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1996, Síða 26
34 FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 Afmæli Hl hamingju með afmælið 31. október 90 ára Stefanla Ófeigsdóttir, Brávallagötu 6, Reykjavík. Maria Samúelsdóttir, Rjúpufelli 36, Reykjavik. Sigurlaug Davíðsdóttir, Hrafnistu í Reykjavík. 85 ára Ásta Sveinbjömsdóttir, Norðurgötu 6, Seyðisflrði. 80 ára Finnbogi Sigmarsson, Garðavegi 15, Hafnarfirði. Ragnheiður Esther Einars- dóttir, Snorrabraut 56, Reykjavík. 75 ára Sigurður Hallgrimsson, Víkurbraut 19, Vík í Mýrdal. Bjöm Helgi Jónsson, Laugarbrekku 22, Húsavik. Hjördis Fjóla Ketilsdóttir, Vesturgötu 22, Reykjavík. 70 ára Ásgeir Júlíusson, Svínhólum, Bæjarhreppi. 60 ára Pétur Eggertsson, Hólabraut 16, Skagaströnd. Guöbjartiu: Ágústsson, Teigaseli 4, Reykjavík. 50 ára Þórkatla Sigurbjörnsdóttir, Laxagötu 3 A, Akureyri. Karolína Þóra Ágústsdóttir, Amarhrauni 21, Hafnarfirði. Hafsteinn Sæmundsson, Fífumýri 9, Garðabæ. Hrafnhildur Kristjánsdótt- ir, Blómvangi 10, Hafnarfiröi. Jóhannes Sveinbjömsson, Lyngbakka 1, Neskaupstað. Aldís Jónsdóttir, Víkurbraut 25, Grindavík. Hansina Halldórsdóttir, Svínaskálahlíð 5, Eskifirði. Edvard Öm Olsen, Faxatúni 38, Garöabæ. 40 ára Helgi Árnason, Snartarstöðum II, Öxarfjarð- arhreppi. Jóna Kristbjörg Hafsteins- dóttir, Starengi 4, Selfossi. Helga Árnadóttir, Miðgarði 1, Keflavík. Lára Sveinbergsdóttir, Sævargörðum 12, Seltjarnar- nesi. Erlen Sveinbjörg Óladóttir, Vesturbergi 161, Reykjavík. María Erla Pálsdóttir, Stekkjarbergi 4, Hafnarfirði. v/Bústaöaveg Skreytingar við öll tœkifœri. Frí heimsending fyrir sendingar yfir 2.000 kr. Sími 588-1230 Gunnar Hólm Sumarliðason Gunnar Hólm Sumar- liðason, málari og hljóm- listarmaður, Grundar- götu 6, ísafiröi, varð sjö- tugur í gær. Starfsferill Gurmar fæddist á ísa- firði og ólst þar upp. Hann stundaði verka- mannavinnu á unglings- árunum og sjómennsku frá ísafirði í sjö ár, en hefur stvmdað húsamál- un á ísafirði og víðar frá 1955. Gunnar hefúr spilað á trommur og sungið með ýmsum danshljóm- sveitum frá því á stríðsárunum, m.a. með B.G. og Ingibjörgu og hljómsveitinni V.V. Gunnar spilaði knattspymu með knattspyrnufélaginu Herði á ísa- firði á unglingsárunum og æfði frjálsar íþróttir um skeið. Fjölskylda Gunnar kvæntist 30.10.1948 Krist- ínu Jónínu Kolbeinsdóttur, f. 22.11. 1927, húsmóður. Hún er dóttir Kol- beins Steinleifs Brynjólfssonar, f. 3.12.1894, d. í júní 1953, og Sigríðar Maríu Erlends- dóttur, f. 25.3. 1904, d. 8.2. 1980, húsmóður. Böm Gunnars og Kristín- ar Jónínu eru Sigríður María Gunnarsdóttir, f. 17.7. 1948, gift Friðrik Sig- urðssyni og eiga þau þrjú böm; Þórdís Elín Gunn- arsdóttir, f. 24.6. 1950, bú- sett á ísafirði, gift Sigurði Jarlssyni og eiga þau tvö börn auk þess sem hún á tvö böm frá því áður; Brynja Gunnarsdóttir, f. 15.1.1955, í sambýli með Haraldi Guðmunds- syni og eiga þau tvö böm auk þess sem hún á þrjú böm frá því áður; Kolbeinn Sumarliði Gunnarsson, f. 20.10. 1959, d. 18.12. 1986, var kvænt- ur Eimu Björk Diego og eru böm þeirra tvö. Böm Sigríðar Maríu og Friðriks em Helga Kristín Friðriksdóttir, f. 17.9.1965, búsett í Njarðvík, gift Ást- þór Ingasyni og era böm þeirra Sandra Ástþórsdóttir, f. 5.11.1990 og Andri Ástþórsson, f. 7.8.1993; Gunn- ar Hólm Friðriksson, f. 23.4. 1971 og er dóttir hans íris Ösp Gunnarsdótt- ir, f. 16.1. 1992; Sigurður Friðgeir Friðriksson, f. 10.9.1974. Böm Þórdísar Elínar era Díana Erlingsdóttir, f. 16.2. 1971, búsett á ísafirði og er sonur hennar Guð- bjöm Hólm Veigarsson, f. 7.1. 1990; Magnús Erlingsson, f. 22.11. 1974, búsettur á ísaflrði en kona hans er Lilja Debóra Ólafsdóttir og er sonur þeirra Jakob Fannar Magnússon, f. 25.9. 1996; Kristín Sigurðardóttir, f. 17.9. 1979; Kolmar Sigurðsson, f. 11.10. 1988. Böm Brynju era Amar Oddgeir Sveinsson, f. 23.9.1973 en kona hans er Dagný Karlsdóttir; Ingvar Óskar Sveinsson, f. 15.6. 1977; Sólveig Silfá Sveinsdóttir, f. 15.7. 1984; Henrý Ottó Haraldsson, f. 7.2.1992; Guðrún Olga Haraldsdóttir, f. 20.11.1994. Böm Kolbeins Sumarliða og Elmu Bjarkar era Kristín Jónína Kolbeinsdóttir, f. 23.8. 1982; Bryn- hildur Kolbeinsdóttir, f. 28.3. 1985. Systkini Gunnars: Vilhelmína Kristín Þ. Sumarliðadóttir, f. 27.10. 1910, búsett í Reykjavík; Guðrún Ólína Sumarliðadóttir, f. 29.11.1911, d. 28.2. 1986; Gestína Þorbjörg Sum- arliðadóttir, f. 11.6. 1914, d. 26.10. 1993; Óskar Guðmundur Sumarliða- son, f. 11.7. 1920, búsettur í Reykja- vík; Guðmunda Hólmfríður Sumar- liðadóttir, f. 12.8.1922, búsett i Kefla- vík; Elín Katrín Sumarliðadóttir, f. 21.9.1923, búsett í Vestmannaeyjum; Sumarliði Jens Sumarliðason, f. 19.4. 1930, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Gunnars vora Sumar- liði Vilhjálmsson, f. 13.6. 1886, d. 27.11. 1947, bóndi í Stóra-Ávik, og k.h., Solveig Silfá Gestsdóttir, f. 24.9. 1888, d. 15.7. 1971, húsfreyja. Ætt Sumarliði var sonur Vilhjálms, húsmanns í Krossanesi Jóhanns- sonar Gottfreðs, í Krossanesi Jónas- sonar, í Litlu-Ávík, liðsmanns Jör- undar hundadagakongungs Jóns- sonar, b. í Stóra-Múla Jónssonar. Móðir Sumarliða var Kristín Þórð- ardóttir. Solveig Silfá var dóttir Gests, b. í Reykjarflrði Gestssonar, í Kollsá Matthíassonar Jónssonar. Móðir Solveigar var Guðrún Bóasdóttir. Gunnar og Kristín taka á móti vinum og vandamönnum í Krúsinni á ísafirði, föstudaginn 1.11. kl. 19.00- 22.00. Gunnar Hólm Sumar- liöason. Sæmundur Hörður Bjömsson Sæmundur Hörður Björnsson, fyrrv. flugum- sjónarmaður, Háholti 16, Hafnarfirði, er sjötugur I dag. Starfsferill Sæmundur fæddist á Skálum á Langanesi og ólst þar upp til sjö ára aldurs en síðan í Vest- mannaeyjum. Hann Sæmundur stundaði bamaskólanám í Björnsson. Vestmannaeyjum, lauk gagnfræðaprófi frá Flensborgar- skóla í Hafnarflrði 1946, stimdaði nám við Stýrimannaskólann í Reykjavík og lauk þaðan fiski- mannaprófi 1948 og farmannaprófl 1950, stundaði nám í flugumsjón í Bandarikjunum og lauk þaðan próf- um 1957. Sæmundur fór fimmtán ára til sjós, var á bátum frá Vestmannaeyj- um, á síldveiðum og á trolli, á tog- uram frá Hafnarflrði og loks háseti og stýrimaður á farskipum hjá Eim- skip 1948-56. Sáemundur kom í land 1956 og hóf þá störf við flugumsjón hjá Flug- málastjórn á Keflavíkurflugvelli. Hörður Þar starfaði hann hjá Flugmálastjóm 1956-62, hjá Loftleiðum 1962-73 og loks hjá Flugleiðum þar til hann hætti störfum fyrir aldurs sakir 1993. Sæmundur var trúnaðar- maður flugumsjónar- manna á Keflavíkurflug- velli og sat i samninga- nefnd fýrir þeirra hönd. Hann lék handbolta með meistaraflokki FH um skeið og sat síðar í stjórn FH. Fjölskylda Sæmundur kvæntist 8.4. 1950 Hrefnu Eyjólfsdóttur, f. 16.11. 1928, d. 27.12. 1993, bankastarfsmanni og húsmóður. Hún var dóttir Eyjólfs Bjamasonar sjómanns og Þuríðar Bjamadóttur húsmóður. Börn Sæmundar og Hrefnu eru Eyjólfur Þór, f. 27.9. 1950, efnaverk- fræðingur og forstjóri Vinnueftir- litsins, kvæntur Gerði Sigurðardótt- ur kennara og eiga þau tvö böm, Helgu og Baldur; Gunnar Hörður, f. 28.11. 1956, véltæknifræðingur og deildarstjóri hjá Granda, kvæntur Fréttir Guöráöur Jóhannsson í Beinakeldu heldur hérna á rjúpum sem hann skaut fyrir fáum dögum. DV-mynd G.Bender Sigríði Stefánsdóttur, fulltrúa hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar, og era synir þeirra Stefán og Hörður; Sæ- mundur, f. 7.1. 1961, byggingaverk- fræðingur; Þórey Ósk, f. 27.9. 1971, kennari. Alsystkini Sæmundar eru Sveinn Björnsson, f. 19.2. 1925, listmálari í Hafnarfirði; Knútur Bjömsson, f. 1.5. 1930, lýtalæknir í Hafnarflrði; Bryndís Bjömsdóttir, f. 10.3. 1924, sjúkraliði og listakona í Reykjavík; Elín Bjömsdóttir, f. 24.7. 1928, veflistakona og kaupkona í Reykja- vík. Hálfsystkini Sæmundar, sam- mæðra, era Baldur Johnsen, f. 22.10. 1910, læknir og fyrrv. forstöðumað- ur Heilbrigðiseftirlits ríkisins, bú- settur í Reykjavík; Ingólfur ísebam, f. 14.10. 1915, verslunarmaður í Reykjavík; Júlíana ísebarn, f. 20.1. 1917, húsmóðir í Reykjavík og fyrrv. skrifstofumaður; Clara ísebam, f. 26.2. 1914, d. 29.10. 1987, húsmóðir. Foreldrar Sæmundar vora Bjöm Sæmundsson, f. 6.11. 1898, d. 24.1. 1979, útgerðarmaður á Skálum og Langanesi og síðar eftirlitsmaður í Reykjavík, og Sigurveig Sveinsdótt- ir, f. 10.1.1887, d. 21.3. 1972, húsmóð- ir. Ætt Björn var sonur Sæmundar, b. á Brimnesi og í Heiðarhöfh, síðar tré- smiðs á Þórshöfn Illugasonar, og Kristínar Guðbrandsdóttur af Guð- brandsætt. Sigurveig var systir Júlíönu list- málara, systurbam við Guðjón Sam- úelsson húsameistara. Bróðir Sigur- veigar var Sveinn, framkvæmda- sfjóri Völundar, faðir þeirra Völ- undarbræðra, Sveins, fyrrv. for- stjóra, Leifs lögfræðings og Haralds, fyrrv. framkvæmdastjóra Árvakurs. Sigurveig var dóttir Sveins, tré- smíðameistara í Reykjavík Jónsson- ar, b. á Steinum undir Eyjafjöllum Helgasonar. Móðir Sveins Jónsson- ar var Guðrún, systir Ólafs gull- smiðs, langafa Georgs verðlags- stjóra. Guðrún var dóttir Sveins, b. á Ytri- Skógum undir Eyjafjöllum ísleifssonar, b. þar Jónssonar. Haldið verður upp á afmælið í Golfskála Keilis, Hf„ frá kl. 20.30 í dag. Allt skyldfólk og velunnarar velkomnir. Rjúpnaveiðin byrjuð fyrir alvöru: Veiðin gengur ágætlega „Rjúpnaveiðin hefur gengið sæmilega hjá okkur að undanfömu en við höfum mest verið á Auðkúlu- heiðinni og það hafa fengist nokkur stykki. Mér finnst vera svipað af rjúpu og á sama tíma í fyrra, kannski heldur minna ef eitthvað er,“ sagði Guðráður Jóhannsson á Beinkeldu er við spurðum um fyrstu daga rjúpnaveiðitímans. „Skotveiðimenn hafa verið um allt héma fyrir austan og sumir fengið góða veiði. Menn hafa séð töluvert af fugli enda allt autt enn þá,“ sagði Sverrir Sch. Thorsteins- son á Höfn í Hornaflrði er við spurðum frétta af rjúpnaveiðinni þar eystra. „Ég frétti af veiðimanni sem fékk 35 rjúpur á einum degi og það er besta veiðin sem ég hef heyrt um. Þetta hefur alveg farið niður í tvær rjúpur eftir daginn," sagði Sverrir enn fremur. I kringum Blönduós og Hvamms- tanga hafa veiðimenn verið að fá ágæta veiði. Við fréttum af tveimur sem fengu 80 fugla á tveimur dög- um. Töluvert er enn af gæsum í tún- um en mikið fór þegar kólnaði fyrir fáeinum dögum. G.Bender

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.