Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1996, Page 32
Vinningstölur miðvikudaginn 30.10/96
►
!s
14X30X44 s
25 V 39
Vlnnlngar Fjöldi vinninga Vinningsupphæð
l.iofí 1 110.110.000
2. 5 ofí i> 0 1.959.755
íTTáfT 4 72.400
4.4afí 287 1.600
S.Jofí1 í>959 200
30.10.
KIN
Heildarvinningsupphxá Á Islandl
113.010.355 2.900.355
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996
Vitlaust
veður
á Sigluffirði
DV, Akureyri:
„Þaö er blindbylur hér, ofankoma
og skafrenningur og sést vart á milli
húsa en okkur er ekki kunnugt um
nein óhöpp vegna veöursins," sagði
Aðalbjöm Rögnvaldsson, starfsmaður
áhaldahúss Siglufjarðar, í morgun.
Óveður gekk yfir Tröllaskaga í
gær og var t.d. ófært á milli Dalvík-
ur og Ólafsfjarðar en í morgun var
ágætt veður á Ólafsfirði og einnig í
Skagafirði. Starfsmaður Vegagerð-
arinnar á Sauðárkróki sagði alla
vegi í umdæmi hans opna nema veg-
inn frá Fljótum til Siglufjarðar en
þar væri bylur og talsverður snjór.
Kennarar voru mættir í grann-
' ^ 'skólann á Siglufirði í morgun og
sögðust tilbúnir að taka við þeim
börnum sem kæmu í skólann.
Starfsmenn bæjarins hófu klukkan
fimm í nótt að moka helstu götur
bæjarins og leiðir að skólunum og
sjúkrahúsinu. Lögreglunni þar í
bænum var ekki kunnugt um nein
óhöpp vegna veðursins. -gk
Ungtiðarnir inn
bakdyramegin
Þeir þrír stjómarmenn Alþýðu-
flokksfélags Reykjavíkur, sem ekki
náðu kjöri á flokksþing á dögunum
í því félagi, þar sem skipulega var
unnið gegn þeim, fara samt á flokks-
þingið sem kjömir fulltrúar. Þau
náðu kjöri sem fulltrúar Félags
frjálslyndra jafnaðarmanna á fundi
í fyrrakvöld.
Á þeim fundi gerðist það að Frið-
þjófur Eyjólfsson, endurskoðandi
Alþýðuflokksins, náði ekki kjöri en
verður fyrsti varamaður félagsins á
flokksþinginu. Friðþjófur er sagður
harður stuðningsmaður Sighvats
Björgvinssonar. -S.dór
- Hékk á brúninni
DV, Akureyri:
Ökumaður bifreiðar, sem ók niður
Hrafnagilsstræti á Akureyri í gær og
beygði niður Eyrarlandsveg skammt
fyrir ofan Akureyrarkirkju, var
heppinn að missa bílinn ekki út af
götunni og niður brekkuna að Hafn-
arstræti.
Bifreiðin rann út í götukantinn og
„hékk á brúninni" eins og varðstjóri
orðaði það. Hefði bifreiðin farið fram
af hefði hún oltið 40-50 metra niður
brekkuna og sennilega ekki stöðvast
fyrr en á húsi við Hafnarstræti.
Að sögn lögreglu voru nokkrir
minni háttar árekstrar á Akureyri í
;^gær, þó furðufáir miðað við þá miklu
hálku sem var á götum bæjarins. -gk
Guöbjörn Ólafsson, sem sagt var upp störfum hjá Slysavarnafélaginu á síðasta ári:
Krefur SVFÍ um 28 millj-
ónir vegna uppsagnar
- brotið á rétti mínum og tek ekki meðferðinni bótalaust, segir Guðbjörn
Guðbjörn Ólafsson, fyrrum að-
albókari og skrifstofustjóri
Slysavarnafélags íslands, hefur
höfðað mál þar sem hann krefur
félagið um 28 milljónir króna í
skaða- og miskabætur vegna
uppsagnar og starfsloka hans
þar sem bar talsvert brátt að á
síðasta ári.
„Ég taldi hafa verið brotið á
rétti mínum - ég þyrfti ekki að
taka því að sæta þessari meðferð
og uppsögn bótalaust. Hún var
ósanngjöm og ekki í takt við
mín réttindi - þau voru sterkari
en menn vildu vera láta á sínum
tíma,“ sagði Guðbjörn um ástæð-
ur málshöfðunarinnar í samtali
við DV í gær.
Uppsögnina segir Guðbjörn
hafa tengst afstöðu hans til brott-
hvarfs Hálfdans Henryssonar.
Hann hafi látið uppi álit sitt á
máli Hálfdans og það hefði ekki
samræmst skoðunum stjórnar
SVFÍ. Guðbirni var sagt upp
þann 1. júní á síðasta ári með
þriggja mánaða uppsagnarfresti.
Hann sagði að viku síðar hefði
honum síðan verið vikið um-
svifalaust úr starfi - skýringarn-
ar hefðu verið vegna opinberrar
umíjöllimar sem hann tengir við
svör sín til blaðamanns varðandi
uppsögnina - hann hefði svarað
honum því játandi að honum
hefði verið sagt upp.
Bótakröfuna hefur Guðbjörn
byggt á því að hann telur rétt-
indi sín sem starfsmaður SVFÍ
hafi verið í samræmi við réttindi
og skyldur ríkisstarfsmanna.
„Þau fela í sér að ekki sé hægt að
víkja manni úr starfi nema hann
hafi brotið alvarlega af sér,“
sagði Guðbjörn.
Hann sagði að aðalkrafan, 28
milljónir króna, væri auk miska
byggð á launáútreikningum til
loka starfsaldurs. -Héraðsdömur
Reykjavíkur fjallar um mál Guð-
björns. Hann starfaði fyrir Slysa-
varnafélag íslands frá árinu 1988
þar til í júní 1995. Hann starfar
nú sem bæjarritari í Hafnarfirði.
-Ótt
Margrét Þórhildur Danadrottning og Henrik prins tóku í gær á móti íslenskum blaðamönnum í Fredensborgarhöli.
Margrét sagðist vilja bjóða nýjan forseta íslands velkominn til Danmerkur en fyrsta opinbera heimsókn Ólafs Ragn-
ars Grímssonar til útlanda verður einmitt þangað í næsta mánuði. Það er í samræmi við óskráð iög um að nýr for-
seti íslands byrji á því að sækja Dani heim. DV-mynd GVA
Atta mánaða
fangelsi fyrir
kynmök við
13 ára
Fjölskipaður dómur Héraðsdóms
Austurlands hefur dæmt 19 ára pilt,
Jóhann Þór Sveinsson, í átta mán-
aða fangelsi fyrir að hafa haft kyn-
mök við 13 ára stúlku í Neskaupstað
í mars árið 1994. Hann var jafnframt
dæmdur til að greiða stúlkunni 200
þúsund krónur í miskabætur.
Tveir aðrir piltar voru ákærðir
fyrir að hafa haft kynmök við sömu
stúlku þegar hún var orðin 14 ára.
Þar giltu hins vegar önnur lagaá-
kvæði og vora þeir sýknaðir af öll-
um sakargiftum þó svo að sannast
hefði að þeir hefðu báðir haft sam-
ræði við stúlkuna, þar sem ekki
þótti sannað að piltamir hefðu
„tælt“ stúlkuna til samræðis í skiln-
ingi lagaákvæðisins.
Jóhann Þór var eins og fyrr segir
dæmdur fyrir að hafa haft kynferð-
ismök við „bam yngra en 14 ára“.
Þar er refsiramminn 12 ár, sam-
kvæmt fyrstu málsgrein 202. grein-
ar hegningarlaganna.
Þremenningamir vora ákærðir
hver í sínu lagi, þ.e. að hafa átt kyn-
ferðismök við sömu stúlkuna en við
mismunandi tækifæri. Fram kom í
málinu að faðir stúlkunnar var
snemma á árinu 1996 dæmdur í 6
mánaða skilorðsbundið fangelsi fyr-
ir að hafa misnotað dóttur sina kyn-
ferðislega þegar hún var á bams-
aldri. -Ótt
FORSETINN FER UT
OG HANDRITIN
KOMA HEIM
- EÐA ÞANNIG!
Veðrið á morgun:
Kaldast
norðan-
lands
Á morgun verður norðaust-
ankaldi eða stinningskaldi og él
um landið norðanvert en létt-
skýjað sunnan til. Frost verður
á bilinu 1 til 8 stig, kaldast
norðanlands.
Veöriö í dag er á bls. 36
ÞROHTUR
SeNDIDlLASTÖÐ
\
533-1000
7
Kvöld- og
helgarþjónusta
brothec
PT-7000
Merkivél
m/íslensku ietri
Nýbýlavegi 28 - sími 554-4443