Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1996, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996
Fréttir Stuttar fréttir i>v
9 íslendingar hafa látist í Danmörku á þessu ári:
Flestir létust af
fíkniefnaneyslu
- fleiri sendiráö og ræðismenn í miklum vanda vegna íslendinga ytra
„Samkvæmt heimildum, sem DV
telur öruggar, hefur sendiráð Is-
lands í Kaupmannahöfn aðstoðað
við heimflutning níu látinna íslend-
inga það sem af er árinu. Flestir
hinna látnu létust af völdum fikni-
efnaneyslu en að öðru leyti var um
að ræða fólk komið um og yfir miðj-
an aldur á ferðalagi í Danmörku
sem varð bráðkvatt.
Bjarni Sigtryggsson, upplýsinga-
fulltrúi utanríkisráðuneytisins,
kveðst ekki geta staðfest töluna
vegna þess að upplýsingar um
margvíslega persómúega þjónustu
sendiráðanna við íslendinga erlend-
is sé ekki flokkuð sérstaklega og
send ráðuneytinu. Hann dregur
hana hins vegar ekki í efa.
Róbert Trausti Ámason sendi-
herra vildi í gær hvorki staðfesta né
afheita þessari tölu og óskaði jafn-
framt ekki eftir að ræða málið við
fjölmiðla þar sem í flestum tilfellum
væri um mjög sársaukafull atvik að
ræða, bæði fyrir aðstandendur
hinna látnu, hann sjáifan og starfs-
fólk sendiráðsins.
Bjarni Sigtryggsson segir að
sendiherrar íslands inni mörg störf
af hendi án þess að skjöl um það
komi í ráðuneytið, þeirra á meðal sé
aðstoð við ættingja fólks sem deyr
erlendis og aðstandendur leita beint
til viðkomandi sendiráðs án milli-
göngu utanríkisráðuneytisins. Við
andlát á erlendri grund þurfi að
framkvæma margvíslega pappírs-
vinnu sem er misflókin eftir lönd-
um og ættingjar misjafhlega í stakk
búnir að takast á við.
Bjami segir að sendiráðin aðstoði
fólk á ýmsa vegu, svo sem þá sem
veikjast eða slasast og lenda inni á
sjúkrahúsum eða í fangelsum, eða
er vísað úr landi. Álag á sendiráðin
vegna mála af þessu tagi sé mismik-
ið en virðist vera einna mest á
sendiráðið í Kaupmannahöfh og í
París en varla líði sú vika að ekki sé
eitthvert slíkt mál í gangi hjá sendi-
ráðunum, ýmist vegna dauðsfalla,
aðstoðar við vegalaust fólk við að
komast heim og annarra vandræða.
Hvað varði sendiráðið í Kaup-
mannahöfn þá sé það alþekkt að
talsverður fjöldi Islendinga haldi til
í Danmörku og sé hvorki í námi eða
starfi auk þeirra sem þar hafa fasta
búsetu og öragga afkomu. Þá sé
Kaupmannahöfn vinsæll áfanga-
staður ferðafólks. Skýringin á ann-
ríki sendiráðsins í París sé á sama
hátt sú að það sendiráð þjóni jafn-
framt Spáni, Portúgal og Ítalíu en
íslendingar ferðast í miklum mæli
til þessara landa auk Frakklands.
Bjarni vekur einnig athygli á
þjónustu kjörræðismanna íslands
víða rnn heiminn sem annist sams
konar persónulega þjónustu og
sendiráðin við Islendinga. Þar sé
sér á parti þjónusta ræðismannsins
í Bangkok í Taílandi en þangað hef-
ur fjöldi íslendinga sótt undanfarin
ár og margir hverjir hafa gengið þar
á svig við lög og reglur og heil-
brigða lífshætti og verið fluttir heim
fyrir milligöngu ræðismannsins
mjög misjafiilega á sig komnir and-
lega og líkamlega og stundum dauð-
vona af völdum sjúkdóma og fikni-
efnaneyslu. „Það hafa töluvert
margir verið aðstoðaðir við að kom-
ast heim frá Tailandi á þessu ári en
ég er ekki með nákvæma tölu um
fjölda þeirra heldur," sagði Bjarni
Sigtryggsson, upplýsingafulltrúi ut-
anríkisráðuneytisins, í samtali við
DV.
-SÁ
Fjórir í fangelsi
Héraðsdómur hefúr dæmt
fjóra menn til 2)4 árs fangelsis
og greiðslu sektar fyrir stórfelld-
an innflutning og sölu á e-töfl-
um.
Tryggir yeiðiheimildir
Samruni ÚA og útgeröarsviðs
KEA tryggir veiðiheimildir sem
nema 25 þúsund þorskígildum
eftir að Burðarás hf. eignaðist
hlutabréf í ÚA. RÚV sagði frá.
Aðeins viijayfirlýsing
Borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokks telur að vald sé fært til
ráðherra með breytingum á
Landsvirkjun og sjálfstæði fyrir-
tækisins minnki, skv. Stöð 2.
Allir í einni vél?
Formaður almannavamaráðs
vildi að ríkisstjómin færi ekki
öll í einni vél að skoða Skeiðar-
árhlaup. Sex ráðherrar og emb-
ættismenn vom um borð, skv.
Stöð 2.
17 miljjónir í biðlaun
BHM telur að starfsmenn
Landmælinga íslands eigi að fá
17 milljónir í biölaun ef stofhun-
in verður flutt til Akraness. Út-
varpið sagði frá.
Kærðu uppsagnir
Verkalýðsfélög í Skagafirði
hafa kært Fiskiðju Skagfirðings
fyrir að hafa sagt upp starfsfólki
á fólskum forsendum, að sögn
RÚV.
-GHS
Geðfatlaður byssumaður á veitingastað á Egilsstöðum:
Ógnaði starfsstúlku
og sagðist
leiöur á lífinu
- lögreglan er óttaslegin vegna mannfæðar
„Hann beindi byssunni að sjálf-
um sér og sagðist vera orðinn leiður
á lífinu. Starfsstúlka hér fékk að líta
framan í byssuhlaupiö og maðurinn
hagaði sér þannig að manni fannst
hann til alls líklegur. Mér finnst al-
vsælegt að byssan skuli ekki hafa
fundist og það virkar hreint ekki
traustvekjandi fyrir Héraðsbúa að
einn lögreglumaður skuli þurfa að
koma á staðinn í tilvikum sem þess-
um,“ segir Geir Gígja, umsjónar-
maður Pizza 67 á Egilsstöðum, en
geðfatlaður maður kom inn á stað-
inn í fyrrakvöld og hagaði sér dólgs-
lega eftir að hafa dmkkið um stund.
Geir segir manninn hafa byrjað á
þvi að fá sér í glas og síðan þegar
líða tók á hafi hann sagt starfs-
stúlkunni að hann væri með hlut
sem hann mætti ekki hafa. Hún hafi
talið það áfengi og því ekkert gert í
málinu. Síðan hafi henni bragðið
mjög þegar maðurinn tók byssu
fram úr jakkaerminni.
„Stúlkan var hrædd við að láta
manninn verða varan viö það að
hún reyndi að ná í hjálp. Hún skrif-
aði á miða og lét mig hafa hann og
ég hringdi á lögregluna," segir Geir.
Tveir lögreglumenn eru á Egils-
stöðum. Annar var í embættiserind-
um á Hallormsstað og því kom einn
lögreglumaður á staðinn. Að sögn
Geirs var það síðan tilviljun að
hann fékk hjálp frá lögreglumanni
sem vinnur með Vegagerðinni og
var að koma til þess að fá sér pitsu.
„Þeir töluðu við manninn en
hann vildi ekki kannast við að hafa
verið með byssu. Hann hafði gengið
inn og út í bil sem hann var með og
spumingin er hvað hann hafi gert
við hana. Síðar viðurkenndi hann
að hafa verið með byssu en sagðist
hafa hent henni í Lagarfljótið. Það
er mjög ótrúlegt."
Eftir nokkra baráttu og eina
brotna rúðú í lögreglubílnum tókst
að koma manninum í lögreglubíl-
inn. Honum var ekið á sjúkrahúsið
í Neskaupstað.
„Auðvitað er mjög slæmt að við
skulum ekki fá meiri mannskap.
Lögreglumaður á vakt fer ekki að
eyða tíma í að kalla út héraðslög-
reglumann þegar tilkynnt er um að
byssumaður ógni fólki því þá þarf
að bregðst skjótt við. Þá er lítið
spennandi að vera einn á vakt. Við
erum virkilega óttaslegnir yftr
þessu ástandi því það eru alltaf að
koma upp mál þar sem byssur koma
við sögu. Miðað við íbúafjölda ætt-
um við að vera sex hér en ekki tveir
og við þökkum fyrir að ekki fór illa
í þetta sinn,“ segir Úlfar Jónsson,
varðstjóri lögreglunnar á Egilsstöð-
um.
-sv
Sólin er ökumönnum erfiö um þessar mundir því hún er lágt á lofti og rúöur oft skítugar og hélaöar. Ökumaður þess-
arar fólksbifreiöar blindaðist af sóiinni og sá því ekki þegar strætó stoppaöi á Hringbrautinni í gærmorgun. Bílstjór-
inn slapp ómeiddur en kona, sem var meö honum í bílnum, var flutt á slysadeild.
DV-mynd S
Staurinn inn í miðjan bíl
„Þetta leit mjög illa út því staur-
inn hafði gengið inn í hlið bilsins og
inn í hann miðjan fyrir framan far-
þegann. Sá hafði náð að kasta sér
upp á milli sætanna og þar sat hann
fastur," sagði lögreglumaður í Hafn-
arfiröi við DV í morgun. Bifreiðin
sem um ræðir lenti á ljósastaur á
Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði í gær-
kvöld en lítil meiðsl urðu á þeim
sem í henni vora. Bílstjórinn var
sjálfur kominn út þegar að var kom-
ið en talið var að farþeginn hefði
brákast eða brotnað á fæti. Hálka
var á götunni þegar þetta gerðist og
akstur líklega ekki miðaður við þær
aðstæður þegar í beygju var komið.
-sv
'
50%
j rödd
>á FÖLKSINS
904 1600
nei
Eru samningar um
Smuguna tímabærir?
Bandaríski körfuboltinn í nótt:
Houston sigraði í framlengingu
Úrslit leikja í NBA-deildinni í
nótt urðu þessi:
Denver-Houston..........108-110
Golden State-New York . 100-105
Portland-Minnesota........95-94
Orlando-New Jersey......108-95
Phoenix-Seattle .........98-103
Sacramento-Atlanta........87-91
Denver og Houston háöu hörkuleik þar
sem úrslit réðust ekki fyrr en i fram-
lengingu. Hakeem Olajuwon fór á kost-
um í henni og var maðurinn á bak við
sigur liðsins. „Hann var lykillinn að
sigri Houston Við réðum ekkert við
hann,“ sagði Bickerstaff, þjálfari Den-
ver. Olajuwon skoraði 36 stig fyrir Hou-
ston og Barkley 16 stig og 15 fráköst.
Patrick Ewing var einnig góður þegar
New York sigraði Golden State, skoraði
alls 33 stig.
Kenny Andewrson skoraði sigurkörfu
Portland gegn Minnesota þegar leiktím-
inn var að fjara út.
Orlando og New Jersey léku í Tokyo.
Penny Hardaway skoraði 23 stig fyrir
Orlando en fyrir New Jersey skoraði
Kendall Gill 22 stig.
Gary Payton skoraði 25 stig og Hersey
Hawkins 24 þegar Seattle vann sigur á
Phoenix á útivelli. -JKS