Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1996, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1996, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996 Kveðjur á kortum Unnur Sólrún Bragadóttir hefur gefið út sérkennOega ljóðabók sem hún kallar Blómakörfuna. í henni eru 39 tækifæris- ljóð á jafnmörgum blöð- i um sem hægt er að kippa ' út úr bókinni og nota sem gjafakort. Listakonan Kristín Arngrímsdóttir, sem oft hefur glatt lesend- ur tímaritsins Bjarts og frú Emilíu með undurfal- legum englamyndum, skreytir einnig þessi bók- arkort. Á þeim eru afmæl- is- og aðrar hamingjuósk- ir, óskir um góðan bata, ástar-, jóla- og vinarkveðjur og ýmiss konar hvunndagsspeki. Bókaútgáfan Blómakarfan gefur út og pöntunarsími er 5513034. Bjartur um Bukowski Talandi um tímaritið Bjart og frú Emilíu þá er annað tölublað þess 1996 komið út, tileinkað bandaríska skáld- inu Charles Bukowski sem þótti frum- legur og djarfur í skáldskap sínum og varð goðsögn í lifanda lífi. Jón Kalman Stefánsson kynnir skáldið og birtir ljóð þess. Vetrarsýning handrita Nýmæli hjá Stofnun Árna Magnússonar í Árnagarði við Suður- götu í Reykjavík er að hafa opna sýningu á fomum handritum að vetrarlagi. Á*>; þessari fyrstu vetr- arsýningu eru 9 handrit, meðal jannarra Konungs- bók Grágásar frá miðri 13. öld, og AM 556 a 4to með Grettlu og Qeiri sögum. Sýningin verður opin á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtufógum milli kl. 15 og 16 fram til 12. desember og frá 7. janúar til 15. maí. Auk þess er hægt að panta fyrir hópa á öðrum tímum þessa sömu daga. Sveinsson og Schu- mann í kjallaranum Á mánudaginn ætlar Atli Heimir Sveinsson tónskáld að spjalla um kollega sinn þýskan, Robert Schumann, í Listaklúbbi Leikhú- skjallarans og leika úr verkum hans á píanó. Tónlistarmenn úr Caput- hópn- um munu leika verk eftir Atla Heimi og auk þess les Edda Amljótsdóttir úr Ijóðabálkinum Útlegð eftir Saint John Perse í þýðingu Sigfúsar Daðasonar. Dagskráin hefst kl. 21 en húsið verð- ur opnað kl. 20.30. Játningar Pushkins Erótikin, ástin og hjóna- bandið eru viðfangsefni ^rússneska skáldsins Pushk- ins í bókinni Játningar Pushkins. Þar kynnast jesendur nýrri hlið á honum „og þeirri ást- aráráttu eða öllu heldur , kynlífsfíkn, sem að lokum dró hann til dauða", eins og segir i kynningu. Bókin er enn á bannlista í heimalandi höfundar en var smyglað þaðan 1976 og hefur verið gefin út víðs vegar á Vesturlöndum. Þýðandi Játninganna er Súsanna Svavarsdóttir og bókaútgáfan Reykholt gefur út. Hvað er bókmennta- fræði? Loks minnum við á fyrirlestur Terrys Eagletons, prófessors við há- skólann í Oxford, i sal 3 í Háskólabíói á morgun, laugardag, kl. 14; en viðtal birtist við hann hér í blaðinu í gær. Fyrirlesturinn nefnir hann Hvað er bókmenntafræði? eða What is Literary Theory? og flytur hann á ensku. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir menningu Skynhrif birtu og lita I nýjustu ljóðabók Gyrðis Eliassonar, Indíána- sumri, eru kyrrar myndir úr þorpi og sveit áber- andi, dregnar upp á stílfærðan hátt svo minnir á impressjónísk málverk. Gyrði hefur verið tamt að yrkja um furðuheima og lýsa sálarangist en víða í þessari bók beinir hann athygli sinni að birtu og litbrigðum i veruleikanum og hið ævin- týralega liggur i skynhrifunum. Eitt af því sem einkennir ljóðlist Gyrðis í heildina tekið er hvernig Ijóðmælandinn setur sjálfan sig á svið og verður gerandi í Ijóðinu. Ólíkt stórum hluta þess skáldskapar, sem er ort- ur í fyrstu persónu eintölu, (t.d. verkum Steins Steinarrs), þar sem ljóðmælandinn lýsir einkum tilfinningum siniun og hugsunum um lífið og til- veruna, skýrir ljóðmælandinn í verkum Gyrðis öðru fremur frá athöfnum sínum og upplifunum á umhverfinu. í þessari bók er þó ljóðmælandinn víða fremur áhorfandi en gerandi eins og í ljóð- inu Birta: Haustsól lýsir þvott á snúru, svo sterk að jafnvel dökk föt verða ljós í geislum hennar Út úr gula húsinu kemur kona með tágakörfu í fanginu og fer að hengja upp meiri þvott - dökkan kjól sem lýsist samstundis, hvítt sængurver sem skín Einsog þetta hvíta blað hérna á borðinu í sólinni Gyrðir Elíasson - óvenjuleg sýn og afar falleg málbeiting. Uggurinn, sem allt frá fyrstu tíð hefur ver- ið eitt af helstu yrkisefnum Gyrðis, er líka í þessari bók. Þó virðist hér ríkja meiri sátt við tilveruna en í fyrri Ijóðabókum skáldsins, einhvers konar innra jafnvægi er byggir á djúpu en sáru tilfinningasambandi við nátt- úruna. í síðustu bók höfundar, Mold í skuggadal, var ort á hrífandi hátt um söknuð. í þessu verki er ljóðmælandinn oftast einn með Bókmenntir Kristján Þórður Hrafnsson skynjunum sínum á umhverfinu en öðru hverju er vísað með orðinu „við“ til einhvers sem er í fylgd með honum. Mannleg nálægð gerir dauða hluti persónulega í ljóðum þar sem yrkisefnið er hús eða herbergi. Hún hrekur burt vonda drauma og hjálpar ljóð- mælanda til að vakna til lífsins í ljóðinu Und- ir morgun. Hér hefur aðeins verið staldrað við nokkur atriði sem vekja athygli. Indiánasumar er fiölbreytileg ljóðabók þar sem margir bestu eiginleikar höfundar, svo sem óvenjuleg sýn og afar falleg málbeiting, njóta sín vel. Gyrðir Elíasson Indíánasumar Mál og menning 1996 íslenskur einleikskonsert Aðrir áskriftartónleikar Sinfóníuhljómsveitar islands í gulri tónleikaröð voru haldnir í sal Há- skólabíós í gærkvöld. Á efnisskránni voru þrjú verk, tvö frá síðustu öld, eitt nýtt. Stjórnandi var Lan Shui, einleikari Einar Jóhannesson klarínettuleikari. ------------------- Tónleikarnir hófust á konsertforleik eftir Mendels- sohn, Suðureyjaforleiknum Tónlist op. 26, einnig þekktm- undir nafninu Fingalshellir. Skosk náttúra er sögð hafa blásið " skáldinu þessu í brjóst, sem skiptir minnstu máli því það er sama hvaðan gott kemur. Mendelssohn er samur við sig, mjúkur, fallegur og syngjandi lagrænn. Skotland er þama ekki nær en hvað annað, fegurð verksins óhlutbund- in og óhamin. En flutningurinn var einkenni- lega köflóttur. Leikurinn var í upphafi frekar dauflegur. Sem dæmi má nefna hversu stefja- áköll framarlega í verkinu hljómuðu flöt og stefnulaus. Einstakir hljóðfæraleikarar gerðu þó margir vel þegar á leið og skiluðu klarínettu- leikarar t.d. sínu mjög fallega. Það einkennilega var að verkið streymdi þrátt fyrir allt fram á lif- andi og um leið hrífandi hátt. Stjómandinn, Lan Shui, lék sér með grunnhryn hverrar hendingar af næmni, hraðaði og hægði í brotabrotum og gaf sterka tilfinningu fyrir síkvikri fegurð tón- anna. Það reyndi ekki mikið á þennan persónulega styrk hljómsveitarstjórans í næsta verki sem var klarínettkonsert eftir Karólínu Eiríksdóttur. Sá er saminn fyrir tveimur árum, en það var Sigfríður Björnsdáttir Sinfóníuhljómsveitin í Alaborg sem pantaði og frumflutti verkið. Einleikari þá, eins og nú, var Einar Jóhannesson, 1. klarínettuleikari Sinfón- íuhljómsveitar Islands. Verkið er í tveimur köfl- um, en hvor um sig er samfelld flétta áferða eða -----------------stemmninga (textures) í hljómsveitinni sem einleiks- hljóðfærið bæði tengir saman — og flýtur inn i með sínum tækniléga erfiðu og oftast til- fmningalega fiarrænu stróf- um. Hljómsveitarstemning- arnar voru þéttar, fjölbreyttar og sannfærandi og framvinda hröð og lifandi. Einar skilaði hlut- verki sínu mjög vel. Það er erfitt að kryfia slíkt efhi og skila þvi til hlustenda eins músíkalskt og þama var gert. Stjómandinn, sem einnig stýrði frumflutningi verksins, gerði líka margt vel. Þannig leystist hinn hraði göngurytmi í síðari hluta fyrsta kafla vel upp í höndum hans og þá var ekki síðra að hlusta á framvinduna í byrjun annars kafla. Þar var samband einleikara og hljómsveitar náið frá hendi tónskáldsins og var það skýrt dregið fram. Úr hinum dularfulla heimi yfirtónanna var farið í eins og deplóttan hocketleik sem rann áreynslulítið sitt skeið. Fleira áheyrilegt bar við í þessu verki þó ekki verði það allt rakið hér. Styrkur þess er hve hnitmiðað er farið með efnið, hve skýrt formið er og framvindan hröð og eðlileg. Klarínett- konsert Karólínu Eiríksdóttur er vel unnið verk. Tónverk sem á sér ömggan stað á spjöld- um þeim sem munu geyma tónlistarsögu okkar. Sinfónía nr. 4 í Es-dúr eftir Anton Bruckner var síðust á dagskrá. Þetta er mikið verk í fiór- um köflum, þeir tveir fyrstu best heppnaðir og um margt vel spilaðir þetta kvöld. Lan Shui nýtti hæfileika sína til móta hendingar róman- tiskt og fallega, en hefði getað leiðbeint betur um styrk, ekki síst hjá blásurum. Síðari kaflarn- ir tveir eru stórgallaðir frá hendi tónskáldsins og voru þessir gallar undirstrikaðir sterklega í þessum flutningi. Endir verksins virtist koma stjórnanda á óvart, eins og reyndar í hinum verkunum, sem verður að teljast lýti á tónlistar- flutningi. En samt, góðir tónleikar! Einar Jóhannesson Margt og misjafnt Bókin Leikum leikrit er leikþáttasafn fyrir krakka „sem lengi hefur vantað“ ef marka má umsögn á bókarkápu. í henni eru rúmlega tutt- ugu stuttir leikþættir eftir tólf íslenska höfunda. Leikþættimir eru afar mismunandi að gæðum og spanna breitt efnis- og tímaval. Bókin hefst á formála Bjargar Árnadóttur sem inniheldur hagnýtar upplýsingar um það sem þarf að gera til að koma leikþætti á kopp- inn. Hún fiallar m.a. um leiksviðið, leikmynd- ina og búningana og bendir á að slikir hlutir þurfi alls ekki að vera flóknir eða viðamiklir. Ég get verið sammála því að slíka bók hafi lengi vantað fyrir börn en það er því miður ekki hægt að segja að hún hafi staðið undir vænting- um mínum. Leikþættirnir eru margir mjög ófrumlegir og sumir eru svo gamlar og leiðin- legar tuggur að skömm er að. Höfundar sem ekki geta skrifað stuttan leikþátt öðruvisi en að umskrifa gömul ævintýri sem allir þekkja ættu að taka sér eitthvað annað fyrir hendur. Hjá þeim finnst mér koma fram sú hugsun sem lengi hefur loðað við bamabókaskrif á íslandi að litlar sem engar kröfur þurfi að gera til efn- is og úrvinnslu. En þetta á ekki við um allt efni bókarinnar. Pottaskefill eftir Jóhönnu Á. Steingrímsdóttur er ágætur söngleikur þar sem börnin fá að syngja með og leikþáttur hennar, Margt býr í Bókmenntir Oddný Árnadóttir þokunni, býður upp á skemmtilega möguleika. Við ruslagáminn eftir Iðunni Steinsdóttur vek- ur okkur öll til umhugsunar um kaupæði nú- tímafólks og Feitasti jólasveinninn eftir Krist- ínu Steinsdóttur hefur þann gamalkunna boð- skap að farsælast sé að vera góður við allt og alla. Þorsteinn Marelsson er með grínþáttinn Biðstofuna sem auðvelt er að setja upp og ætti að vekja kátínu og Margrét Jóhannsdóttir á hugljúfan leikþátt sem byggist á gömlum þjóð- sögum. Það er í rauninni skrýtið að ekki skuli vera gerðar fleiri bækur sem þessi því þegar maður er barn snýst jú lífið um leikinn. Allir vita að ímyndunarafli bama em engin takmörk sett og því finnst mér það sorglegt hversu lítið er gert af því í þessari bók að leyfa þeirra eigin sköpun- argáfu að njóta sín. Það er frábær hugmynd að setja saman svona bók en því miður er alls ekki nógu vel unnið úr henni. Þurft hefði að vanda betur efnisvalið og mistök eins og að kynna per- sónu sem Valgeir en kalla hann síðan Ásgeir í leikþættinum sjálfum ættu ekki að sjást. En þó að ýmislegt misjafnt megi segja um þessa leik- þáttabók er hún góðra gjalda verð. Ýmsir höfundar: Leikum leikrit Mál og menning 1996

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.