Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1996, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1996, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996 Fréttir Vísbending gerir úttekt á rekstri 30 sveitarfélaga: Selfossbær virðist draumasveitarfélagið - en „verst“ aö búa á Sauðárkróki, sé tekið mið af úttektinni í úttekt sem tímaritið Vísbend- ing gerði nýlega á rekstri 30 stærstu sveitarfélaganna á síð- asta ári kemur fram að drauma- sveitarfélagið sé Selfoss en „verst“ sé að búa á Sauðárkróki. Vísbending gefur sveitarfélögun- um einkunn eftir að hafa gefið sé nokkrar forsendur út frá fjár- hagsstöðu þeirra og aðstöðu al- mennt. Meðaleinkunn sveitarfé- laganna 30 er 5,9, aðeins betri en árið 1994, og Selfoss fær einkunn- ina 8,4 en Sauðárkrókur 3,3. í úttektinni kemur fram að rekstur sveitarfélaganna almennt hafi batnað milli ára. Þrettán af þessum 30 náðu að lækka heildar- skuldir frá árinu 1994. Skatttekj- ur jukust á síðasta ári, fjárfesting minnkaði og einnig útgjöld vegna málaflokka. Hæstu skuldir á hvern ibúa voru á Ólafsfirði eða 290 þúsund krónur. Næstur kom Kópavogur með 252 þúsund á hvern íbúa og Bolungarvík og Hafnarfjörður með 248 þúsund hvor kaupstaður á mann. í Vísbendingu segir að sveitar- félögin þurfi að búa yfir ýmsum eiginleikum til að rekstur þeirra teljist til fyrirmyndar. Skatt- heimtan þurfi að vera sem lægst á íbúana, fjárfestingar þurfi að vera nægjanlegar, þjónusta þurfi að vera hagkvæm, skuldir sem minnstar og veltufjárhlutfall í kringum 1. Fjölgun íbúa þurfi að vera hófleg því fækkun þýði verri nýtingu á þjónustu og mikil fjölg- un kalli á viðbætur. -bjb Siendurtekin frett a CNN mesta auglýsing íslenska hestsins - segir Sigurður Sæmundsson í Holtsmúla íslenski hesturinn fékk sérdeild- isgóða auglýsingu nýlega er frétta- menn frá CNN sjónvarpsstöðinni heimsóttu auðjöfurinn Dan Slott á búgarð hans og sýndu afurðirnar í fréttatíma. í fréttinni voru þeir Dan Slott og hóteli í París var eiginmaðurinn. Sigurður Sæmundsson í Holts- múla var staddur hjá Dan Slott er þetta gerðist og sýndi skömmu síð- ar ásamt þeim Dan Slott, Kristjáni Kristjánssyni, Jóni P. Sveinssyni og Halldóri Jónssyni islenska hesta á Dan Slott og Kristján sögðu verð íslenska hestsins á bilinu 700.000 krónur til 2.640.000 krónur. Það var greinilegt að CNN fréttin vakti geysilega mikla athygli því mikill fjöldi fólks kom á sýninguna hjá okkur sem var síðar. Grlndavík Kópavogur Stykklshólmur Seyöisfjörður Esklfjöröur Húsavík Borgarbyggð Hornafjörður Dalvík Blönduós ÓlafsQörður Bolungarvík Snæfellsbær Sauðárkrókur 5,7 5,4 5,3 5,3 5,2 5,2 5,1 4,9 4,9 4,8 4,3 4,2 3,7 3,3 - einkunnagjöf* Vísbendingar um rekstur 30 sveitarfélaga 1995 * einkunnir frð 1-10 DV Auðjöfurinn Dan Slott fékk mikla auglýsingu fyrir hestabúgarð sinn, Mill Farm, á CNN. Hér er hann meö stóöhestinn Fjölni frá Sigmundarstöðum. DV-mynd E.J. Kristján Kristjánsson sýndir á stóð- hestunum Pá frá Laugarvatni og Fjölni frá Hafsteinsstöðum og lögð áhersla á mýkt íslenska hestsins og gangtegundir. Viðbrögð áhorfenda létu ekki á sér standa og voru innhringingar það magnaðar að fréttin var endur- tekin á klukkustundar fresti allan daginn allt til klukkan 23.00 um kvöldið á aðalstöðinni sem nær yfir öll Bandaríkin og Evrópu. Eiginkona Dans Slotts fór til Par- ísar sama dag og það fyrsta sem hún sá er hún kveikti á sjónvarpi á sérstökum náttúruvinadegi. „Þetta er sennilega mesta auglýs- ing sem íslenski hesturinn hefur fengið, rosalegt skot,“ segir Sigurð- ur. „í fréttinni var lögð áhersla á mýkt íslenska töltsins og geðprýði hestsins og hann borinn saman við stóru hestana sem þykja hastir. íslenski hesturinn var auglýstur sem lúxus og þannig eigum við að selja hann í Bandaríkjunum. Það þýðir ekkert að vera með útsölu- verð á hestum þar þvi mjög er dýrt að flytja hestana út. Þegar við lukum sýningunni og fórum burt með hestana elti stór hópur fólks okkur og svæðið tæmd- ist nánast. Það er vonandi að þessi auglýs- ing nýtist íslenskum hestaútflytj- endum en markaðsfulltrúi Dans Slotts reiknaði út að ef þarna hefði verið um keyptan auglýsingatíma að ræða hefði heildarsýningarpakk- inn kostað um 660 milljónir króna,“ segir Sigurður. -E.J.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.