Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1996, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996
7
DV Sandkorn
Dætur í land-
mælingum
A
í félagsheimilinu í Kópavogi í
dag fer fram mikil ráðstefna um at-
vinnumál og fiárfestingar þar sem
meðal fyrirles-
ara verður
sjálfur forsæt-
isráðherrann,
Davíð Odds-
son. Einnig
mun Peter
nokkur Morg-
an halda ræðu
en hann ku
vera þekktur
markaðsráð-
~ gjafi. 1 tilkynn-
ingu um ráðstefnuna er að finna
mjög ítarlega og jafnframt fróðlega
kynningu á þessum Morgan. Hann
er sagður hafa nafiibótina „FRCIS
ACIArb" (hvað sem það nú er),
hann hefur borið vitni í fjölmörg-
um opinberum rannsóknum, hann
er sagður leika krikket og golf og á
þrjár dætur „sem allar eru að læra
að vera landmælingámenn," eins
og segir í kynningu. Allt skiptir
þetta nú máli um hvort vert sé að
fara í Kópavoginn í dag og heyra í
þessum Morgan!
í kjallaranum
Lási kokkur, Guðmundur Angan-
týsson, var þekktur fyrir hnyttin
tilsvör og margar skemmtilegar sög-
ur hafa verið
sagðar um
hann. í blaði
slökkviliðs-
manna mátti
nýlega lesa
ágæta sögu um
Lása kokk úr
fórum Tryggva
Ólafssonar,
skrifstofustjóra
slökkviliðsins í
Reykjavík.
Þetta var um jólin 1957 þegar Lási
kom af sjónum að kvöldi jóladags.
Kvöldið áður hafði bárujámsklætt
timburhús að Þingholtsstræti 27
brunnið til kaldra kola en Lási
leigði þar herbergi í kjallaranum.
Þegar Lási kom heim og sá gnrnn-
inn fullan af beygluðum og sótugum
bárujámsplötum á hann að hafa
sagt: „Guð minn góður. Allt húsið
komið niöur i kjallara til mín.“
Gott ball
Sagan segir af hjónum sem ætl-
uðu að fara á grímuball. Skömmu
áður fékk konan höfúðverk og
ákvað að leggja
sig, sagði karh
bara að fara á
balliö. Síðan
batnaði höfuð-
verkurinn og
konan skellti
sér i búninginn
og á ballið. Þeg-
ar þangað kom
sá hún hvar
bóndi sinn var
hrókur alls fagnaðar og daðraði við
hverja konuna á fætur annarri. Hún
fór á dansgólfið og lét vel við karl
sinn sem tók tilþrifúm konunnar
vel. Þetta endaði með að þau hurfu
afsíðis og tóku léttan ástarleik í bak-
garði. Að því loknu fór konan heim
áður en grimumar vom teknar nið-
ur en karlinn hélt áfram að
skemmta sér. Síðan lauk fagnað-
inum og þegar bóndi kom heim
spuröi konan, forvitin, hvemig hann
hefði skemmt sér á ballinu. „Æi,
þegar til kom nennti ég ekki á ball-
ið, fór að spila bridds með vinnufé-
lögunum og lánaði vini minum bún-
inginn. Hann sagði mér að hann
hefði skemmt sér rosalega vel.“
Ekki séns!
íslendingar keppa viö íra í
knattspymu i Dyflinni á sunnudag-
inn. írar era engir aukvisar 1
tuðrusparkinu
þótt alþjóðleg-
ur frami lands-
liðsins hafi
sjaldnast þótt
mikill. Logi
Ólafsson og
strákarnir í
landsliðinu
eiga erfitt
verkefni fyrir
höndum, ekki
síst eftir að einn sterkasti leikmað-
ur íra verður líklega ekki með
vegna meiösla. Heyiðu! Hvemig
má þetta vera? Er ekki sigurvon ef
sterkasta manninn vantar? Nei,
maðurinn heitir nefnilega Phil
Babb og því verður ekkert babb í
báti íra!
Umsjón: Björn Jóhann Björnsson
Fréttir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri:
Ólíklegt að ég leiði jafnað-
armannalista á landsvísu
- en stundum tekur atburöarásin af manni völdin
„Ég mæti til þessara pall-
borðsumræðna, um samstarf jafnað-
armanna, fyrst og fremst til þess að
tala út frá og miðla af minni reynslu
af því að vera í forsvari fyrir kosn-
ingabandalagi hér í Reykjavík. Ég
tel mig geta bent fólki á hvað þarf
að hafa í huga varðandi samstarf,
sameiningu eða kosningabandalag
jafnaðarmanna á landsvísu. Ég tel
mig hafa öðlast þá reynslu af starfi
R-listans i borgarstjórn að ég hafi þó
nokkru að miðla,“ sagði Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri í
samtali við DV, aðspurð hvaða boð-
skap hún ætlaði að flytja við pall-
borsðumræður á flokksþingi Al-
þýðuflokksins i dag.
Það hefur vakið athygli að Ingi-
björg fór til útlanda helgina sem
landsfundur Kvennalistans var
haldinn. Hún hefur aftur á móti
samþykkt að taka þátt í pall-
borðsumræðum á flokksþingi Al-
þýðuflokksins í dag.
Ingibjörg var spurð hvort hún
væri tilbúin að leiða kosninga-
bandalag eða sameinaðan flokk jafn-
aðarmanna við næstu þingkosning-
ar.
„Ég hef ákveðið að klára dæmið
hér í Reykjavík með því að leiða R-
listann aftur til sigurs við næstu
borgarstj órnarkosningar, “
- En þingkosningar eru ekki fyrr
en ári síöar?
„Ef ég á að svara þessu hér á líð-
andi stundu tel ég það ólíklegt. En
maður verður að hafa það í huga að
stundum tekur atburðarásin af
manni völdin. Það upplifði ég fyrir
síðustu borgarstjórnarkosningar.
Ég var þá alls ekki á leið inn í sveit-
arstjómarmálin. Ég var alþingis-
kona. Atburðarásin tók hins vegar
af mér völdin. En á þessari stundu
er ég ekki þannig stemmd að ég geti
svarað spumingu þinni játandi. Og
ég er ekki að koma til þessara palls-
borðsumræðna sem eitthvert slíkt
væntanlegt sameiningartákn," sagði
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
En telur hún samstarf eða
sameining jafnaðarmanna á lands-
vísu sé á næsta leyti.
„Ég hef það á tilfinningunni að
það sé meira að gerast í þessum
málum um allt land heldur en oftast
áður. Ég tel mig finna að það sé
meiri alvara á bak við það en áður.
Mér þykir mjög líklegt að þetta
hljóti að gerast með einhverjum
hætti eins og það gerðist með R-list-
ann hér í Reykjavík. Ég heíd að
þetta gerist með þeim hætti að fólk-
ið, sem er að vinna í grasrótinni,
taki sig saman og framkvæmi sam-
starfið eða sameininguna úti um
landið," sagði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir.
-S.dór
Flokksþing Alþýöuflokksins hefst í dag:
Formannsslagur-
inn yfirskyggir
allt annað
- athyglisverðar pallborðsumræður í hádeginu á morgun
Flokksþing Alþýðuflokksins, hið
48. í röðinni, verður sett í Perlunni
í dag klukkan 10.00. Því lýkur
klukkan 13.00 á sunnudag.
Fyrir utan hin hefðbundnu
flokksþingstörf mun Valgerður
Bjama dóttir flytja ávarp í hádeg-
inu í dag. Einnig verða pall-
borðsumræður milli klukkan 12.00
og 14.00 á morgun. Þar munu meðal
annarra taka þátt þær Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir borgarstjóri og
Bryndís Hlöðversdóttir alþingis-
maður. Einar Karl Haraldsson
stjómar umræðunum.
Það mál sem menn bíða eftir með
hvað mestri eftirvæntingu er að
sjálfsögðu kosning formanns og
varaformanns. Hún fer fram á
morgun, laugardag, og hefst klukk-
an 15.30. Segja má að formannskosn-
ingin sé það mál sem muni yfir-
skyggja allt annað á flokksþinginu
og seija mark sitt á allt starf á þing-
inu.
Kosning formanns er óhlutbund-
in, þannig að i raun em allir þing-
fuíltrúar í framboði. Samt er litið
svo á að um einvígi verði að ræða
um formannssætið milli Guðmund-
ar Áma Stefánssonar og Sighvats
Björgvinssonar. Sá möguleiki er
vissulega fyrir hendi að fleiri gefi
opinberlega kost á sér þegar til
Skipting kjörinna
þingfulltrúa Alþýðuflokksins
- eftir kjördæmum -
VESTFIRÐIR NORÐURL.
: 18 NORÐURL. EYSTRA
^ VESTRA 13
VESTURLAND
10
REYjUAVÍK
91
REYKJANES
127____________;
(Kðpavogur: 14,
Hafnafl.: 60.
Suöurnes, Seltjarnarnes
og Mosfellsbær: 53)
SUÐU^ANDy'"'
AUSTURLAND y
14
DVí
þings kemur.
Ef enginn nær 50 prósentum at-
kvæða eða meira í fyrstu umferð
kosninganna verður kosið aftur á
milli þeirra tveggja sem flest at-
kvæði hljóta.
Þingfulltrúar em um 350. Fyrir
utan þá sem kjörnir em af hinum
ýmsu flokksfélögum um allt land
eiga alþingismenn flokksins sem og
allir sveitarstjómarmenn hans rétt
á setu á flokksþinginu.
-S.dór
Hlutabréfin í ÚA:
Akureyringar
keyptu litið
Reykjavíkurborg
http://www.rvk.is/
á Internetinu
DV, Akureyri:
Akureyringar sem höfðu for-
kaupsrétt á hlutabréfum í Útgerðar-
félagi Akureyringa til síðustu mán-
aðamóta virtust ekki sérlega áfjáðir
í að eignast hlut í fyrirtækinu ef
marka má kaup þeirra.
Öllum Akureyringum, 18 ára og
eldri, stóð til boða aö kaupa hluta-
bréf fyrir 130 þúsund krónur að
nafnverði á genginu 4,98 en alls
vom hlutabréf að nafhverði um 130
milljónir króna að nafiiverði í boði.
Að sögn Sveins Pálssonar hjá
Kaupþingi Norðurlands, sem annað-
ist sölu bréfanna, seldust hlutabréf í
fyrirtækinu fyrir um 45 milljónir
króna og er nafnverð þeirra bréfa
um 8,6 milljónir króna. Sveinn seg-
ir óráðið hver verði næsti áfangi í
sölu hlutabréfanna sem Akureyrar-
bær er að losa sig við en ekki er
ólíklegt að öðrum hluthöfum gefist
nú kostur á að neyta forkaupsréttar.
-gk
Smygl fannst
hjá þjófunum
DV, Akureyri:
Rannsóknarlögreglan á Akureyri
og lögreglan í Ólafsfirði höfðu í
sameiningu uppi á tveimur þjófum
sem létu greipar sópa í Bókabúðinni
Eddu á Akureyri í fyrrinótt.
Þjófamir stálu ýmsum vömm i
búðinni og er verðmæti þeirra um
hálf milljón króna. Þýfið fannst allt
heima hjá öðram mannanna í Ólafs-
firði og við húsleit þar fannst einnig
nokkurt magn af bjór og sterku
áfengi. Þar reyndist vera um smygl-
vaming að ræða en annar mann-
anna hafði verið í siglingiun erlend-
is. -gk