Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1996, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1996, Page 15
14 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996 FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996 27 íþróttir íþróttir Frjálsíþrótta- menn þinga 50. ársþing Fnálsíþrottasam- bands íslands verður haldið í Reykjavík um helgina. Þingið fer fram i Félagsheimili íþróttafé- lags Reykjavíkur við Skógarsel. Ársþingið hefst klukkan 17 í dag. Beint frá Spáni hjá Stöð 3 Stöð 3 hefur ákveðið að sýna toppleik helgarinnar í spænsku knattspymunni. Það er viður- eign Barcelona og Atletico Ma- drid sem verður háð á Nou Camp-leikvanginum í Barcelona. Þessi stórviðureign hefst klukk- an 19.30 á laugardagskvöldið. Gylfi dæmir í Lúxemborg Gylfi Orrason dæmir leik Lúx- emborgara og Rússa hjá leik- mönnum 21-árs og yngri i Lúx- emhorg á morgun. Aðstoöardóm- arar verða Kári Gunnlaugsson og Ari Þórðarson. Fjórði maður- inn verður Kristinn Jakobsson. Pétur kominn til Framara Pétur Amþórsson hefur skrifað undir samning við 1. deildar lið Fram í knattspymu. Pétur hefur hin tvö síöustu ár þjálfað Leikni í Breiðholti. Pétur lék þar áður um langt skeið með Fram við góðan orðstír. Eistar fengu annan leik Eistar höfðu sigur í deilumáli varðandi HM-leik Eista og Skota sem flautaður var af þann 9. október í Tallinn vegna þess að eistneska liðið komst ekki til leiksins í tæka tíð. Eistar vom mjög óánægðir með framkomu FIFA í málinu en i gær ákvað FIFA að leikur þjóð- anna í undankeppni HM skyldi endurtekinn og fer hann fram í Tallinn 16. mars á næsta ári. Forráðamenn beggja liðanna lýstu yfir ánægju sinni með þennan úrskurð FIFA í gær. -SK „Skattmann" angrar Yeboah Ganamaðurinn Anthony Ye- boah hjá Leeds er loksins að ná sér af alvarlegum meiðslum í hné sem hafa haldið honum utan vallar það sem af er sparktlðinni í Englandi. Yeboah á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir því „skatt- mann“ þeirra Þjóðverja er með Ganamanninn í rannsókn vegna meintra skattsvika í Þýskalandi er hann lék með Eintracht Frankfurt. Sjálfur hefur Yeboah þagað sem gröfin um þetta mál. -SK Popov farinn að stinga sér Rússneski sundmaðurinn, Al- exander Popov, hefur fengið grænt ljós frá læknum og má hefja æfingar að nýju eftir hlé frá þvi Ólympíuleikunum lauk í Atlanta. Popov varð fyrir hastarlegri árás brjálæðings á götu í Moskvu eftir ÓL og var stunginn með hnífi. Hann varð fyrsti sundmaðurinn í sögu leikanna til að verja titla sína í 50 og 100 m skriðsundi í Atlanta. -SK Iþróttasambandið styrkir 12 þjálfara - námu alls 700 þúsund krónum Tólf þjálurum úr hinum ýmsum íþróttagreinum voru styrktir af íþróttasambandi íslands nú í vik- unni. Styrkimir námu alls 700 þúsund krónum og skal þeim varið til ým- issa verkefna. Þetta er í fyrsta skipt- ið sem styrkir af þessum tagi era veittir en féð kemur úr Verkefna- sjóði ÍSl. Eftirtaldir þjálfarar fengu styrkt- ir að þessu sinni. Ásgeir Magpússon, skíðaþjálfari, til að sækja námskeið í þjálfun alpa- greina í Svíþjóð. Svnur Sigfússon, knattspymu- þjálfari, til að kynna sér þjálfun kvennaliða og yngri flokka í Bret- landi. Gyöa Kristmannsdóttir, fimleika- þjálfari, til að kynna sér nýjungar í fimleikaþjálfun í Svíþjóð og Dan- mörku. Hjálmar Kr. Aðalsteinsson til að sækja alþjóðlegt þjálfaranámskeið i tennis. Karl Jónsson til að kynna sér krónur hver. þjálfun yngri flokka í körfuknatt- leik. Kristín Harðardóttir til að ljúka þjálfaranámi í listhlaupum á skaut- um. Nikolay Ivanov Mateev til að kynna sér nýjungar í þjálfun skylm- inga í Þýskalandi og Búlgaríu. Ólafur Þór Gunnlaugsson til að sækja þjálfaranámskeið á vegum norska sundsambandsins. Rakel Gylfadóttir til að kynna sér þjálfun og keppni bama og unglinga í frjálsum íþróttum í Noregi. Vanda Sigurgeirsdóttir til að sækja alþjóðlega þjálfararáðstefiiu og kynna sér þjálfún kvennalands- liða á Norðurlöndunum. Þorbjöm Jensson til að sækja námskeið IHF í Kanada á næsta ári. Þórdís Edwald til að ljúka seinni stigi þjálfaranámskeiðs danska bad- mintonsambandsins. Styrkimir námu 50 þúsund krón- ur á hvem en Þorbjöm, Karl, Niko- lay og Kristín fengu þó 75 þúsund -JKS Sundmót Ægis: Agætur árangur í mörgum greinum Ágætur árangur náðist á Sund- móti Ægis og yngri sundmennimir settu meðal annars sex met. Miðað við árstíma vora margir sundmenn að synda á ágætum tímum og er vonandi að það gefi góð fyrirheit fyrir komandi mót í vetur. Halldóra Þorgeirsdóttfr úr Ægi setti stúlknamet í 50 metra bringu- sundi, synti á 34,36 sekúndum. Gunnar Steinþórsson, UMFA, setti sveinamet í 200 metra bringu- sundi, synti á 2:56,55 mín og hann setti einnig met í 50 metra skrið- sundi á tímanum 27,49 sekúndum. Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, ÍA, setti telpnamet í 50 metra skrið- sundi, synti á 27,94 sekúndum. Þá setti Öm Amarson, SH, pilta- met í 50 metra baksundi á 28,49 sek- úndum og í 400 metra fjórsundi á 4:38,75 mínútum. Ríkharður Ríkharðsson úr Ægi vann sigur í fjórum greinum og það gerði reyndar einnig Eydís Kon- ráðsdóttir úr Keflavík. Ríkharður sigraði í 50 metra fiugsundi á 26,94 sekúndum. Þá í 100 metra skriðsundi á 56,32 sekúndum, 50 metra skriðsundi á 24,83 sekúnd- unum og í 100 metra flugsundi á 58,87 sekúndunum. Eydís byijaði á því að sigra í 100 metra baksundi á 1:05,98 mínútum, 50 metra flugsundi á 29,65 sekúnd- unum, 50 metra baksundi á 31,19 sekúndunum og í 200 metra skrið- sundi á 2:13,10 mínútum. Hjalti Guðmundsson úr Sundfé- lagi Hafnarfjarðar sigraði í þremur greinum. Hann synti 100 metra bringusund á 1:04,64 mínútum, 200 metra bringusund á 2:24,18 mínút- um og 50 metra bringusund á 30,32 sekúndunum. Lára Hrand Bjargardóttir, Þór, sigraði í tveimur greinum á mótinu. Hún synti 100 metra flugsund á 1:08,47 mínútum og 100 metra skrið- sund á 1:00,78 mínútum. Landsliðiö í æfingabúðir í Þýskalandi Þónokkur verkefni era í vetur en stærsta verkefhi ársins hjá sund- mönnum verður eflaust þátttaka í Smáþjóðaleikunum sem verða haldnir hér á landi i maí. Landslið- inu verður haldið við efnið í vetur en stefnan hefur verið tekin á æf- ingabúðir í Dortmund í desember þar sem einnig verður þátttaka í mótum. Sundmenn hafa úr nógu að moða í vetur og því aldrei að vita nema einhver íslandsmet líti dags- ins Ijós. -JKS Rikki með til- boð frá Liege Ríkharður Daðason, lands- liðsmiðherji í knattspymu úr KR, hefur fengið tilboð frá belgíska 2. deildar liðinu RTFC Liege. Rík- harður dvaldi á dögunum hjá fé- laginu sem nú vill fá hann til sín. Ríkharður fór með landslið- inu til írlands í gærkvöld og hefur ekki tekið afstöðu til boðsins, sem barst honum í fyrrakvöld, en mun svara fé- laginu fljótlega eftir heimkom- una. Liege er gamalkunnugt félag í belgísku knattspymunni en það féll úr 1. deildinni fyrir tveimur árum eftir að hafa lent í miklum fjárhagsörðugleikum. Það var sameinað öðru félagi og er nú í toppbaráttunni í 2. deild. Liðið var efst fyrir skömmu en er nú dottið niður i fimmta sætið eft- ir tvo tapleiki í röð, þremur stig- um á eftir efsta liði. -VS Ríkharður Daðason. Svo gæti far- ið að hann léki í Belgíu. Vasteras vill Einar DV, Sviþjóð: Sænska knattspymufélagið Vasterás, sem vann sér á dögunum sæti í úrvalsdeildinni, er á höttunum á eftir Islenska sóknarmanninum Einari Brekkan sem hefur undanfar- in ár leikið meö Sirius í 1. deildinni. Einar, sem er 22 ára gamall og hef- ur verið búsettur í Svíþjóð um ára- bil, varð markahæsti leikmaður Siri- us annað árið í röð en félagið hafnaði í 12. sæti af 14 liðum í norðurriðli deildarinnar og féll þar með í 2. deild. „Ég vil komast frá félaginu fyrst svona fór en það ætlar ekki að reyn- ast auðvelt þar sem ég á eitt ár eftir af samningi mínum við Sirius. Staö- an er sú að Vásteras og Sirius era að ræða sín á milli og ég verð að bíða og sjá hvað kemur út úr því,“ sagöi Einar viö DV í gærkvöld. -EH/VS Einar Brekkan hefur gert það gott með Sirius undanfarin tvö ár. DV-mynd EJ KR-sigur a Nesinu - og Njarðvík vann í lokin í Borgarnesi KR sigraði Hauka í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Lengjubikarsins í körfuknattleik á Sel- tjarnamesi í gærkvöldi. Lokatölur urðu 73-70 eftir að staðan hafði ver- ið jöfii í leikhléi, 39-39. Ingvar Ormarsson skor- aði 20 stig fyrir KR en Shawn Smith var stiga- hæstur Hauka með 29 stig. Njarðvík sigraði Skallagrím í Borgamesi, 70-77. Staðan í leikhléi var 39-29, heimamönn- um í vil. Skallagrímur hafði forystuna mest all- an leikinn, mest 18 stig. Bragi Magnússon skoraði 22 stig fyrir Skalla- grím en Torrey John 18 fyrir Njarðvík. -SK Guðni ekki með - gegn írum. Nær Óli metinu? Nú er ljóst að Guðni Bergsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í knatt- spymu, mun ekki leika með íslenska liðinu gegn írum í Dublin á sunnudag í imdankeppni HM. Guðni er meiddur og tilkynnti Loga Ólafssyni landsliðsþjálfara í gær að hann gæti ekki leikið. Þessi niðurstaða er auðvitað nokkuð áfall fyrir is- lenska liðið. Fyrir leikinn gegn írum eru þeir jafnir Guðni og Ólafur Þórð- arson, ÍA, með 71 landsleik fyrir íslands hönd. Það verður þvi að teljast afar líklegt að Ólcifur Þórðarson setji nýtt landsleikjamet á sunnudaginn og leiki sinn 72. landsleik. -SK Collymore grefur grófína Hoddle óánægður með völlinn tU Þar Sem ÞaÖ mætir Englands, hefur kv^Sf^Si^Sí mZ ^ boðlegur Ekki er Uklegt að hlusíverðfS^S^Vart er a vellmum og hann þykir mjög ósléttur. PJalfarans. Litið gras Jónatan Bow og félagar í KR unnu Hauka í hörkuleik í gærkvöld. Liöin mætast aftur á morgun og þá kemur í Ijóst hvort þeirra kemst í undanúrslit Lengjubikarsins. DV-mynd Brynjar Gauti Sjálfsagt að gera kröfur Það er komið að landsleik, þeim síðasta á árinu hjá knattspymulandsliðinu. Á sunnudag mætir það íram á Lansdowne Road í Dublin en þetta er fjórði leikurinn af 10 í undankeppni HM. Logi Ólafsson hefur verið á milli tannanna á knatt- spymuáhugamönnum síðan í leiknum við Rúmeníu. Margir þjálfarar hafa nefnt við mig að undanfömu að leikskipulagi hjá landsliðinu sé ábótavant, svo virðist sem leikmenn séu ekki með sín hlutverk nægilega á hreinu, eða séu of agalausir til að fylgja þeim. Þá er hóp- og liðsval Loga umdeilanlegt. Hann hefur freistast til að velja þá leik- menn sem eiga að vera bestir eða hafa verið bestir en ekki valið þá sem era bestir um það leyti sem við- komandi landsleikur er spil- aður. Þrír af öflugustu leik- I mönnum Islandsmótsins, Gunnar Oddsson, Baldur Bjamason og Ólafur Gott- skálksson, hafa engin tæki- færi fengið í haust og þá er fjarvera Haralds Ingólfsson- n skoðu eftir Víði Sigurðsson er í toppformi um þessar mundir, sem atvinnumaður hjá Aberdeen. Ríkharð Daða- son hefur einmitt skort fyrir- gjafir á borð við þær sem Haraldur getur manna best framreitt til að nýtast sem skyldi í fremstu víglínu lands- liðsins. íramir era með sterkt lið sem ar illskiljanleg. Haraldur lék mjög vel undir lok íslands- mótsins, hefrn- reynsluna og hefur náð langt á undanföm- um árum og er sérlega erfitt heim að sækja. Það hafa bestu þjóðir álfunnar fengið að reyna og það era ekki raunhæfar kröfur að ætlast tfi sigurs í Dublin. Þar yrði eitt stig sigur. Það er hins vegar sjálfsagt að gera kröfur tU leikmann- anna og þjálfarans. TU leik- mannanna um að þeir taki sig saman í andlitinu eftir skeUinn gegn Rúmenum, spUi eins vel og unnt er og séu sjálfum sér og íslenskri knattspyrnu tU sóma. TU þjálfarans um skynsamlega uppstillingu og leikaðferð. Evrópumótin í handknattleik: „Við ætlum okkur áfram“ - segir Alfreð Gíslason, þjálfari KA, sem mætir Hasselt á Akureyri Islensku félagsliðin KA, Haukar og Stjaman standa í ströngu um helgina en þá fara fram fyrri leik- irnir í 16-liða úrslitin á Evrópumót- unum í handknattleik. Stjaman leikur báða sína leiki við austurríska liðið Brack Spar- kasse í Vínarborg. Fyrri leikurinn verður í kvöld en sá síðari á sunnu- dag. Haukar leika við franska liðið Creitel í París á laugardagskvöldið. KA leikur á sunnudag við belgíska liðið Hasselt á Akureyri. Róðurinn verður eflaust þungur hjá Stjörnunni og Haukarnir mæta einu sterkasta liði Frakklands. Með hagstæðum úrslitvun ættu þó Haukamir að eiga möguleika en síðari leikurinn verður í Hafnar- ffrði um aðra helgi. Frönsku liðin á Evrópumótunum áttu öll í vand- ræðum í umferðinni á undan en þau hafa flest séð á eftir sinum bestu mönnum til Þýskalands og Spánar. Stjarnan tók þann kostinn að leika báða leikina við Brack í Vín- arborg en Austurríkismenn gerðu Stjömunni tilboð sem þeir síðar gengu að. Stjarnan verður að sýna allar sínar bestu hliðar ætli hún sér einhverja möguleika ytra um helgina. KA-menn ættu í öllu falli að eiga allgóða möguleika gegn belgíska liðinu. Sterkur heimavöll- ur og gott KA-lið ætti að verða lið- inu gott veganesti í þennan leik. Þó verður að hafa í huga að handbolti í Belgíu er í stöðugri framfor og hafa lið þaðan verið að ná góðum úrslitum á Evrópumótunum á síð- ustu misserum. KA-menn gera sér alveg ljóst að þeir verða að vinna leikinn á Akur- eyri með nokkram mun til að eiga möguleika á að komast áfram í 8- liða úrslitin. 5-6 mörk í veganesti fyrir síðari leikinn er alveg nauð- synlegt. „Ég er hálfhræddur við Belgana eftir að ég sá að landslið þeirra sigraði Rúmena á heimavelli í riðlakeppni heimsmeistaramóts- ins. Annars veit ég ekkert um þetta lið armað en það að með því leika tveir júgóslavneskir hornamenn og líklega ffanskur línumaður. Það má því segja að við rennur blint í sjóinn. Ég hef verið með allar klær úti til að ná mér í upplýsingar um þetta lið en ekki tekist enn þá. Við duttum út í þessari umferð í fyrra en það er ætlun okkar að fara að minnsta kosti einni umferð lengra að þessu sinni. Við ætlum aö leggja allt í sölurnar og núna loksins eru allir heilir og tObúnir í þennan slag. Það er góður hugur í mann- skapnum og við getum sagt að hér ríki hæfileg bjartsýni," sagði Al- freð Gíslason, þjálfari KA, við DV í gær. -JKS Ólögleg lyf: Viöurlög hertí Þýskalandi Þýsk íþróttayfirvöld hafa árum saman átt í erfiðleikum vegna neyslu íþróttamanna á ólöglegum lyijum. Margir þekktir þýskir íþrótta- menn hafa faUið á lyfjaprófum undanfarin ár og þá einkum og sér í lagi keppendur í ffjálsum íþróttum. Þýsk stjórnvöld hafa í hyggju að beita sér enn frekar í þessu alvarlega og erfiða máli en áður. í bigerð er setning nýrra laga í þýska þinginu og hyggst ríkis- stjórn Þýskalands beita sér fyrir því að tekið verði á ólöglegu lyfjaáti þýskra íþróttamanna sem hverju ööra glæpsamlegu athæfi og dómstólar dæmi í sam- ræmi við það. Þessi fýrirhugaða reglugerð ríkisstjórnarinnar nýt- ur stuðnings stjórnarandstöð- unnar og búist er við að nýju lögin muni renna auðveldlega i gegnum þýska þingið á næsta ári. -SK íslendingar fjölmennir á landsleiknum Hátt á Qórða hundrað íslend- ingar verða á landsleik írlands og íslands í knattspyrnu í Dublin á sunnudag. Verða þeir allir í bolum sem Atvinnu- og ferðamálastofa Reykjavíkurborgar og Sam- vinnuferðir Landsýn hafa látið gera. Eru þeir með merki borg- arinnar og kveðju til íra. Uppskeruhátíð Fram Uppskeruhátíð Fram verður haldin á mánudaginn kemur og hefst hún klukkan 18 í Fram- heimUinu við Safamýri. AUir knattspyrnumennn Fram eru boðnir velkomnir á hátíðina, svo og fjölskyldur þeirra. Niall Quinn búinn að vera Markaskorarinn mikli hjá Sunderland, Niall Quinn, mun ekki leika meira með liði Sund- erland á þessu keppnistímabUi. Quinn meiddist í leik Sunder- land gegn Coventry fyrir sjö vik- um og að sögn Peters Reids, framkvæmdastjóra Sunderland, hefur hann aUs ekki náð sér af meiðslunum og er úr leik. -SK Alan Shearer er að ná sér Alan Shearer hjá Newcastle' verður frá í skemmri tíma en ætlað var vegna meiðsla. Talið er að hann verið kominn í lið Newcastle þegar það mætir Chel- sea þann 23. nóvember. -SK IRLAND - ISLA á Lengjunni og ...ef þú spilar til ad vinna Velkomin að netfangi WWW. TOTO. IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.