Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1996, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1996
Fréttir
Dularfullt hvarf 24 vetra merar sem fannst í hesthúsi 10 dögum síðar:
Merin sögð aðeins 7 vetra
á útflutningsvottorði
- með ólíkindum hvernig þetta gat gerst, segir Haraldur Sigfússon, eigandi merarinnar
„Það verður að segjast eins og er
að þetta mál er hreint með ólíkind-
um. Merin mín hvarf í 10 daga en
fannst síðan í hesthúsi annars
manns. Hann sagðist hafa tekið
hana í slysni fyrir aðra meri sem
hann á en þó eru þær ekki mjög lík-
ar. Síðan frétti ég að þessi maður
hefði fengið útflutningsvottorð fyrir
merina mina hjá dýralækni þar sem
hún er sögð 7 vetra. Hið ótrúlega er
þó að merin mín er í raun 24 vetra
gömul,“ segir Haraldur Sigfússon
sem lenti í leiðinlegu máli í byrjun
september sl. þegar merin hans
hvarf úr girðingu við Esjuskála á
Kjalamesi. Haraldur segist hafa
leitað að merinni í flóra daga með
aðstoð annarra en þrátt fyrir víð-
tæka leit um allt svæðið fannst hún
ekki.
Merin vel mörkuð
„Ég hélt að hún lægi dauð ein-
hvers staðar og var búinn að gefa
upp alla von. Bróðir minn fékk síð-
an grunsemdir um aö merin gæti
verið í hesthúsi hjá manni sem á
hesta þama. Þegar hann fór og gáði
kom í ljós að merin var þar. Maður-
inn bað okkur afsökunar og sagðist
hafa tekið ranga meri en það er með
ólíkindum að slíkt geti gerst því
mín meri er mun eldri en hans, vel
mörkuö og í raun ekkert mjög lík
merinni hans.
Mér og þeim sem ég hef talað við
finnst þetta mjög dularfullt. Ég er
ekki að segja að það sé verið að
stela hestum en það er ljóst að
hestamenn verða að vera á varð-
bergi þegar þeir em að taka inn að
ekki séu tekin röng hross.
Það ótrúlegasta í þessu furðulega
máli er síðan að þessi maður skuli
hafa verið kominn með útflutnings-
vottorð frá dýralækni þar sem stóð
að gamla 24 vetra merin mín væri
aðeins 7 vetra gömul. Hvemig í
ósköpunum einhver gat sagt að
merin væri 7 vetra skil ég einfald-
lega ekki. Þama hefúr kannski ein-
hver ætlað að græða, nema þetta
hafi verið mannleg mistök. Ég vona
innilega að svo hafi verið en það er
erfitt að trúa því, hver og einn verð-
ur að dæma um það.
Mjög mikið tap
Þetta er mjög slæmt fyrir mig því
auk þess sem ég eyddi heilum fjór-
um vinnudögum í að leita að hross-
inu þá er þetta aðallega tap hross-
anna vegna. Merin hefúr lagt mjög
mikið af eftir að þetta gerðist og er
búin að vera. Ég býst við að ég þurfi
að sleppa henni eftir þetta. Auk þess
ætlaði ég að fá meiri kraft og styrk
í veturgamalt trippi sem hefur geng-
ið undir merinni. Ég ætlaði að láta
trippið ganga undir henni þangað
til þaö væri tveggja vetra en það
verður ekki hægt úr þessu,“ segir
Haraldur.
-RR
Kópavogur:
Fimm piltar
réðust á
foreldra
„Það var hópur foreldra á eftir-
litsferð við Hjallaskóla um nóttina
og hafði afskipti af unglingum sem
þar vom staddir í anddyri. Þegar
foreldramir ætluðu að vísa þeim út
veittust 5 piltar að þeim og veittu
nokkrum foreldmnum áverka," seg-
ir Eiríkur Tómasson, aðstoðaryfir-
lögregluþjónn í Kópavogi, um lík-
amsárás sem átti sér stað fyrir utan
Hjallaskóla um klukkan hálftvö að-
faranótt laugardags sl.
Skólaskemmtun hafði verið í
skólanum fyrr um kvöldið og hafði
gleymst að læsa dyrunum.
Lögreglumenn vom kallaðir á
staðinn og handtóku þeir einn
árásarpiltanna skömmu síðar. Vitað
er hverjir hinir piltanir eru en þeir
em ailir á aldrinum 14-15 ára.
Foreldramir sem urðu fyrir
áverkum leituðu aðstoðar á slysa-
deild en meiðsl þeirra reyndust ekki
alvarleg. -RR
Borgarkringlan bætist viö Kringluna í dag:
25 ný fyrirtæki á 6.400 fermetrum
Haraldur Sigfússon og sonarsonur hans og alnafni sjást hér gefa hinni 24 vetra meri, Pflu, og trippinu Lipurtá brauð-
mola á túninu við Esjuskála í gær. Merin var sögð 7 vetra á útflutningsvottorði sem gefið var út af dýralækni.
DV-mynd Pjetur
Kringlan stækkar í dag um 6.400
fermetra, úr ríflega 12.000 í rösklega
18.000 fermetra, þegar verslunarhús-
næði Borgarkringlunnar fer form-
lega undir sama hatt og „stóra syst-
ir“. Fyrirtækjum í Kringlunni fjölg-
ar um 25, þar af era stórir rekstrar-
aðilar eins og Hahitat, Deres, Virg-
in, Eymundsson, Sega-leiktækjasal-
ur, söluskrifstofa Flugleiða og nýtt
útibú íslandsbanka. Að auki verður
fljótlega tekið í notkun kvikmynda-
hús í eigu Áma Samúelssonar. Bíla-
stæðahús hafa verið sameinuð og
pláss verður nú fyrir um 2 þúsund
bíla.
Iðnaðarmenn hafa unnið hörðum
höndum við gagngerar breytingar í
gömlu Borgarkringlunni frá því í
Iðnaðarmenn unnu hörðum höndum i gær við að undirbúa opnun Kringl-
unnar í dag, jafnt utan sem innan húsnæðisins sem hefur verið stækkað um
6.400 fermetra. DV-mynd ÞÖK
júlí í sumar. Sérstök verkefhis-
stjóm var sett á laggimar til að
annast sameiningu verslunarmið-
stöðvanna.
Enn stækkar því Kringlan og var
hún stór fyrir. Talið er að um 11
þúsund manns komi þangað á degi
hverjum eða um 4 milljónir manna
á ári. Það jafiigildir því að hver Is-
lendingur komi í Kringluna að
meðaltali 15 sixmum á ári.
í tilefni stækkunarinnar bjóða
verslanir Kringlunar tilboð á vör-
um sínum til laugardags, ýmsilegt
verður til skemmtunar og efht til
getraunar.
-bjb
.
.
■
Stuttar fréttir
Nýtt verðbréfafyrirtæki
Verðbréfastofan hf. heitir nýtt
verðbréfafyrirtæki. Framkvæmda-
stjóri er Jafet Ólafsson, fyi-rv. sjón-
varpsstjóri Stöðvar 2, og meðal eig-
enda eru Gunnar G. Schram, Ágúst
Einarsson og Júlíus Sólnes. Við-
skiptablaðið segir frá þessu.
Pólaris eignalaust
Skiptiun er lokið í þrotabúi
Hesthólma hf., áður Pólaris. Ekk-
ert fékkst upp í kröfur sem námu
210,9 milljónum króna auk vaxta
og kostnaðar. Viðskiptablaðið
segir frá þessu.
Nýr stjórnandi ísafoldar
Kristþór Gunnarsson viðskipta-
fræðingur er nýráðinn fram-
kvæmdastjóri Isafoldarprent-
smiðju. Kristþór var áður fram-
kvæmdastjóri Radíóstofunnar og
ijármálastjóri Jöfurs hf.
Vafasamar ríkisábyrgðir
Framkvæmdastjóm Evrópu-
sambandsins er að athuga hvort
ríkisábyrgðir á lán stangist á við
lög og reglur ESB. Ríkisábyrgðir
era að mati margra ríkisstyrkir
og ragla samkeppni, segir Björn
Friðfinnsson í samtali við Við-
skiptablaðið.
Þorski hent iinnuiaust
Þorski er linnulaust hent þegar
líður á fiskveiðiárið, segir ís-
lenskur togaraskipstjóri í samtali
við RÚV.
Jón Helgi kjörinn
Séra Jón Helgi Þórarinsson
fékk tilskilinn fjölda atkvæða í
fyrstu, og þar með einu umferð
kosningar kjörmanna um nýjan
prest í Langholtskirkjusókn. Sjö
sóttu um brauðið.
Sjómannablanda
Ríkisútvarpið ætlar að byrja að
senda út úrval úr dagskrá beggja
útvarpsrása á langbylgju á næsta
ári og kallar það blöndu af því
besta. Sendingunum er einkum
ætlað að ná til sjómanna. -SÁ
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904 1600.
39,90 kr. mínútan
Já 1 Nel 2
j rödd
FÖLKSINS
904 1600
Á að gera ísland
að einu kjördæmi?
NBA-körfuboltinn í nótt:
SA Spurs skellti LA Lakers
San Antonio Spurs vann í nótt góðan
sigur á þreyttu LA Lakers liöi í NBA.
„Þetta var sigur Davíðs á Goliat,” sagði
Avery Johnson hjá Spurs eftir leikinn.
Úrslitin í NBA urðu þessi:
Boston-Atlanta........... 103-85
Barros 18, Wesley 16.
Toronto-Philadelphia .... 110-98
Camby 23 - Iverson 24.
Cleveland-Portland .......71-70
Ferry 15.
Detroit-Denver...........95-94
Hill 27.
New Jersey-Washington . . 91-106
Kittles 21- Webher 26, Howard 22.
Chicago-Miami...........103-71
Jordan 28, Kukoc 26 - Mouming 20.
SA Spurs-LA Lakers....... 95-83
Wilkins 28, Maxwell 22 - Shaq 30.
Utah-Sacramento.........105-74
Kalone 22, Russell 15.
Chicago vann sinn 8. leik og hefur
aldrei byijað betur í NBA frá upphafi.
Detroit hefur ekki farið betur af stað í
sjö ár. Grant Hill tryggði liðinu sigur
með því að skora úr vítaskoti á síðustu
sekúndunum.
-GH