Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1996, Síða 6
6
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1996
Fréttir
Jón Kristjánsson, formaður fjárlaganefndar:
Vegaframkvæmd-
um á suðvestur-
horninu frestað
- afgreiösla margra þýðingarmikilla mála bíöur 3. umræðu
„Frestun framkvæmda við Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar er hluti af
þeim þriggja til fjögurra milljarða
króna sparnaði með frestun fram-
kvæmda sem stefnt er að. Aðrir
stórir þættir sem menn eru að
skoða er frestun á vegafram-
kvæmdum. Sérstaklega er þá horft
til stórframkvæmda hér á suðvest-
urhorninu en tillögur þar um eru
ekki tilbúnar enn,“ sagði Jón
Kristjánsson, formaðm- fjárlaga-
nefndar Alþingis, en 2. umræðu
um fjárlagafrumvarpið lauk á laug-
ardag.
Það sem um er að ræða í þessu
efni er að frestað verður að ljúka
breikkun Ártúnsbrekku og bygg-
ingu brúar yfir Elliðaár og tvöfold-
un Reykjanesbrautar milli Reykja-
víkur og Hafnaríjarðar. Sam-
kvæmt heimildum DV er ekki mik-
il hrifning með þetta hjá þing-
mönnum Reykjavíkur og Reykja-
ness.
„Það eru mörg þýðingarmikil
mál sem ekki er búið að afgreiða
og bíða 3. umræðu. Þar með má
nefna beiðni sjúkrahúsanna í
Reykjavík um viðbótarfé. Þá er eft-
ir að útfæra 160 milljóna króna
sparnað á sjúkrahúsimum út á
landi. Eftir er að fjalla endanlega
um fjárveitingu til flugmálaáætl-
unar, vegasjóðs og B-hluta stofn-
ana og svo að sjálfsögðu þessi
margumtalaða frestun fram-
kvæmda. Þetta eru stærstu málin
sem bíða 3. umræðu,“ sagði Jón
Kristjánsson. -S.dór
Niðurskurður til framhaldsskóla á fjárlögum:
Stærsti veik-
leiki fjárlaga-
frumvarpsins
- segir Kristín Halldórsdóttir
„Við í minnihluta fjárlaga-
nefndar höfum lýst okkur sam-
mála þvi markmiði að afgreiða
fjárlög hallalaus og helst með
afgangi. Við erum hins vegar
ekki á einu máli um skiptingu
þeirra fjármuna sem menn eru
að fjalla um á útgjaldahliðinni.
Þar gagnrýnum við sérstaklega
niðurskurð til framhaldsskól-
anna. Við leggjum fram tillögu
um að þeim fjármunum verði
skilað til baka sem skornir eru
niður samkvæmt frumvarpinu.
Þetta er stóri veikleiki frum-
varpsins. Það er einnig veik-
leiki í heilbrigðismálakaflanum
en afgreiðslu hans var ekki lok-
ið fyrir 2. umræðu. Umfjöllun
um hann bíður því 3. umræðu,"
sagði Kristín Halldórsdóttir,
þingkona Kvennalistans, í sam-
tali við DV.
Þingmenn stjórnarandstöð-
unnar voru með sameiginlegt
nefndarálit við 2. umræðu fjár-
lagafrumvarpsins.
Kristín sagði að það væri
sýnilega fjárvöntun í heilbrigð-
ismálunum og þar ætti eftir að
takast á um stóra liði, ekki síst
fjármagn til sjúkrahúsanna í
landinu.
„Við höfum gagnrýnt það
harðlega í minnihlutanum
hvernig að þessu hefur verið
staðið við fjárlagagerðina. Og
sérstaklega hefðum við viljað
sjá stjórnarflokkana hætta við
niðurskurðinn til framhalds-
skólanna og helst veita meira fé
til menntamála sem allir þykj-
ast sammála um að sé það mik-
ilvægasta upp á framtíðina. Við
teljum svigrúm til þess vegna
þess að það verður afgangur á
fjárlögum," sagði Kristín Hall-
dórsdóttir. -S.dór
Vinningar sem dregnir voru út í HAPPII HENDI síðastliðið
föstudagskvöld komu í hlut eftirtalinna aðila.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
Alma Guðmundsdóttir,
Hólatúni 5, Sauðárkróki
Berglind A. Ásmundsdóttir,
Krummahólum 2, Reykjavík
Björn Leifsson,
Spítalavegi 1, Akureyri
Camilla Jónsdóttir,
Smáragrund 8, Sauðárkróki
Edvard Kristensen,
Rjúpufelli 29, Reykjavík
Elnar Jónsson,
Hjarðarhaga, Húsavík
Erla Þóröardóttir,
Skeiðsfossvirkjun, Fljótum
Guðbjörg Árnadóttir,
Kringumýri 11, Akureyri
Guðbjörg Tómasdóttir,
Miðvangi 104, Hafnarfirði
Hjálmar Hjálmarsson,
Auðbrekku 14, Húsavík
Jóhann Jónsson,
Túngötu 33, Eyrarbakka
Jónas Kristjánsson,
Byggðavegi 125, Akureyri
Kjartan Jónsson,
Kleppsvegi 46, Reykjavík
Sigríður Guömundsdóttir,
Efstasundi 62, Reykjavík
Sigrún Jensey Sigurðardóttir,
Spóarima 23, Sellossí
Stefanía Flosadóttir,
Hólaseli 20, Reykjavík
Trausti Jónsson,
u-Garðavík 11, Borgarnesi
Viöar Einarsson,
Tröllagili 25 Akureyri
Vinrtingshafar geta vdjað vinninga hja Happdr*tti Háskóta
Islands, Tjarnargötu í. to» Beykjavík. $imi jðj 8300- ’iypt*9'
Heimatilbúin sprengja eöa kínverji var notuð til þess aö sprengja póstkassa
viö verslunina viö Hagamel í Reykjavík um ki. 22 á laugardagskvöld. Spreng-
ingin var mjög öflug eins og sjá má en hér halda lögreglumennirnir á brot-
um úr kassanum sem fór í marga hluta. Innihaldiö fór í tætlur og dreiföist um
stórt svæöi. DV-mynd S
Vestmannaeyjar:
Líkamsárás, fyllirí og læti
Talsverður erill var hjá lög-
reglu í Vestmannaeyjum um helg-
ina, fyllirí og læti. Að sögn lög-
reglu hefur mikið verið að gera í
vinnu hjá fólki í bænum fram að
þessu og fólk þvi nýtt það út í
ystu æsar þegar heldur hægðist
um nú um helgina.
Eitthvað var um rúðubrot í
bænum og ein líkamsárás átti sér
stað fyrir utan skemmtistað. Þar
var maður viðbeinsbrotinn og
annar tekinn fyrir gjöminginn og
honum stimgið í steininn yfir
nótt. Málið var ekki að fullu upp-
lýst í gærkvöld en því miðaði að
sögn vel.
-sv
Sandkorn i>v
Sárþjáður af leti
Einhver spekingur sem skrifar
um körfuknattleik í Dag-Tímann fór
ekki neina skemmtiferð á leik
Hauka og Tindastóls í Úrvalsdeild-
inni ef marka
má skrif hans.
Bandaríski
leikmaðurinn
Jeffrey John-
son, sem leik-
ur með Tinda-
stóli, fékk
m.a. herfilega
útreið hjá
„skríbentin-
um“ sem
sagði hann þó
vera með
„betri Kön-
um“ sem leika hér á landi. Hami
gæti hins vegar að öllum líkindum
verið sá besti ef hann væri ekki svo
sárþjáður af leti. „Stundum sýnist
manni að þessi sjúkdómur sé að
draga hann til dauða,“ sagöi DT um
þennan leikmann sem hefur verið
einn besti leikmaður Tindastólsliðs-
ins i vetur, ef ekki sá besti.
Skipt um mynd
Víkurblaðið á Húsavík hefur
löngum verið brunnur sem hægt
hefur verið að sækja í „sandkom"
þegar mikiö hefur legið við, enda
stýrir því
blaði og skrif-
ar sá
skemmtilegi
„penni“ Jó-
hannes Sig-
urjónsson. Á
dögunum,
þegar hvað
mest gekk á í
pólitíkinni á
Húsavík, voru
helstu for-
kólfar stjórn-
málaflokk-
anna í bænum tíðir gestir á forsíð-
um blaðsins og myndir af þeim not-
aðar grimmt. Loks fannst ritstjór-
anum nóg komið og í blaðinu sem
kom út í lok nóvember var komin
mynd af hundi á forsíðuna. í texta
fylgdi að nóg væri komið af mynd-
um af sveitarstjómarmönnunum í
bili og því væri nú birt mynd af
annars konar góðborgara i bænum.
Ekki í KR-bún-
inginn
Ýmsir þykjast sjá þess merki að
knattspyrnumaðurinn Bjarni Guð-
jónsson frá Akranesi muni ganga til
liðs við Liverpool og að enska félag-
ið muni
greiða fyrir
hann a.m.k.
100 milljónir
króna. Rétt er
að árétta það
að þetta er
leikmaðurinn
sem Guðjón
Þórðarson,
faðir Bjama,
var skammað-
ur sem mest
fyrir að nota í
fyrstu leikjum
íslandsmótsins sl. vor. Bjami þagg-
aði reyndar fljótlega niður í þeim
gagnrýnisröddum með góðum mörk-
urn og svo fór í haust að fjöldi er-
lendra liða vildi fá hann í sínar rað-
ir. Þar á meðal var lið Newcastle
þar sem nokkrir af dýrustu knatt-
spymumönnum heims em innan-
borðs. Gárungamir segja hins vegar
aö Newcastle muni aldrei geta notið
krafta Bjama því félagið leiki í KR-
búningnum og slíkum búningi vilji
Bjami ekki klæðast.
Athyglisýkin
Það vakti nokkra athygli að Hall-
grimur Helgason rithöfundur viður-
kenndi það undanbragðalaust í
sjónvarpsþætti í siðustu viku að
hann „nærð-
ist“ á þvi að
koma fram í
fjöbniðlum.
Hann er með
öðrum orðum
það sem
blaðamenn
kalla oft sín á
milli „athygli-
sjúkur“.
Menn geta
metið það
hver fyrir sig
hversu alvar-
legur þessi sjúkdómur er. Hitt er
borðleggjandi, og það vita fjölmiðla-
menn, að til er mikið af fólki sem
viil helst alltaf vera í sviðsljósinu
og þá eru fjölmiðlarnir auðvitað
besta leiðin til að láta Ijós sitt
skína.
Umsjón Gylfi Kristjánsson