Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1996, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1996, Blaðsíða 27
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1996 35 \u3Jllj1 Vlj jijJjVJJj' - segir forstjóri Evrópudeildar Microsoft „Tölvur eru of dýrar í Evrópu, þær eru skattlagðar svo mikið að þegar efnahagur margra er ekki góður, eins og nú um stund- ir, þá er hætt við þvi að fólk spari við sig tölvukaup. Enn fremur hef ég áhyggjur af því að mörg riki í Evrópu noti sér ekki einkatölvur í skólakerfum sínum. í álfunni eru marg- ir að útskrifast úr skólum og hafa aldrei átt við tölv- ur,“ segir Bernard Vergne, forstjóri Evrópudeildar skóla í Evrópu. Hann segir að ef hann hefði verið spurður að því fyrir tveim- ur til þremur árum hvert evrópski tölvumarkaður- inn stefhdi hefði hann sennilega svarað því til að Evrópa væri einungis tveimur til þremur mánuð- um á eftir Bandaríkjunum í þróun vélbúnaðar. Eini virkilegi munurinn væri Intemetið. Þar væri Evr- ópa tveimur árum á eftir. „Nú, tveimur árum síðar, hefúr þetta gerst. Intemet- inu hefur svo sannarlega verið tekið tveim höndum í Bandaríkjunum á undanfomum tveimur árum. Þar fer sam- an mikil einkatölvueign, bæði hjá fyrirtækj- unum og á heimilum." Vergne telur þó skipta mestu máli hvert viðorf manna sé til tækninnar. „Evrópubúar em að bregðast við tækninni en í Bandaríkjunum er verið þróa hana,“ segir Verg- ne. Að hans sögn em líkur á því að þetta gæti breyst eitthvað og nefh- ir sérstaklega tilkomu frjálsrar samkeppni á hinum sam-evrópska markaði í fjarskiptum árið 1998. „Þegar má sjá merki um niðurfellingu tolla og verðstríð - það er ódýrara að vera í hvers konar fjarskipt- um en það var fyrir hálfu ári. Það sem skipt- ir einnig máli er að menn hjá stórfyrirtækj- um em famir að ræða þá kosti sem innanhúss- net (Intranet) hafa.“ Vergne bendir einnig á að mikið sé af góðum og frumlegum evrópskum fyrirtækjum á sviði tölvutækni. „Það er hins vegar erfitt að tak- marka fyrirtæki við Evrópu ef þau eiga að vaxa og dafna. Markaðurinn er nú á heims- vísu.“ Þýtt og endursagt úr Time-Digi- Tölvueign heimila - í Bandaríkjunum og Evrópu - Evrópa Bandaríkin PVI Tölvur í Evrópu Skotland Compaq og IBM keppa ekki einung- is um tölvumarkaðinn á meginlandi Evrópu. í Skotlandi reka fyrirtækin verksmiðjur í einungis 20 kílómetra fjarlægð hvor frá annarri og keppa fyrirtækin hart um aö fá starfsfólk á svæðinu. McDonald’s er i klandri þar í landi. Umhverfisverndarsinnar, sem unnu gegn fyrirtækinu í réttarsölum og á opinberum vettvangi á sfðasta ára- tug, hafa nú sett upp vefsfðu á slóð- inni http://www.mcspotlight.org Fyrir níu árum byrjaði lögreglan í Englandi á lítilli tilraun með eftirlits- myndavélar í bænum Kings Lynn. Nú hafa þúsundir myndavélar veriö sett- ar upp í 400 miðborgum víös vegar um landið og telur lögreglan að vegna þessa hafi glæpum fækkað um 60 af hundraöi. Frakkland Franskt fyrirtæki hefur hafið markaðssetningu á afar fullkomnum golf- hermi. Þeir sem leika golf í herminum spila á gervi- grasi og geta norft a bolt- ann á risastórum skjá. Innrauðir skynjarar reikna út hraða, snúning og stefnu boltans. Finnland í ágúst síðastliðnum fór Karpov létt með að sigra „heiminn” f skák sem hann tefldi í gegnum Int- ernetiö við fjölda skák- manna. „Heimurinn” gafst upp eftir einungis 32 leiki. Þýskaland Oft er tölvum kennt um streitu en nú hefur þýskt fyrirtæki framleitt „streitu- bana“. Hann virkar þannig að skynjar- ar eru tengdir stressaðri manneskju og tölvu. A tölvunni er hægt að sjá hversu illa viökomandi er haldlnn af streitu og býður meðfylgiandi forrit upp á tónlist og myndir til að róa hann. Smáverslanir á bensínstöðvum verða aldrei samar ef áætlun Þýskalands- deildar BP gengur eftir. Nú er fyrirtæk- ið að prófa sig áfram meö „sýndar- verslanir“. Tíu bensfnstöövar í Múnchen taka þátt í tilrauninni en viöskiptavin- ir borga fýrir vörurnar með debetkort- um. Ítalía Hinn illa haldni ftalski rafeinda- tækjarisi, Olivetti, er nú hætt- ur aö framleiða einkatölvur. Fyr- irtækiö var söluhæsti tölvuframleiöandi álfunnar þangað til í fyrra en hefur ekki skilað hagnaöi I sex ár. Fyrir nokkru síðan var sagt frá því á tölvusíðum DV að nýtt íslenskt tölvu- póstsforrit hefði verið hannað af Bimi Heiðari Guðmundssyni. Þar var sagt frá þvi að forritið hefði þegar fengið góðar viðtökur erlendis og enn heldur vel- gengnin áfram. Þegar viðtalið við Bjöm var tekið var hann um það bil að fara að setja forrit sitt í dóm á vefsíðum þar sem ný Intemetforrit em tekin fyrir og dæmd á mjög gagnrýninn hátt. Nú em viðbrögðin farin að skila sér og á hinni kunnu vefsíðu Forrest Strouds fær forrit Bjöms frábæra dóma. Stroud þessi er bandarískur og er að ljúka námi í upp- lýsingafræði við háskólann í Texas. Hann virðist þó hafa tíma til þess að setja upp og haida við vefsíðu þar sem hann fjallar mjög ítarlega um mikinn fjölda forrita sem ætluð eru til notkunar á Intemetinu. Hann ætlar síðu sinni að vera nokkurs konar verslunarmiðstöð á vefnum þar sem hægt er að nálgast ara- grúa forrita sem hlutlaus aðili (hann sjálfur) hefur tekið fyrir. Ekki er annað hægt að segja en að tölvupóstsforritið frá TransSoft fái góða dóma hjá Stroud en hann segir um það að það skari fram úr á nokkrum sviðum og býst við stórum hlutum frá TransSoft í framtíðinni. Hann telur það einfalt í notkun og segir að auðvelt ætti að vera fyrir hvern sem er að nota það. Sérstaklega hrósar hann því að það sé með innbyggðum PGB (Pretty Good Privacy) en það tryggir að óviðkomandi geti ekki lesið tölvupóst, Stroud segir forritið vera handhægt til að senda mörgum aðilum í einu tölvu- póst og að forritið aftengi tölvu notand- ans símalínu strax og búið er að sækja nýjan póst, svo eitthvað sé nefnt. Þó seg- ir hann aö sumt hefði mátt betur fara en blaðamanni virtist Stroud helst gagn- rýna verðið á póstforritinu frá TransSoft en það kostar tæpar 3.500 krónur. Vefsíða Strouds er á slóðinni http: //cwsapps.com/coolapp.html en þar er meðal annars hægt að nálgast póstforrit- ið frá TransSoft og fjölda annarra gagn- legra forrita fyrir Intemetið. Samantekt:-JHÞ Falleg skólaúr Vatnsvarin með skýrum stöfum. í tilefni jólanna er innifalin áletrun allt að 5 stöfum. Verð aðeins kr. 2.950 GULL-URIÐ Axel Eiríksson Álfabakka 16, Mjóddinni, sími 587-0706 Aðalstræti 22, (safirði, sími 456-3023 Vatnsheldar, sterkar og hlýjar. jöklagleraugu CEBG, mikið úrval. dömu kuldajakki Vatnsheldur, hlýr með útöndun. Verð: 8.980 t herra p kuldajakki ■ Vatnsheldur, hlýr » með útöndun. m Verð: 8.980 kuldaúlpurl Verð 6.980- . Gefur þú fjölskyldunni hlýja gjöf sem endist og endist? hitabrúsar Obrjótanlegir.Verð frá 2.900- bakpokar Mikið úrval.Verð frá 2.200- svefnpokar -8°e Verð frá 4.600 hanskar^m Mikið úrval, gott verð. 3 Sunway ’ göngubuxur gönguskón

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.