Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1996, Blaðsíða 39
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1996
47
Fréttir
Mikill uppgangur hjá Loðskinni hf. á Sauðárkróki:
Rekstrarumhverfið
hefur gjörbreyst
- segir Birgir Bjarnason framkvæmdastjóri - skinn flutt til vinnslu frá Ástralíu
Karl Bjarnason meö hluta af framleiöslu Loöskinns. Skinn eru flutt yfir hálfan hnöttinn, frá Ástrallu, til aö vinna þau á Króknum. DV-myndir ÞÖK
DV, Sauðárkróki:
„Reksturinn gengur mun betur
en áöur. Viö höfum verið að vinna
okkur út úr erfiðleikum fyrri ára.
Rekstrarumhverfiö hefur gjör-
breyst,“ segir Birgir Bjamason,
framkvæmdastjóri Loöskinns hf. á
Sauðárkróki, sem vinnur skinn af
refum og minki í verksmiðju sinni.
Fyrirtækið, sem var stofnað árið
1969, hefur allar götur verið rekið
undir sömu kennitölu þrátt fyrir að
miklir erfiðleikar hafi hrjáð það á
árunum fyrir 1993.
„Við gáfum okkur það í lok ársins
1993 að það tæki okkur á bilinu 3 til
S ár að vinna okkur út úr erfiðleik-
unum og mér sýnist það ætla að
ganga eftir. Það gerist þrátt fyrir að
við höfum misst um þriðjung af hrá-
efni okkar innanlands," segir Birgir
og vísar til
stofnunar sam-
bærilegs fyrir-
tækis á Akur-
eyri.
Hann segir
að með því að
missa hráefni
til annarra hafi
fótunum verið
kippt undan
rekstri fyrir-
tækisins sem
hafi brugðið á
það ráð, þrátt
fyrir hrakspár,
að flytja skinn
inn frá útlönd-
um.
„Við tókum
þá ákvörðun að
kaupa um
Birgir Bjarnason, framkvæmdastjori Loö-
skinns, á skrifstofu sinni. Hann segir fyr-
irtækiö hafa náö þeim markmiöum sem
þaö setti sér áriö 1993.
helming af
skinnunum
frá Ástralíu
og flytja til
vinnslu hing-
að. Það hefur
gengið upp og
skilað okkur á
síðasta ári um
50 prósenta
söluaukningu.
Ársvinnsla
fyrirtækisins
samsvarar 144
þúsund fer-
metrum af
skinnum. Alls
starfa hjá fyr-
irtækinu
milli 60 og 70
manns og
framleitt er
fyrir markaði í Kóreu, á Italiu og til
Danmerkur auk margra fleiri landa.
Karl Bjarnason, sölustjóri fyrirtæk-
isins, segir að vart hafist undan að
framleiða og markaðurinn sé mjög
góður. Hann segir sveiflu vera í
markaðnum og fyrirtæki þurfi aö
aðlaga sig henni.
„Það eru hefðbundnar sveiflur á
þessum markaði. Lægðin til 1993
stóð þó óvenjulengi. Nú ríkir mikil
bjartsýni í greininni en það er þó
spuming hvemig á að nýta góðu
árin til að styrkja reksturinn
þannig að hann verði I stakk búinn
að mæta þeim mögra. Reynslan er
sú að góðu árin hafa ekki verið
nógu mörg til að takist að safna í
sarpinn til að mæta erfiðum tím-
um,“ segir Karl.
-rt
mmsiffifflmsmmmm,.
Skúlagötu 51 • 105 Reykjavík
Sími 551 3743, 551 5833 • Fax 552 6692
í*IŒNWOOD»
»r Ávaxta-og %
grænmetispressa ^ ▼
* EN WOOD»,*
X* Rafmagnshnífur