Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1996, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1996, Blaðsíða 24
24 MANUDAGUR 16. DESEMBER 1996 Fréttir Fær hringingar frá fólki sem man eftir honum úr Kanaútvarpinu: Vatnsleysuströnd: Hlynaði um hjarta- ræturnar við þessar góðu móttökur - segir Bob Murray sem er nú með þátt á Aðalstöðinni „Þaö var virkilega gaman að fá hringingar frá fólki þar sem það sagðist muna eftir mér síðan úr út- varpinu á vellinum. Það bauð mig velkomið og sagðist vona að ég yrði hér sem lengst. Mér hlýnaði mjög um hjartarætur við þessar góðu móttökur og sérstaklega þegar ein- hver sagði að ég hljómaði eins og 25 ára í útvarpinu þó ég sé orðinn rúmlega fimmtugur,“ segir Banda- ríkjamaðurinn Bob Murray sem var þekktur útvarps- og sjónvarpsmað- ur hjá Bandaríkjaher á Keflavíkur- flugvelli á níunda áratugnum. Bob er kominn aftur til íslands og stjórnar nú útvarpsþætti á Aðal- stöðinni á sunnudögum. „Ég kom hingað til íslands fyrst árið 1972 og var þá að sinna minni herskyldu. Mér líkaði strax mjög vel við land og þjóð og hét því að koma hingað aftur. Ég reyndi að fá mig fluttan aftur til íslands en það liðu 10 ár þangað til ég komst aftur. Þá fór ég að vinna hjá útvarpi og sjónvarpi á vellinum og var hér I rúm 6 ár. Þá fór ég heim tU Banda- Bob Murray. ríkjanna en nú er ég kominn aftur og vonast tU að vera hér sem lengst. Við erum með þátt á Aðalstöðinni sem ber nafnið rokk í 40 ár og það hefur gengið mjög vel. Draumurinn er annars að vinna í útvarpinu á hverjum degi og auk þess hef ég mikinn áhuga á ferðamannaþjón- ustu og langar mikið tU að sam- tvinna þetta tvennt. Það versta er að ég hef aldrei náð tökum á íslensk- unni. Ef það yrði sérstakt aulanám- skeið í íslensku þá yrði ég skráður í það fyrstur manna,“ segir Bob. -RR Ekki ein- setning nú DV, Suðurnesinm:_________ „í þessum áfanga náum við ekki að einsetja skólann en það verður gert í næsta áfanga. Stefht verður að því að fúllklára viðbygginguna á næsta ári,“ seg- ir Jóhanna Reynisdóttir, sveit- arstjóri Vatnsleysustrandar- hrepps, í samtali við DV. Tekin hefur verið ákvörðun í sveitarstjóminni um að byggja 700 fermetra viðbyggingu við Stóru-Vogaskóla. Kostnaðurinn er á miUi 70 og 80 mUljónir og mun jöfnunarsjóður sveitarfé- laga greiða 40 prósent. Núverandi skólahúsnæði er 600 fermetrar og hefði þurft 1.200 fermetra byggingu tU að einsetja skólann. Um 140 nemendur eru í skólanum. Að sögn Jóhönnu er mikU þörf á viðbótarhúsnæðinu. í þessum áfanga verði aðstaða fyrir nemendur og kennara bætt og gerðar sér stofur fyrir raun- greinar. ÆMK KEA hlaut viðurkenningu Þroskahjálpar Kaupfélag Eyfirðinga á Akur- eyri hlaut viðurkenningu Lands- samtakanna Þroskahjálpar fyrir að skara fram úr í atvinnustefnu gagnvart fötluðu fólki. Sex fyrir- tæki voru tUefnd en í dómnefnd eiga sæti fuUtrúar aðila vinnu- markaðarins auk fuUtrúa lands- samtakanna. „Valiö var ekki einfalt, það hafa aö mínu mati aldrei verið eins margar góðar tUnefhingar og í ár. Á endanum var þetta fyrirtæki talið hafa vinninginn umfram aðra fyrir að hafa sam- þykkt á aðalfundi sínum í vor að skipuleggja störf með þeim hætti að fatlaðir geti gegnt þeim. Ég þekki ekki önnur dæmi um að slíkt hafi verið sett formlega í atvinnustefnu fyrirtækis hér á landi," sagði Friðrik Sigurðsson, framkvæmdastjóri Þroskahjálp- ar. Hin fyrirtækin, sem hlutu til- nefhingu, voru: MyUan, ísafjarð- arkaupstaöur, Sjúkrahús Reykjavíkur, MeitiUinn í Þor- lákshöfn og Kjötkaup á Reyðar- firði. Viðurkenningin, forkunn- arfagur keramikvasi eftir Ólaf Ólafsson, listamann á Selfossi, var veitt á alþjóðlegum degi fatl- aðra, en þá notuðu landssamtök- in jafnframt tækifærið og héldu upp á 20 ára afmæli sitt. -ingo Börnin á Hofsósi kunna svo sannarlega að meta snjóinn. Þegar DV var á ferð þar í vikunni voru þessir þrír félagar að leika sér með bíla sína sem sátu á köflum fastir í sköflum. Þeir Ómar, sjö ára, Sindri, átta ára, og Jóel, sem einnig er átta ára, sögðust allir hlakka til jólanna. Þá fengju þeir hugsanlega nýjan bílaflota og svo væri spennandi að kveikja á jólatrénu. DV-mynd ÞÖK Sveitarfélög á köldum svæðum: Samvinna um jarðhitaleit - 88 gráða heitt vatn úr holu á „köldu“ svæði Stofnuð hafa verið samtök sveit- arfélaga á köldum svæðum sem hyggjast hafa samvinnu um leit að nýtanlegum jarðhita. „Samtökin eru að láta taka saman fyrir sig skýrslu hjá Orkustofnun um mögu- leika þessara sveitarfélaga í ljósi nýrrar reynslu, tækni og þekkingar og ég býst við að byggðar verði á henni hugmyndir um frekari leit á næsta ári,“ segir Kristján Haralds- son, framkvæmdastjóri Orkubús Vestfjarða. í Sambandi sveitarfélaga á köld- um svæðum eru sveitarfélög á Aust- urlandi, Vesturlandi og Vestfjörð- um. Vestfirðir hafa þó þá sérstöðu að sögn Ólafs Þ. Kristjánssonar, bæjarstjóra í Bolungarvík, að Orku- bú Vestfjarða hefur einkaleyfi á allri orkunýtingu og -sölu á Vest- fjörðum þannig að Orkubúið fer með jarðhitamálin fyrir hönd Bol- ungarvíkur sem er í hinum nýju samtökum. Nýlega kom í ljós verulegt magn af heitu vatni í borholu á Árskógs- strönd við Eyjafjörð og í Stykkis- hólmi sem báðar eru á köldum svæðum. Kristján Sæmundsson, jarðfræðingur á Orkustofhun, hefur rannsakað holuna í Stykkishólmi. Vatnið í henni er að hans sögn 87 gráða heitt og afköstin rúmlega 40 lítrar á sekúndu en holan er 855 metra djúp. -SÁ Ökumaður Norðurleiðarrútu: Dæmdur til greiðslu sektar Itölsk gæðaframleiðsla STILLANLEGT BAK STILLANLEG HÆÐ ENDINGARGÓÐIR AUOHREYFANLEGIR BAKSTUÐNINGUR MEfl EÐA ÁN ARMA f 5 ARMA HJÓLASTELL EITT LÆGSTA VERS Á MARKADNUM TM - HUSGOGN Stðumúla 30 - tlml Sðð 6323 OpiA: Mán-fös. 9-18 Lau.10-16-Sun. 14-16 - en fær að halda ökuleyfinu DV, Akureyri: Ökumaður Norðurleiðarrútu var í gær dæmdur í Héraðsdómi Norð- urlands vestra til greiðslu 50 þús- und króna sektar en sýknaður af kröfu ákæruvaldsins um sviptingu ökuleyfis. Maðurinn ók langferðabifreið sem lenti í mikilli hálku og svipti- vindum í Hrútafirði i október á síð- asta ári með þeim afleiðingum að bifreiðin fauk út af veginum og valt síðan. Tvær konur í bifreiðinni lét- ust og um 30 manns slösuðust. Kært var vegna gáleyislegs akst- urs á vanbúinni bifreið við þær að- stæður sem voru fyrir hendi. Mann- inum var einnig gert að greiða allan málskostnað sem nemur um 850 þúsund krónum. -gk Flutningabíll á hliðina: Beltin björguðu segir bílstjórinn DV, Höfn: Mjólkurflutningabíll frá Egils- stöðum fauk út af vegi og valt á hlið- ina skammt austan Fjarðarár í Lóni á miðvikudag. Ökumaðurinn, Jón Heiðar Frímannsson, sagðist vera aumur í baki en að beltið hefði ör- ugglega bjargað því að ekki fór verr. Bíllinn er mikið skemmdur. Jón Heiðar náði sambandi við lögregluna á Höfn og kom hún hon- um til hjálpar. Áður en lögreglan kom hafði einn ökumaður keyrt fram hjá án þess að kanna hvort hjálpar væri þörf. Sá næsti sem kom var öllu hugulsamari. -JI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.