Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1997, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1997, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 1997 enmng u Sveinn Einarsson situr glaðbeittur í kjöltu Steins Winge fyrir miðri mynd, en á bak viö Svein stendur Elín Óskars- dóttir. Aðrir eru frá vinstri: Kjell Magnus Sandve (sem syngur Magnús konung), Toril Carlsen, Per Vollestad, Pelle Gustavsen, John Kristian Alsaker, Roar Leinan, Norunn lllevold Giske, Knut Stiklestad (Ingi konungur), Oystein Dill- an Vardehaug, Roar Wik og Svein Dahl. Friðkolla Sagan segir að Magnús berfætt- ur Noregskonungur hafi orðið ást- fanginn af Margréti, dóttur Inga Svíakonungs og hún hafi tekið honum með því skilyrði að friður kæmist á milli norrænu þjóðanna. Ósk hennar var uppfyllt og eftir það hlaut hún viðurnefnið Frið- kolla. Ekki entist sá friður þó út ævi hennar, því hún lifði löngu og ævintýralegu lífi og átti fleiri eig- inmenn en Magnús, sem varð skammlífur. En því er Friðkolla á vörum margra tónlistarmanna á Norður- löndum nú að það er verið að setja upp óperu um hana sem norska tónskáldið Martin Andreas Udbye lauk við að semja árið 1858. Frum- sýningin verður 1. febrúar. Einu sinni áður hefur verið reynt að setja óperuna upp, það var árið 1877 í Leikhúsi Kristjaníu. Sagt er að tveir dökkklæddir herramenn hafi ávarpað Udbye þegar hann steig út úr lestinni í Kristjaníu og spurt hann hvort hann væri þangað kominn til að sjá frumsýningu óperu sinnar. „Já,“ svaraði tónskáldið glaður og hreykinn. „Það er því miður ekki hægt,“ sögðu ábúðarmiklu menn- irnir. „Af hverju ekki?“ spurði tón- skáldið og setti upp skeifu. „Af þvi að leikhúsið brann til grunna í nótt,“ var svarið. Vonandi fer ekki eins fyrir Olavshallen í Þrándheimi þar sem sýning óperunnar er liður í þús- und ára afmælishátíð borgarinnar. Leikstjórar óperunnar eru tveir önnum kafnir menn sem hafa reynt að vera til skiptis við stjórn æfinga, Sveinn Einarsson og Stein Winge. „Verkið logar af rómantík í bestu merkingu þess orðs,“ segir Sveinn, „það er ekkert síðra en verk tónskálda á borð við Schubert, Mendelssohn og Weber.“ Boðskapurinn er líka sígildur: elskið friðinn og hættið að slást! Auk þess sjá menn í þessum við- burðum fyrirmynd að Norður- landaráði sem var stofnað sjö hundruð árum síðar eða svo! Sveinn Einarsson er ekki eini ís- lendingurinn í liðinu; Elín Óskars- dóttir syngur hlutverk Toru í ópe- runni, en Friðkollu sjálfa syngur Toril Carlsen. PS... Bækur Bóksalan virðist hafa verið býsna góð á vertíðinni og það er fleira gott við hana. Söluhæstu bækumar eru Ekkert að marka eftir Guðrúnu Helgadóttur og Játningar Berts eftir Anders Jac- obsson og Sören Olsson og er gott til þess að vita að svo mörg börn skuli hafa fengið þessar prýðilegu bækur í jólagjöf. Kökubók Hag- kaups - ojæja, er ekki gott að fólk fái kökur ef það fær ekki brauð? Ævisögumar á metsölulistanum eru allar til sóma. Lífskraftur eft- ir Friðrik Erlingsson, bókin um prestshjónin merkilegu í Laufási, á skilið að komast inn á sem flest heimili, og sama má segja um gagnmerka ævisögu Benjamíns H. J. Eiríkssonar og Jóns Múla, hins ástsæla þular. Lögmálin sjö sem koma milli ævisagna er áreiðanlega heldur ekki óholl bók. Og svo eru það íslensku skáld- sögurnar. Fjórar íslenskar;,skáld- sögur í 4-6 þúsund eintökum, það er ekki slæmt, og ennþá fleiri náðu þokkalegri sölu. Vitaskuld eru almennir lesendur ósammála um þær ekki síður en gagn- rýnendur - en þeir hafa lesið þær og geta þrasað um þær, og það er örugglega hollara en að þrasa um skatta eða velta sér upp úr flensu- einkennum. Ég held að við getum bara ver- ið góð með okkur eftir flóðið. Andvari Nýtt hefti af Andvara kom út fyrir jól, spennandi eins og alltaf síðan Gunnar Stefánsson tók við tímaritinu. Þar skrifar Einar Ólafsson hina hefðbundnu And- vara- minningargrein sem að þessu sinni er um Brynjólf Bjama- son; Helgi Hallgrímsson fjallar um íslenskar sagnir um uppruna huldufólks, Gunnar Karlsson um sagnfræði Sigurðar Nordals, Jón Karl Helgason um Hall- dór Laxness og íslenska skólann og Eiríkur Guðmundsson um fimm skáldsögur frá 1995. Sveinn Skorri Höskuldsson á greinina „Hinn langi og skæri hljómur" um höf- undarverk Ein- ars H. Kvarans og setur Einar á óvæntan menningarsögulegan stall. Hann segir: „Á þessari öld hafa aö mínu viti verið uppi þrír menn á okkar landi sem í verkum sínum skópu og varðveittu þá klukku íslands sem öll þjóðin lagði eyru við þegar hljómur hennar barst um byggðir. Þeir vom Einar Hjörleifsson Kvar- an, Sigurður Nordal og Halldór Kiljan Laxness. /.../ Með miklum rétti getum við talað inn þrjú skeið eða þrjár aldir - öld Kvarans, öld Nordals, öld Laxness - og hratt hver þeirra gildum og goðum hinnar fýrri af stalli.“ Sjálfsagt em margir sammála Sveini um tvær seinni „aldirnar" - en varla þá fyrstu. Silkikjólar og vað- málsbuxur Athygli vekur að annar ritstjóra Skírnis, Jón Karl Helgason, á grein í Andvara. Þar skrifar einnig fyrrverandi ritstjóri Tíma- rits Máls og menningar, Ámi Sig- Styrkir til dans- og leikhópa Norræna nefndin, sem veitir styrki til danshópa og leikhúsa, Teater og dans i Norden, lauk störf- um um miðjan desember. Styrkirn- ir nema í ár um 400 þúsund dönsk- um krónum og eiga að auka og auð- velda samskipti milli Norðurland- anna. Hópamir fá styrk til að heim- sækja annað land og sýna þar eða vinna með heimamönnum að vérk- efnum. Sextán hópar fá styrki i ár, og þeir stærstu, 50 þúsund dkr., fara að þessu sinni í sænsk-dönsk samskipti. Önnur sýningin er ætluð börnum og unglingum. Þrír styrkir varða island. Totem leikhúsið finnska fær 12.500 dkr. til að heimsækja Norræna húsið í Reykjavík og sýna þar verkið Rap- unzel 20. febrúar til 4. mars. 25.000 dkr. fær leikhópurinn Tripicchio, Underland & Co til að heimsækja Möguleikhúsið með sýn- inguna Kluss med klær og kleskly- per. Tímasetning er ekki gefin upp. . Og leikhúsið í Þrándheimi fær 21.800 dkr. til að ráða Svein Einars- son sem gestaleikstjóra óperunnar Friðkolla í Þrándheimi sem verður sýnd 1.-8. febrúar. Frá þeirri sýn- ingu er sagt hér fyrir ofan. urjónsson, bráðskemmtilega grein um rithöfundinn Siguijón Jóns- son. Sigurjón þessi var Reykvik- ingur, fæddur 1888, og var í 34 ár starfsmaður í Landsbankans í Reykjavík. Hann dó ekki fyrr en 1980, þá flestum gleymdur, þótt hann hefði gefið út á annan tug skáldverka. Ámi skoðar einkum tveggja binda skáldsögu Sigurjóns, Silki- kjólar og vaðmálsbuxur (1922) og Glæsimennsku (1924) sem segir sögu þriggja persóna og lætur glæframanninn og skúrk- inn standa uppi sem sigur- vegara. Lýsingamar á ger- spilltu eðli hans eru alveg frábærar. Árni kemst að þeirri niðurstöðu að Sigurjón hafi verið framúrstefnumaður í skáldsagnagerð hér á landi og skrifað þær skáldsögur sem Þór- bergur Þórðarson hafi ekki náð að skrifa, enda hafi þeir verið ná- skyldir andlega. „Sigurjón Jóns- son má skoða sem merkan og að nokkm leyti týndan hlekk í for- sögu islenskra nútímabókmennta og deiglan í bókmenntum þriðja áratugarins birtist einna skýrast í skáldsögum hans,“ segir Ámi og vill öruggan sess handa Sigurjóni í 4. bindi Bókmenntasögu Máls og menningar. Skj alaskápar Traustir - vandaðir og á góðu verði! KR. 22.995 Söluaðilar: KR. 17.417 KR. 20.256 Ólafur Gíslason & Co hf Sundaborg 3 Reykjavík Sími 568 4800 E.G. Skrifstofubúnaður Ármúla 20 Reykjavík Sími 533 5900 Bókabúð Keflavíkur Sólvallagata 2 Keflavík Sími 421 1102 Þjóðdansafélags Reykjavíkur Hefjast 11. og 13. janúar að Álfabakka 14a. Reykjavík 10 tíma gömludansanámskeið fyrir byrjendur og lengra komna hefjast mánudaginn 13. janúar. Verð á námskeíðin er kr. 5.000.- 12 tíma barna og unglinganámskeið hefjast laugardaginn 11. janúar. Verðin eru þau sömu og hafa verið þ.e.a.s. kr. 3.000,- fyrir börn 3-5 ára, kr. 4.500.- fyrir börn 6-8 ára og kr. 5.500.- fyrir 9 ára og eldri. Ath. Systkinaafsláttur 25% Gömludansarnir eru annað hvert miðvikudagskvöld frá kl. 20:30 til 23:00 og hefjast miðvikudaginn 8. janúar. Allt dansáhugafólk velkomið. Er þetta ekki tækifærið til að lífga upp á danskunnáttuna? Ath. Hópar geta fengið sér tíma til rifja upp og læra meiri dans fyrir þorrablótin og árshátíðirnar. Upplýsingar og innritun í síma 587-1616 S' ** «v 'O * ;dni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.