Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1997, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1997, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 6. JANÚAR 1997 Utgáfufélag: FRJALS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aöstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI11, blaöaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI14,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerö: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverö 150 kr. m. vsk., Helgarblaö 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins i stafrænu formi og i gagnabönkum án endurgjalds. Mikilvægi hátíðarinnar í dag er þrettándi dagur jóla og hinni miklu hátíö aö ljúka. Viö tekur hiö hefðbundna líf og hversdagslegt amstur. Hátíðarhöldin meö tilstandi sínu öllu og tilhlökkun lifa í minningunni. Hátíöin er mikilvæg andanum og lyftir okkur upp um stund. Slík regluleg upplyfting er nauðsyn hverjum og einum, óháð stöðu og stétt, aldri eða efnahag. Á hátíð sem jólunum gera menn sér dagamun, skiptast á gjöfum og sýna með því væntumþykju sína. Hátíðarmatur er á borðum og tími gefst til umhugsunar. Margir sækja kirkju um hátíðamar, jafnvel þeir sem endranær sinna trú sinni í einrúmi. Fjölskyldur eiga stundir saman og ættingjar og vinir hittast. Þetta á ekki síst við um sjómenn sem dvelja hjá ástvinum sínum um jól. Undirbúningur jóla og hátíðin sjálf stytta skammdegið. Vafalaust reynist tilstandið allt mörgum dýrt og sumum kostnaðarsamara en þeir ráða með góðu móti við. Því er mikilvægt að menn sníði sér stakk eftir vexti. Góður hugur er mikilvægari en dýrar gjafir. Þetta verður að hafa í huga þegar rætt er um fátækt hér á landi. Bæði forseti íslands og forsætisráðherra komu inn á umræðu um fátækt í áramótaávörpum sínum þótt ekki væru þeir á sama máli. Kirkjunnar menn, mæðrastyrksnefnd og aðrir þeir sem að málefiium fátækra koma töldu neyðina meiri nú um jólin en fyrr. Fleiri leituðu sér aðstoðar. í fréttum um helgina kom fram að Félagsvísindastofnun Háskólans telur tæplega 10 prósent þjóðarinnar, um 27 þúsund manns, vera undir þeim fátæktarmörkum sem stofnunin miðar við. Þótt þetta sé uggvænlegt er það þó gleðilegt að á liðnu ári fækkaði í þessum hópi um sex þúsund manns. En hátíðin er ekki síður mikilvæg þeim sem höllum fæti standa, efiiahagslega eða af öðrum ástæðum. Þeir þurfa að efla anda sinn og auka bjartsýni til þess að vinna sig út úr vanda sínum af eigin frumkvæði og með aðstoð annarra. Þess vegna eru jólin mikilvæg sem og páskar og hátíðir og stóratburðir í lífi fólks, svo sem skím bams, brúðkaup og afmæli. Hátíðin sjálf, af hvaða tilefni sem er, verður til upplyftingar. Til áréttingar þessu skal hér vitnað til nýrrar ævisögu Benjamíns H. J. Eiríkssonar hagfræðings sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson skráði. Þar segir Benjamín meðal annars: „í hátíðinni er manninum lyft yfir hið daglega líf sitt. Hann fær að skilja grundvöll tilvem sinnar." Benjamín nefnir gildi þess að lítil þjóð sem okkar haldi hátíð saman. Þar má nefna til Alþingishátíðina 1930, lýðveldisstofninina 1944, ellefu hundmð alda afmæli íslandsbyggðar 1974 og 50 ára afinæli lýðveldis 1994. Benjamín bendir á í bók sinni að hjá villimanninum jaftit sem hinum siðmenntaða sé þörf á hinu hátíðlega sem skeri þvert á þráð tímans og lyfti manninum yfir hið hversdagslega. Þess vegna sé hátíðin ein af heilsulindum sálarinnar. Við gerðum okkur dagamun um jólin, héldum hátíð saman. Tími gafst fyrir hið mannlega sem oft verður út undan í hringiðu nútímalífs og hröðum dansi. Tengsl voru efld og langþráður friður gafst til þess að hugsa. Það vill stundum gleymast og því taka menn þátt í kapphlaupinu án þess að huga að hvert skal stefnt. Þessi jól eru á enda runnin en þau urðu okkur til nauðsynlegrar upplyftingar og sálubótar. Á þeirri upplyftingu og sálarinnstæðu lifum við og getum leyft okkur, í hversdagsamstrinu sem í hönd fer, að hlakka til næstu hátíðar. Jónas Haraldsson Siguröur A. varar viö því í pistii sínum aö auglýsingaheimurinn geri allt aö skemmtiefni og þeim augljósa háska aö prentað mál veröi ofurliöi borið. Tvær framtíðarspár Á fyrra helmingi þessarar aldar komu út í Bretlandi tvær skáldsögur sem þóttu miklum tíðindum sæta um viða veröld. Sú fyrri var eftir Aldous Huxley og nefndist Brave New World (Veröld ný og góð), kom út árið 1932. Sú seinni var 1984 eftir George Orwell og kom út árið 1948. Báðar eru þær einskonar ffam- tíðarspár af þeirri fomu tegund bók- mennta sem gengur undir heitinu Útópía eða Staðleysa. Báðir leitast höfundamir við að gera sér grein fyrir hvemig heimurinn verði á sig kominn undir lok aldarinnar, en ganga út- frá gagnstæðum forsendum. Huxley gengur útfrá að tæknin muni bera mann- kynið ofurliði og gera alla andlega landvinninga lið- inna alda að hjómi einu, en Orwell gerir þvi á fæturna að kúgunaröflin muni fara með sig- ur af hólmi og hneppa mannkyn- ið í ánauð. Engan þarf að undra, að á árun- um eftir seinni heimsstyrjöld vakti bók Orwells snöggtum meiri athygli, enda var nasisminn þá ný- lagöur að velli og kommúnisminn í miklum uppgangi víða um heim. Var Huxley ekki glögg- sýnni? Þegar litið er á veröld samtím- ans, ofúrselda auglýsingafári, fjöl- miðlafrekju, amrískri kvikmynda- brjálun og allsherjaruppgjöf al- Kjallarinn Siguröur A. Magnússon rithöfundur mennings gagnvart ofurmagni einskisnýtra upplýs- inga, þá hlýtur niður- staðan að verða sú, að Huxley hafl verið glöggskyggnari á tím- anna tákn og sann- spárri um það sem verða mundi. Margir vörpuðu önd- inni léttar þegar árið 1984 leið hjá og ljóst var að spádómar Orwells um vægðar- laust lögregluríki höfðu ekki ræst, að minnsta kosti ekki á Vesturlöndum. Hins- vegar er svo að sjá sem hin nýja og góða veröld Huxleys sé óðum aö taka á sig mynd veruleik- ans. Orwell hélt að við mundum verða að þola áþján útífrá. Huxley gerði afturámóti ráð fyrir að ekki þyrfti neinn Stórabróður til að „Hinsvegar er svo að sjá sem hin nýja oggóða veröld Huxleys sé óðum að taka á sigmynd veruleikans.u ræna manninn sjálfræði sínu, þroska og sögu. Að hans mati mundi maðurinn smámsaman fá dálæti á andlegri áþján og fara að tilbiðja þá tækni sem rænir hann getunni til að hugsa. Orwell óttað- ist menn sem mundu banna og brenna bækur. Huxley óttaðist hinsvegar að ekki yrði neitt tilefni til að banna eða brenna bækur, meðþví ekki yrðu framar til menn sem kærðu sig um að lesa þær. Orwell óttaðist menn sem mundu leyna okkur upplýsingum. Huxley varaði við mönnum sem mundu flytja okkur svo gríðarlegt magn upplýsinga, að við yrðum óvirkir og sjálfhverfir. Orwell óttaðist að sannleikurinn yrði falinn fyrir okkur. Huxley óttaðist að sann- leikurinn mundi drukkna í synda- flóði af einskisnýtum upplýsing- um. Saga okkar og menntun hefur búið okkur í stakk til að rísa gegn kúgun og misbeitingu valds. Við grípum til aðgerða og jafnvel vopna gegn áþreifanlegri áþján. En hvað gerist þegar við hættum að heyra neyðarópin? Hver hefur kjark eða getu til að grípa til rót- tækra aðgerða gegn yfirfljótandi afþreyingu? Hvaða læknisdómur er til handa siðmenningu sem stendur á öndinni af hlátri hvað sem ískerst? Burt meö bókaskattinn Þetta kunna að þykja fáránlegar spumingar, en þær eiga áreiðan- lega eftir að verða áleitnar á næstu árum, eftir því sem aug- lýsendur ná sterkari tökum á fjöl- miðlum og fá því framgengt að allt dagskrárefni verði hannað sem rammi utanum auglýsingaboð- skapinn, þannig að mörkin milli dagskrárefnis og auglýsinga verði sem óljósust. Ég er ekki að and- mæla skemmtiefni í útvarpi eöa sjónvarpi, öðru nær, en ég vara eindregið við þeirri vaxandi til- hneigingu auglýsingaheimsins að gera allt að skemmtiefni - fréttir, pólitík, vísindi, hagfræði, trúar- brögð - og þeim augljósa háska að prentað mál, sem miðlar raun- verulegri fræðslu og leitast við að finna samhengi í því sem gerist, verði ofurliði borið. Þessvegna legg ég enn eina ferðina tO, að bókaskatturinn illræmdi veröi af- numinn án tafar. Sigurður A. Magnússon Skoðanir annarra Maöurinn gæti sín „Auðvitað getur tæknin fært mannkyn skrefi fram- ar á leið til farsælla lífs. Og vissulega megna tölvur og alnet og hvað það allt saman heitir að víkka út sjón- deildarhring til frekari skilnings og létta af erfiði sem fýrr beygði bak. En móttaka nýjunga má aldrei verða til þess að arfleifð glatist. Tækni og traust á framþró- un mega aldrei slá manninn þeirri blindu að hann hætti að hafa gætur á sjálfum sér, gleymi að efla rósemi hugar og skerpa skyldur við háleitar hugsjón- ir. Of mikið af svo til hverju sem er getur leitt i viílur og spillt í stað þess að byggja upp og gleðja.“ Herra Ólafúr Skúlason í Mbl. 3. jan. Arðvænlegasta fjárfestingin „Við verðum að líta í eigin barm. Allir sem bera ábyrgð á menntamálum á íslandi þurfa að lýsa sig reiðubúna að endurskoða eigin verk, meta kenningar og skipulag, starfshætti og kennslugögn með opnum huga, fúsir til breytinga og nýrrar sóknar. Þótt margt megi reyndar bæta án nýs fjármagns er menntunin tví- mælalaust arðvænlegasta fiárfestingin. Þjóðir sem van- rækja þá undirstöðu úrskurða eigin lífskjör úr leik á samkeppnisvelli veraldarinnar.“ Herra Ólafúr R. Grímsson í Mbl. 3. jan. Ríkissjóður hallalaus „Hinn sameiginlegi sjóður landsmanna, ríkissjóður- inn, verður ekki rekinn með halla á nýja árinu. Það er að sönnu mikill viðburður en ætti í raun réttri aðeins að vera sjálfsögð skylda og ekkert þakkarefni. Það var löngu kominn tími til að ríkið byrjaði að borga niður skuldir sínar og lækka yfirþyrmandi vaxtabyrði. Hallalaus ríkisrekstur mun fyrr en margur ætlar leiða til þess að vextir í landinu fari lækkandi þar sem rík- issjóður mun draga úr gegndarlausri áksókn sinni í sparifé landsmanna. Lækkandi vextir munu hjálpa fólkinu í landinu við að grynnka á eigin skuldum og bæta á sama tíma hag fyrirtækjanna. Svigrúm þeirra til kauphækkana mun því aukast þegar fram líða stundir. Davíð Oddsson í Mbl. 3. jan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.