Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1997, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1997, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 Fréttir Sala Hrannar hf. á ísafirði til Samherja á Akureyri: Guðbjörgin breyttist í gull og sjö hluthafar fá um tvo milljarða - urðum að breyta til, segir Marías Þ. Guðmundsson, með á fjórða hundrað milljónir í höndunum Eignir Hrannar hf. Eignaskipting hluthafa Hrannar hf. Kvóti: Þorskur Ýsa Ufsi Karfi Steinbítur Grálúða Skarkoli Úthafsrækja 946 milljónir 86.920 þús. 21.900 þús. 163.890 þús. 3.960 þús. 80.000 þús. 4.450 þús. 50.000 þús. Kvóti samt.: ca 1,4 milljarðar Húseignir: 25 milljónir Hrein eign í Guðbjörgu ÍS: 500 milljónir Samtals: 1,9 milljarðar Önnur systkinl Ásgeirs 152 milljónir Guðmundur Guðmundsson Ásgeir Guðbjartsson 570 milljónir 323 milljónir m 4tr " Marías Þ. Guðmundsson 380 milljónir Margrét Guöbjartsdóttir DV „Við höfum haft mikla ánægju af þessu starfi og hvað það hefur gengið vel í gegnum árin. Við sáum hins vegar að við þurftum að breyta um, við áttum ekki nógan kvóta til að tryggja rekstur Guðbjarg- arinnar og þess vegna var gripið til þessa ráðs,“ segir Marías Þ. Guðmundsson, einn af stærstu hluthöfun- um í Hrönn hf. sem nú hef- ur sameinast Samherja. Kaup Samherja á Akur- eyri á útgerðarfélaginu Hrönn hf. ísafirði og á tog- aranum Guðbjörginni ÍS hafa vakið blendin við- brögð á Vestfjörðum þótt fullyrt sé bæði af eigendum Hrannar og Samherja að Guðbjörgin verði áfram gerð út frá ísafirði. í með- fylgjandi grafi er reynt að slá verði á Hrönn og eignir hennar við yfirtöku Sam- herja og mun láta nærri að seld hafi verið verðmæti í kvóta og öðrum eignum fyrir 1,9 milljarða króna. Það má þvi segja að Gugg- an hafi breyst í gull í einu vetfangi. „Guðbjörgin verð- ur áfram á ísafirði undir sínum lit og sínum ein- kennum og það er okkur mikils virði,“ segir Marías. Marías Þ. Guðmundsson vildi ekki gefa upp hve hátt hlutfallslega Hrönn hefði verið metin inn í Samherja við kaupin á fyrirtækinu, en orðrómur hefur verið um það að sú tala sem gengið var út frá í þeim þreifingum milli Hrannar og Samherjamanna, sem áttu sér stað fyrir jól, hafi verið 6%, þ.e.a.s. kvóti Guðbjargarinnar, Guð- björgin sjálf, sem metin er á 1,5 múljarða króna, en þar af eru skuldir milljarð- ur. Til viðbótar komi fast- eignir og lausafé. „Þetta er fráleit tala,“ sagði Marías við DV. Hann vildi enga tölu nefna í þessu sam- bandi, en hló við þegar tal- an 10% var nefnd. Að sögn Maríasar eru engir peningar sem fara á milli manna við kaupin, heldur er Hrönnin ásamt öllum gögnum og gæðum metin inn í Samherja og strax og gengið hefur verið frá kaupunum með lög formlegum hætti fáum við hlutabréf í Samherja út frá eignarhluta okkar í heild- arpúlíunni," segir Marías. Eigendur Hrannar voru systkinin Ásgeir, Margrét, Ragn- heiður, Hörður og Guðbjartur Guð- bjartsböm, Marías Þ. Guðmundsson og Guðmundur Guðmundsson, bróðir Maríasar. Enginn eigend- anna hefur viljað láta uppi um eign- arhlut hvers og eins, en eftir því sem DV kemst næst mun Ásgeir Guðbjartsson hafa verið stærsti hluthafinn með um 30% eignarhlut, Margrét systir hans komið næst með um 25%, þá Marías Þ. Guð- mundsson með 20% og Guðmundur bróðir hans með um 17%. Láta mun nærri að samanlagður eignarhlutur þeirra Ragnheiðar, Harðar og Guð- bjarts Guðbjartssonar sé um 8% og skiptist hann jafnt milli þeirra mun láta nærri að þau hafi eignast rúm- lega 50 milljóna króna hlut í Sam- heija. Þau hlutabréf sem stærsti hlut- hafinn, Ásgeir Guðbjartsson, mun fá í hendur verða líklega með stærri tölu á, eða um 570 milljónir króna. Hlutur Margrétar verður um 475 milljónir króna, Maríasar um 380 milljónir króna og Guðmundar ríf- lega 320 milljónir. Eftir að búið verður að ganga lög- formlega frá þessum kaupum, sem að sögn Maríasar verður trúlega í lok febrúar eða í byrjun mars, er ætlunin að setja hlutafélagið Sam- herja á almennan hlutaijármarkað. Samherji er nú talinn vera virði um 10 milljarða króna, en þvi hefur ver- ið spáð að gengi bréfanna á markaði verið mjög hátt. -SÁ Guðmundur Guðmundsson. Asgeir Guðbjartsson. Marías Þ. Guðmundsson. Ásgeir Guðbjartsson, fyrrverandi skipstjóri: bláfátækur á morgun Get orðið „Ég veit ekkert hvort við erum eitthvað ríkari en aðrir, það hef ég ekki hugmynd um. Maður getur orðið bláfátækur á morgun því þannig er það í sjávarútveginum," sagði Ásgeir Guðbjartsson, skip- sijóri og stærsti hluthafi Hrannar hf., við DV í gærkvöldi. Hann sagði algerlega bannað að ræða um peninga í sambandi við söluna til Samherja en markmiðið hefði verið að gera gott fyrirtæki betra. „Fyrirtækið er að fara út á frjálsa markaðinn og þá koma all- ir peningarnir og þá kemur þetta allt í ljós,“ sagði Ásgeir. „Þaö sem eiginlega er verið að gera er að úr- elda mig og fleiri, en maður er kominn á aldur, maður lifir ekki fleiri kynslóðir, því miður," sagði Ásgeir Guðbjartsson. SÁ ^ Heilsuátak DV, Bylgjunnar og World Class: Eg er skyndibitasjúkur - segir Gunnlaugur Helgason útvarpsmaður „Eg stundaði líkamsrækt til þess að geta borðað það sem mig langar í. Ég er matfíkill og skyndibitasjúk- ur. Mér finnst æðislega gott að borða góðan mat,“ sagði Gunn laugur Helgason, eða Gulli Helga eins og hann er kallaður, útvarpsmaður á Bylgjunni. Hann ætlar nú að taka sig á og leyfa okkur að fylgjast því með hvemig hann kemur sér i betra form á meðan heilsuátakið stendur yfir. Hann stefnir líka að því að hætta að reykja. „Ég er búinn að vera í pásu í allt sumar og það sem af er vetri. Áður æfði ég 5-6 daga vikunn- ar og bjó til mitt eigið prógramm sem ég breytti daglega til að æfa mis- munandi vöðva. Grunn- urinn er góður því ég er bú- inn að vera í íþróttum frá því ég var polli, en það er snjólag yfir túninu í dag,“ sagði Gulli. Aðspurður sagðist hann aldrei svelta sig. „Ég verð svo skapvondur þegar ég er svangur að það hálfa væri nóg, þá er eins gott fyrir fólk að forða sér. Ég minnka í staðinn kökuát, sykur- át, pitsurnar og fituna. Fer meira út í pasta og ávexti í staðinn og borða All bran með rúsínum og undanrennu í v morgunmat. Það er algjör sprengja á morgnana og hreinsar mann að innan.‘ Geröist eitthvaö í líkamanum „Á 25 ára af- mælisdaginn gerðist eitthvað í líkamanum þannig að það magn sem ég borðaði áður varð ég að minnka um y3. Ég gerði það að sjálfsögðu ekki og fór því úr 78 kg upp í tæp 90 kg. Ég hætti líka að hreyfa mig á þessmn tíma. Svo tók ég mig á fyrir tveimur árum. Þá var ég samkvæmt fitu- mælingu 27,8% fita í janúar en kominn nið- ur í 15% í mars. Um mán- aðamótin apríl-maí var ég svo kominn niður í 13% án þess meira að segja að neita mér um rosalega rnargt," sagði Gulli sem þá náði sér aftur niður í 79 kg en hefúr síðan verið að fitna og grennast á víxl. „Þetta er spurningin um að hreyfa sig og borða rétt, það tók mig langan tíma að kom- ast að þvi. Svo er annað, þeg- ar fólk hefur stundað líkams- rækt í 2-3 mánuði breytist hugarfarið og maður ósjálfrátt borðar hollara fæði til að eyði- leggja ekki árangurinn af æfing- unum,“ sagði Gulli. 21,3% fita Gulli fór í vigtun og fitumæl- ingu hjá Sölva Fannari Viðars- syni í World Class á miðvikudag- inn og þá voru málin þessi: þyngd: 90,2 kg fita: 21,3% ummál læra: 65 sm ummál kálfa: 41 sm ummál mittis: 93 sm ummál brjósts: 105 sm ummál upphandleggs: 35 sm ummál framhandleggs: 31,5 sm og nú er bara að sjá hver árang- urinn verður í lok átaksins. -ingo Gulla brá í brún þegar hann steig á vigtina en hún sýndi 2 kg meira en bað- vigtin heima. Þá rifjaöist upp fyrir honum aö vigtin heföi einhvern tímann „lent í baöi“. DV-mynd Þjetur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.