Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1997, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1997, Blaðsíða 11
JL>V FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 fáenning Kúrsinn tekinn Norræna húsið fyrir börn Á morgun kl. 14 verður bamadagskrá í Norræna hús- inu og sérstakt „barnaher- bergi“ opnað undir bókasafn- inu. Á sunnudaginn kl. 14 verð- ur svo kvikmyndasýning að venju hússins, sænska fiöl- skyldumyndin Linnea i málarens trádgárd. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. j Vegna mikillar aðsóknar hef- ur Gunnar Guðbjömsson tenór- | söngvari frestað för sinni utan Ií og ætlar að endurtaka tónleika sína i Gerðubergi í kvöld kl. 20.30. Gagnrýnandi DV sagði I pistli um fyrstu tónleikana að Gunnar hefði „eina fegurstu söngrödd sem ómar á íslandi í dag“ - og það era engar ýkjur. Það er líka greinilegt að landar hans kunna að meta hann. Á tónleikunum flytur Gunn- ar meðal annars fallega ástar- ljóðið Adelaide eftir Beethoven, söngvasveiginn Ástir skálds eft- ir Schumann við ljóð Heine, svo ekta rómantísk í sterkum andstæðum harms og gleði með hæðnislegum tvískinnungi og 1 jafnvel gamansemi á milli, og nokkur ítölsk sönglög. Að sjálf- sögðu leikur Jónas Ingimund- arson með Gunnari. I Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir Hanna María Karlsdóttir, Guðrún Ásmundsdóttir og Egili Ólafsson í hlutverkum sínum í Dómínó, fyrir ofan glittir í Haildóru Geirharösdóttur í hluverki óstýrlátu dótturinnar. DV-mynd Pjetur Sá þrettándi til borðs Listaklúbbur Leikhúskjallar- ans tekur til starfa á ný eftir jólafrí á mánudagskvöldið. Þá verða þar umræður um siðferð- isspumingar í Villiöndinni eft- ir Henrik Ibsen, sem var frum- sýnd á stóra sviði Þjóð- leikhússins um jól- in. Leikararnir Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Pálmi Gestsson, Edda Heiðrún Bachman, Sig- urður Sigur- jónsson og Sigurður Skúlason munu Þessari fallegu fjöl- Ayt)3 atriði skyldumynd er Úr verkinu, splundraö f Villiönd- en síðan inni. Spurningin er verður sett hvort þaö er siöferöi- na]1. lega rétt eöa ekki? PPP P^U borð undir stjóm Mel- korku Teklu Ólafsdóttur leikli- starfræðings. Þátttakendur í því verða heimspekingarnir Vilhjálmur Ámason og Þor- steinn Gylfason, Ólafur Gunn- arsson rithöfundur og guðfræð- ingamir Haukur Jónasson og Arnfríður Guðmundsdóttir. Húsið verður opnað kl. 20.30, en dagskrá hefst kl. 21. Aö- gangseyrir er 600 kr. en aðeins 400 fyrir meðlimi klúbbsins. Gunnar syngur í þriðja sinn Það er vel við hæfi að hefja 100. af- mælisár Leikfélags Reykjavíkur á því að flytja eitt af verkum Jökuls Jakobssonar og þar með má segja að kúrsinn sé tek- inn. Ætlunin er gera veg íslenskrar leik- ritunar sem mestan á árinu og hvað á þá betur við en að líta til Jökuls áður en lagt er til atlögu við ný verk? Saga hans sem leikskálds er nátengd gamla Iðnó og L.R. og á þeim árum, þegar hann skrif- aði hvert verkið á fætin’ öðra, fór frísk- ur og skapandi gustur um islenskt leik- húslíf. Jökull er enn meðal fremstu íslenskra samtímaleikskálda. Það sést vel í sýn- ingunni á Dómínó sem í vandaðri svið- setningu Kristinar Jóhannesdóttur á Litla sviði Borgarleikhússins er i senn gamalkunnugt og splunkunýtt. Verkið hefur mörg höfundareinkenni Leiklist Auður Eydal Jökuls. Hálfkæringur helst i hendur við alvöru. Fortíð og framtíð blandast vem- leikanum á líðandi stund, þannig að á stundum verður ekki greint þama á milli. Möndull verksins snýst um að- komumanninn, sem kemur aftur eftir langa fjarveru og hér heitir hann ein- faldlega Gestur. Koma hans vekur upp minningar og skekur undirstöður hvers- dagslífsins hjá þeim sem heima fyrir em. I kjölfarið fylgja tímabær uppgjör, sem breyta svo sem ekki neinu þegar allt kemur til alls. Það sést glöggt í Dómínó að styrkur Jökuls liggur ekki í tilfinningagosum eða stórkostlegum dramatískum svipt- ingum heldur hvassri, kannski ögn hæðnislegri sýn á samfélagið í samskipt- um persónanna og uppbyggingu verks- ins, sem sviðsetningin á Litla sviðinu dregur vel fram í hægum straumi. Framvindan ber einstöku sinnum keim af absúrdleikhúsi, persónumar eru frekar staðlaðar týpur við fyrstu sýn en smíðaðar af kunnáttu sem ekki bregst. Undir kraumar kald- ranaleg sýn á bjástur nútímamannsins og stöðluð áhyggjuefni hans sem virðast ekki hafa breyst ýkja mikið frá ritunartíma verksins. Egill Ólafsson leikur hinn dularfulla Gest, sem virkar eins og efnakljúfur á fjölskyldu gestgjafanna, Margrétar og Kristjáns. Egill hefur á sér hæfilega framandi blæ, hann leikur þetta hlut- verk á dýptina og tekst virkilega vel að höndla kjamann, sem nauðsynlegur er til þess að verkið fái kjölfestu. Hanna María Karlsdóttir er í hlut- verki Margrétar, sem er ófullnægð og taugatrekkt nútímakona í hvítri plast- veröld. Hún var glæsileg og sýndi vel tvískinnunginn í tilveru Margrétar, allsnægtir á ytra borði, svíðandi sárs- auka undir niðri. Þó brá einstöku sinn- um fyrir töktum sem jöðruðu við ofleik og voru óþarfir. Eggert Þorleifsson túlkaði Kristján mjög vel og kom eiginlega á óvart, því að oftar tekst hann á við sérgrein sína, gcimanleikinn. En hér mátti sjá að Egg- ert hefur alla burði í hlutverk sem eru brydduð alvöra þó að vissulega fengi hann líka tækifæri til að bregða á leik. Halldóra Geirharðsdóttir virtist í fyrstu ætla að gera fremur kunnug- lega hluti sem óstýrilát dóttir þeirra hjóna, en eftir því sem á leið þéttist og dýpkaði túlkun hennar. Vel gert hjá Halldóru. Margrét Ólafsdóttir lék Lovísu, sem er flúin á náðir flöskunnar. Hún er kómisk og tragísk í senn eins og fleiri persónur verksins, eftirsjá og tregi verða vel sjáanleg og persónan fær vægi. Guðrún Ásmundsdóttir leikur snobbkerlinguna Sofflu, sem er allt að því farsakennd persóna í verkinu og líka þannig leikin. Leikmynd er falleg og gefur sýning- unni bjart yfirbragð. Stígur Steinþórs- son á heiðurinn af henni og búningun- um sem era útfærðir með stíl. Leikfélag Reykjavíkur sýnir á Litla sviði Borgarleikhúss: Dómínó eftir Jökul Jakobsson Leikhljóð: Ólafur Örn Thoroddsen Lýsing: Ögmundur Þór Jóhannesson Leikmynd og búningar: Stígur Steinþórsson Leikstjórn: Kristín Jóhannesdóttir Raddfegurð og kátína Hinir árlegu Vínartónleikar Sinfóníuhlj.ijm- sveitar íslands voru haldnir fyrir fullu húsi í gærkvöld. Tónleikamir era númer tvö í grænni tónleikaröð, en vinsældimar era slíkar að í ár era aukatónleikamir þrennir. Stjórnandi er Páll P. Pálsson, einsöngvararnir þau Rannveig Fríða Bragadóttir og Ólafur Ámi Bjamason og konsert- meistari Guðný Guðmundsdóttir. Greinilega höfðu fleiri en undirrituð lent í Ólafur Árni Bjarnason. ófyrirsjáanlegum hremmingum á leið sinni á tón- leikana. Við hlýddum því á forleik eftir Suppé gegnum hinar dempandi dyr bíósalarins og þust- um svo þakklát i sætin Það er vandaverk að setja saman efnisskrá fyr- ir þessa tónleika. Fyrst er að hafa í huga að lík- legt er að stór fjöldi gesta séu fastagestir á þá og hafi því þegar heyrt mikið af því sem kannski er vinsælast innan þessa ramma. Hljómsveitin má ekki bara þurfa aö endurtaka sig og verkefnin verða að henta einsöngvuranum vel. Ekki var annað að heyra en vel hefði tekist til í þetta skipti. Sístur var kannski vals eftir Josef Strauss, en bróðir hans átti flest verkanna og var allt frá hans hendi mjög frambærilegt. Aðrir sem leikið var eftir vora Johann Strauss eldri, Lehár, Stolz og Kálmán. Það var eins og tvær hljómsveitir hefðu skipt með sér verkum í gærkvöldi. Fyrir hlé lék sú hin þyngri og áhugalausari. Meðlimir geispuðu yfir einsöngviu-unum, léku taktfast og danslaust og gerðu sér upp lítt smitandi léttleika. Þó mátti í siðasta verki fyrir hlé heyra meiri leikspennu af hverju sem það stafaði. Eftir hlé mætti sveit öflu meira lifandi hljóð- færaleikara. Samleikur var aflur mun léttari, sveifla meiri og flutningurinn bragðmeiri. Hljóð- færaleikur var almennt góður, en að öðrum sem léku einleiksstrófur ólöstuðum þá hirða þeir Ein- Tónlist Sigfríflur Bjömsdóttir ar Jóhannesson klarinettuleikari og Kristján Stephensen óbóleikari hólið fyrir leik sinn í for- leiknum að Sígaunabaróninum eftir Johann Strauss. Einsöngvararnir stóðu sig mjög vel. Ólafur Árni er vaxandi tenórsöngvari; röddin styrkist með hverju árinu, situr betur og hann nær æ meira valdi á henni. Hinir sveiflandi söngvar Vínarbúanna eru greinUega ekki hans sterka hlið, ekki sist fyrir hið næma taktskyn sem þeir krefjast. Ólafur söng þó margt vel og glæsUeiki raddarinnar duldist engum sem á hlýddi. Hann hefur gaman af þvi sem hann er að gera og gat með glensi fangað salinn; skemmtUeg sviðsfram- koma. Rannveig Friða hefur óvenjuhljómfagra og tæra mezzosópran rödd. Hennar eini vandi er að röddin er ekki mjög stór á neðri hluta tónsviðs- ins og hlýr liturinn rennur á stundum um of sam- an við hljómsveitina. Flutningur hennar ein- kenndist af öryggi og vandvirkni samfara söng- gleði og mjög góðri túlkun. Hápunkti tónleikanna hvað varðar tónlistarflutning var kannski náð með flutningi hennar á Draussen in Sievering úr „Die Tanzerin Fanny Elssler" eftir Johann Strauss. Fjörið á Vínartónleikum Sinfóníuhljómsveitar- Rannveig Fríöa Bragadóttir. innar náði þó fyrst hámarki þegar auglýstri dag- skrá var lokið og aukalög vora flutt með hinum kúnstugustu tUburðum. Stjómandanum, sem vart hafði vikið af sviðinu, hafði tekist að rífa upp hljómsveitina og styðja vel við okkar ungu söngvara. Vel heppnaðir tónleikar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.