Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1997, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1997, Blaðsíða 20
32 “1“ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 Sviðsljós Eiturgas við upptökurnar Sigoumey Weaver er sjáifsagt ýmsu vön sem kvenpersónan óg- urlega í Alien-myndunum, hefur þar komist í kynni við eiturgufur af ýmsu tagi. Við upptökur á fjórðu myndinni í Alien-flokknum gerðist það að einhver lofttegund fór að streyma inn á sviðið svo flytja þurfti alla á brott. Engan sakaði. Vandræðagangur með 18. myndina um njósnara hennar hátignar: Ef James Bond gæti nú bara skot- ið upp kollinum í alvöruheiminum okkar eitt andartak og bjargað að- standendum sínum úr klípunni, sem þeir eru komnir í, yrðu margir honum ævinlega þakklátir. En, því miður, þaö er sjálfsagt ekki hægt. Á sama tíma halda vandræðin bara áfram að hlaðast upp. Átjánda kvikmyndin um ævin- týri ofurhetjunnar og njósnara hennar hátignar, James Bond, hefur verið í undirbúningi frá árinu 1993 þegar hafist var handa við að skrifa handritið. Um áramót var skrifhm- um ekki enn lokið og ekki var einu sinni komið nafn á væntanlega mynd, annað en einfaldlega James Bond 18. Þá er ekki enn búið að ráða neina leikara, nema að sjálf- sögðu Pierce Brosnan sem leikur hetjuna. Og kvikmyndatökur eiga að hefjast í vor, eða þannig hljóðar að minnsta kosti áætlunin. Anthony Hopkins hafði fallist á að leika erkibófann í nýju myndinni en vegna sífelldra tafa hætti hann við og tók þess í stað að sér að leika á móti Antonio Banderas í mynd um grímuklædda sverökappann Zorro. Ekki tekur betra við þar sem Bond-stúlkan er annars vegar. Hennar hefur verið leitað með log- andi ljósi, án árangurs. „Þeir hafa fengið í prufu hverja einustu unga fallega stúlku sem þeim hefur dottið í hug og getur leikið og þeir hafa ekki enn fundið það sem þeir eru að leita að. Það er sosum ekki undarlegt þar sem þeir vita ekki að hverju þeir eru að leita. Pierce Brosnan og íturvaxin Bond- stúlka. Þeir eru ekki einu sinni komnir með endanlegt handrit,“ segir leik- kona ein sem ekki vill láta nafns sins getið. Forráðamenn MGM kvikmyndafé- lagsins í Hollywood eru að vonum orðnir áhyggjufúllir þar sem þeir treysta því að væntanleg Bond-mynd eigi eftir að bjarga þeim úr fjárhags- kröggunum sem þeir eru í. Fyrsta myndin með Brosnan í hlutverki Bonds, Guilauga, gaf af sér rúma tvo milljarða íslenskra króna. Leikstjóri Gullauga var Martin Campbell en aðstandendum tókst ekki að tryggja sér þjónustu hans heldur réðu þess í stað Roger Spottis- woode. Hann gerði þá frábæru blaða- manna- og byltingarmynd Under Fire, með Nick Nolte og Gene Hack- man, en einnig þá hálfmisheppnuðu Air America með Mel Gibson. Aðdáendur Bonds bíða spenntir. Mel Gibson í augu snáksins Svo kann að fara að ástralski hjartaknúsarinn og stórsjarmör- inn Mel Gibson leiki leynilöggu í næstu mynd sinni. Eins og hann hafi nú ekki gert það áður. Mynd- in heitir Augu snáksins og segir frá leynilöggu einni sem verður vitni að því þegar vamarmálaráð- herra Bandaríkjanna er myrtur á hnefaleikakeppni. Oprah verður í þrælamynd Bandariska sjónvarpskonan Oprah Winfrey hefur í hyggju að framleiöa og fara með aðalhlut- verkið í mynd um ambátt sem er heltekin minningunni um bamið sitt sem hún varð að bana fyrir mörgum ámm. Um er að ræða mynd sem byggð er á skáldsögu blökkukonunnar Toni Morrison, Beloved. Breska stórverslunin Harrods hefur það fyrir sið á hverju ári að fá einhverja heimsfræga persónu til að opna útsöl- una hjá sér. Ekki var brugðið út af vananum í vikunni þegar bandaríska leikkonan Goldie Hawn var fengin til verks- ins. Hér má sjá Goldie með eiganda Harrods, Mohamed Al Fayed, og fer greinilega vel á með þeim. Á útsölu Harrods eru vörurnar seidar með allt að fimmtfu prósenta afslætti. Símamynd Reuter |#lll|#lgl#i!i%A -Eæa MmmmunsiMi Verð aðeins 39,90 mín. Þú þarft aðeins eitt símtal í Kvikmyndasíma DV til að fá upplýsingar um allar sýningar kvikmyndahúsanna t DV KVIKMYNDAs/m/ 9 0 4 • 5 0 0 0 Harrison Ford í róm- antískri gamanmynd Þótt Harrison Ford sé alla jaftia eins og steinrunninn í framan og langt frá því að brosa hefur hann þó fengið að spreyta sig í rómantfskum gamanmynd- um. Framhald verður þar á með myndinni Sex dögum, sjö nóttum þar sem vonast er til að hann leiki á móti Kristin Scott Thom- as. Upphaflega stóð til að Julia Roberts færi með aðalkvenhlut- verkið en svo verður þó greini- lega ekki, sem betur fer. Joan Collins hlær og leggur inn á reikning Sá hlær best sem síðast hlær og þar hlær breska leikkonan Joan Collins hæst allra. Hún hefur líka æma ástæðu til. Joan fékk um sjötíu milljónir króna í fyrirframgreiðslu fyrir bók- arhandrit frá útgáfufyrirtækinu Random House. Þegar tii kom reyndist handritið svo illa skrifað að forlagið treysti sér ekki til að gefa það út og krafði leikkonuna um fyrirframgreiðsluna. Hún neit- aði og þar með fóru máiaferlin í gang. í undirrétti féll dómur á þá leið Joan Collins. að Joan skyldi halda fyrirfram- greiðslunni, jafhvel þótt bókin væri léleg. Allt benti til að málinu yrði áfrýjað en svo fór þó ekki. Random House hefur sem sé fall- ist á dómsátt og um leið hefur fyrir- tækið fallist á að skýra aldrei frá innihaldi samkomulagsins. Annað bindi endurminninga leik- konunnar er væntaniegt á markað innan skamms og í því verður kafli um slag hennar við forlagið fræga. Joan Collins er sennilega frægust fyrir að leika hina grimmlyndu Álex. Bond klár en óvininn og stúlkurnar vantar t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.