Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1997, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1997, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 Fréttir Sláturhús Patreksijarðar selt fyrir aðeins 700 þúsund á nauöungaruppboði: Fékk fasteignina á algeru gjafverði - segir Oddur Guðmundsson kaupandi - bæjarstórn Vesturbyggðar viðurkennir að mistök hafi átt sér stað „Ég fékk fasteignina á algeru gjafverði en það bauð enginn betur þannig að ég fékk húsið. Það kom vissulega á óvart að enginn kom frá bæjarstjóm eða bændum á uppboð- ið. Þetta var löglegt á allan hátt enda auglýst í blöðum og Lögbirt- ingablaðinu," segir Oddur Guð- mundsson, nýr eigandi að slátur- húsi Patreksfjarðar, en hann keypti húsið á aðeins 700 þúsund krónur á nauðungaruppboði sl. miðvikudag. Verð fasteignarinnar er með ólík- indum lágt þegar að því er gáð að fasteignamat hússins er rúmar 29 Mjög mikil og vaxandi andstaða er við byggingu álversins á Grund- artanga meðal ibúa á Vesturlandi og er verið að skipuleggja mót- mælakstur fólks á laugardaginn kemur frá Akranesvegamótum til Reykjavíkur. Finnur Ingólfsson iðn- aðarráðherra hefur verið beðinn um að vera á vinnustað sínum í iðn- aöarráðuneytinu þegar bilalestin kemur þangað síðdegis. Síðasti skiladagur athugasemda við starfsleyfi nýs álvers að Grund- artanga var í gær og bárust meðal annars athugasemdir frá hrepps- nefnd Kjósarhrepps, Veiðifélagi Kjósarhrepps og fjölda einstaklinga. Jón Gíslason, bóndi á Hálsi í Kjós og formaður Veiðifélags Kjósar- hrepps, segir við DV að gera megi milijónir króna og brunabótamat er rúmlega 114 milijónir. Lögfræðingur á vegum trygginga- félagsins VÍS, sem tryggöi húsið, og Stofnlánadeildar landbúnaðarins, sem var stærsti kröfuhafi þess, bauð 500 þúsund krónur í sláturhús- ið á uppboðinu. Oddur bauð því næst 700 þúsund og var slegin eign- in. Það vekur eftirtekt að fulltrúar bæjarstjómar Vesturbyggðar, sem átti hátt í tveggja milljóna króna kröfu í sláturhúsinu, mættu ekki á uppboðiö sl. miövikudag. ráð fyrir því að nærvera stóriðju á Grundartanga hafi dregið um 30% úr tekjum af veiði í Laxá undanfar- in sjö ár og megi rekja verulegan hluta þessa tekjutaps til sjónmeng- unar frá Gmndartanga og ótta um aðra mengun þaðan. Jón segir að andstæðingum stór- iðju i Hvalfirði hafi borist nokkurra ára gömul rannsóknarskýrsla sem þýsk vísindakona gerði um stóriðj- umengun á íslandi en samkvæmt nið- urstöðum hennar hafi mengun frá Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi borist inn fyrir Eyri í Kjós og meng- un frá jámblendiverksmiðjunni á Grundartanga hafi mælst sunnan við Reykjavík. Þessar niðurstöður séu á skjön við það álit umhverfisráöuneyt- isins að slíkt sé óhugsandi. -SÁ Búiö aö vera ófremdarástand „Það er búið aö vera ófremdar- ástand með sláturhúsið og það raunverulega að óþörfu. Það hefði verið hægt að nýta húsið miklu bet- ur ef samstaða bænda hér í sveit- inni hefði verið meiri og fleiri grip- um slátrað hér. Það er verið að fara suður í Búðardal og norður á Hvammstanga til að slátra og það gengur auðvitað ekki. Ég hef verið að skoöa hvað verð- ur gert og hvort bændur hafa ein- hvern áhuga á að slátra héma áfram. Það verður þá að vera í miklu meiri heild og fleiri þurfa að koma til svo mögulegt sé að reka þetta sem sláturhús. Það kostar mig á annað hundrað þúsund krónur að reka húsið á mánuði. Húsiö er auð- vitað lítils virði ef það verður ekk- ert notað en ég lít á mig sem bjart- sýnismann og ég ímynda mér að það sé hægt að gera eitthvað gott hér,“ segir Oddur. Nauðungarsala á sláturhúsinu átti upphaflega að fara fram sl. vor en var frestað þar til sl. miðviku- dag. Sláturhúsið á Patreksfirði var byggt árið 1980. Það var upphaflega byggt sem frystihús en síðan breytt í sláturhús og Sláturfélag Vestur- Barðstrendinga rak húsið fyrstu árin. Það fór siðan á nauðungarsölu árið 1993 og var þá samið að sam- Oddur Sigurðsson keypti sláturhúsið á aðeins 700 þúsund krónur. vinnufélag bænda í sveitinni, Napi, tæki við rekstrinum eina sláturtið. Það gekk ágætlega upp og KS kjöt- vinnsla í Reykjavík, sem keypt hafði kjöt af húsinu, fór í félag við Napa og fyrirtækið Dorri hf. var stofnað. Dorri hf. keypti húsið árið 1994 en gekk illa og Napi var látinn slátra síðustu tvö ár með litlum sem engum árangri. Sofnuöu á veröinum ..Það vora stórmistök hjá bæjar- stjóminni að koma ekki á uppboðiö og bjóða í húsið. Það má segja að sveitastjómin hafi sofið á verðinum að bjóða ekki alla vega þá upphæð sem hún átti kröfu í þama. Þessi vinnubrögð bæjarstjórnar era með ólíkindum," segir athafnamaður á Vestfjörðum, en hann vildi ekki láta nafns síns getið. Áttu sér staö mistök „Ég viðurkenni að þama áttu sér stað ákveðin mistök en ég vil ekki tjá mig frekar um þau. Við erum hins vegar búnir að krefjast þess að uppboðið verði endurtekið. Það eru allar lagalegar forsendur fyrir því ef boð er talið óeðlilega lágt miðað við verðmæti fasteignar. Lögfræðingur bæjarstjómar er að vinna í þessu máii,“ segir Haukur Már Sigurðar- son, ritari bæjarstjómar Vest- urbyggðar. -RR Fréttir Ríkið afsali meirihluta Elkem í Noregi vill að íslenska ríkið afsali sér meirihlutaeign í ís- lenska jámblendifélaginu um leið og verksmiðjan verði stækkuð á kostnað Elkem. Stöð 2 sagöi frá. Formaöur í húsnæðis- vanda Formanni Leigjendasamtakanna hefúr verið hótað útburði úr fé- lagslegu húsnæði á vegum Reykja- víkurborgar vegna húsaleigu- skulda. Alþýðublaðið segir frá. Steingrímur styður andóf Oddviti Kjalaméshrepps segir að Steingrímur Hermannsson, seðlabankasfjóri og fyrrverandi forsætisráðherra, hafi lýst yfir stuöningi viö andóf gegn álveri á Grundartanga. Stöð 2 sagði frá. Ólögleg augtýsing Samkeppnisstofiiun telur aug- lýsingu Brimborgar um „fislétta fjármögnun" ólöglega þar sem hvergi komi fram verð bílanna sem auglýstir em, afborganir eða lánsfjárhæð, né hvort um sé að ræða kaupleigu. Stöð 2 sagði frá. Nýjum bílaálögum mótmælt Hugmyndum fjármálaráðu- neytisins um að leggja innflutn- ingsgjöld á bíla eftir þyngd og vélarstærð hafa vakið litla hrifii- ingu innflytjenda bandarískra bíla. Jöfur, sem flytur inn Chrysler-bíla, hefur leitað full- tingis bandaríska sendiráðsins gegn hugmyndunum. Morgun- blaöið segir frá. -SÁ Álver Columbia á Grundartanga: Mótmælaför á fund Finns - mikil og vaxandi andstaöa Jón Gíslason, bóndi á Hálsi f Kjós og formaöur Vei&ifélags Laxár, afhendir starfsmanni mengunarvarnadeildar Hollustuverndar athugasemdir viö starfsleyfi Columbia-álversins á Grundartanga. DV-mynd Hilmar Þór Sláturhús Patreksfjaröar sem seit var á nau&ungaruppbo&i sl. mi&vikudag. Fasteignamat hússins var rúmar 29 milljónir en húsiö var selt á 700 þúsund. Heilbrigðisfulltrúi Vesturlands: Ekki of seint að andmæla Ég vísa á bug ummælum Finns Ingólfssonar iðnaðarráðherra á bak- siðu DV í gær um að of seint sé að mótmæla byggingu álvers á Grund- artanga, en lokafrestur til að gera athugasemdir við starfsleyfistillögur Hollustuverndar rann ekki út fyrr en á miðnætti í nótt,“ segir Dagmar Vala Hjörleifsdóttir, hehbrigðisfull- trúi Vesturlands Dagmar Vala bendir á að úr- skurður skipulagssljóra um stað- setningu álversins á Grundar- tanga hafi á sínum tíma verið kærður til umhverfisráðuneytis- ins og fyrr en það var búið að af- greiða kæruna, gátu tillögur Holl- ustuvemdar ekki legið fyrir og þar með ekki hægt að gera athuga- semdir fyrr en nú. -SÁ Lægsta skor í framlengingu Úrslit Ieikja í bandaríska körfú- boltanum í nótt: Cleveland-Atlanta ........79-93 Miami-Washington..........99-95 New Jersey-Orlando .... 111-114 Philadelphia-Utah ........96-97 Dallas-Phoenix...........98-105 Denver-Charlotte .......100-102 Tvo leiki varö aö framlengja í nótt. Utah Jazz sigraöi Piladelphia á útivelli eftir æsispennandi framlengingu. Karl Malone skoraði 28 stig fyrir Utah en hjá 76'ers skoraði Mark Davis 24 stig sem tapaöi þama sínum 9. leik i röð. Charlotte haföi betur í framlengingu i Denver. Aö loknum venjulegum leik- tíma var staðan jöfh, 100-100, en i fram- lengingu voru aðeins skoruð tvö stig, sem er það lægsta í sögu NBA frá upphafi, og þau gerði Tony Smith fyrir Charlotte. Glen Rice var stigahæstur hjá Charlotte með 25 stig en hjá Denver skoraöi Laphonso Eilis 23 stig. /Jonzo Mouming átti stjömuleik fyr- ir Miami gegn Washington, skoraöi 32 stig. Cnristian Leattner geröi 25 stig fyr- ir Atlanta gegr. Cleveland. Orlando vam' góðan sigur í New Jersey. Rony Seikaly skoraði 29 stig fyr- ir Orlando. Dallas réði ekkert við Cedric Ceballos hjá Phoenix, sem skoraöi 26 stig og tók 12 fráköst. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.