Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1997, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1997, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 Fréttir J3V Ný skýrsla sem unnin var fyrir Verkamannasambandiö: Skuldir heimilanna hafa aukist um 259 prósent - og tekjuójöfnuður aukist um allt að 22 prósent frá því árið 1986 Kristján Bragason hefur unnið skýrslu fyrir Verkamannasamband íslands um þróun tekjuskiptingar á íslandi frá árinu 1986 til 1996. Þar kemur i ljós að skuldir heimilanna hafa aukist um 259 prósent að raun- virði á þessu árabili. Þær nema nú 342,9 milljörðum króna en námu 132,1 milljarði árið 1986. Samkvæmt skattaframtölum hefur þeim framteljendum sem skulda um- fram eignir fjölgað mikið. í fyrra taldist þessi hópur vera 23.145 manns og hafði þá fjölgað um 4,7 pró- sent milli ára. Árið 1988 voru 11.212 framteljendur með neikvæðan eign- arskattsstofn og 20.509 árið 1993. Þegar ástandið er skoðað sérstak- lega hjá hjónum og fólki í sambúð, sem telur sameiginlega fram til skatts, kemur fram að árið 1995 voru 9.800 hjón annaðhvort eignar- laus eða með skuldir umfram eign- ir. Sambærilega tala frá 1993 er 8.600 hjón. I skýrslunni segir að síðastliðin 10 ár hafi ójöfnuður aukist hvað varðar dreifingu atvinnutekna. Þeg- ar teknir eru allir aldurshópar sam- an hefur tekjuójöfnuður aukist um 9,3 prósent á þessu 10 ára tímabili. Ef tekinn er út úr aldurshópurinn 25-65 ára hefur ójöfnuðurinn aukist um 5,6 prósent en ef litið er á hjón á aldrinum 25-65 ára hefur ójöfnuður- inn aukist um 22 prósent. Þróun ráðstöfunartekna er líka tekin fyrir árin 1993, 1994 og 1995. Þar kemur í ljós að ráðstöfunartekj- ur hjóna hafa aukist um 4,32 pró- sent að meðaltali á þessu árabili. Á sama tímabili hafa ráðstöfunartekj- ur tekjulægri helmingsins vaxið um 3,51 prósent en ráðstöfunartekjur tekjuhærri hópsins um 5,12 prósent að meðaltali. Segir í skýrslunni að á þessum tölum megi glöggt sjá að launabil í þjóðfélaginu hafi aukist undanfarin ár. í lok skýrslunnar segir að í ljósi þessara upplýsinga hafi stefnu- mörkun Verkamannasambandsins í komandi kjarasamningum verið sú að hækka lægstu taxta í 70.000 krón- ur á mánuði en hækka önnur laun minna. Með því ætti að vera tryggt að verðbólgan fari ekki af stað á ný. -S.dór Skólasetrið í Hvalfirði: Stefnir í rétta átt DV, Vesturlandi: „Starfsemin gekk þokkalega á síðasta ári og mun betur en árin tvö þar á undan. Tap félagsins á rekstrinum 1996 var um þriðjung- ur þess sem var 1995, þannig að nú stefnir í rétta átt. Þaö er þó ljóst að af hugmynd um skólabúðir, þar sem íslensk og norræn ungmenni hittast og kynnast, getur ekki orð- ið. Ástæðan er margir samverkandi þættir og m.a. að á þeim tíma sem byggingin var tekin í notkun voru stjórnvöld þegar farin að huga að því að koma skólamálum til sveit- arfélaganna í landinu og því ekki tilbúin að styrkja hugmyndina þegar til átti að taka. Þess vegna var starfseminni beint inn á þá braut að fá hingað hópa eldri borg- ara sem vildu fræðast um ísland og ferðast um landið,“ segir Völundur Þorgilsson, framkvæmdastjóri Heima á Hvalfjarðarströnd, áður Norræna skólasetrið. Hann hóf störf þar 1. maí 1996. Dagskrá Norræna skólaseturs- ins hefur þess vegna verið byggð upp með þennan aldurshóp í huga og koma hingað á árinu hópar frá Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Finn- landi, Þýskalandi, Ítalíu og Banda- ríkjunum, auk þeirra sem sóttu al- þjóðlegar ráðstefnur, námskeið og fundi sem hér voru haldnir. Þar að auki hefur verið unnið ötullega að kynningu og markaðssetningu inn- anlands og haft hefur verið sam- band við samtök í Bretlandi. Starfsmenn skólasetursins á ný- liðnu ári voru 9. Nýting á gisti- rými var um 50% og verður það að teljast gott að mati Völundar „Það er von stjórnenda að rekst- urinn 1997 verði mun hagstæðari en hingað til vegna þeirra breyt- inga sem hafa verið ákveðnar. Þær eru helstar að húsið verður gert að íbúðahóteli. Herbergjum breytt í stúdíó-íbúðir og afnotaréttur af hverri íbúð seldur. Innifalin í verði hverrar orlofshlutdeildar er skráning í RCI til þriggja ára og eftir það er eiganda í sjálfsvald sett hvort hann vill vera aðili að sam- tökunum. Það er því alveg ljóst að eigend- ur orlofshlutdeildar í Heimum eiga ekki einungis eftir að njóta sumar- dvalar á einum fallegasta staðnum á Hvalijarðarströnd, heldur einnig vítt og breitt um heiminn," sagði Völundur. -DVÓ Slasaður á Esjunni Björgunarsveitin Kjölur sótti í fyrradag mann um sjötugt upp á Esju en hann hafði dottið og meiðst á mjöðm. Maðurinn var á ferð með félaga sinum og gat sá síðarnefndi kallað eftir hjálp. Sá slasaði var ekki með mann- brodda og sagði Ingimundur Guðmundsson, félagi í Kili, að það væri mjög óskynsamlegt að fara á Esjuna án mannbrodda á þessum tíma. Hann ráðlagði mönnum enn fremur að vera ekki einir á ferð í slíkum ferðum. Maðurinn var fluttur á Sjúkrahús Reykjavíkur þar sem hugað var að meiðslum hans. -sv Þróun ráðstöfunartekna - hjóna á mánuði. Teknir eru þrír launaflokkar af tíu - ■ Lægstu laun 350.000 kr. 300.000 250.000 200.000 150.000 100.000 50.000 Mlðlungs laun ■ Hæstu laun 328.183 180.366 89.116 IPV 1993 1994 1995 350000 300000 250000 200000 342900 - frá 1986 til 1996. Skuldir I milljónum 232397 150000 n7W) 154736 172428 188684 198042 100000 50000 0 317797 300446 276991 258183 '93 '94 96 Herra Ólafur Skúlason biskup vígði nýtt pípuorgel í Kópavogskirkju á sunnudag. Orgelið er smíðað og sett upp af Bruhn & Son í Danmörku. Við athöfnina söng kór Kópavogskirkju undir stjórn Arnar Falkners, organista kirkjunnar, sem sést hér leika á hið nýja pípuorgel. DV-mynd S Álagning spilliefnagjalds hefst 1. mars Guðmundur Bjamason umhverf- isráðherra hefur ákveðið að álagn- ing spilliefnagjalds hefjist 1. mars næstkomandi. Samkvæmt lögum um spilliefnagjald, sem samþykkt voru á Alþingi í fyrra, á að koma til innheimtu gjaldsins í áfóngum á tímabilinu 1. janúar 1997 til 1. janú- ar 2001. Markmið laganna um spilliefna- gjald er að koma í veg fyrir mengun af völdum spilliefna með því að skapa skilyrði fyrir söfnun, með- höndlun og eyðingu þeirra eða end- urnýtingu. Gjaldið verður lagt á vörur sem geta orðið að spilliefnum til að standa straum af meðhöndlun þeirra. Efhi sem gjaldið verður lagt á eru meðal annars olíuvörur, málning og litarefni, lífræn leysiefni, ósoneyð- andi efni, framköllunarvökvi og fleiri ljósmyndavörur, rafhlöður og rafgeymar. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.