Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1997, Side 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997
Útlönd
Stuttar fréttir i>v
Samningaviöræðurnar um Hebron virðast vera á lokasprettinum:
Spáð að samkomulag
verði undirritað í dag
Samningamenn ísraela og Palest-
ínumanna héldu áfram viðræðum
sínum um brottflutning ísraelskra
hermanna frá Vesturbakkabænum
Hebron í nótt eftir að sprengjuhót-
un truflaði fund þeirra í gærkvöldi.
Samningamennirnir tóku upp
þráðinn að nýju á heimili Edwards
Abintons, aðalræðismanns Banda-
ríkjanna, skammt frá gistihúsinu í
Jerúsalem sem þeir þurftu að rýma í
skyndingu seint í gærkvöldi. Bjart-
sýni ríkti fyrir fyrri hluta fimdarins.
„Ég spái því að samkomulagið
verði undirritað á morgun (þriðju-
dag),“ sagði Yitzhak Mordechai, vam-
armálaráðherra ísraels, í gærkvöldi.
Nabil Abu Rdaineh, ráðgjafi Yass-
ers Arafats, leiðtoga Palestínu-
manna, sagði í morgun að samn-
ingamennimir ættu að vera fljótir
Hussein Jórdaníukóngur.
Sfmamynd Reuter
að leysa þann ágreining sem enn
væri til staðar.
Saem Erakat, samningamaður
Palestínumanna, sagði að verið
væri að ganga frá síðustu atriðum
samkomulagsins áður en þeir Yass-
er Arafat, leiðtogi Palestínumanna,
og Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, undirrituðu það.
„Við ætlum að reyna að tryggja
að við forum yfir hvert einasta orð
og hverja einustu grein samnings-
ins til að auðvelda fund þeirra Net-
anyahus og Arafats," sagði Erakat.
Samkomulag um að ísraelsmenn
afhendi heimastjórn Palestínu-
manna 80 prósent af Hebron hefur
oft virst innan seilingar á undan-
fömum mánuðum en áhyggjur af
öryggi 400 gyðinga og 100 þúsund
araba sem þar búa, svo og önnur at-
riði, hafa tafið fyrir að menn næðu
saman.
Búist er við að sjö hægrisinnaðir
ráðherrar í stjóm Netanyahus, að
minnsta kosti, setji sig upp á móti
samningnum sem veitir Palestínu-
mönnum stjóm á landi sem ísraels-
menn hertóku árið 1967.
Clinton Bandaríkjaforseti ræddi
samningaviðræðumar um Hebron
við Mubarak Egyptalandsforseta í
síma. Þá brá Hussein Jórdaníukóng-
ur sér til bæði Gaza og Tel Aviv á
sunnudag til að reyna að miðla mál-
um og fyrir milligöngu hans náðist
málamiðlun um brottflutning ísra-
elsku hermannanna. Málamiðlunin
gerir ráð fyrir að ísraelsku her-
mennirnir verði farnir frá öðrum
svæðum á Vesturbakkanum um
mitt næsta ár. Reuter
Bandaríski aevintýramaðurinn Steve Fossett hóf í nótt að íslenskum tíma aðra tilraun sina tii að verða fyrstur manna til að fljúga umhverfis jörðina í loftbelg.
Lagði Fossett upp frá íþróttaleikvangi f St. Louis í Missouri. Samkvæmt áætlun ætlaði hann að fijúga yfir lllinois, Kentucky, Tennessee og til Noröur- Kar-
ólínu í morgun. Slmamynd Reuter
Stjórnarandstæðingar fagna nýju ári:
400 þúsund gengu
um götur Belgrad
Um 400 þúsund manns gengu
um götur Belgrad í gærkvöldi og
nótt og fögnuðu nýju ári sam-
kvæmt tímatali rétttrúnaðarkirkj-
unnar. Gangan var jafnframt mót-
mælaganga gegn Milosevic
Serbíuforseta og sú fjöimennasta
hingað til frá því að mótmælin
hófust í nóvember.
Fólk blés í flautur og dansaði og
flugeldum var skotið á loft.
„Megi nýja árið boöa hamingju
fyrir okkur og alla Serbíu," sagði
Vuk Draskovic, leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar.
Fregnir bárust af slysum er fólk
þrýstist upp að veggjum vegna
mannfjöldans en ekki var í morg-
un vitað hversu alvarleg meiðslin
voru. Samkvæmt útvarpsfréttum
urðu tugir manna viðskila við
vini, maka og böm sín.
Skipuleggjendur göngunnar
buðu Milosevic forseta að taka
þátt en hann kom ekki.
Fjöldi manna safnaðist einnig
saman i öðrum borgum Serbíu í
gærkvöldi. í Nis, næststærstu
borg landsins, komu um 150 þús-
und manns saman og hlýddu á
ræður leiðtoga stjórnarandstöð-
unnar á staönum. Tugir þúsunda
gengu einnig um götur í borgun-
um Leskovac, Smederevska,
Palanka og Kragujevac. í þeirri
síðastnefndu gengu um 50 þúsund
um miðbæinn eða helmingur
borgarbúa. Reuter
Mál Paulu Jones gegn
Clinton fyrir hæstarétti
Lögmaður Bills Clintons Banda-
ríkjaforseta fór fram á það fyrir
hæstarétti í gær að frestað yrði
málaferlum gegn forsetanum þar
sem hann er sakaður um kynferðis-
lega áreitni. Vildi lögmaðurinn að
málaferlunum yrði frestað þar til
kjörtímabili forsetans lýkur þar
sem þau myndu koma í veg fyrir að
hann gæti sinnt skyldum sínum
sem forseti.
Lögmaður Paulu Jones, sem sak-
aði Clinton um að hafa áreitt sig er
hann gegndi ríkisstjóraembætti í
Arkansas, fór hins vegar fram á að
mál hennar yrði tekið fyrir nú þegar.
Jones, sem var ríkisstarfsmaður
hjá Clinton, fullyrðir að hann hafi
boðað sig á hótelherbergi á ráð-
stefnu sem haldin var á hóteli í
Arkansas 1991. Þar hafi hann áreitt
hana kynferðislega.
Clinton vísar ásökunum Jones á
Jones sakar Clinton um kynferöis-
lega áreitni. Símamynd Reuter
bug. Hún stefndi honum fyrir
tveimur árum og krefst 700 þúsund
dollara í skaðabætur. Reuter
Býdur viðræður
Stjóm sósíalista í Búlgaríu
hefur látið undan mótmælum
stjómarandstæðinga og boðist
til að ræða við þá um að flýta
kosningum í landinu til að leysa
stjómmálakreppuna.
Strætó í ána
Aö minnsta kosti einn maður
lét lífið þegar strætisvagn fór
ofan í iskalda Charles-ána í
Boston í gærkvöldi.
Enga afskiptasemi
Stjómvöld í
Kína sögðu
Páfagarði í
morgun að
vera ekki að
skipta sér af
trúmálum í
Kína, þar á
meðal af skip-
an í embætti
trúarleiðtoga þar austur frá og
af trúboðsmálum.
Lítii áhrif
Boðað allsherjarverkfall í
Suður-Kóreu til að mótmæla
umdeildri vinnulöggjöf virðist
hafa haft fremur lítil áhrif þar
sem strætisvagnar og lestar
gengu eins og venjulega.
Kjarnorkuáhyggjur
Ný-Sjálendingar hafa lýst
áhyggjum sínum af fyrirhugaðri
siglingu skips sem lagði af stað
með kjarnorkuúrgang frá
Frakklandi til Japans í gær.
Skothríð í Lima
Skothríð heyrðist í japanska
sendiherrabústaðnum í Lima,
höfuðborg Perú, í nótt, þegar
fjórar vikur vora liðnar frá þvi
skæruliðar tóku þar fjölda
manns í gíslingu.
Kofi hneykslaður
Kofi Annan,
framkvæmda-
stjóri SÞ,
sagði í gær að
hann væri
hneykslaður á
morðum
stjórnarhers-
ins í Búrúndí
á 126 flótta-
mönnum af hútúættbálkinum
frá Búrúndí sem reyndu að flýja
búðir um helgina.
Kalt í Ameríku
Miklir kuldar voru víðast
hvar í Bandaríkjunum í gær,
allt frá landamærunum að
Kanada í norðri suður til
landamæranna að Mexikó.
Naína á sjúkrahús
Naína Jeltsín, eiginkona Bor-
ís Jeltsíns Rússlandsforseta, var
flutt veik á sjúkrahús í gær.
Fjórar sprengjur
Öryggisverðir hjá aðaistöðv-
um Sameinuðu þjóðanna í New
York fundu í morgun fjórðu
bréfasprengjuna sem stíluð var
á arabískt dagblað í bygging-
unni.
Vikublað sektað
Franska
vikublaðið
Paris Match
var í gær
dæmt til að
greiða um 13
milljónir ís-
lenskra króna
í sekt fyrir að
bfrta tvær
myndir.af Francois Mitterrand,
fyrrverandi forseta Frakklands,
á dánarbeði. Blaðinu var einnig
gert að greiða nánustu ættingj-
um forsetans 13 krónur hverjum
í skaðabætur vegna myndbii*t-
ingarinnar.
Mannæta vill frelsi
Fyrrum bandarískur sögu-
kennari, sem sakaður er um að
hafa myrt, soðið og étið líkams-
hluta 18 ára unglings, berst nú
fyrir þvi að verða sleppt eftir 16
ára dvöl á geðsjúkrahúsi. Reuter