Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1997, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1997, Page 16
tilveran Þögla týpan er fallin úr tísku: Að bera áhyggjur sínar á torg Þegar ég var 15 ára gamall dó móðir mín. Ég var að koma heim úr skólanum þegar ég fékk fréttirnar, fékk mér tesopa og íhugaði þessar raunalegu fréttir. Ættingjar og vinir sögðust samhryggjast mér þegar þeir fréttu um atburðinn. Um nokkurn tíma eftir að móðir mín lést ríkti dapurleiki og vandræða- legt andrúmsloft á heimilinu. Að lokinni jarðarforinni minntust fáir á þennan atburð - á hann var litið sem sorg sem maður ætti að bera einn og í hljóði. Þannig hljóða upphafsorð greinar í nýjasta hefti tímaritsins Sunday Times Magazine. Þar er verið að lýsa atburðum sem áttu sér stað fyr- ir nokkrum áratugum. Nú er nánast óhugsandi að ferlið gangi þannig fyrir sig. í dag myndi helmingur fjölskyldunnar leita sér sálfræðings til þess að komast yfir áfallið eða bera áhyggjur sínar á torg fyrir aðra. sem opinberuðu vandamál sín eða trúðu öðrum fyrir þeim voru taldir vælukjóar. Nú er þögla týpan talin vera þverhaus og talið eðlilegt að opna sig og sín vandamál. Af litlu tilefni Óþarfi er að vera með alvarleg vandamál til þess að leita sér sál- Atvinna fjölda fólks í Bretlandi eru það tvær milljón- ir manna sem hafa persónulega ráð- gjöf eða sálarhjálp í starfslýsingu sinni. Árið 1995 var talið að 40.000 manns hefðu það að aðalatvinnu í Bretlandi og hálf milljón hafði það að hlutastarfi. Enda eru þessi störf eftirsóknarverð og vel launuð. mest seldu bókum samtíðarinnar. Breskar bækur með titla eins og „Þú getur læknað líf þitt“, „Greindu hræðslu þina og láttu bara vaða“ eða „Þú hefur ekki efni á að vera með neikvæðar hugsanir", eru met- sölubækur og seljast í milljónum eintaka. Enginn vandi er að verða háður sállækningum. í greininni 1 Tískustraumar Það er i tísku að opna hjarta sitt fyrir einhverjum, oft og tíðum laun- uðum sérfræðingum. í Bretlandi er það ört vaxandi atvinnugrein, „psychotherapy" (sállækning), og er orðin fjölmenn atvinnugrein. Það er ekki svo langt síðan sú skoðun ríkti að halda bæri öllum einkamálum og vandamálum fólks frá sviðsljósinu og sállækningar voru taldar skrýtið fyrirbæri og þeir sem þær stunduðu voru taldir meira og minna skrýtnir sjálfir. Nú er öldin önnur. Fjöldi fólks er tilbúinn að hlusta á vandamálin og greiða úr þeim, að sjálfsögðu fyrir peninga. Alls staðar er hægt að leita hjálpar við sálrænum vandamálum. Jafnvel er hægt að leita sér sálfræð- iaðstoðar eða „áfallahjálpar" ef menn vinna þann stóra í lotteríinu. Það er víst meiri háttar áfall sem nauðsynlegt er að taka föstum tök- um þegar í stað. Fólk sem lendir í því að brotist er inn hjá því, lögreglumenn sem hafa þurft að taka þátt í erfiðum skyldu- störfum, jafnvel sorptæknar, geta leitað sér sálfræðiaðstoðar vegna er- fiðra vinnuaðstæðna. Á sama hátt hefur álit fólks breyst. Þögla týpan sem bar ekki áhyggjur sínar á borð fyrir aðra þótti vera til fyrirmyndar en hinir Að leita sér sálfræðings er ekki talið tiltökumál í dag og þarf oft lítið tilefni til þess að leita á náðir hans með sín sál fræðilegu vandamál. lækninga. Manneskja sem telur sig ekki hafa höndlað hamingjuna al- mennilega í lífinu leitar sér hjálpar. Á sama hátt og góð heilsa var áður skilgreind sem sjúkdómalaus líðan þá er hún nú bólstruð með líkams- rækt, prófunum á kólesterólmagni og megrunarkúrum, án þess að nein raunveruleg vandamál séu fyrir hendi. Sá sem nú telur sig á einhvem hátt vansælan í sálarlífinu leitar sér sállæknis og fer í meðferð til að læra betur að höndla hamingjuna. Störf sem áður fyrr kröfðust samúðar fólks, þolinmæði og ná- inna tengsla við almenning eru nú meðal þeirra sem eru verst launuð í þjóðfélaginu. Þar má telja starfs- hópa eins og hjúkrunarfræðinga, kennara og þá sem sinna félags- legri vinnu fyrir hið opinbera. Er ekki miklu betra að sitja inni á eig- in skrifstofu og hlusta þar á vanda- mál fólks og reyna að greiða úr þeim fyrir há laun? Bækur um sállækningar eru með Sunday Times er getið 45 ára gam- als manns sem lenti i ástarsorg þegar hann var 27 ára gamall. Hann leitaði til sálfræðings og hef- ur gengið reglulega til hans síðan með vandamál sín. „Ég lít á sál- fræðinginn eins og tannlækninn, þangað fer maður reglulega til að halda sálarlífinu í lagi,“ er haft eft- ir manninum. Byggt á grein í Sunday Times Magazine. -ÍS Leitin að eilífu Alflestir bera þá von í brjósti að geta haldið eins lengi og kostur er í æsku sína og vilja ógjama að á sér sjáist ellimörk. í hinum vestræna heimi er fólk tilbúið til að eyða milljörðum króna til að halda i æskuímynd sína. Peningar sem eytt er í snyrtivör- ur, krem til að halda húðinni ungri eða jafnvel yngja hana, megrunarað- ferðir og snyrtiaðgerðir eins og and- litslyftingar skipta tugum milljarða. Ekki er að undra að miklum pening- um sé eytt í rannsóknir á því hvern- ig hægt er að halda í æskufegurðina eða teQa öldrunarferlið. Það er alda- gömul barátta. Margir þekktir menn hafa reynt óhefðbundnar eða bylt- ingarkenndar aðferðir til að halda í æskuna. Þeirra á meðal er ekki ómerkari maður en Píus XII. páfi sem uppi var á stríðsárunum. Hann hafði svo mikinn áhuga á að draga úr öldrun sinni (þrátt fyrir trú um eilíft líf að lokinni jarðvistinni) að hann lét sprauta sig með kirtlum úr ungum öpum í þeirri trú að það myndi lengja lífið. Líf- oy erfðafræði Vísindunum fleygir stöðugt fram og líffræðingar og erfðafræðingar eru nú farnir að taka þátt i þessari baráttu af fullum krafti. Nú er í al- vöru farið að ræða um hvort ekki megi hægja á öldrun mannsins í verulegum mæli, bjartsýnustu menn tala jafnvel um að hægt sé að lengja mannsævina um aldir. í heimi vísindanna rikir sú bjart- sýna skoðun að hægt sé að snúa á ellina innan tíðar. Ekki á þó að byggja það á hefðbundnum aðferð- um eins og kremum eða andlitslyft- ingum heldur raunverulegum lausn- um. Bent hefur verið á að í líkama mannsins sé innbyggt öldrunarferli sem hægi á allri likamsstarfsemi þegar árin færast yfir. Líf- og erfða- fræðingar eru í óðaönn að leita uppi genin sem stjóma öldrunarferlinu í líkamanum. Fram að þessu hafa til- raunir manna mest verið á dýrum, jafnvel lífverum í sinni einfóldustu mynd. Þessar rannsóknir em komn- ar lengst á veg í Bretlandi og Banda- ríkjunum. Ef einhver dettur niður á lausn- ina eða einhverja árangursrika að- ferð til að koma í veg fyrir öldran eða hægja á henni veröur sá hinn sami eflaust ríkasti maður í veröld- inni. Hvaða áhrif slík uppgötvun hefði á snyrtivöraiðnaðinn er hins vegar erfiðara að meta. Á sama hátt er uppi hávær umræða um að mannskepnan eigi alls ekki að fikta í þessum málum og það sé siðferði- lega rangt að lengja líf okkar fram yfir það sem guð eða náttúran ætl- aði okkur. Það veldur einnig mikl- um áhyggjum þegar tekið er með í reikninginn hvaða áhrif það hefði á mannfjölgunarvandamálið í heim- inum. -ÍS ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 Strákur eða stelpa Menn hafa bæði fyrr og síðar skemmt sér við að reyna að spá fyrir um eiginleika væntanlegr- ar persónu úr móðurkviði. Fyrst er þess að geta að af ýmsu þykir mega ráða hvort kona gangi með dreng eða stúlku. Sveinbörn eru sögð sprikla meira í móðurlífi en meyböm. Ef konan er mjög gild gengur hún með pilt, einkum ef strýtan : er mjög breið og íflöt. En standi hún mjög fram eins og strýta þá gengur hún með stúlku. Hægri eða vinstri Sú skoðun rikti áður fyrr að ef þykkt konunnar er meiri til : hægri hliðar gangi hún með sveinbam og öfugt. Einnig að Íhægra brjóstið stálmi meira ef kona gengur með dreng og öf- ugt. Önnur útgáfa þessa er sú að vaxi hægra brjóst ungrar : stúlku fyrr eða meir þá verði fyrsta bam hennar piltur og öf- ; ugt. Ef þunguð kona er rjóð í j andliti, einkum hægra megin, Igengur hún með sveinbarn. Hafi hún brjóstsviða um með- göngutimann gengur hún með síðhærðan dreng. Leggi menn saltmola á brjóstvörturnar leys- ist hann upp ef konan gengur með pilt en breytist ekki ef hún á von á stúlku. Hjátrúin Ein kenning um kynferði barns hljóðar svo: „Tak þvag konunnar, lát í glas og set í sólu um tvo sólarhringa. Ef konan er 1 1 Ivanfær setjast agnir á botninn eins og smálýs. Ef þær eru rauðar á lit gengur hún með sveinbam, ef þær eru svartleit- ar gengur hún með meybarn." Nefna má fleiri gamanmál og hégiljur. Ef ungbarn segir fyrr mamma en pabbi á næsta barn að verða stúlka, annars dreng- ur. Ef fyrsta bam konu var j drengur á hið síðasta einnig að verða það. Ef fyrsti gestur sem konan sér eftir að hún er kom- in á fætur er karlmaður, þá á hún að eignast dreng næst, en j væri gesturinn kvenmaöur yrði næsta barn stúlka. Segi bamið - fyrr nei en já þá á næsta barn móðurinnar að verða drengur, en stúlka ef það segir fyrr já. Nú á dögum gera læknavís- j indin það kleift nokkuð snemma á meðgöngunni að sjá hvors kyns fóstrið er, en í flest- um tilfellum kæra foreldrar sig ekki um að vita það. Almennt ríkir sú skoðun að kynferðið eigi að koma á óvart. Skýtin húsráð Hjátrúin var mikil varðandi meðgönguna. Ýmis smáatriði átti að varast til að koma í veg fyrir óæskilegt útlit eða eiginleika hjá barninu. Ef þunguð kona borðar gómfillu verður barnið holgóma. Ef konan borðar selstungu verður skarð í timgu bamsins. Ef hún borðar ýsuroð á bamið að fá ósletta húð. Ef vanfær kona borðar valslegna rjúpu eða annan fugl fær bamið valbrá, en borði hún ijúpuegg verður barnið freknótt. Ef konan drekkur heita drykki verður bamið hárlaust. Ef hún stígur yfir breima kött, verður bamið annaðhvort viðrini eða vitfirringur. Byggt á bókinni Merkisdag- ar á mannsævinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.