Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1997, Síða 23
ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997
27
Fréttir
DV svarar spurningum lesenda vegna heilsuátaksins:
Hvernig er retti
púlsinn fundinn?
- of grönnum bent á leið til að þyngjast
Sölvi ráðieggur m.a. hvernig hægt er að finna út réttan púls fyrir mismun-
andi markmiö við æfingar, þ.e. fitubrennslu, þolfimi eða til að bæta árangur.
DV-mynd ÞÖK
Við höfum gefið lesendum okkar
kost á að hringja inn spumingar á
meðan heilsuátak DV, Bylgjunnar
og World Class stendur yfir og
birtum hér svör við tveimur
spumingum sem okkur hafa
borist símleiðis (síminn er
550-5815).
Karlmaður hafði samband
og vildi vita hvemig hægt
væri að finna út réttan púls
fyrir mismunandi markmið
við æfingar og kvenmaður, ný-
bökuð móðir með barn á
brjósti, spurði hvemig hún ætti
að fara að því að þyngja sig. Hún
sagðist alltaf hafa verið grönn en nú
vera allt of grönn. Við báram spum-
ingamar undir Sölva Fannar Við-
arsson, þjálfara í World Class:
Formúla fyrir réttum púlsi
„Hámarkspúls er fundinn með
því að nota ákveðna formúlu. Tök-
um sem dæmi 25 ára einstakling
sem vill finna sinn fitu-
brennslupúls, þ.e. réttan púls sem
fær likamann til að vinna jafnóðum
úr sinni eigin fitu (brenna fitu). Það
gerir hann með því að reikna út eft-
irfarandi formúlu:
220 (slög á minútu) - 25 (aldur)
= 195 og síðan 195 x 60% (fitu-
brennslugildið) = 117.
Mismunandi gildi:
Fitubrennsla = 60%.
Þolfimi = 65-85%.
Bættur árangur = 85+.“
Hærra gildi, hraöari púls
„Allt upp fyrir þetta, þ.e. hraðari
púls en 117, og einstaklingurinn er
kominn út í þolfimi til aukins þolár-
angurs. Þolfimin er t.d. yfirleitt
kennd á púlsi sem er yfir fitu-
brennslupúlsinum. Ef viðkomandi
stefnir á maraþonhlaup fer hann
ekki yfir 70-80% púls en ef hann
stefnir að spretthlaupum fer hann
upp í 80-90% púls í mjög stuttum
sprettum. Allt undir 117 fyrir þenn-
an einstakling er hins vegar bara
meðalhreyfing," sagði Sölvi.
Hver er brennsla dagsins?
Kaloríubrennsla á klst.*
600
500
400
300
200
100
-*miöað við 68 kg manneskju sem stundar
hreyfingu á meðal- eða miklum hraða
893
900 kaloríur
800
700
Við getum þakkað það bættum
umbúðamerkingum á matvælum að
það er nokkuð auðvelt að fá ná-
kvæma mynd af því hversu margar
kaloríur við innbyrðum á dag. Það
er hins vegar ekki auðvelt að finna
út hversu mörgum kaloríum við
brennum á venjulegum degi. Það er
þó nauðsynlegt að vita hvort
tveggja, þ.e. hver brennslan er og
hversu margar kaloríur við inn-
byrðum, ef við erum að reyna að
léttast eða hreinlega viðhalda
ákveðinni líkamsþyngd.
Við fundum nýlega grein í banda-
rísku tímariti þar sem gefin er upp
sú þumalputtaregla að líkaminn
brenni tíu sinnum fleiri kaloríum á
dag en líkamsþyngdin segir til um.
Manneskja sem er 60 kíló brennir
þannig 600 hitaeiningum á dag. Við
þetta má bæta brennslu við hugsan-
lega íþróttaiðkun samkvæmt töfl-
unni hér á síðunni og finna þannig
út heildarbrennslu dagsins. -ingo
m T R A
lí |s)
Hvernig á aö þyngja sig?
„Ætli fólk að þyngja sig þarf það
að vanda til mataræðis. Ég ráðlegg
öllmn að neyta 5-6 lítilla máltíða á
dag, sama hvort viðkomandi ætlar
að þyngjast eða léttast, en sá sem
ætlar að þyngja sig ætti að auka
magnið hlutfallslega jafnt og þétt í
hverri máltíð þar til hann er búinn
að ná þeirri þyngd sem stefnt er
að. Einn stærsti gallinn við mat-
aræði fólks er að það heldur sig
við 1-3 máltíðir á dag. Það er
margbúið að sanna að líkam-
inn starfar ekki best undir
þeim kringumstæðum," sagði
Sölvi.
„Ekki borða mikla fitu, held-
ur hollan og góðan mat, saman- **
ber þær kjöt-, mjólkur- og kom-
vörur sem fyrir eru á markaðin-
um. Reynið að borða fjölbreyttan
mat, úr sem flestum fæðuflokkum,
og sem minnst af fitu. Notið t.d.
bara ólífuolíu við steikingu," sagði
Sölvi. Hann sagði að einnig væru til
ákveðin duft fyrir fólk sem annað-
hvort vildi þyngjast án þess að fitna
eða grenna sig án þess að missa
vöðvamassa. í því tilfelli ráðleggur
hann fólki að tala beint við sig.
-ingo
V /
tónlistarverðlaunin
1 « 9 • 9 • 7
íslensku tónlistarverðlaunin auglýsa eftir þátttöku vegna
afhendingar verðlaunanna fyrir starfsárið 1996.
9
Afhending fer fram þann 20. febrúar nk. en síðasti
skiladagur þátttökutilkynningar er 15. janúar nk.
9
Gjaldgengir eru allir tónlistarmenn sem á einhvern hátt
hafa verið viðriðnir útgáfu á tónlist á árinu 1996.
9
Útgefendur og ábyrgðarmenn útgáfunnar eru beðnir
að senda útgefið efni ásamt uppýsingum um
höfunda og flytjendur til:
9
íslensku tónlistarverðlaunin
Rauðagerði 27
108 Reykjavik
Nánari uppl. veita:
Eiður Arnarson s. 564-2065
póstfang: eidur atreknetis
Jónatan Garöarssons. 554-2122