Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1997, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1997, Side 27
LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1997 Kgtlönd 27 Leynimakk mefl kjarnavopn Þrátt fyrir opinberar yfirlýsingar yfirvalda í Danmörku um að þau vildu ekki kjarnorkuvopn á danskri grund vissu stjómmálamenn, emb- ættismenn og herinn að yfirvöld höfðu samþykkt geymslu banda- rískra kjamorkuvopna á Grænlandi. í skýrslu dönsku utanríkismálastofh- unarinnar, sem var gerð opinber í siðustu viku, kemur fram að leyni- makkið stóð yfir áratugum saman. Danmörk og Bandaríkin sömdu árið 1951 um vamir Grænlands. í samningum var ákvæði um að Bandaríkin gætu flutt þangað allan nauðsynlegan búnað. Þegar árið 1954 skrifuðu danskir liðsforingjar til rík- isstjórnarinnar í Danmörku og greindu frá uppsetningu sérstakrar geymslu í herstöðinni í Thule fyrir kjarnorkuvopn. Og allt fram til árs- ins 1967 fékk danska stjómin tilkynn- ingar um fjölda nauðlendinga flug- véla með kjarnorkuvopn í Thuleher- stöðinni. Hlutverk Thuleherstöðvar- innar var aðeins eitt. Þaðan átti að gera kjamorkuvopnaárásir á Sovét- ríkin. Aðeins einn sagði sannleikann Kommúnistinn Aksel Lcirsen var sá eini sem sagði sannleikann um Thule á sínum tíma. Á þingi í maí 1951 veifaði hann tímaritinu Life og sýndi þingheimi kort í blaðinu þar sem sýnd var fjarlægðin frá Thuleherstöðinni á Grænlandi til Moskvu og mikilvægra iðnaðar- svæða í Úral. Ljóst var af kortinu að nota átti Thuleherstöðina við árásir á Sovétríkin. Þáverandi utanríkisráðherra, Ole Bjom Kraft, reiddist mjög og sagði að eina markmið vamarsamningsins milii Danmerkur og Bandaríkjanna um Grænland væri að tryggja vamir Grænlands. Með þessu svari ráðherr- ans byrjaði lygamakkið um Thule. Danskir stjómmálamenn vissu þegar í lok fimmta áratugarins hvert hiutverk Thuleherstöðvarinnar var, að því er kemur fram í skýrslu dönsku utanríkismálastofnunarinn- ar. Það hefur einnig komið fram af bandarískum skjölum að Bandaríkja- menn töldu Thuleherstöðina mjög mikilvæga. I maí 1957 lýsti þáverandi forsætis- og utanríkisráðherra, H.C. Hansen, því yfir að dönsk yfirvöld myndu ekki verða við beiðni frá Bandaríkj- unum um geymslu kjarnorkuvopna á danskri grund. í ágúst 1957 fékk sendiherra Bandaríkjanna í Kaup- mannahöfn tilkynningu frá Was- hington um að kjamorkuvopn eigi að vera á Grænlandi. Heitar umræður urðu um hvort láta ætti Dani vita eða ekki. Ákveðið var að láta dönsk yfir- völd vita en á þann hátt að forsætis- ráðherrann gæti ekki neitað. í nóv- ember sama ár fór sendiherrann á fund Hansens. Sendiherrann vildi vita hvort Danir vildu fá upplýsingar yrðu kjamorkuvopn á Grænlandi. Erlent fréttaljós Nokkram dögum eftir heimsókn sendiherrans tilkynnti forsætisráð- herrann að hann hefði ekkert um málið að segja. Þar með samþykktu Danmörk geymslu kjamorkuvopna á Grænlandi. Áriö 1959 komu Bandaríkjamenn fyrir 48 kjarnorkuflaugum við Thuleherstöðina. Árinu áður geymdu þeir fiórar vetnissprengjur þar í átta mánuði. I ágúst 1959 skrifaði Jens Otto Krag utanríkisráðherra í dag- bók sína að hann hefði áhyggjur af leyfinu sem Hansen gaf Bandaríkj- unum. Reyndar vom Bandaríkin með áætlanir um að byggja risastóra her- stöð undir jöklinum á Grænlandi þar sem geyma átti 600 kjamorkuflaugar. Ekkert varð þó úr þessari áætlun. Þann 21. janúar 1968 hrapaði bandarísk B52-sprengjuflugvél með Niels Helveg Petersen, utanríkisráð- herra Danmerkur, með skýrslu dönsku utanríkismálastofnunarinn- ar um leynimakk danskra yfirvalda. fiórar vetnissprengjur um borð við Thuleherstöðina. Danir bmgðust ókvæða við en Bandaríkin minntu þá á leyfið sem þeir gáfú fyrir geymslu kjamorkuvopna og þar með flug með þau. Þann 22. janúar lýsti Krag, sem þá var orðinn forsætisráðherra, því yfir að bannið við geymslu kjarn- orkuvopna á danskri gmnd gilti einnig á Grænlandi sem og um flug yfir Grænlandi. Þann 31. maí 1968 skuldbundu Bandaríkin sig til að geyma hvorki kjamorkuvopn á Grænlandi né fljúga með þau yfir Grænland. Dönsk yfirvöld höfðu einnig lagt áherslu á að þau væra mótfallin heimsóknum bandarískra skipa með kjamorkuvopn. Utanríkisráðherra Danmerkur, Ni- els Helveg Petersen, og meirihluti flokka á þingi telja að ekki sé ástæða til að efast um að Bandaríkin hafi ekki staðið við samkomulagið frá 1968. Því sé engin ástæða fyrir stjóm- völd að láta rannsókn fara fram. Petersen bendir auk þess á að það sé stefna Bandaríkjann að játa því hvorki né neita hvort kjamorkuvopn séu um borð í herskipum þeirra. Hins vegar sé einkaaðilum frjálst að rannsaka málið. Danska blaðið Jyllands- Posten kveðst hafa undir höndum skýrslu áhafnar og skipsdagbók sem sýna að Bandaríkjamenn hefðu siglt herskip- um, búnum kjarnorkuvopnum, inn í danskar hafnir. Þann 21. júlí lagðist flugvélamóð- urskipið USS Intrepid að bryggju við Löngulínu í Kaupmannahöfn. Eftir sjö daga viðlegu hélt skipið til Skot- lands, Englands og Noregs. í nóv- ember var síðan siglt heim á leið. Af skjölum má lesa að skipið hafi losað sig við kjamorkuvopn í New Jersey, að því er kemur fram í Jyllands-Post- en. í skýrslu dönsku utanríkismála- stofhunarinnar kom fram að Jens Otto Krag forsætisráöherra hefði árið 1967 rætt um siglingar banda- rískra skipa með kjarnorkuvopn við bandaríska sendiherrann. Sá siðar- nefndi stakk upp á því að bandarísk herskip hættu heimsóknum sínum til Danmerkur en heimsóknirnar voru einkum til þess að sýna samstöðu meðal aðildarríkja Atlantshafsbanda- lagsins. Krag leist ekki á þá tillögu og lofaði þess vegna að spyrja ekki um hvort skipin væm búin kjamorku- vopnum. Þar með var bæði tekið tillit til kjamorkuvopnum á danskri grund. Bandaríkjanna og opinberu stefn- Byggt á Jyllands-Posten unnar heima fyrir sem hafnaði Vissir þú............. að hér á landi er starfandi vandaður sálarrannsóknarskóli? Q Vissir þú að hérlendis er starffæktur vandaður sálarrannsóknar- skóli eitt kvöld í viku, eða eitt laugardagssíðdegi í viku, sem venjulegt fólk á öllum aldri sækir til að fræðast um flestöll dulræn mál og lfk- umar á lífi eftir dauðann, sem og hvar ffamliðnir eru og hvers konar þjóðfélag er þar að öllum líkindum? O Og vissir þú að í þessum skóla sem komið var á fót fyrir þremur árum hafa yfir 500 ánægðir nemendur sótt fræðslu um flestar hliðar miðilssambanda við framliðna, um hvað álfar og huldufólk eru, hvað berdreymi, og mismunandi næmir einstaklingar eru, hverjar þessar 14 tegundir ólíkra miðilstegunda raunverulega eru, sem og hinar fjöl- mörgu rannsóknir sem framkvæmdar hafa verið á þessum merkilegu hlutum í dag en alltof fáir vita yfirleitt um? O Og vissir þú að sálarrannsóknir Vesturlanda eru líklega ein af ör- fáum ef ekki eina fræðilega og vísindalega leiðin, sem svarar mörgum ef ekki flestum grundvallarspumingum okkar í dag um mögulegan, sem og líklegan tilgang lífsins hér í heimi sem venjulegt fólk langar alltaf að vita meira um? Ef þú vissir það ekki, þá er svo sannarlega tími kominn til að lyfta sér upp eitt kvöld í viku eða eitt laugardags- síðdegi í viku í skóla, sem hefur hófleg skólagjöld, og fræðast um flestar hliðar þessara mála. Hvað raunverulega sé mest og best vitað á hnettinum um þessi mál í dag. Hringdu og fáðu allar nánari upplýs- ingar um slemmtilegasta skólann í bænum í dag. Svarað er í síma skólans alla daga kl. 14-19. Kynningarfundur er í skólanum ídag, kl. 14, og á þriðjudagskvöldiS kl. 20.30. Allir velkomnir. A1 Sálarrannsóknarskólinn - Mest spennandi skólinn í bænum - Vegmúla 2 s. 561 9015 & 588 6050 Þessi kona er alnafna söngkonunnar heimsfrægu. Ef hún væri ekki með rétt starfsheiti í símaskrénni þé ætti hún á hættu að vera ónáðuð af villtum aðdáendum Bjarkar Guðmundsdóttur söngkonu. Björk Guðimmdsdóttir landslagsarkitekt Símaskráin 1997 verður í einu bindi og mikil áhersla lögð á að hún innihaldi sem réttastar upplýsingar. Rétthafar síma - jafnt einstakiingar sem fyrirtæki - þurfa sjálfir að óska eftir öðrum breytingum en þeim sem orsakast af flutningi. Vinsamlegast athugið skráninguna og sendið inn breytingar ef með þarf hið fyrsta. Eyðublað er á blaðsíðu 30 í Símaskránni 1996. Upplýsingar eru veittar í síma 550 6620 og faxnúmer er 550 6629. Rétt skal vera rétt! PDSTUR OG SÍMI HF 1997

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.