Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1997, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1997
7
_________________________________________Fréttir
Samherji var stofnaöur í Grindavík 1972:
Þátttaka fýrirtækisins
í atvinnurekstrinum jákvæð
- segir Jón Gunnar Stefánsson, bæjarstjóri í Grindavík
pv Sandkorn
Landakotog
Vatnsendi
Akureyringar eru ofl fljótir til
með uppnefnin, verði einhverjum
eitthvað á eða skilji sig frá fjöld-
anum og á þetta bæði við um menn
og málleys-
ingja. Á dög-
unum rak á
íjörur þessara
orðasmiða en
þá komst upp
að á einum
veitingastað
þar í bae
hafði áfengi
verið blandað
með vatni en
á öðrum er
grunur um
að landi og
spíri hafi verið seldur sem vodka.
Þessir staðir fengu samstundis ný
nöfn. Annar þeirra, sem reyndar
hefur nú verið lokað tímabundið
a.m.k., er nú kaUaður Vatnsendi en
hinn Landakot. í framhaldi af þessu
má nefna að tveir veitingamenn á
Akureyri, sem þykja halda nokkuð
fast um peningapyngjur sínar og
eyða litlu í óþarfa, ganga undir
nöfnunum Fimmkall og Tikall.
Ekki allir svona
Sumum bændum þykir sem sjón-
varpsstöðvamar séu óþarflega dug-
legar við að grafa upp víös vegar
um landið bændur sem hafa „setið
eftir“. Oftar
en ekki eru
þetta einbúar
sem „hnýta
bagga sína
ekki sömu
hnútum og
samferða-
mennirnir",
svo að notuð
sé vinsæl
setning þegar
þessir menn
eru kynntir
alþjóð, og
ekki skemmir fyrir séu þeir sem
óþrifalegastir. Bóndi, sem sand-
komsritari ræddi við, sagðist hrein-
lega óttast að fólkið á götunni færi
að ímynda sér að allir bændur
væru svona og lagði á þaö áherslu
að svo væri alls ekki, sem ku vera
satt og rétt. Bóndinn sagði að sér
hefði ekkert litist á blikuna á dög-
unum þegar einn þessara einbúa
var á skjánum og fór höndum um
heimasmíðaða skammbyssu og
skaut úr henni, ekki síst þar sem
svo virtist sem sjónvarpsmenn
hefðu „hellt upp á“ einbúann áður.
Spennan
magnast
Það er fjóst að spennan á toppi 1.
deildarinnar í handbolta fer vax-
andi og má m.a. sjá það í aukinni
taugaspennu leikmanna og forráða-
manna lið-
anna. Ekki
hefur tauga-'
veiklunin þó
orðið eins
áberandi og
þegar til
handalögmála
kom milli Aft-
ureldings-
mannanna
Bjarka Sig-
urðssonar og
Sebastians Al-
exanderssonar í leikhléi í leik
þeirra gegn KA svo ganga varð á
milli þeirra. Þá var ekki alltaf nein
lognmolla við varamannabekk Aft-
ureldingar þar sem Einar Þorvarö-
arson þjálfari ræður rikjum.
Gat ekki ropað
Skíðagöngumaðurinn Daníel Jak-
obsson var í viðtali við Múla í
Ólafsfirði á dögunum. Sagði hann
þar m.a. frá þátttöku sinni í 30 km
göngu á sænska meistaramótinu
fyrir skömmu
en þar hafh-
aði hann í 14.
sæti. Daníel
segist lengi
vel hafa verið
i 7. sæti en
orðið að
stoppa til að
kasta upp.
Ekki segir
hann það
hafa verið
vegna þreytu
heldur þurfi að drekka mikiö í
svona göngu og þá komi loft með
drykknum. Það sem gerst hafi verið
var að hann fékk loft í magann og
náði aldrei að ropa því upp. Það er
margt bölið þegar menn eru að ves-
enast í íþróttunum.
Umsjón Gylfi Kristjánsson
DV; Suðurnesjum:
„Þátttaka Samherja hf. í atvinnu-
rekstri í bænum er mjög jákvæð og
eykur bjartsýni um betra atvinnuá-
stand. Þær hafnarframkvæmdir
sem eru fram undan og hefjast á
þessu ári eru örugglega ástæðan
fyrir því að Samherjamenn sáu sér
hag í að koma hingað. Það sama
verður um fleiri fyrirtæki þegar
fram líða stundir," sagði Jón Gunn-
ar Stefánsson, bæjarstjóri í Grinda-
vík, við DV.
Fyrir skömmu náðu meirihlutaeig-
endur Fiskimjöls og Lýsis hf. í
Grindavík og Samherji samkomulagi
um að skiptast á hlutabréfum í félög-
unum. Þessi skipti á hlutabréfum eru
ígildi sameiningar fyrirtækjanna.
Fyrsti áfangi hafnarframkvæmda
við innsiglinguna í Grindavík verð-
ur boðinn út á næstu dögum og á að
ljúka í september á þessu ári.
Forráðamenn Fiskimjöls og Lýsis
telja sig nú hafa komið Samherja-
mönnum til uppruna síns. Þann 26.
apríl 1972 hélt hópur manna fund um
stofnun Samherja hf. og var heimili
félagsins og vamarþing í Grindavík.
Þeir voru 21 í hópnum og gerðust all-
ir hluthafar ásamt 5 fyrirtækjum sem
lögðu fram hlutafé. Stærstu hluthafa
voru Útgerðarfélagið Barðinn, Amar-
vík, Hraðfrystihús Þórkötlustaða,
Hraðfrystihús Grindavíkur og Fiski-
mjöl og Lýsi. Rúmum áratug síðar
var Samherji hf. seldur til Akureyrar
og togarinn Guðsteinn varð Akureyr-
in EA 10. -ÆMK
fískibolU
Vágtverð
AvaUt
og olrntlign
f
Tilboðin gilda mánudag og þriðjudag
HAGKAUP
NtfPPogfersfc